Morgunblaðið - 19.04.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.04.1962, Blaðsíða 20
20 MORCinSBL 4 filfí Fímmfudagur 19. apríl 1962 GEORGE ALBERT C LAY: iNA Saga samvizkulausrar konu -------39-------- þykir það hentugra í bili. Og þeir geta hvenær sem er seinna lagt fram kæruna. Mundu það, Gina, að þeir geta líflátið þig fyrir morð, hvenær sem þeir vilja, lauk hann máli sínu. XXIII. Næstu vikurnar gekk Gina i ótta og skelfingu, og bjóst dag- lega við að verða nú tekin hönd- uim og dregin fyrir hemáms- stjórann. í fyrstunnni vildi hún alls ekki fara út úr herberginu sínu, sem henni fannst vera eins konar griðastaður, og jafnvel, löngu seinna, þegar hún vogaði sér um allt húsið og út úr því, var hún taugaóstyrk og leið illa. Hún var önug við barnið, fyrtin við þjónustu fólkið og lamdi Önnu oftar en einu sinni. Einn daginn, þegar fullur bíll af hermönnum kom upp að hús- inu til að leysa vörðinn af hólmi, varð hún ofsahrædd og hélt, að þetta væri aftökusveit. Hún hljóp þá inn í herbergið sitt og lá þar í hnipri á gólfinu, grát- andi. Hún hafði aldrei verið svona ósjálfbjarga og vonlaus á ævi sinni. Eftir því sem dagarnir liðu, tók hún að finna, að henni var tiltölulega óhætt þama í öllu skrautinu í Klettahúsinu og tók að átta sig á því, að öll þessi hræðsla hennar hefði mestmegn- is stafað af ókunnugleika á rás viðburðanna. Anna sagði henni, að verðimir við hliðið væru mjög strangir, og hún fékk ekki einu sinni að nota símann. Þá sjaldan hún fékk annað svar í símann en eitthvert babl á jap- önsku, var henni sagt, að sím- inn væri undir eftirliti og hún yrði að hringja af. Vicente gat lítið frætt hana. Jú, Blas hafði sagt sögu sína. Nei, það var ekkert sem benti til þess, að kærunni hefði verið stungið und- ir stól. Nei, hernámsstjórnin hafði ekki gefið út neina til- kynningu. Út yfir þetta varðist hann allra frétta. Jafnvel eftir að hún þóttist vera úr allramestu hættunni, vissi hún, að hún lá enn undir grun. Engir vina hennar komu í heimsókn í Klettahúsið, ekki einu sinni Blas eða Ishii, enginn hringdi enda þótt Vicente segði, að hringingar í númerið væm leyfilegar. Jafnvel var sumt þjónustufólkið farið, er það fann þennan skugga sem hvíldi yfir öllu húsinu og skynjaði, að staða húsmóðurinnar hékk á bláþræði. Það var eins og allir biðu eftir úrslitunum og væru þá reiðu- búnir að hoppa til þeirrar hlið- arinnar, sem betur hentaði eftir atvikum. Með tíð og tíma fannst henni hún þó ekki vera sérlega óánægð með ástandið, því að hann hefði aldrei trúað, að Tim væri elskhugi hennar. Hann hafði bara hreytt þessari ásökun út úr sér í reiðikasti. Hann hafði verið hræddur og hrelldur, og því Xátið reiði sína koma niður á Ginu heldur en ekki neitt. Hún benti honum á, að ef hún væri raunverulega að draga sig eftir Tim, hefði hún aldrei valið ein- mitt þennan dag til að heim- sækja hann, þegar hún gat ■hvergi verið óhult. Vicente féllst á þessi rök henn ar, mest vegna þess, að hann hafði annað og mikilvægara um að hugsa. Nú, þegar Japanirnir réðu þarna öllu, voru þeir ekki nærri eins fljótir að uppfylla öll loforð sín, eins og þeir höfðu verið að gefa þau í fyrstunni. Hann stjórnaði, eða þóttist stjórna, því sem enn var eftir af fyrirtækjum • de Aviles, en hann var undir stöðugu eftirliti, og fann að hann þurfti að spyrja Japanina ráða og leyfis, áður en hann afréð nokkurn hlut. Á hverjum degi, þegar hann stóð fyrir utan Klettahúsið og beið eftir því að herbíllinn kæmi til að flytja hann til borgarinnar, var honum í skapi eins og hann væri að leggja til orustu. Og á hverju kvöldi, þegar hann kom heim, fann hann heimilið rólegt, friðsælt og vistlegt. Gina sýndi honum allskonar tillitssemi og maturinn v&r góður og uppá- haldsvínin hans með honum. Gina hafði nú gott tóm til að stjórna heimilinu, undirbúa mál- tíðirnar og skipa þjónustuliðinu fyrir. Hún hafði nú líka tíma til að sinna barninu og fann, að það var vel þess virði að eyða í það tíma. Hana langaði aldrei að fara til borgarinnar með Vic- ente, því að borgin minnti hana helzt á rotnandi hold, sem hvít- ir maðkar skriðu um. Eitt kvöldið þegar Vicente kom heim, varð hún þess vör, að hann var eitthvað órólegur. En hann reyndi að dylja óró sína með því að hlæja hátt að öllu, sem hún sagði, en það var greini legt, að hann var áhyggjufullur. Hún beið samt róleg eftir næðis- stundina, sem venjulega var að lokinni máltíð, og þá sagði hún: Gengur ekki allt vel hjá ykk- ur í borginni? Vicente leit kring um sig áður en hann svaraði — það hafði hann lært undanfarið í borginni. Japanirnir eru erfiðir að vinna fyrir þá, játaði hann. En kann- ske skánar það eitthvað, þegar fasti hernámsstjórinn kemur. Hvernig líður foreldrum þín- um? Þau neita að tala við mig, svaraði hann rólega. Ég hef tvisvar farið heim til þeirra. Pabbi er svoddan þverhaus, og honum væri betra að láta sér segjast heldur fyrr en seinna. Japanirnir sýnast afskaplega þolinmóðir, en þeir eru það bara ekki. Og hann notar hvert tæki- færi til að stríða þeim. Það er ekkert alvarlegt, heldur ýmis- legar smáertingar. Hann bauð Sffredo-fjölskyldunni heim til sín, strax eftir að húsið þeirra var tekið. Það var ekki heppi- legt. Japanirnir eru sannfærðir ura, að þeir verði hér um alla fram- tíð, bætti hann við, þegar þau voru komin inn í setustofuna og kaffið var komið á borðið. Og það held ég líka, að þeir verði, enda þótt ég sé ekki nógu kunn- ugur til þess að geta mér til um hve lengi það verður. Hafa þeir gert þér eitthvað núna? spurði húin. Ekki af því, að hana langaði neitt til að vita það, heldur af hinu, að hún vissi að Vicente ætlaðist til þess, að hún gpyrði. Þeir hafa stofnað nýjan skóla í Tokyo, sagði hann. Börn fyrir- manna úr öllum áttum og lönd- um, eiga að ganga í hann og vaxa þar upp saman og kynnast Japan. Ég býst við, að þegar fram líða stundir eigi þessi böm að taka við stjórn í löndunum, sem Japan hefur... .tekið. Vic- ente forðaðist viljandi að segja „hernumið“. Vicente leit á konu sína og þau horfðust í augu um Félagslíf Víkingar Skíðadeild Engin dvöl i Skálanum um páskana vegna óviðráðanlegra orsaka. Stj. sd. —-----------------1-------- Knattspymufélagið Fram Knattspymudeild — 5. flokkur. Útiæfing verður á Framvell- inum nk. laugardag kl. 6 e. h. Áríðandi að allir þeir, sem vera ætla með í sumar, mæti. Þjálfarar. stund, áður en hann bætti við: Það virðist eiga að vera þarna smábarnadeild líka. Þeir hafa trú á því að veiða þá unga, eða hvað? Hún hló. Það er sjálfsagt þeirra aðferð til að gera hlutina rækilega. Barnið okkar á að fara þang- að, sagði hann og beið átekta. Hún sagði ekki neitt, og það var því líkast, sem hún hefði alls ekki skilið þetta. En loksins svaraði hún þó og átti bágt með að koma upp orðunum: Hvenær? Á morgun. Hann getur ekki farið, Vicente, stundi hún loksins upp. Hann er aleigan mín. Og aleiga foreldra þinna. Vicente tók hana í faðm sér og hélf henni þar stundarkom. Það er ekkert við þessu hægt að gera, Gina, sagði hann lágt. Her- námsstjórinn hefur sjálfur á- kveðið, hvaða fjölskyldur skuli afhenda börnin sín, og þetta þykir heiður. Og að neita væri sama sem að kasta frá sér öllu, sem manni er dýrmætt. Stöðu minni.... Stöðu þinni! Hún reif sig frá honum, án þess að vita, að hún hafði öskrað upp yfir sig. Hugs- arðu aldrei um neitt annað en stöðuna þína. Hann er mitt barn! Þú skilur þetta ekki, Gina. Hann reyndi að lægja reiði hennar. Víst skil ég það. Þú hefur nógu mikla stöðu til að láta taka son minn af mér, en ekki nóga til þess að koma í veg fyrir það! Hún hrökk frá honum og reiði hennar var óskapleg. Hnefarnir voru krepptir, eins og hún ætl- aði að berja hana, og augun leiftruðu eins og í reiðu dýri, sem er innikróað. Hann vissi, að hann varð að hrista hana al« mennilega, til þess að koma fyrir hana vitinu. Þú skalt ekki berjast móti þessu, Gina, sagði hann. Við er- um algjörlega valdalaus um þetta. Drengurinn fer í fyrra- málið. Mundu, að þú hefur enga aðstöðu til að skipa fyrir. Þú ert enn grunuð um að hafa drepið japanskan liðsforingja! Op/ð i kvöld -X Op/ð laugardag * Arrnan i páskum Dansaö til kl. I Tríó Eyþóra Þorlákss. leikur öll kvöldin Sími 19636. Gleðilegt sumar! I. O. G. T. St. Verðandi nr. 9. 'ili Fundur á þriðjudaginn 24. aprál í Gt-húsinu kil. 8.30. Venju- leg fundarstörf. Munið að mæta vel og stundvíslega. Æðstitemplar. j Hótel Valhöll á Þingvölium er til sölu Tilboð sendist í pósthólf 445. Barnafatnaður Kjólar — Peysur Blússur — Pils Sokkabuxur Ungbarnafatnaður » Sængurgjafir Laugavegi 70 Lækkun rekstrarkostnaðar samhliða auknu hagræði fæst víða með notkun 3ja tonna sturtuvagna við dráttarvélar t.d. við FISKMÓTTÖKU og EFNIS- FLUTNINGA. Dráttarvélar hf. Laugavegi 33 >í' : TH’NX' I CAM EXPLA'N... AHD PEMOMSTRATE tVHAT METAL FATISL’E is, ouite simply, CAPTA-M P06E es/ T — Eg held ég geti skýrt og sýnt á auðskilinn hátt hvað málmþreyta er, Greisli höfuðsmaður. Þér hafið heyrt um að mikil tenór-rödd hafi brotið GEISLI GEIMFARI >f >f >f IT'S DONE BV SONIC V/BNAT/ON/ USINS A SPECIAL SONIC CHAMBER, I'LL DEMON-! STKATE WHAT HAPPENS TO THIS DUBABILLIUM ALLOY UNDER EXTREME UtTBA-SON/C CONO/T/ONS ' glas. Það er ekkert dularfullt við það hvemig það gerist. Það gerist með hljóðbylgjum. Ég skal sýna yð- ur hvað verður um þennan durabili- um-bita þegar hann verður fyrir öfl- ugum hljómbylgjum í sérstökum hljóðklefa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.