Morgunblaðið - 19.04.1962, Síða 14
14
MOnCTJWfíLAÐlÐ
FimmfiKÍaÉ'Tir 19. apríl 1962
Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
KBISTJÓN KRISTJÁNSSON
núsgagnasmíðameistari,
andaðist að St. Jósefsspitala þriðjudaginn 17. þ.m.
Fyrir hönd aðstandenda.
Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn.
Einginkona min, moðir og tengdamóðir
HALLBERA JÓNSDÓTTIR
tyrrverandi, ljósmóðir,
verður jarðsungir. frá Biönduóskirkju miðvikudaginn
25. þ.m. Athöfnm hefst að heimili hinnar látnu kl. 2 e.h.
Björn Einarsson, börn og tengdabörn.
Fósturmóðir mín
JÓHANNA GÍSLADÓTTIR OLGEIRSSON
andaðist á sjúkradeild Hrafnistu 17. þ.m. — Jarðarförin
auglýst síðar.
Hulda Olgeirsson
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUÐNÝ ÓLÖF JÓNSDÓTTIR
andaðist aðfaranótt 18 þ.m. — Jarðarförir. ákveðin síðar.
Fyrir hönd vandamaima,
Guðgeir Guðmundsson
Elskuleg móðir mín og systir
ÓLÖF GUNNARSDÓTTIR
andaðist að heirmli sínu Óðinsgötu 1, að morgni 15. þ.m.
Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 24 þ.m. kl. 2 e.h.
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
Fyrir hönd ættingja.
Hrafn Jónsson, Sveinn Gunnarsson
Móðir okkar
INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR
Vesturgötu 66,
andaðist að Elliheimilinu Grund, hinn 16. apríl
Fyrir hönd systkina.
Einar Skúlason
Jarðarför móður okkar
HÓLMFRÍÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR
er andaðist 15. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 24. apríl kl. 1,30.
Fríða Jóhannsdóttir, Haraldur Jóhannsson
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUDBJÖRG S. JÓNSDÓTTIR
andaðist 12. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram. Innilegar
þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall hennar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Faðir okkar
KJARTAN ÓLAFSSON
múrarameistari, Njarðargötu 47,
verður jarðsettur frá Dómkirkjunni í Rvík miðvikud.
25. apríl n.k. kl. 2 e.h. — Þeim sem óska að minnast hins
látna, er bent á líknarstofnanir.
Börnin.
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
FALUR SIGGEIR GUÐMUNDSSON
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn
25. þ.m. — Athöfnin hcfst frá heimili hins látna Vatns-
nesvegi 17 kl. 13,30.
Helga Þorsteinsdóttir, Jóhanna B. Falsdóttir,
Hörður Falsson, Ragnhildur Árnadóttir,
Ingólfur Þ. Faisson, Elínborg Einarsdóttir.
Eiginmaður minn
JÓN JÓNASSON
Máfahlíð 9,
sem andaðist þriðjud. 17 apríl, vevður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtud. 26. a.príl. kl. 3 e.h.
Kristín Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
MARÍU INGIBJARGAR ARNESEN
Jónína Arnesen, Geir Arnesen
Sr. Sigurbur Ó. Lárusson
Sjöfugur á laugarclag
„Við munum þekkja þessa gnoð,
þar til hnekkja verður;
hann mun ekki hefla voð,
hvar sem snekkjan kveðjur".
ÞANNIG kvað Þorsteinn um
Bjama frá Vogi, og með þessum
orðum vildi ég hylla þig sjötug-
an, kæri séra Sigurður, því að
engan mann þekki ég öllu ólík-
legri til að „hefla voð“, þótt í
harðtoakka kunni að slá, en þig.
Þó að -þú ættir r.ð baki tæpa
sex tugi ára „í lífsins ólgusjó“
og ég hefði aðeins siglt rúma
tvo áratugi um það úfna haf
mannlífsins, er kynni okkar
tókust fyrst, urðu þau kynni
upphaf vináttu, sem ég tel mér
ómetanlega. Ég fann fljótlega,
að ti'l þín gat ég sótt ráð og lið-
sinni, að vinátta þín var sönn
og ósíngjöm, að þar fór drengur
góður, sem sálusorgari okkar
Hólmara var.
Margt hef ég að þakka þér, og
verður fæst fram talið í stuttri
afmæliskveðju. Vinsemd ykkar
hjóna í okkar garð var okfcur
styrkur í starfi og fögnuður í
tómstundum. Minnist ég margra
skemmtilegra stunda, er hlýtt
var á frásögn þína af tíðindum
fornum og nýjum. Fáa hef ég
vitað kunna skil á að finn« frá-
sögn sinni skemmtilegri búning
en þér var jaínan tamt. Sér í
lagi þakka óg þér skemmtilegar
frásagnir af „aðskiljanlegum
náttúrum" æskuvinar þíns,
meistara Þórbergs. Bókmennta-
sögulegt gildi þeirra tel ég ótví-
rætt.
En þó ber ef til vill fyrst og
fremst að þakka þér, að þú hef-
ur með nokkrum hætti kennt
mér þá list, sem mest er lista,
„listina að lifa“. Það gerðir þú
með mannúð þinni og mildi,
hleypidómaleysi og víðsýni. —
Mörg voru þau vorin, er við unn
um saman. Þú varst að vísu
strangur dómari, en réttlátur og
mannúðlegur. Og þó að þú vær-
ir hamhleypa til verka, minnist
ég þín ef til vill bezt, er við
gerðum hlé á erfiðu starfi, þú
fékkst þér í nefið og við létum
hugana reika um víðáttur tíma
og rúms. Einhvern veginn finnst
mér, er ég hugsa um þá vor-
daga, að þú sért arnfleygasta
skáld, sem ég hef kynnzt, heim-
spekíngur skarpskyggn, og ortó-
doxían þín finnst mér á einhvern
hátt það stórfenglegasta frjáls-
lyndi, sem ég hef komizt í kynni
við.
Ekki er ég maður til að ræða
merk störf þín innan kirkjunn-
ar. Þó vil ég geta þess, að marg-
ar ræður þínar hverfa mér vart
úr huga. Og einhvern veginn
finnst mér alltaí, að þú sért
presturinn, eina og hann hefur
Hjartans þakkir færi ég öllum vinum og vandamönn-
um, sem heimsóttu mig op glöddu með skeytum og gjöf-
um á 70 ára afmæli minu 15. marz s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna I. Jónsdóttir, Bolungarvík.
Innilegar þakkir til aJlra nær og fjær, fyrir heim-
sóknir, gjafir og skeyti á 60 ára aimæli mínu 5. þ.m.
Lifið heil.
Guðjón Guðjónsson.
Mínar hjartanlegustu þakkir til allra er á margvís-
legan hátt heiðruðu mig á fimmtugsafmælinu.
Sérstaklega færi ég samstarfsmönnum minum þakkir
fyrir höfðinglegar gjafir.
Beztu framtíðaróskir til ykkar allra.
Pétur Guðmundsson, póstmaður.
Maðurinn minn
SVAVAR B. BJÖRNSSON
Miklubraut 62,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
25. þ.m. kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Valborg Jónasdóttir.
Alúðar þakkir til allra sem sýndu samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður
GUÐBJARGAR OLIVERSDÖTTUR
Arnarhrauni 44, Haínarfirði
Börn og tengdabörn
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og
afa,
GÍSLA Þ. GILSSONAR
Elínborg og Einar, Svanfríður og Páll,
Guðrún, Friðdóra og barnabörnin
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðaríör mannsins míns, föðui okkar, tengda-
föður og afa
HJARTAR INGÞÓRSSONAR
fulltrúa.
Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunar-
liði Vífilsstaðahælis og samstarfsmönnum hins látna.
Pálína Sigmundsdóttir,
Kristján Hjartarson, Þórunn Sigurðardóttir,
Koibrún og James Comscock,
Haukur Hjartarson og barnabörn.
verið beztur 1 menningarbar-
áttu þjóðar okkar um aldir: Eng
in hálfvelgja, ekkert hik. Jafn-
vel lítiltrúaða gerðir þú hluttak-
endur í dýrðinni miklu.
Enn á ég margt ósagt. Þó að
samstanf okkar stæði aðeins
tæpan áratug, finnst mér ég hafa
svo margt um þig að segja, að
heila bók þyrfti til að rúma það.
Svo mikil áhrif hefur persónu-
leiki þinn haft á mig.
En ég veit þú skilur, að meira
er ek'ki vert að þylja hér. Og ég
veit, að þú forlætur þetta ó-
merkileg-a skrif í tilefni afmælis
þíns. Ég veit bezt, að þú verð-
skuldar, að það væri mi'klu
meira og betra.
Með kærri kveðju til ykkar
prófastshjónanna frá vinum
ykkar á Skaga.
„Við munum þekkja þessa gnoð,
þar til hnekkja veður.... “
Ólafur Haukur Árnason.
SIGURÐUR Óskar Lárusson,
prófastur í Stykkishólmi, á sjö-
tugsafmæli laugardaginn fyrir
páska, hinn 21. þ. m. Hann
heíur haft Helgafellsprestakall
með búi sínu í Stykkishólmi síðan
1920, tekið þátt í margvíslegum
framförum og umbótamálum
byggðarlagsins, átt sæti í hrepps
nefnd, verið oddviti í stjórn
Sparisjóðsins og skólanefnd, svo
nokkuð sé nefnt. Hann er fædd-
ur á Sjónarhóli á Vatnsleysu-
strönd. Foreldrar hans voru
Guðrún Þórðardóttir og Lárus
Pálsson, smáskammtalæknir.
Séra Sigurður gekk mennta-
veginn og varð stúdent 1914,
lauk guðfræðiprófi 1918 og vigð-
ist svo hingað 1920. í æsku var
hann mikill unnandi íþrótta-
hreyfingarinnar, tók þar mjög
virkan þátt og enn er hugur
hans hinn sami til þeirrar starf-
semi, svo og til allra félagsmála,
er hann veit að horfa til bóta.
Að heimsækja hann er fyrirtak,
fróður og víðlesinn og minnugur
á hið forna, alltaf skemmtilegur
og hýr í samtali. Tilfinninga-
maður og segir óhikað hverjum
sína skoðun, hvort sem honum
líkar betur eða verr, en undir-
hyggju og tvískinnungshátt þekk
ir hann ekki. Um það getur sá,
sem þetta ritar. talað af reynslu.
Ég hef auðgast mjög af kynnum
mínum við hann og eftir þvi sem
lengra líður, þá treystist vinátta
okkar betur. Þannig er með
fleiri.
Þá skal ekki því gleymt, að
sr. Sigurður er mikill embættis-
máður, messar í kirkjum sínum
hvern sunnudag og minnist ég
ekki þess að í þau 20Jir, sem ég
hef átt hér heima, hafi messu-
fall orðið. Alltaf er hann á rétt-
um tíma við sín prestsverk, þar
skeikar ekki um mínútu.
' Séra Sigurður er kvæntur
Ingigerði Ágústsdóttur Þórarins
sonar. en hún er alsystir Sig-
urðar alþingismanns. Þau hjón
eiga miklar vinsældir hér og al-
mennar. Ég óska þeim hjónum
allra heilla á þessum degi, bið
þeim sannrar blessunar og
þakka einlæga og góða viður-
kenningu og fjölda ánægjustund
ir á heimili þeirra.
Árni Helgason.