Morgunblaðið - 29.04.1962, Blaðsíða 2
2
MOr CTJNBL AÐIÐ
Sunnudagur 29. apríl 1962
Skátadagur í dag
SÍÐUSTU 2 árin hafa skátar í
Reykjavík verið að skapa sér
sérstakan skátadag, þar sem
skátar færu í skrúðgöngu um
götur borgarinnar og hefðu
varðeld þar sem sýnt er Skáta-
starfið eftir veturinn.
Að þessu sinni verður skáta-
dagurinn hafður sunnudag 29.
apríl.
Fyrir hádegi munu deildir
Skátafélags Reykjavákur og
Kvenskátafélag Reykjavíkur
hafa göngur, syngja og fara í
leiki hver heima í sínu hverfi.
Eftir hádegi sameinast allar
deildir félaganna við Skátaheim
ilið við Snorrabraut og kl. 3 e.h.
hefst hin fjölmenna skrúðganga
Skáta frá Skátaheimilinu og
gengið verður Flókagötu, Rauð
arárstíg, Háteigsveg, Nóatún,
Stórholt, Laugaveg, Banka-
stræti, Austurstræti, Aðalstræti,
— Hahteinn
Framh.. af bls. 1
yfir því að samkv. eindregnum
óskum vorum framibornum í fullu
samráði við Fulltrúaráð Sjálf-
stæðisféloganna, hefur hr. héraðs
dómslögmaður Hafsteinn Bald-
vinsson fallist á að taka við kjöri
sem bæjarstjóri að afloknum
bæj arstj órnarkosningum.
Hafsteinn Baldvinsson, er
kunnur fjölmörgum HcLfnfirð-
ingum og erum vér þess fullviss,
að með skipan hans í emibætti
bæjarstjóra sé á hinn ákjósan-
legasta hátí skipað sæti þessa
æðstá embættismanns bæjarins.
Er hann vel menntaður, traustur
Og ábyggilegur, réttsýnn Og sann
gjarn og myndi örugglega ávinna
sér traust Og virðingu bæjarbúa
og vera til sóma bæjarfélaginu
inn og út á við.
Myndum vér telja Hafnfirð-
ingum mikinn feng að því að
mega njóta starfskrafta hans að
málum bæjarfélagsins".
Undir yfirlýsinguna rita Stefán
Jónsson, Eggert fsaksson, Páll
V. Daníelsson, Elín Jósefsdóttir
og Árai Grétar Finnsson.
Hafsteinn Baldvinsson er Hafn-
firðingum að góðu kunnur frá
því að hann dvaldist ungur
maður i Hafnarfirði á uppvaxt-
ar- Og námsárum sínum, en hann
er sonur Baldvins heitins Hall-
dórssonar, skipstjóra, og konu
hans, Helgu heitinnar Jónsdóttur.
Að lögfræðinámi loknu hefur
hann lengst af starfað hjá Lands-
samibandi íslenzíkra útvegsmanna.
Hefur hann i því starfi öðlazt
mikla þekkingu á öllu því, er
lýtur að höfuðatvinnuvegi Hafn-
firðinga, sjávarútveginum.
Túngötu, Hofsvallagötu, Hring-
braut, Suðurgötu, Skothúsveg,
Laufásveg, Hringbraut, Snorra-
braut, Egilsgötu, Barónsstíg og
Bergþórugötu og þaðan inn á
lóð Austurbæjarbarnaskólans,
þar munu skátar hylla borgar-
stjórann í Reykjavík. Geir Hall
grímsson, stjórn Bandalags ís-
lenzkra skáta og stjórnir Skáta-
félaganna í Reykjavík. Þá verða
flutt stutt ávörp af borgarstjór-
anum í Reykjavík, Geir Hall-
grímssyni, skátahöfðingjanum
Jónasi B. Jónssyni og félagsfor-
ingja S. F. R. Þór Sandholt.
Um kvöldið verður rúmlega
klukkutíma varðeldur við Aust-
urbæjarskóla, sem byrjar kl. 8
um kvöldið, þar munu skátar
kveikja eld, sýna lei'ki og syngja.
Skátar bjóða borgarbúum að
taka þátt i gleði sinni og gera
þennan skátadag skátaársins eft
irminnilegan.
HEIMDALLUR
FÖNDUR-NÁMSKEH)
Heimdallar fyrir stúilkur held
ur áfram á morgun, mánudag,
kl. 8:30 í Valhöil. — Stjórnin.
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur að undanförnu sýnt skopleikinn
„Klerkar í klipu" við mjög góða aðsókn og undirtektir. Næsta
sýning á leiknum er nk. þriðjudag kl. 9.15. Myndin er af Ragn-
ari Magnússyni og Auði Guðmundsdóttur j hlutverkum sínum.
Framkvæmdir í Olíu-
portinu stöðvaðar
V'erkið haíið an þess að leyfis væri leitað
FVRnt nokkrum dögum var haf-
izt handa um að rýma til í Olíu-
portinu svonefnda fyrir austan
Menntaskólann og nndirbúning-
ur að byggingarframkvæmdum
þar hafinn. Á föstudag voru fram
kvæmdir þessar stöðvaðar eftir
að meirihluti byggingarnefudar
hafði synjað fyrirspum um leyfi
tii framkvæmdir, þar eð nua. ekki
lá fyrir staðfestur lóðaruppdrátt
ur.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær hjá Páli
Lírtdal, skrifstofustjóra borgar-
stjóra, hefur mál þetta verið all-
mikið rætt i samvinnunefnd borg
arinnar um skipulagsmál, og síð-
ast 26. febrúar. Voru þá lagðir
fram uppdrættir Og svofelld álykt
un nefndarinnar bókuð:
,,Nefndin tekur- fram, að nauð-
synleg endurskipulagning hverfis
ins hefur ekki íarið fram og er
því eklki unnt að leyfa varanlegar
Vf AM/ÍW«rj
SV50 />nútor\
SnjóÁomð
» úSiimm
V Skúrir (C Þrumur 'Wz, KuUoM ZS HUttkH HfHm* |
VORHLÝINDI eru nú dag
hvern hér á landi með sunnan
áttinni, og svo mun verða á
meðan hæð er fyrir austan
landið og vonandi að það hald
ist enu um sinn.
í Vestur-Evrópu er hins
vegar norðanvmdur Og svalt.
T. d. var ekki nema 6 stiga
hiti í París á kort-tímanum í
gærmorgun, eins og sjá má,
og í Stokkhólmi var hitinn að
eins 4 stig. Það minnir okkur,
sem nörðar búum á hvað ver-
ið gæti hér, ef hæðin sneri að
akkur austurhliðinni.
byggingar á þessum stað. Þar sem
nefndinni er hinsvegar kunnugt
um hvernig húsnæðismáluni
menntaskólans er komið, telur
hún þó ekki annað fært en að
fallast á eiindið að því tilskildu
að um bráðabirgðahyggingu sé að
ræða“.
Mál þetta kom síðan ekfci til
kasta borgarinnar fyrr en á
fimmtudag, en þá var tekin fyrir
á fundi bygginganefndar fyrir-
spurn um hvort byggingarnefnd
vildi leyfa að framkvæmdir yrðu
hafnar samkvæmt uppdráttum
þeim, sem áður er rætt um. Meiri
hluti byggingarnefndar, fjórir,
synjaði, en þrír nefndarmenn
voru fylgjandi, og gerði minni-
hlutinn þá grein fyrir cifstöðu
sinni að það væri eingöngu vegna
þess öngþveitis, sem væri í hús-
næðismálum skólans, að hann
styddi málaleitunina en hins
vegar teldi hann að skipulagslega
séð væri þetta mjög hæpið.
Ekki hafði verið sótt um leyfi
til byggingafulltrúa eða bygginga
nefndar áður en framlkvæmdir
hófust.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
mundar Halldórssonar, bygginga
fulltrúa, lá ekkert fyrir á áður-
nefndum fundi bygginganefndar
um að skólinn ætti rétt til lóð-
arinnar. Sagði Sigmundur að
bygginganefnd gæti ekki leyft
framkvæmdir á annara manna
lóðum. Ekki hefði heldur legið
fyrir neinn staðfestur uppdráttur
af lóðinni, og. meirihlutinn hefði
verig á móti byggingunni vegna
vegna skipulagsins í heild. Grafið
hefði vevið á lóðinni í nokkra
daga án þess að leýfis væri leitað,
og ennfremur hefði það komið
fram, að hér hefði ekki verið um
bráðabirgðahúsnæði a ræða.
Stokkhólmi, 28. apríl
— NTB — TTT.
DAGANA 11. — 18. ágúst 1 sum-
ar verður haldið í Ystad í Svíþjóð
heimsmót ungra esperantista.
20,000 tunntii
af síld í
fyrrinótt
AÐFARANÓTT laugardagsins
var veður gott á síldarmiðun-
um, þoka og hægviðri. Veidd
ist síldin á svipuðutn slóðum
og aðfararnótt föstudags, um
17 sjómílur SA af Arnarstapa.
f gærmorgun höfðu 16 bátar
tilkynnt síldarleitarskipinu
Fanneyju um afla, samtals
tæplega 20 þús. tunnur. Afla-
hæstir voru Sigurður AK
1100, Bergvík 1200, Gjafar
1300, Hringver 1100, Víðir II
1500, Jón Trausti 1850, Pálína
1000, Ólafur Magnússon EA
1400, Guðmundur Þórðarson
1800, Haraldur 1900, Skírnir
1600, Eldhorg 1300, Sæfari 900
ög Höfrungur II 1100.
Lýðháskólanám
á vegum
Norræna félagsins
SVO SEM mörg undanfarin ár
gefst íslenzkum unglingum kost
ur.á að stunda nám við lýðhá-
skóla á Norðurlöndum á vetri
komanda fyrir milligöngu Nor-
ræna félagsins. Veita frænd-
þjóðimar styrki í þessu skyni,
og nægja þeir í flestum tilfell
um til greiðslu dvalarköstnaðar
og skólagjalda. Lýðháskólarnir
veita nemend|num almenna
menntun, sem nánast má segja
að sé framhald gagnfræðanáms,
sem nemendur verða að hafa
lokið. Reynslan af skólum þess-
um hefur verið hin prýðilegasta.
Umsóknir um skólavist við
nörrænan lýðháskóla skulu
sendar Nörræna féla-ginu, póst-
hólf 912, Reykjavík fyrir 5. maí
n.k. Skulu þeim fylgja afrit af
gagnfræðaprófskírteini eða eink
unum við miðsvetrarpróf, ef um
sækjandi tekur gagnfræðapróf í
vor, fæðingarvottorð og meðmæli
skólastjóra eða vinnuveitenda.
Umsækjendur verða að vera
orðnir 18 ára eða verða það
snemma á skólaárinu. Vilji þeir
vera í einu landi öðru fremur,
skal þess getið í umsókninni.
Nánari upplýsingar veitir
Sveinn Ásgeirsson, hagfræðing-
ur, sem gegnir störfum fram-
kvæmdastjóra Norræna fólagis-
ins.
Kvenfélagið
afbiður sér
„heiðurinn64
Þjóðviljinn skýrði frá þvi
s.I. föstudag, að Kvenfélag
Selfoss stæði að lista „vinstrí
stjórnar-manna" þar á staðn
um. f eftirfarandi yfirlýsingu
afbiður kvenfélagið sér „heið
urinn“:
AÐ GEFNU tilefni ti'lkynnist hér
með, að Kvenfélag SeLfioss er
ekki aðili að neinum framboðs-
lista til sveitarkosninga á Sel-
fossi.
Félagið er ópólitísikt og með-
limir þess úr öllum stjórnmála-
flokkum og gæti þess vegna ekki
skipað sér á lista með einum
flokk eða fleirum á móti öðru'm.
Það hefur aldrei komið tiii
orða, hvorki innan stjómarinnar
né á félagsfundi að félagið hefði
minnstu íhlutun með þessuim
kosningum.
Fh. Kvenfélags Selfoss,
Ólöf Österby
formaður
(sign)
Sýningu Einars
Þorlákssonar
lýkur í dag
MLVERKASÝNINGU Einars Þor
lákssonar í Listamannaskálanuin
lýkur í dag, sunnudag. Á sýning-
unni eru 90 málvenk, þar af
hafa 80 verið til sölu. Aðsókn að
sýningunni hefur verið góð og
hafa um 40 myndir selzt.
— Járnsmiðir
Framh. af bls. 24.
kom fram um það, hvort stjórn
in eða atvinnurekendur hefðu
bryddað upp á nokkru nýju i
sambandi við launagreiðslufyr-
irkomulag, er tryggt gæti, að
verðbólguhjólið færi ekki af
stað að nýju.
Á fundinum í fyrrakrvöld var
spurt, hvers vegna ekki væri
höfð samstaða með öðrum iðn-
aðarmannafélögum. Lítiil sem
engin svör fengust við þeirri
spurningu.
Kristján Ág. Eirlksson, einn
af stjórnarmönnum kommúnista
í félaginu, bar fram tillögu um,
að stöðva alla næturvinnu þegar
í stað til þess að ekki tækist að
ljúka viðgerð á strandtferðaskip
inu Esju, og það stöðvaðist f
væntanlegu verkfalli. Þessi tii
laga var samiþykkt.
Einn fundarmanna lagði til, að
ekki yrði samið við einstök verk
stæði, heldur öll í einu, en þvi
mótmæltu kommúnistar harð-
lega, og fékkst tiillagan ekki sam
þykkt.
FIRMAKBPPNI Bridigefélaga
Kópavogs er nú að ljúka. Staðan
fyrir síðustu umferð hjá efstu
fyrirtækj unum er þessi:
Efnagerðin Valur 327 stig.
Rörsteypan h.f. 326 stig.
Sparisjóður Kópavogs 305 stig.
Biðskýlið s.f. 302 stig.
Vibró h.f. 292 stig.
Póló h.f. 290 stig.
Steinhús h.f. 287 stig.
Brunabótafiél. fsl. 285 stig.
Nesti hJ. 282 stig.
Síðasta umferð í keppni þess
ari verður spiluð n.k. mánudags
I kvöld 30. april kL 8 ejh. í félags
i heimilinu.