Morgunblaðið - 19.04.1962, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. apríl 1962
Laxness dvelst í Kaup-
mannahðfn á afmæiinu
Kaupmannahöfn, 18. apr%l.
Einkaskeyti til Morgunbl.
IIALLDÓR Kiljan Laxness,
rithöfundur, er nú staddur í
Kaupmannahöfn, og mun
hann dveljast hér, er hann
verður sextugur, nk. mánu-
dag.
Hann hefur lokið við
nýtt leikrit, og lagði hann
síðustu hönd á verkið á
þriðjudag. Er það ætlun
skáldsins að lesa verkið á
fundi íslenzka stúdentafélags
ins á mánudagskvöld. Ekki
ætlar afmælisbamið að halda
daginn hátíðlegan að öðru
leyti. Útgefendur verka hans
í Kaupmannahöfn, Gylden-
dal, munu ekki minnast dags-
ins, og er það eftir óskum
Laxness sjálfs. Hann segist
ekki vera vanur að halda
upp á afmælisdaga sína,
venjulega velji hann afmæi-
isdaga sína til ferðalaga, og
sé þá tíðast á jámhrautar-
ferðalögum. „Það er nóg um
veizlur", segir skáldið, „þó að
afmæli verði ekki gerð tii-
efni slíks."
Samt mun þó verða gleði
itokkur, á fundi Stúdentafé-
lagsins, að upplestrinum
loknum.
Laxness segir leikritið vera
melodrama um nútámavanda-
mál, en hefur þó ekki vilj-að
gefa nánari upplýsingar um
efni leiksins. Hann var spurð
ur að því, hvort leikritið
fjallaði um ógnir þær, er
mannkyninu stafa af atóm-
vopnum, en svaraði því að-
eins til, að hann hafi ekki
ýkja mikinn áhuga á þeim
vandamálum, enda hafi þau
ekki sótt á sig neitt að ráði.
Leikritið er svo nýtt af
nálinni, að Laxness telur ekki
nógu langt um liðið, síðan
hann lauk því, til þess að
hann geti rætt um efni þess.
Hins vegar sagði hann, að nú
sem stæði, hefði hann meiri
áhuga á leikritum en
skáldsögum. „Hver setning í
leikriti, er lík ávísun, sem
þarf að innleýsa“.
Laxness hefur ekki komið
heim til íslands síðan í fyrra,
en að undanfömu hefur hann
heimsótt París, Tékkósló-
vakíu, Sviþjóð, Ítalíu og nú
Danmörku, en fastan aðsteurs
stað hefur hann haft í Vín-
arborg. Til íslands heldur
hann 28. apríl. Laxness seg-
ist fara til meginlandsins til
þess að fá næði tii að skrifa,
þvi að þar sé hann laus við
annir hversdagslífsins.
Aðspurður segist Laxness
ekki hafa heyrt minnzt á, að
til stæði að gerð yrði ný kvik
mynd eftir einhverri sögu
hans. Þó mætti vera, að um-
boðsmaður hans hefði haft
einhver afskipti af því máli.
Hins vegar segist hann ekki
hafa verið mjög ánægður
með kvikmyndina „Sölku
Völku", en viil þó ekki gagn-
rýna hana, þar sem hann seg-
ist ekki geta gert betur sjálf-
ur.
„Ég vil þó heldur láta
kvikmynda verk mín, en láta
sýna þau í sjónvarpi“, sagði
skáidið.
Loks gat hann þess, að
hann hefði i huga þrjú nöfn
á leikritinu, en hefði ekki
ákveðið hvert þeirra hann
myndi nota.
■Mm
Listí Sjálistæ Öis-
manna á ísaiirÖi
Ákveðinn hefur verið listi
Sjálfstæðisflokksins á ísafirði
við bæjarstjómarkosningarnar
og skipa hann þessir menn:
1. Matthías Bjarnason forstj.
2. Marsel'íus Barnharðsson,
skipasmiður.
Skákþingið
ÚRSLIT urðu þau í 4. umferð í
landsliðsfloltki á sbáfcþingi ís-
lendinga, að Friðrik Ólafsson
vann Gylfa Magnússon, Jónas
Þorvaldoson vann Gunnar Gunn-
arsson, Björn Þorsteinsson vann
Jón Kristinsson, Benóný Bene-
dikts90n vann Helga Jónsson og
Ingvar Ásmundsson vann Sigurð
Jónsson. Biðskák varð hjá Inga
R. Jóhannssyni og Ólafi Magnús-
synL
Fimmta umferð verður tefld í
sjómannaskólanum kl. 2 í dag Og
8. umferð kl. 8 i kvöld.
Biðskákir verða tefldar kl. 2
I dag í Breiðfirðingabúð og 7.
umferð um kvöldið.
3. Högni Þórðarson, bankagj.
4. Kristján Jónsson, skipstjóri.
5. Samúel Jónsson, smjörlíkis-
gerðarmaður.
6. Júlíus Helgason, rafvirki.
7. Eyjólfur Bjarnason rafvirki.
8. Kristjana Magnúsdóttir, frú.
9. Ingólfur Eggertsson, skipa-
smiður.
10. Einar Ingvarsson, bankastj.
11. Kristján Guðjónsson, smið-
ur.
12. Jónas Björnsson, skipstjóri.
13. Garðar Guðmundsson, kenn
ari.
14. Óli Ólsen, framkv.stjóri.
15. Jóhann Þorsteinsson, vélsir
16. Úlfur Gunnarsson, læknir.
17. Kristján Tryggvason, klæð
skeri.
18. Símon Helgason, hafnsögu
maður.
Fimm skrámuðust
Jeppabifreið vallt í gærkvöldi
uppí Laugardal í Árnesisýslu,
með 6 nemendum frá Laugar-
vatni. Fimm þeira er í bílnum
voru skrámuðust.
Barnaskemmtun
Hvatar
á 2. í páskum
Sjálfstæðiskve'nnafélagið Hvöt
hefur barnaskemmtun á 2. í pásk
um kl. 3 og kl. 5 í Sjálfstæðis-
húsinu. Skemmtiatriðið verður
Rauðhetta, leikin af Leikfélagi
Kópavoga
Aðgöngumiðar verða seldir 2.
í páskum frá kl. 11 f.'h. í Sjálf-
stæðishúsinu. Verð miðanna er
kr. 26,00 fyrir börn, en kr. 35
fyrir fullorðna.
..Jfáb .ótí
Meffal páskamynda er sýndar verffa í kvikmyndahúsunum,
er hin fræga mynd Porgy og Bess. Laugarásbíó sýnir þessa
mynd, sem frægff hefur hlotiff víða um heim. Myndin er úr
einu atriffi kvikmyndarinnar.
Listar Sjálfstœðismanna
lagðir fram í 9 kaup-
stöðum
Lagðir hafa verið fram listar
Sj á Ifstæð isflokjks ins við bæjar-
stjórnarkösningarnar í vor í eft
irtölduim kaupstöðum:
Reykjavík.
AkranesL
ísafirði.
Siglufirði.
Ólafsfirði.
AkureyrL
Húsavík.
Keflavík.
Hafnarfirði.
Á Sauðárkróki, SeyðisfirðL
Neskaupstað og Vestmannaeyj-
um hafa listar ekki enn verið
lagðir fram. En blaðið hafði
spurnir af því í gærkvöidi að ver
ið væri að ganga frá listunum á
þessuon stöðurn.
Söngur Fóstbræðra
Á SAM5ÖNGVUM þeim. sem
karlakórinn „Fóstbræður" hefur
haldið í Fríkirkjunni undan-
farna daga fyrir styrktarfélaga
sína, voru flutt meðal annars
bvö atriði úr óperunni „Fidelio"
eftir Beethoven. í hinu síðara,
sem er lokaatriði óperunnar,
naut karlakórinn tilstyrks um 30
manna kvennakórs, og sjö ein-
söngvarar komu hér fram: Hanna
Bjarnadóttir, Snæbjörg Snæ-
bj arnardóttir, Erlingur Vigfús-
son, Gunnar Kristinsson, Jón
Sigurbjörnsson, Kristinn Halls-
son og Þorsteinn Hannesson.
Undirleik önnuðust Carl Billieh
á píanó og Árni Arinbjarnarson
á orgel, og mun söngstjórinn
hafa búið undirleikinn til flutn-
ings í þessu forrni. Slíkar „út-
setningar“ orka að vísu jafnan
tvímælis, en hér tókst að mörgu
I NA !5 hnúiar | / SV SOhnútar X Snjitoma • Úii V Skúrir fC Þrumur mfz, KutícM Z/ Hitatht H Hml L Lmai
:OiViiwml)Xaí>iíí
VEGAMÓT á Snæfellsnesi er nýr sölustaffur Morgunblaffsins, en
þar er setr, kunnugt er veitingaliús og helzti viðkomustaffur á Snæ-
fellsnesL
Um þessa helgi verffur söluskálinn undir Ingólfsfjalli, Ingólfs-
fell, opnaður aftur og þar verffur Morgunblaðiff tll sölu.
leyti svo vel til, miðað við að-
stæður, að verulegur fengur var
í að fá að heyra þessa kafla úr
hinni stórfenglegu óperu Beet-
hovens. Er þetta tvímælalaust
eitt merkasta verkefni, sem ís-
lenzikur karlakór hefur færzt í
fang.
Önnur viðfangsefni voru tvð
sálmalög eftir Baoh. Sanctus eft-
ir Gound, með einsöng Svölu
Nielsen, og „Pílagrímakór" úr
ópemnni „Taniíhauser" eftir
Wagner.
Stjórnandi „Fóstbræðra", Ragn.
ar Björnsson, sýnir hér enn einu
sinni, að hann er í senn stór-
huga og listfengur söngstjóri, og
kórinn er veglegt hljóðfæri i
höndum hans. Þessir tónleikar
voru tilkomumiklir og á köflum
mjög hrífandi og mundu vera til
sóma bvaða kór sem væri, bæði
um verkefnaval og meðferð. —
Þeir verða fluttir í síðasta sinn
í kvöld.
Jón Þórarinsson.
Verzlun Kaupfélags Kjalnesþings í Mosfellssveit, hefur tekiff
Morgunblaffiff í lausasölu. Um helgar er þar einnig opiff, m. a.
vegna benzinsölu.
Skíffaskálinn í Hveradölum, helzti áningastaffurinn vestan
Heiðar, hefur og tekið Morgunblaffið i lausasölu.
Skarffshlíð undir Eyjafjöllum er mikilvæg viffskipta- og um-
ferðarnjiðstöff. Framvegis verffur Morgunblaðið selt þar i lausasölu.
Kl. 11 var suðlæg átt og
hlýtt hér á landi. Lægðin og
regnsvæðið hér fyrir suðvest
an land var á hreyfingu norð
austur og gera má ráð fyrir á
framhaldandi suðlægri átt Og
vorveðri. En stutt er í frostið
eins og sjá má af kortinu. —
Skip Skammt norður af Vest
fjörðum gefur upp 4ra stiga
frost.
Veffurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land til Vestfjarða: SA
stinningskaldL víða dálítil
rigning.
SV-mið til Vestfjarðamiða:
AMhvass og síðar hvass SA,
rigning.
Norðurland, NA-land og
miðin: Sunnan gola og síðar
ka*ldL þykknar upp.
Austfirðir, SA-land og mið
in: SA gola og síðar kaldi
eða stinningskaldi, dátítil
rigning með morgninum.
Málverkasýning
Keflavík
SIGURÐUR Bjömsson listmál-
ari opnar málverkasýningu á
skírdag í Tjarnarlundi í Kefla-
vík. —
Á sýningunni verða 60 mál-
verk og myndir, mest skipa-
og sjávarmyndir, auk hinna sér-
kennilegu mynda af fiskum og
sjávarlífL Sýningin verður opiu
alla páskadagana og dagana þar
á eftir frá kl. 3 til 11 daglega.
Blómum stolið
í fyrranótt var brotizt inn 1
blómaverzlunina Eden í Hvera-
gerði og þaðan stolið 17 buntum
af páskalilj um (10 st. í bunti).
Brotizt var inn um bakdyr.
Þeix sem kynnu að hafa orðið
varir við mannaferðir, nálægt
gróðurhúsinu, eru beðnir að láta
ransóknarlögregluna, eða lög-
regluna á Selfossi vita.