Morgunblaðið - 03.03.1962, Page 3

Morgunblaðið - 03.03.1962, Page 3
Laugardagur 3. marz 1962 MORGLISBLAffltt 3 STAKSniNAR Lúðvík brást beim Tveir slökkviliðsmenn beina vatnsbuftunni að eldinum. Sjá má að vatnið hefur frosið á klæðum þeirra. (Mynd* irnar á síðunni tók Sveinn Þormóðss. fyrir Morgunblaöið). Haukur Óskarsson kemur brillantine og rakspíraflöskum fyrir í farangursgeymslu Volkswagenbíls, en þessum varn- ingi var bjargað úr rakarastofunni. Fólk bjargast fáklætt úr eldsvoða í miðbænum 50 slökkvíliðsmenn með sex brurtabíla barðust við eldinn í tvo tíma LIÐLEGA fimmtíu slökkvi- liðsmenn börðust við elds- voða í tvær klst. í fyrrinótt, er eldur kom upp í húsinu nr. 6 við Kirkjutorg. Slys urðu ekki á mönnum, en þarna bjuggu 15 manns, sem nú eru heimilislausir. Bjargaðist sumt fólkið fáklætt út úr hús inu og nokkrir misstu allt sitt. Eldurinn kom upp á þriðju hæð hússins, og magn aðist skjótt. Alls komu sex brunabílar á staðinn auk tveggja stigabíla frá Rafveit- unni. Var gífurlegu vatns- magni dælt á eldinn, frá bil um, vatnshönum og loks var dælt vatni úr Tjörninni. Fréttamenn og ljósmyndari Mbl. voru staddir á staðnum og fylgdust með slökkvistarf inu, en nánari atvik fara hér á eftir. Elzta tvílyfta húsið. Þannig hagar til, að tvö hús bera ' númerið 6 við Kirkjutorg. Er annað þeirra þrílyft og sambyggt Kirkju- hvoli annars vegar en tví- lyftu húsi, einnig nr. 6, hins vegar. Mun tvílyfta húsið vera hið elzta sinnar tegund ar hérlendis. í þrílyfta húsinu, sem eldur inn kom upp í, er neðst rak- arastofa Hauks Óskarssonar, eins eigenda húsanna. Bæði húsin átti á sínum tíma Árni Nikulásson, rakari, en eignin hefur nú skipzt á milli margra erfingja. Á neðstu hæð hússins var einnig hluti af íbúð Ágústs Jónssonar, en hinn hlutinn var í tvílyfta húsinu og dyr á milli húsanna. Á annari hæð þrílyfta hússins bjó Krist Slökkviliðsmenn bera rakarastólana út af rakarastofunni á neðstu hæð. mann Eiðsson og fjölskylda. Á þriðju hæðinni, þar sem eldurinn kom upp bjuggu þeir Sigurður Sigurðsson, lögreglumaður og Pétur Hoff mann Salómonsson. í risi hússins bjó eldri kona, Ing veldur Ólafsdóttir, en á efri hæð tvílyfta hússins Frið- þjófur Óskarsson. Eldur í bréfakörfu. Samkvæmt upplýsingum rannsóknarlögreglunnar kom eldurinn upp í herbergi Sig urðar Sigurðssonar. Hafði hann komið heim á milli kl. hálf þrjú og þrjú um nóttina, eftir vinnu. Fór Sigurður ekki strax að sofa heldur sett ist í stól, las og reykti eina eða tvær sígarettur. Drap hann í þeim í öskubakka, sem stóð á borði og lagðist síðan til svefns. Skömmu síðar hrökk hann upp við að eldur var kominn í bréfakörfu, sem stóð við áð urnefnt borð, og hafði einnig læst sig í gluggatjöld skammt frá. Þannig hagaði til að bréfakarfan stóð rétt við dyrn ar. Þaut Sigurður upp úr rúminu, komst að dyrunum og gat opnað þær. Komst hann þannig út úr hgrberginu á nærklæðum einum. Vakti hann Pétur Hoffmann þegar í stað og fóru þeir síðan og vöktu Ingveldi, sem bjó í ris inu. Bjargaðist hún einnig fá klædd út. Ingveldur er ein- stæðingur og missti hún all ar eigur sínar í brunanum, og Sigurður sömuleiðist. Hélt fólkið á neðri hæðina til Kristmanns Eiðssonar og vakti fólkið þar. Var þegar hringt í lögreglu og slökkvi- liðið, en síðan var ekki um annað að ræða en að forða sér út úr húsinu. Um eldsupptökin er það að segja að rannsókn er ekki enn lokið. Mestar líkur eru taldar á því að kviknað hafi í út frá sígarettu, en þarna var einnig standlampi, sem Sigurður hafði kveikt á, og telur sig hafa slökkt á með rofanum á lampanum sjálf- um er hann fór að sofa, en ekki tekið hann úr sambandi. Dælt úr Tjörninni. Kl, 3:24 komu boð á slökkvistöðina um að kvikn- að væri í húsinu, og logaði eldur út um tvo glugga á þriðju hæð hússins. Var brugðið hart við og fóru fjór ir bílar á staðinn. Var strax byrjað að dæla vatni á eld- inn af háþrýstibíl og jafn- framt lagðar slöngur að vatns hönum í Lækjargötu, Skóla- brú og Pósthússtræti. Enn- fremur var dælu komið fyrir við Tjörnina og lagðar það an slöngur að húsinu. Þá komu á staðinn tveir bíl ar frá slökkviliðinu frá Reykjavíkurflugvelli og var annar þeirra notaður við slökkvistarfið en hinn hafð ur á staðnum til vara. Á slökkvistöðinni sjálfri voru tveir bílar og fjórir slökkvi- liðsmenn ef útkall kæmi á meðan á slökkvistarfinu stæði. iÍiíiSiK&l Kristmann Eiðsson, einn þeirra sem misstu heimili sitt, horfir á eldsvoðann í fyrrinótt. Gífurlegt vatnsmagn. Geysilegur eldur var á efstu hæðinni, og í fyrstu virtist sem vatnsmagnið, sem dælt var á hann, hefði lítið sem ekkert að segja. Tók um tvo tíma að ráða niðurlögum eldsins, og var gífurlegu vatnsmagni dælt á hann úr a.m.k. 10 slöngum. Rann vatn ið niður á neðri hæðirnar og og flæddi út um dyr rakara stofunnar á neðstu hæðinni líkt og á. Frost var töluvert, og fraus vatnið á malbikinu og gerði töluverða hálku. *— Ennfremur fraus vatn það, sem úðaðist á slökkviliðs- menn, og voru margir þeirra klakabry nj aðir. Til dæmis um vatnsmagnið, sem dælt var á bálið , má geta þess að í gærmorgun varð að bera salt á Kirkjutorg ið til þess að umferðinni staf aði ekki hætta af svellbunk- unum Þá er þess að geta að tveir stigabílar komu frá rafveit- unni og aðstoðuðu þeir við slökkvistarfið. Kirkjuhvoll varinn. Er eldurinn brauzt upp um þakið á húsinu fóru slökkvi liðsmenn upp á þakið á Kirkjuhvoli, sem er múrhúð að timburhús til þess að koma 1 veg fyrir að eldurinn Framh. á bls. 22. Einar Ö. Björnsson frá Mýnesi ritar í gær grein í Tímann, þar sem því er mjög haldið fram, að Lúðvík Jósefsson hafi brugðizt hrapallega þeim „vinstri mönn- um“ innan hins svokallaða Al- þýðubandalags, sem trúðu því að hann væri andstæður Moskvu- kommúnistunum í flokknum og reiðubúinn til þess að eyða áhrif um þeirra. Greinarhöfundur kemst m. a. að orði um þetta á þessa leið: „Ég lét tilleiðast að fylgja Al- þýðubandalaginu í kosningunum 1956 í von um að Lúðvík stæði við þau orð sína að gera upp við kommúnistana I Sósíalista- flokknum, eins og hann orðaði það, þegar hann var að leita sér kjörfylgis fyrir kosningarnar 1956. Þá sagði hann okkur að gera þyrfti upp við Brynjólfslið- ið í flokknum. Síðan eru liðin átta ár, Lúðvík búinn að rera ráðherra i vinstri stjórn, tvö þing Sósíalistanna hafa verið haldin en uppgjör Lúð víks við kommúnistana ógert. Nú treður Lúðvík marvaðann í harða kommúniistakjarnanum í Sósíalistaflokknum, uppvís að því að hafa brugðizt öllum þeim mörgu fylgjendum Alþýðubanda- lagsins, sem töldu að hann yrði maðurinn, sem leiddi Alþýðu- bandalagið inn á innlendar braut ir í þjóðmálum“. Vesalings Einar frá Mýnesi, Hann hefur greinilega látið trúna á Lúðvík hlaupa með sig í gön- ur. En það er góðra gjalda vert að hann sér nú loks, hversu von- laust það er að treysta á and- stöðu Lúðvíks Jósefssonar við Moskvukommúnistana. Hatiin er sjálfur einn af þeim. Skiptir um lit eins og kamelljónið! Greinarhöfundur deilir síðar i greininni harðlega á Lúðvík fyrir grein hans í Þjóðviljanum um daginn, um samnimgana við vinstri menn. Kemst hann þar m. a. að orði á þessa leið: „Lúðvík hefði átt að hafa vit á því að þegja um þessi mál, ef hann vildi komast hjá því að aug- lýsa sjálfan sig. Nú er hæpið fyr- ir hann að reyna að skipta um lit eins og kamelljóniið. Rétthverf an á honum hefur nú loksins komið fram í dagsljósið“. Ætli það sé nú alveg öruggt?! Einar frá Mýnesi dcilir Ioks barðlega á Lúðvík og félaga hans í kommúnistaflokknum fyrir að hafa ekki tekið undir mótmæli Alþingis gegn risakjarnorku- spremgingum Rússa s.I. haust. Hringlandaháttur Framsóknar Alþýðublaðið bendir á það I forystugrein sinni í gær, að það var utanríkisráðherra Framsókn- arflokksins. dr. Kristinn Guð- mundsson, sem gaf út sjónvarps- leyfi fyrir varn- arliðið á Kefla- víkurflugvelii fyrri hluta árs 1955. Nú þætt- ust Framsóknar menn hinsvegar vera skeleggir andstæðingar þessa sama sjónvarps. Lýkur for ystugrein Alþýðublaðsins un þetta á þessa leið: „Þessi dæmi um hringlandahát Framsóknarflokksins sýna ná kvæmlega, hvernig sá flokkm hegðar sér. Utanríkismál eru höf< að leiksoppi og flokkurinn hrinj snýst eftir því, hvort hann er stjórn eða stjórnarandstöðu. En meðal annarra orða: Hver á dr. Kristinn að gjalda hji flokksbræðrum sínum, ef þei keppast um að gera öll hans stör ómerk?“ l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.