Morgunblaðið - 14.04.1962, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.04.1962, Qupperneq 10
10 MORGHNfíT *r*ir> Laugardagur 14. apríl 1962 ■ TITAN fórst fyrir 50 árum LAUGARDAGINN 20. apríl 1912 mátti lesa í blaðinu „ísa fold“ svohljóðandi frétt und ir fyrirsögninni: Eri. sím- fregnir: „Fólksflutningaskip- ið „Titanic" rakst á hafís- jaka á sunnudagskvöldið kl. ■ Edward C. Smith skipstjóri. Myndin er tekin nokkrum dögum áður en hann fórst ir.eð skipi sínu. 10,25. Skipið sötek á mánu- dagsnóttina kl. 2,20 f.h. 705 menn komust af. 1653 menn drukknuðu . . .“ Þetta var það fyrsta, sem fréttist til Reyikjavíkur um eitt mesta sjóslys, er orðið hefur. Voiru þá liðnir rúmir fimm sólarhringar frá þvá Titanic hvarf í djúpið. í dag, eða nánar tiltekið í kvöld, eru liðin fimmtáu ár frá þessu hörmulega slysi. En þróitt fyrir styrjaldir og náttúruhamfarir hefur það ekki liðið úr manna minnum. Titanic var langstaersta skip heimsins, nærri 270 m langt, eða eins og „ísafold“ segir hinn 20. apríl: „Til þess að átta sig á stærð Titanic má geta þess að það hefur verið að lengd um 14 stikum lengra en al'lt Austurstræti. Á breidd var það 26 stikur (hlið Alþingisíhúissins út að Kirkjustræti mun vera eitt- hvað áþekk að breidid)“. Titanic var nýsmíðað og fórst í fyrstu ferð sinni yfir Atlantshafið. Var siglt frá Southampton í Englandi mið- vikudaginn 10. apríl. Farþeg- ar voru 1325 og áhöfn 899. — Meðal farþega voru heims- kunnir menn úr fjármála- og viðskiptaheiminum. Þar var t.d. forstjóri skipafélagsins, sem átti Titanic, Bruce Ismay, auðkýfingarnir John Jacob Astor, Benjamin Guggenheim, sir Cosmo Duff Gordon og Isidor Straus. Þá var þar einn ig Wil'lam Stead, heimskunn- ur ritstjóri og friðarvinur. Lítið bar til tíðinda fyrstu fimm dagana. En fcl. 23,40 •hinn 14. apríl sá Frederick Fleet háseti, sem var á útsýn isverði uppi í frammastri Skipsins, risastóran borgarís skammt framundan. Hann gaf þegar aðvörunarmerki og Murdooh fyrsti stýrimaður, ÍSAFOLD lu ,,A'- *'•*** íbwbtU !Sn» "wft )-'í. liíi.l t'/* 0,1 (*« tnteru «6 reyu *» ■f ■*!?*** *»«■» 1 Ww, tft W* yn .J, t «fc> •*!* <í * * ef • > ítti'itl tt.r ip, * íilt: urO , tefUn'.ftu, ft aa«i. td éMhrt}’ f ».♦-( ’vieU, A UifvfSM ’Utví. ait.-ii' L*«n uif.í u»U >5 >i t- í <*A*<U*,*ar + totfc tXMítáiJi'V. f r* «»k fte’.” „..tsrgl < et ft»0- .ftn ljt>< iserti. «í»»> «m6. *«t «•»»< HW txo ottJS ... ei *í,n. 't 1+it but gttA * ttA-M- I*. <■■0. iur, $w«. VMtart thtm. f-.K» «*»!« f?a*<w M SlpÍMÍwih «.a I M»*t *lim ;4 tul .«,u >» *->!*#*» d w»5> *<«>» »»««• V#: :-- »« *»*» t*»« ‘ . i. aat ltM< sem var á vakt á stjórnpalli, símaði niður í vélarúm: Fulla ferð aftur á bak, um leið og hann lét stýra skipinu hart í bakborða. En skipið lenti á ísjakanum, sem risti um 100 metra langa rifu í skipsskrokk inn fyrir neðan sjávarmál. Skipið átti að vera alveg öruggt, hvað sem fyrir kynni að koma. Því var skipt í 16 vatnsþétt hólf og átti að hald ast á floti jafnvel þótt tvö þeirra fylltust af sjó. Bkki hafði verið reiknað með þeim möguleika að alvarlegri leki kæmi að skipinu. En við á- reksturinn streymdi, sjórinn inn í sex hólfanna og var skip ið þá þegar dauðadæmt. Mikið hafði verið gert úr því hve skipið væri öruggt og því ef til vill ekki jafn fjarstætt og nú virðist að það hafði aðeins björgunarbáta fyrir 1176 manns, þótt um borð væru alls 2224. Þegar skipið sökk var stillt í sjó. Titanic seig niður að fram- an og var tvær klst. og 40 mín útur að sökkva. Alilir bátar komust á flot heilir frá skip- inu. En í þeim voru aðeins 705 manns. Voru rúmilega 470 sæti laus í bátunum. Fæstir farþeganna vissu af >ví þegar Titanic rakst á borg irisinn. En stjórnendur skips ins vissu hvað um var að vera og sendu áhöfnina til að .;afna farþegunum upp á þii- iar. Voru margir farþeganna ófúsir að fara fáfclædldir út í kuldann. Og þegar átti að reka farþegana úm borð í björgunarbátana, töldu m.arg- ir of langt gengið í björgunar æfingu á rúmsjó í frostgaddi og neituðu að fara. Fyrstu bátarnir héldu því frá skip inu hálfsetnir og varla það. En svo tók skipið að síga að framan og þá gekk auðveldar að fá farþegana frá borði. Margar átakanlegar sögur hafa verið skráðar um aðskiln að fjölskyldna er Titanic sökk. í ,.ísafiold“ frá 1. maí 1912 eru m.a. eftirfarandi sögur: „Milljónamæringurinn John Astor, nýkvæntur, bar konu sína niður í einn björgunar- bátinn. Þar var sæti autt við hlið henni. Honum var boðið það, með því að allt kvenfólk ið, sem til næðist, væri komið í bátana. Hann settist hjá konu sinni. En rétt í því sézt kona koma hlaupandi út að borðstofcknum. Milljónamær- ingurinn reis óðara úr sæti sínu: Konur fyrst sagði hann, kveikti í vindilingi og hvarf á skipsfjöl, hallaði sér svo yfir borðstokkinn og hrópaði til konu sinnar: Við hittumst síðar. Meðal farþega voru vellauð ug kaupmannshjón frá Vínar borg: Isidor Straus og kona hans. Straus var eggjaður á að reyna að koma sér í ein- hvern bátinn: Ekki meðan nokkur kvenmaður er á skips fjöl, svaraði hann. Þá reyndu skipverjar að taka konu hans með valdi og feoroa hermi í bátana. En hún hélt fast í mann sinn: Eg verð þar sem þú ert. Við höfum lifað sam- an 40 ár og skiljum þvi eigi |i gamals aldri. Það er eins og Bergþóra á Bergþórshvoli hafi verið þarna k-omin: Ung var qg gefin Njáli! Straus- hjónin tóku, í faðmlögum, móti dauða sínum, er skipið sogaðist niður að mararbotni". Um skipstjórann E. C. Smith segir ísafold að öll- um hafi borið saman um hug dirfð hans, festu og ró. Hann vók ekki af stjórnpalli allan tímann mieðan skipið var að sökkva og stjórnaði björgun- arstarfinu þaðan. Þrátt fyrir þessi ummæli ísafoldar varð skipstjórinn fyrir mikilli gagnrýni eftir að hann fórst með skipi sínu. Bent var á að bann háfi látið halda fullri ferð þrátt fyrir ítrekaðar að- varanir um hafís á þessum slóðum. Skipið sigldi með um 22 hnúta ferð í svartamyrkri. Skipstjóirinn hafði stundað sjó irin í 40 ár og vissi um hætt- una, sem lá í leynum. En all- ir vissu að Titanic gat ekki sokkið og Smith skipstjóri sinnti ekki aðvörununum. Um endalok hildarleiksins segir ísafold svo frá: „Því lýsa skipbrotsmenn, sem hinu ógurlegasta augna- bliki æfi sinnar, er Titanic hvarf sjónum þeirra. Stafn- Framh. á bls. 16. Forsíða fsafoldar 1. maá 1912. Bruce Ismay forstjóri skipafélagsins var meðai þeirra, sem biöreuðust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.