Morgunblaðið - 03.03.1962, Page 23
Laugardagur 3. marz 1962
MORGTJNBLAÐIÐ
23
Narfi fékk ágæta
veiði við Grænland
Skipverjar sáu nær engan ís á miðunum
Helgl Kjartansson
skipstjóri á Narfa.
— Sendiherra
Framhald af bls. 1.
nauðsynlegt sé að sendiherrann
Ikomi nú þegar til Bonn til að
ekýra mál sitt Og er hann beðinn
að gefa engar yfirlýsingar um
naálið að svo stöddu. Þegar skeyti
jþetta var birt fréttamönnum,
spurði einn þeirra blaðafulltrúa
ríkisstjórnarinnar hvort það væri
venja að birta slíkar orðsending-
ar. Blaðafulltrúinn svaraði því að
ekeytið væri birt samkvæmt sér
etakri ósk Adenauers.
— ★ —
Fyrr I dag var skýrt frá því í
Bonn að Króll hefði óskað eftir
iþví að utanríkisráðuneytið þar
Ihöfðaði mál gegn tveim vestur-
þýzkum dagblöðum, sem höfðu
ráðizt á Kroll fyrir ummæli höfð
eftir honum í viðtali við frétta-
jnenn í Bonn. Þar á hann að hafa
jnælt með því að Vestur-Þýzka-
land viðurkenni Oder-Neisse
landamærin milli Póllands og
Þýzkalands. samþykki aðild bæði
Vestur- og Austur-Þýzkalands að
Sameinuðu þjóðunum, rjúfi
Ctjórnmálatengsl Vestur-Þýzka-
lands Og Vestur-Berlínar Og láni
Sovétríkjunum 10 milljarða
inarka. Utanríkisráðuneytið hef-
tir áður beðið Kroll að skýra
þessi ummæli sín og í kvöld var
ekýrt frá því að borizt hefði sím-
eend skýrsla sendiherrans um
málið.
EINI islenzki togarinn, sem
um langan tíma hefur farið
til veiða við Grænland, er
Narfi, sem í vikunni kom
heim með 261 tonn af karfa
og þorski. Skipstjóri á Narfa
er Helgi Kjartanssson, sem áð
ur var með Úranus, og er
þaulkunnugur á Grænlands-
miðum. Við hittum Helga að
máli í gær og spurðum hann
um þessa veiðiferð, sem hann
segir að eiginlega hafi verið
farin í tilraunarskyni, þar eð
Þjóðverjar hafa undanfarið
verið að veiðum við Vestur-
Grænland, bæði á stórum og
smáum skipum, allt frá 3 þús.
tonna skipum og niður í 600
tonna skip og fiskað veL
Narfi fór héðan 8. febrúar
og lenti því í vonda veðrinu,
þegar Elliði fórst. Var skipið
þá statt á milli Grænlands og
íslands, en þar var mikil veð
urhæð. Var andæft meðan
veðrið var mest, og reyndist
skipið í alla staði vel og ekk
ert kom fyrir það.
Þegar skipið átti eftir 190
mílur til Hvarfs sáu skip-
verjar allmikinn hafís, en aft
ur á móti urðu þeir ekki var
ir við is við Vesturströnd
Grænlands allt frá Hvarfi og
um 400 mílur norður með
ströndinni, þar sem þeir voru
að veiðum. Á leiðinni heim
sáu þeir þó jaka, er þeir áttu
eftir 140 mílur í Hvarf, enda
fer að bera á rekís, þegar
kemur fram á.
Narfi fékk víða allgóðan
afla. Fékkst frá einum og upp
í fjóra poka í „holi“. Það var
vænn fiskur, bæði karfi og
þorskur. Það sem aðallega
tafði veiðamar var hve frost
ið var mikið, 5—17 stig. Af
þeim sökum gátu skipverjar
ekki tekið nema lítið af fiski
í einu á dekk og urðu síðan
að hætta til að gera að aflan
um, svo hann stokkfrysi ekki.
í frostlausu veðri hefði því
verið hægt að fiska miklu
meira.
Yfirleitt gekk veiðiferðin
vel, utan þess hve fyrrnefnt
óveður tafði siglinguna á mið
in, sem tók 6 daga. Var tog-
arinn aðeins 9 sólarhringa að
veiðum, en fékk aftur storm
við Nunarsint (Cape Desolat
ion), svo að heimferðin tók
4 sólarhringa. Meðan hann
var á veiðisvæðinu var eng-
inn stormur, nema í skamman
tíma einu sinni.
Kvaðst Helgi álíta að ís-
lendingar geti vel stundað
þarna veiðar á vissum tímum
vetrarins, alveg eins og á
sumrin. En til þeirra veiða
þurfi að hafa stærri diesel-
skipin, sem hafa nægan eld
neytisforða. En á minni skip
unum, sem ekki hafa nægileg
an olíuforða sé það ekki ger
legt.
— Burma
— Alsír
Framhald af bls, 1.
til Alsír. Er þetta sérstaklega
þjálfað lið til að vinna gegn
skæruliðum OAS eftir að friður
Ihefur verið saminn í Alsír. Tals-
vert er tekið að bera á samtökum
gegn OAS mönnum í París og
hafa samtökin dreift flugritum
um borgina með árásum á OAS
*>g þingmönnum róttækra hægri-
manna. Fjórar plastsprengjur
voru sprengdar i París í dag,
tvær þeirra hjá vinstrisinnuðuim
dagblöðum.
tTm 600 prófessorar við Sor-
honne háskóla og fjöldi vísinda-
manna hafa ritað de Gaulle for-
eeta bréf og mótmælt aðferðum
þeim, sem beitt er í baráttunni
gegn ofbeldisverkum og neðan-
jarðarstai'fsemi í Alsír. Segir í
bréfinu að ekki megi skerða
mannréttindin og að sá, sem geri
6ig sekan um pyntingar, fremji
glæp gagnvart samfélaginu. Frels
ásskerðing, sérstaklega skerðing
é skoðanafrelsi, er ekki nauðsyn-
leg. segir í bréfinu. Lýðræðisríki
verður að byggja á virðingu fyrir
lögunum. Það hættir að vera til
þegar gripið er til þess af yfir-
lögðu ráði að brjóta lögin með
valdbeitingiu
Aðalfundur
Verkalýðsfélags
Akraness
Akranesi 28. febrúar,-
AÐALFUNDUR Verkalýðsfélags
Akraness var haldinn sl. sunnu-
dag. í upphafi fundar minntist
formaður félagsins Guðmundur
Kr Ólafsson hinna föllnu sjó-
manna, er látið hafa lífið í hin-
um hörmulegu sjóslysum að und-
anförnu. Risu fundarmenn úr
sætum og vottuðu hinum látnu
virðingu.
Formaður skýrði síðan frá
helztu verkefnum á sl. ári.
Hálfdán Sveinsson fyrrverandi
formaður las upp reikninga og
skýrði þá. Tekjur reyndust 116
þúsundir króna en gjöld 76 130,00
Nemendasýning
á leirmunum
NÚ UM helgina verða til sýnis
leirmyndir barna í Regnbogan-
um í Bankastræti. Myndir þess-
ar hafa nemendur Myndlista-
skólans í Reykjavík gert í barna
deildum skólans í vetur. undir
leiðsögn Odds Björnssonar. All-
ir munirnir eru úr íslenzkum
leir og eru þeir brenndir hjá
Glit h.f. Mikil aðsókn hefur ver-
ið að skólanum í vetur. Nú um
mánaðarmótin hefst nýtt nám-
skeið í barnadeildum skólans.
Skólinn átti 15 ára afmæli á
síðasta ári. f því tilefni hafa skól
anum borizt bókagjafir frá Bóka-
búð KRON, Bókaverzlun Snæ-
bjarnar Jónssonar Og Bókaverzl-
un Máls og menningar. Málverk
frá franska málaranum Claude
Blin. Einnig afhenti Ragnar Jóns
son skólanum að gjöf málverk
eftir Þorvald Skúlason í hófi sem
skólinn hélt velunnurum sínum
nýverið.
Los Angeles, Kaliforníu
2. marz (NTB)
• Óttazt er að flugvél af gerð-
inni U-2 hafi íarizt í æfingaflugi
í gær. Hún var væntanleg til
Edwards ílugvallarins í Kaliforn-
íu kl. 9 í gærkvöldi en hefur ekki
kömið fram. Vélin er af sömu
gerð og sú, seim Powers flug-
maður flaug yfir Sovétríkin í maí
1960 er nann var skotinn niður
og handtekinn.
Swansea, Wales, 2. marz AP
• Sex bólusóttartilfelli hafa
fundizt í héraðinu umhverfis
Cardiff í Wales í þessari viku og
voru 36 læknar önnum kafnir í
dag við að bólusetja alla íbúa hér
aðsins.
kr. Eignir élagsins nema nú 352
þúsundum króna.
Samþykkt var stofnun styrktar
sjóðs með 10 þús. kr. framlagi úr
félagssjóði. Samþykkt var að ár-
gjald karla skyldi vera 350 kr.
og renna af því 100 kr. í stýrktar-
sjóðinn, en árgjald kvenna skal
vera 225 kr. og rennur sami
hundraðshluti af því í styrktar-
sjóðinn.
Stjórnin var endurkjörin en
hana skipa: Guðmundur Kr. Ól-
afsson formaður, Skúli Þórðar-
son ritari, Kristján Guðmunds-
son meðstjómandi, Einar Magn-
ússon varaformaður, Herdís Ól-
afsdóttir vararitari og Bjarnfríð-
ur Leósdóttir varameðstjórnandi.
— Oddur.
Framh. af bls. 1
maður féll í byltingunni og var
það elzti sonur Htaik fyrrverandi
forseta.
Talsmenn hersins segja að U
Nu forsætisráðherra hafi verið
handtekinn á heimili sínu í út-
hverfi Rangoon kl. 2 í nótt og
fluttur í varðhald. Frá heimili
U Nu var haldið heim til Sao
Shwe Htaik þar skammt frá.
Verðir við bústað forsetans hófu
þá skotríð á hermennina, og
skiptust sveitimar á skotum.
Varð þá annar sonur forsetans
fyrir skoti og beið bana. Htaik
varð fyrsti forseti Burma eftir
að landið öðlaðist sjálfstæði ár
ið 1948.
U Nu forsætisráðherra hefur
verið talinn einn fremsti tals-
maður hlutleysisstefnunnar í
Asíu. Hefur hann átt nána sam-
vinnu með Nehru forsætisráð
herra Indlands í þeim málum.
U Nu er Búddhatrúar og and
vígur hverskonar valdbeitingum.
Þegar hann kom í heimsókn til
Peking flutti hann ræðu þar sem
hann lofaði mjög Bandaríkja-
menn og er hann heimsótti Wash
ington flutti haxm samskonar lof
ræðu um Kínverja.
Ne Win hershöfðingi er kín
versk' ættaður og heitir réttu
nafni Chu Maung. Hann tók sér
nafnið Ne Win, sem þýðir geisl
andi sól, er hann stjórnaði
Burmaher í frelsisbaráttu lands
ins fyrir fimmtán ámm. Han var
forsætisráðherra Burma 1958—
1960.
í frétt frá Washington er sagt
að þar sé litið á byltinguna í
Burma sem hreint innanríkis-
mál. Breyti hún í engu afstöðu
Bandaríkj anna til landsins.
Æ SHAM
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆDISMANNA ^ j tV
I -HSÁ
E'&A MLT lö I ISIL* *"
Borgames um helgina
Nómsheið SUS um sveitarsljórnurmúl
WTSTJÓRAR: BIRGIR lSL GUNNARSSON OG ÓLATUR EGILSSON
UM HELGINA verður haldið í Borgarnesi námskeið
á vegum Sambands ungra Sjálfstæðismanna og
verða sveitarstjórnarmál tekin þar til meðferðar.
Dagskráin verður sem hér segir:
Laugardagur 3. marz
Hádegisverður.
Námskeiðið sett: Þór Vilhjálmsson, form. SUS.
Erindi: Skipulag sveitarstjórnarmála (Ásgeir
Guðlaugur Pétursson sýslumaður)
Kl. 15 Erindi: Fjáröflun sveitarfélaga til framkvæmda
og þátttaka ríkissjóðs (Jónas Rafnar,
, alþingism., bæjarfulltrúi á Akureyri).
Kl. 16 Kaffidrykkja.
Kl. 17 Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 19.30 Kvöldverður.
Sunnudagur 4. marz
KI, 9—11 Morgunverður.
jónas K1‘ 11 Erindi: Verkefni sveitarfélaga (Geir Hallgrims-
son borgarstjóri).
KI. 12.30 Hádegisverður.
Kl. 14 Erindi: Tekjustofnar sveitarfélaga (Guðlaugur
Gislason bæjarstjóri).
Kl. 15 Erindi: Stjómmálin og sveitarfélögin (Alfreð
Gíslason bæjarstjóri).
Kl. 16 Kaffidrykkja. Námskeiðinu slitið.
Umræður og fyrirspurnir verða á eftir hverju erindi.
Hópferð verður frá Valhöll í Reykjavík kl. 9 f. h.
í dag og frá Borgarnesi til Reykjavíkur á morgun kl. 17.
Geir
I
Alfreð