Morgunblaðið - 04.03.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.03.1962, Blaðsíða 6
6 Simnudagur 4. marz 1962 MORGVTSBLAÐIÐ er dslegna Vestmannaeyinga Rætt við Ársæl Sveinssoi; útgerðarmann um Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja FRETTAMAÐUR blaðsins hitti nýverið Ársæl Sveins- son útgerðarmann í Vest- mannaeyjum, en hann sat Fiskiþing hér í Reykjavík, sem nýlega er lokið. Við spyrjum Ársæl frétta úr Eyjum, og segir hann okk- ur, að nýlega hafi þess ver- ið minnzt við hátíðlegt tæki- færi að Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja varð 100 ára, en hinn raunverulegi afmæl- isdagur félagsins er 26. jan. Þar sem hér er um að ræða elzta tryggingarfélag landsins, Og að til þess má rekja margar merk ar framkvæmdir bæði í Vest- mannaeyjum og á landinu öllu, er fróðlegt að spyrja Ársæl um félagið, en hann hefir átt sæti í stjórn þess í 30 ár og verið for- maður í 15 ár og er enn. Sýslumaður frumkvölðull Frumkvöðull að stofnun fé- lagsins var Bjarni E. Magnússon sýslumaður. Hann var þrítugur að aldri er hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjum 1861 Og sýndi þegar við komu sína þang- að að hann var framsýnn Og dug andi hugsjónamaður. Ekki er vit- að hvað mestu hefir ráðið um áhuga Bjarna sýslumanns fyrir stofnun tryggingarfélags en talið er líklegt að þar hafi mestu um valdið tíðii skiptapar og sjóslys, er urðu á öndverðri 19. öld. Fjöldi Skipa fórst þá við suður- ströndina og af þeim sökum kom ust ekkjur og börn hinna látnu sjómanna á vonarvöl og gátu ekki keypt sér hlut í nýju skipi þar sem allt fór óvátryggt. í Vest- mannaeyjum var sjósókn og hlut- areign í skipi nánast eini bjarg ræðisvegur fólksins. Það gefur því auga leið að þar hefir nauð- synin á tiyggingum verið hvað mest. Bjarni sýslumaður hafði á námsárum sír.um í Kaupmanna- höfn kynnzt danskri sjótrygging- arlöggjöf. Þaðan hefir hann haft efnið og uppistöðuna í fyrstu reglurnar um stofnun Skipa- ábyrgðarfélags Vestmannaeyja en svo hét þetta tryggingarfélag í fyrstu, eða allt fram til 1907, að vélbátar fóru að koma til Eyja. Þá er nafninu breytt og síðan hefir það heitið Bátaábrygð arfélag Vestmannaeyja. Á fyrstu árum félagsins eru skipin flest 14 og fæst 7. sem tryggð eru hjá félaginu. Trygg- ingargjald er tekið af matsverði skipanna. Árið 1907 eru 7 skip tryggð hjá félaginu og virðing- arverð þeirra 4756.00 krónur, en sjóðseign félagsins er þá 4495,09 kr. svo að við borð hefir legið að félagið gæti bætt öll skipin hefðu þau tapazt. Lánsamur félagsskapur Félagið mun ekkert heilt skip hafa misst á fyrstu 45 árunum, en fyrir brotatjón og veiðarfæra- Arsæll Sveinsson. tjón grelðir það samtals 674,61. Má því segja að einstakt lán hafi fylgt félaginu. Allt fram til 1909 hefir félagið enga endurtryggingu. Þá er Sam ábyrgð fslands á fiskiskipum stofnsett og kemur þá til endur- tryggingcir, ef skipin farast í heild. en aftur á móti er ekki um hana að ræða, er fyrir koma skemmdir á skipi eða veiðarfær- um. Þá ber Bátaábrygðarfélagið eitt allt tjón Árið 1959 vátryggir félagið 104 skip og á þá 5% milijón í sjóði, en þó eru eignir félagsins meiri. Ársæll segir okkur, að flestar stórframkvæmdir, sem við koma útgerð og sjósókn í Vestmanna- eyjiun, megi á einhvern hátt rekja til stuðnings Bátaábyrgð- arfélagsins. Fyrst er í þessu efni að geta hafnarinnar, lífæðar Eyjanna, enda má segja, að þar hafi fé- lagið sjálft mikilla hagsmuna að gæta. Eftir því sem höfnin er öruggari Og betri, er bátunum, sem þar liggja minni hætta búin og því tjón á þeim minni. og með betri höfn er að sjálfsögðu lagður gnindvöllur að velmegun eyjarskeggja Skilgetið afkvæmi Bátaábyrgðarfélagsins er Björg- unarfélag Vestmannaeyja, sem stofnað er 1918. Það var upphaf- lega hlutafélag og átti Báta- ábyrgðarfélagið þar stærstan hlut. Björgunarfélagið er raunar vísirinn til Landhelgisgæzlunnar Og Slysavarnafélags íslands, en það keypti gamla Þór. Alla tið frá stofnun Björgunarfélagsins og fram á þennan dag hefir það not ið fjárhagslegs stuðnings Báta- ábyrgðarfélagsins. Björgunarfé- lagið á nú tvo björgunarbáta Og öll tæki til björgunar. Styður ýmis menningarmál En afskipta Bátaábyrgðarfé- lagsifts er ekki þar með lokið af velferðarmálum Vestmannaey- inga. Það hefir stutt og styrkt ýmis menningarmál, svo sem sundlaug, kirkju og skóla, auk þess sem það á ári hverju styrkir fátækar ekkjur með fjárframlög- um. Þá hefir það oft hlaupið undir bagga með mönnum, er hafa orðið fyrir óvæntum óhöpp- um og ekki ráðið við þau fjár- hagslega. Við spyrjum Ársæl um ein- hvem minnistæðan atburð úr björgunarmálum í Eyjum, en hann var um langt árabil for- maður þar vg keýpti sinn fyrsta bát 1912. Skömmu áður en Björgunarfé- lagið var stofnað var bátur í hættu staddur skammt frá Eyj- um. Þá voru sendir út tveir bát- ar honum til hjálpar. Töldu menn í landi að þetta myndi nægja Og bátnum myndi takast að bjarga hinu nauðstadda fari. Þetta fór þó á annan veg, því að annar hjálparbáturinn fórst með allri áhöfn og báturinn, sem í nauð- um var staddur tapaðist, en hin- um björgunarbátnum tókst að ná skipshöfninni Og bjarga henni í land. Við þennan sviplega atburð munu menn hafa vaknað alvar- lega til umhugsunar um að björg- unarfélag þyrfti að stofna. Það var hins vegar ófrávíkjanleg regla allt fram til þess tíma að sá, sem átti bezta bátinn í höfn- inn, var sendur til hjálpar þeim, er í nauðum var staddur, Og ekki kvaðst Ársæll minnast þess, að því hafi nokkru sinni verið synjað, hvernig sem viðraði. • Er vorið að koma? Nú í vikunni var einn dag- inn allt í einu komið yndæl- is veður. Það mátti líka sjá á bæjarbúum, sem skriðu úr vetrarhýði sínu, svo göturn- ar urðu allt í einu fullar af fólki, sem ekki var pakkað inn í miklar dúður og ekkert virt ist vera að flýta sér. Þegar ég sá svo auglýsingu frá garð- yrkjumönnum, þar sem fólk var hvatt til að fara að hugsa um gróðurinn í görðum sínum, já, þá blátt áfram trúði ég því í bjartsýni minna að vor- ið væri komið. Þá var það sem ég rakst á Hafliða Jóns- son, garðyrkjustjóra, bæjarins og hafði orð á þessu við hann, Hann svaraði: • Væntanlega vorar snemma ég þess að það vori snemma í ár. Nú er lítill klaki í jörðu, Komið vör? Nei, áreiðan- lega ekki, en hinsvegar vænti óvenjulega lítill um þetta leyti árs og tæplega eykst hann mikið úr þessu, þótt búast megi við frostum í marz, en vert er að taka vel eftir veðri á öskudag, ég hefi mikla trú á því að hann eigi sér keim- líka átján bræður. Svo kemur páskahretið, það bregst tæp- ast, en úr því kemur hlýtt vor og vonandi gott sumar. En hvað sem veðráttu líð- ur eru þó vorstörfin hafin hjá garðy rk j umönnum. Það er mjög þýðingarmikið að nota tímann Og vinna nú þau verk sem hægt er, svo fleiru megi koma í verk þegar sjálft vor- ið er komið. Nú er t. d. heppi- legasti tíminn til að klippa tré og runna, og einnig til að bera á grasflatirnar og beðin líf- rænan áburð. Margir munu á komandi vori hafa í huga að rækta og endurbæta lóðir við heimili sín og það er fullseint að byrja þá fyrst að íhuga þær frarnkvæmdir þegar hefja skal verkið. Þess vegna ætti fólk að ákveða nú hvernig hlutunum skuli hagað. I þeim efnum gilda sömu sjónarmið og í svo ótal verkefnum öðr- Bjarni E. Magnússon. Hið óslegna gull Segja má, að sjórinn sé hið óslegna gul’ Vestmannaeyinga, segir Ársæll. Þrautseigja manna hefir verið þar mikil, meðan bar- izt var við hafnleysi og algert öryggisleysi á opnum skipum. Skipaábyrgðarfélagið veitir strax öryggi, og með vaxandi hag Eyja búa hefjast hafriarframkvæmd- irnar, og raunar stóð baráttan við byggingu öruggrar hafnar í 30 ár, þar til nú er hægt að treysta henni fullkomlega, en það var ekki hægt fyrr en búið' var að byggja hafnargarðana Og treysta þá svo, að sjórinn ekki hrifi þá jafnóðum aftur, sem það þrá- faldlega hafði komið fyrir. Eftir 30 ára stríð tókst mannshend- inni að reisa þá garða, sem nú verja bátaflota Eyjabúa. En það var ekki þar með hætt fram- kvæmdum. Alltaf er verið að reisa fleiri ög fleiri mannvirki í þessari mestu verstöð landsins. Verið er að dýpka höfnina, byggja ný bólverk, leiða ljós um Framhald á bls. 8. um. Það er ódýrara og hag- kvæmra á allan hátt að skipu- leggja þau áður en hafizt er (handa, samanber það að eng- in kona saumar sér kjól fyrr en hún hefur valið snið á hann, ög enginn herra kaupir sér ffakka án þess að máta hann. Þessa dagana standa yfir sáningar til sumarblómanna, sem prýða eiga garðana Okk- ar í sumar. Þeim sem hyggjast ala upp blómplöntur sjálfir, skal á það bent að ekki er seinna vænna. en að kaupa nú þegar fræ og undirbúa sán- inguna. Þó er það nokkuð mis- jafnt hvenær hinum einstöku tegundum skal sáð Og mörg- um tegundum sumarblóma má sá beint út í garðinn seinast í apríl og byrjun maí. • Mikill mosi eftir votviðrin í vetur Hætt er við að áberandi mikill mosi geri vart við sig í grasflötum eftir svo votviðra saman vetur. Við því eru lítil önnur ráð en að bera lífrænan áburð á flatirnar og síðan til- búinn áburð af Og til í sumar. Þó getur það hjálpað nokk- uð að bera áburðarkalk á og þarf það að gerast sem fp'st. í matjurtagarðinn ber að sá gulrótum og steinselju svo fljótt sem mögulegt er, og bráðlega þarf að huga að kartöíluútsæði. Það þarf að fá 6—8 vikur til spírunar. Og garðurinn þarf að fá áburð fyrir vorið. Það er fjölmargt sem undir- búa þarf áður en sjálf aðal- ræktunin hefst í maí. Öll þau störf sem við getum unnið nú á þessum 'tíma, eigum við að vinna. Með því fáum við sum- arið fyrr og okkur gleymist það jafnvel á meðan að enn þá er ekki nema 20. vika vetr- ar, en 6 ýikur til sumarmála, þá fyrst koma páskar og síð- an brosir vorið við okkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.