Morgunblaðið - 14.04.1962, Qupperneq 2
2
MOnCUNBL 4 Ð1Ð
Laugardagur 14. apríl 1962
Ríkið greiði stofn-
og rekstrarkosfnað
sjö héraðsskóla
Þýðingarmikið umbotamál íyrir
sveitir og sýslfélög
EFRI deild Alþingis sam-
þykkti í gær sem lög tvö
frumvörp um skólakostnað.
Hið fyrra þeirra var frum-
varp Sigurðar Bjarnasonar,
Jóns Kjartanssonar, Gunnars
Gíslasonar og Friðjóns Þórð-
arsonar um að ríkið skuli
greiða allan stof*- og rekstr-
arkostnað héraðsskólanna. Er
hér um að ræða héraðsskól-
ana að Laugarvatni, Laug-
um, Núpi í Dýrafirði,
Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp, Reykjum í Hrútafirði,
r
1
Misjafn afli
Eyjum
Vestmannaeyjajjm 13. apní'l.
VESTMANNAEYJABÁTAit hafa
allir verið í landi í dag utan
einn, Stetfán Ámason, sem mun
vera á netaveiðum austur i „Bugt
um“, og hafa fengið nokikum
afla. Aflinn í gæc var tregari en
verið hefur. Sumir bátar fengu
allgóðan afla, en aflinn var mis-
jaifn og fór allt niður í 200 fiska
á bát. Heildaraflinn í gær var
um 600 leatir. Hér var austan
rok í nótt og komst veðurhæðin
í 11 vindstig. Veðrið heifur nú
lægit, og enda þótt að enn sé mik
ill sjór er búizt við því að bát-
amir fari almennt úit í nótt. —
Vél Ófeigs III biilaði í gær, og
vac komið með hann að landi í
morgun. Var það mb. Huginn,
setn dró bátinn til Eyja. — Björn.
Skógum í Rangárvallasýslu
og Reykholti í BorgarfirðL
í neðri deild var sú breyting
gerð á frumvarpinu samkvæmt
tillögu Gísla Jónssonar að þess-
ir héraðsskólar skuli vera sér-
eign ríkisins, ef hlutaðeigandi
héraðsskólar óska þess. Skuli
sveitarfélög afhenda ríkissjóði
skuldlaust og kvaðalaust sinn
hluta í áföllnum kostnaði
þeirra, eins og hann er í árslok
1961.
Hitt frumvarpið var flutt af
Halldóri E. Sigurðssyni, Bene-
ciikt Gröndal og Sigurði Ágústs-
syni. Efni þess er það, að ríkis-
sjóður skuli greiða jafnóðum,
ársfjórðungslega áætlað rekstr-
arframlag sitt, miðað við næsta
ár á undan, til þeirra heima-
vistarbarnaskóla, sem fleiri en
citt- sveitarfélag stendur að.
Skemmtifundur
Islendinga í
New York
ÍSLENDINGAFÉLAGEÐ í New
York efndi til kaffidrykkju og
kvikmyndasýningar föstudags-
kvöldið 30. marz. Sýndar voru
kvikmyndir frá íslandi.
Skemmtunin var sett af nú-
verandi formanni, Richarh
Richardssyni, hjá Loftleiðum,
en síðan tók við stjórn Ólafur
Stephensen. Frú Guðrún Crosier
hélt ræðu um sögu félagsins.
Skemmtunin tókst með ágæt-
um og var sótt af yfir 150
manns.
Húsavíkursamþykkt
um Jökulsárvirkjun
BÆJARSTJÓRN Húsavíkur sam . firðingar verði að fylgjast vel
þykkti á fundi 11. apríl 1962
eftirfarandi:
„Bæjarstj órn Húsavíkur vill
taka undir áskorun Bændafélags
Fljótsdalshéraðs til allþingis-
manna Norðlendinga og Aust
firðinga um að vinna að því að
skapa órjúfandi samstöðu fólks-
ins Norðanlands og Austanlands
um þá „afgerandi nauðsyn" að
Jökulsá á Fjöllum verðj valin
næsta stórvirkjun með stóriðju
fyrir augum. Jafnframt vill bæj
arstjómin taka undir þá áskor-
un Bændafélagsins til alþingis
manna Norðlendinga og Aust-
firðinga að beita sér fyrir full-
trúafundi sveitarstjórna Norður
og Austurlands til þess að vinna
að framgangi virkjunar Jökuls
ár á Fjöllum í sambandi við
stóriðju.
í því sambandi beinir bæjar-
stjórnin því sérstaklega til þing
manna úr Norðurlandskjördæmi
eystra um að þeir hafi forgöngu
u*n fundarboðunina í samvinnu
við aðra alþingismenn Norð-
lendinga og Austfirðinga, svo og
bæjarstjórnir og sýslunefndir í
þessum landshlutum.“
Mun bæjarstjóri semja br
til að senda öllum sveitarstjórn
um í Norðlendinga og Austfirð
ingafjórðungum um virkjunar-
mál Jökulsár á fjöllum.
Með bréfi bæjarstjóra, Áskels
Einarssonar, fylgir rækileg
greinargerð, „Staðsetning stór-
iðju og byggð landsins." Er þar
talið, að Norðlendingar og Aust
með þróun virkjunarfram
kvæmda og gæta þess, að hlutur
'þeirra sé ekki fyrir borð bor-
inn, þar eð „fylgjendur Þjórsár
virkjunar" hafi ítök meðal for-
ystumanna í raforkumálum, og
„margir af ráðamönnum þjóðar-
innar munu telja það skyldu sína
vegna umbjóðenda sinna að
vera frekar hliðhollir Þjórsár-
virkjun".
Hrólfur Sigurðsson listmálari með eitt af málverkum sínum í Bogasal þjóðminjasafnsins í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Mesta fé til
varnsrmála á
fri5artímum
New York, 13. apríl - AP
FJÁRVEITINGANEFND full
trúadeildarinnar samþykkti í
dag hæstu fjárveitingu tii
landvarnamála, sem enn hefur
þekkzt, á friðartímum. Nem-
ur hún 1344 milljónum dala,
en er þó rúmum 67 milljón-
um dala lægri, en sú upphæð,
sem Kennedy forseti fór
fram á
Hrólfur Sigurðsson opnai
í dag málverkasýningu
HRÓLFUR Sigurðsson, listmál-
ari, opnar í dag kl. 4 síðdegis
málverkasýningu í Bogasal
Þjóðminjasafnsins. Verður hún
opin framvegis kl. 2—10 e. h.
Mun henni ljúka að kvöldi ann-
ars páskadags.
- Hrólfur Sigurðsson sýnir á
þessari sýningu 20 olíumálverk
og 10 pastelmyndir. Eru flest
málverkin máluð á sl. ári. Eru
Keppt um Islandsmeist-
aratitilinn í skák
SKÁKÞING íslandis 1962 hefet 1
dag kl. 2. í Breíðfirðinigabúð og
verður að venju keppt í meistara-
flokki og 1 a n dsl i ðsflokk i. Að
þessu sinni er farið eftir nýjum
lögum og tefla 12 keppendur um
íslandsmeistaratitilinn, allir við
alla, en undanfarin ár hetfur ver-
ið telft eftir svökölluðu Monrad-
kerfi eða svissnoska kerfinu.
Meðal keppenda í landsliðs-
flokki er núverandi fslandsmeist-
ari í skák, Friðrik Ólafsson og
núverandi Norðurlandameistari í
skák, Ingi R. Jóhannsson. Auk
þeirra verða 3 efstu menn á eftir
Friðriki í landsliði frá keppn-
inni í fyrra, þeir^Gunnar Gunn-
arsson, Ingvar Ásmundsson og
Björn Þorsteinsson. Benony
Benonýsson verður þarna sem sig
/' NA /5 hnútor / SV 50 hnútar ¥: Snjó&omo f 06 i ^ V Skúrír ÍC Þrumur ms& KuUosM ZS* HiUtM H. Hm» | L*Lm<,t l
VONIN í Nýfundnalandslægð
inni brást ekki. Hún dýpkaði
talsvert og hægði á sér í
fyrradag yfir hafinu suður af
Suður-Grænlandi. í gær fóru
svo skilin, sem henni fylgja,
yfir landið og rigndi heilmik-
ið á Suður- og Vesturlandi.
Jafnframt hiýnaði Og á há-
degi var orðið þítt um allt
land. Klukkan þrjú síðdegis
var kominn 8 stiga hiti í
Reykjavík og fleiri stöðum
suðvestan laivds.
urvegari frá Reykjavíkurmótinu
í ár. Aðrir þátttakendur verða
Jón Kristinsson, Sigurður Jóns-
son, Gylfi Magnússon, Jónas Þor
valdsson, og Ólafur Magnússon.
Ekiki er enn vitað hver þátttak-
andi verður frá Suðurnesjum ög
Hafnarfirði, en keppni um lands-
liðsréttindasætið átti að fara
fram í gærkvöldi.
í meistaraflokki eru 19 þátt-
takendur. Mótið mun verða háð
um páskana og verðuf teift á
hverjum degi, aðallega í Breið-
firðingabúð, en verður flutt upp
í Sjómannaskóla nokikrar um-
ferðir.
Veski stolið
í fyrrakvöld var stolið veski úr
iakkavasa, en jakkinn var í ó-
læstri fatageymslu í Matsveina-
og veitingaþjónaskólanum, sem
er til húsa á íieðstu hæð Sjó-
mannaskólans. 1 veskinu voru
f 000 krónur í þúsund króna
seðlum og einn norskur hundrað
kxónu seðill. Nokkur grunur
leikur á að hér hafi ungir
drengir verið að verki, og er
fólk vinsamlegast beðið að gera
rannsóknarlögreglur.ni aðvart,
verði það vart við smádrengi
með óvenju mikla peninga. —
Talsvert hefur borið á því í vet-
ur að veskjum og fjármunum
hafi verið stolið úr fötum, sem
geymd hafa verið í ólæstum
fatageymslum, og er rétt að á-
minna fólk alvarlega um að
gæta þess að geyma ekki verð-
mæti í fötum, sem skilin eru
eftir á slíkum stöðum.
HEIMDELLINGAR
MUNH) klúbbfundinn kl. 12,30
í dag. — Stjórnin.
þau öll til sölu að örfáum und-
anteknum.
Hrólfur Sigurðsson hóf list-
nám í teikniskóla Erik Clemme-
sen í Kaupmannahöfn árið 1946.
Síðar á því ári hóf hann nám
við Konunglega listaháskólann
og stundaði þar síðan nám I
r.æstu fjögur ár, aðallega hjá
Kræsten Iversen, prófessor. Fór
hsnn á þessum árum námsferð-
ir til Hollands, Frabklands og
ítalíu.
Hann hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum hér á landi,
aðaillega með Félagi íslenzkra
myndlistarmanna. Hafa mál-
verk hans vakið athygli og
hlotið góða dóma. Þetta er
fyrsta sjálfctæða sýningin, sem.
Hróifur Sigurðsson heldur. Á sL
ári sýndi hann einnig verk sín
á vegum listkynningar Morgun-
blaðsins.
Óhætt er að fullyrða að
Hrólfur Sigurðsson sé meðal
efnilegustu yngri listmálara okk
ar. Má gera ráð fyrir að margir
hafi áhuga fyrir að kynnast
listaverkum hans á sýningu
þeirri, sem hann nú er að opna.
Stjórn Debrés
segir af sér
París, 13. apríl —
ÞAÐ VAR tilkynnt í dag, að
stjóm Michel Debré rr.uni segja
af sér á morgun, laugardag. Seg-
ir í tilkynningunni, að ný stjórn
verði mynduð á mánudag. Mun
það m.a. gert til þess að hægt
verði að taka til meðferðar ýmis
framfaramál, innasi Frakklands
sjálfs, sem ekki er talið að stjórn
Debrés standi vel að vígi til að
framkvæma.
Stúdentaþing
STUDENTARÁÐ Háskóla íslands
boðar til hringborðsráðstefnu um
félagsmóil stúdenta í dag. Ráð-
stefnan er haldin í setustofu
Gamila Garðs og hefst kl. 14.
Hvert dieildarfélag hefur útnefrut
fimm fulltrúa til setu á þinginu,
og S.H.Í. hefur útnefnt sextán
aðra stúdenta, auk þess sem ráðið
sjálft og helztu startfsmenn þess
sitja þingið. Tilgangur þessa stúd
entaþings er að reyna að finna
nýjar leiðir til þess að biósa lífi
í félagBmál stúdenita, en nokikur
deyfð hefur riíikt þeim miálum að
undanförnum. Meðal mála, eir
rædd verða, er blaðaútgátfa stúd-
enta, félagsheimrliemiál, menninK
i armiál, skipulagsmáiL