Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 1. maí 1962
MOBCUJSni.ATtlÐ
Friffleifur
Friffriksson,
fyrrv. form.
Þróttar:
Eins og ölum má ljóst vera,
bygist lífsafkoma og ham-
ingja allra launþega fyrst og
fremst á því, að fyrir hendi
sé næg og góð atvinna fyrir
alla þá, sem geta og vilja
vinna. Aldrei í sögu þjóðar-
innar, miðað við friðartíma,
hefur annað eins góðæri at-
vinnu og aflafanga gengið
yfir þetta land og nú tvö
undanfarin ár. Og það er
langt síðan þjóðar búskapur-
inn hefur staðið með öðrum
eins blóma, bæði inn á við
og út á við, og hann gerir nú.
Að sjálfsögðu eru menn
misjafnlega ánægðir með
hlut sinn, nú sem endranær,
hversu vel sem árar og hvern
ig sem að er farið. En það
breytir ekki þeirri staðreynd,
að sé litið á afkomu fjöldans
í heild, þá er hún yfirleitt
góð.
Þeir, sem með sanngirni
hafa undan einhverju að
kvarta í kaupgjalds og kjara-
málum, eru helzt þeir verka-
menn, sem ekki eiga kost á
nema 8 tíma vinnu á dag á
lægsta taxta. En þeirra hlut
ætti að vera unnt að rétta, án
þess að þjóðarbúskapurinn
Aukinn kaupmáttur byggist
á auknum þjóðartekium
gangi úr skorðum, ef hyggi-
lega og rétt er að farið.
Ég álít, að viðreisnarstefna
núverandi ríkisstjórnar hafi
bjargað þjóðinni út úr þeim
botnlausu ógöngum, sem hún
var komin í í tíð vinstri
stjórnarinnar, þegar ekki var
annað sjáanlegt en ríkisgjald-
þrot blasti við með þeim geig
vænlegu afleiðingum, sem
það hefði haft í för með sér
fyrir alla launþega landsins.
Stærsta hagsmunamál allra
launþega í dag og í náinni
framtíð tel ég vera að hjálpa
núverandi ríkisstjórn til að
viðhalda jafnvægi í þjóðar-
búskapnum, bæði inn á við
og út á við, svo að þjóðar-
tekjurnar megi vaxa jafnt og
þétt og trygg atvinna haldist
með síbatnandi afkomu laun-
þeganna og þjóðarinnar í
heild. En til þess að þetta
megi takast, þurfa launþegar
að snúast hart gegn kommún
istum og því glundroðaliði,
sem þá styður beint og ó-
beint og stefnir nú markvisst
að því, að koma hér á á næst
imni keðjuverkföllum undir
því yfirskini að bæta hag
launþega með hækkaðri
krónutölu í kaupi. Öllum viti
bornum mönnum er fyrir
löngu Ijóst, að verkföll borga
sig aldrei.
Þegar allar stéttir hafa hækk
að laun sín í krónutölu, en sú
kauphækkun byggist ekki á
auknum þjóðartekjum,
gerist það eitt, að okkar litla
króna hefur enn fallið í verði,
og dýrtíð og álögur hækka,
svo að kaupmátturinn verður
szt meiri en að öllum líkind
um minni en áður, er farið
var af stað. Atvinnutjónið af
verkföllunum fæst aldrei
bætt og versnandi afkoma at-
vinnuveganna hefur í för með
sér minnkandi vinnu og verri
lífsafkomu fjöldans.
Gegn slíkri þróun ber öllum
heiðarlegum íslendingum að
spyrna við fæti.
Að endingu vil ég benda á,
að ég veit aðeins um eina
stétt á landinu, og þó sérstak
lega hér í Reykjavík, sem
þrátt fyrir góðæri í atvinnu-
málum almennt á við atvinnu
leysi að stríða. Og það eru
vörubílstjórar. Ekki verður
um það dieilt, að þessi stétt
hefur á undanförnum áratug
um innt af hendi veigamikið
starf í þágu atvinnuveganna
og við uppbyggingu okkar
vinsælu höfuðborgar. Enn
fremur hefur hún lagt mikið
á sig í seinni tíð til að geta
endurnýjað bílaflotann, svo
að hægt sé að bjóða upp á
það bezta og fullkomnasta á
þessu sviði hverju sinni.
En því miður hafa atvinnu-
rekendur ekki metið þessa
viðleitni að verðleikum, held
ur lagt óhemju mikla fjár-
festingu í bílakaup í von um
hagnað, sem í fæstum tilfell-
um hefur orðið að veruleika
Ég vil nú skora á vinnuveit-
endur almennt að kynna sér
málin betur, áður en þair
leggja í frekari bílakaup. Tal
ið fyrst við Vörubílstjóra-
félagið Þrótt og þá mun
örugglega hin bezta og hag-
kvæmasta þjónusta látin í té,
sem um er að ræða hverju
sinni.
Ég vil svo óska öllum laun-
þegum til sjós og lands til
hamingju með daginn og
gæfu og gengis um ókomna
framtíð.
Efling samkeppni
neytemíum hagkvæmast
Frd aðalfundi Fél. ísL störkaupmanna
AÐALFUNDUR Félags ís-
lenzkra stórkaupmanna var
haldinn laugardaginn 14. apríl,
í Þjó'ðleildlúskjallaranum. For-
maður félagsins, Kristján G.
Gíslason, setti fundinn, og
minntist þriggja félagsmanna,
sem látizt hafa á sl. starfsári,
en þeir eru Guðmundur Jó-
hannesson, Wilhelm Jensen og
Andreas J. Bertelsen. Risu
fundarmenn úr sætum til að
votta hinum látnu virðingu
sína. Fundarstjóri var kjörinn
Egill Guttormsson, stórkaup-
maður, en fundarritari Jón Ó.
Hjörleifsson, viðskiptafræðing-
ur. —
í skýrslu formanns og fram-
kvæmdastjóra félagsins, um
starfsemi þess á hinu liðna
starfsári, var skýrt frá hinum
fjölmörgu verkefnum, sem
stjórn félagsins og skrifstofa
hafa haft með að gera. Var m.
a. sagt frá því, sem félagið
hefur fengið ágengt í verðlags-
málum, skatta- og útsvarsmál-
um, söluskattsmálum, tolla-
lækkunarmálum og mörgum
fleiri málum. Jafnframt var
skýrt frá því, að í ágústmánuði
6l. hefði félagið flutt aðsetur
sitt í hið nýkeypta hús félags-
ins, Tjarnargötu 14, og væri
rekstur félagsins í miklum
blóma. — Kom skýrt fram í
6kýrslu stjórnarinnar, að nauð-
synlegt væri nú þegar að gera
raunhæfar aðgerðir í þvi að
fella niður allar hömlur í sam-
bandi við verðlag, því að ljóst
væri, að framboð og eftirspurn
á vörum og þjónustu væri nú
þannig háttað, að hag neytenda
væri bezt borgið með eðlilegri
eamkcppni á markaðinum. Slík
eamkeppni tryggi neytendum
bezt kjör. Þá var og skýrt frá
því að stjórn félagsins hefði á
prjónunum ýmsar hugmyndir
og fyrirætlanir í sambandi við
byggingu skrifstofu- og vöru-
geymsluhúss fyrir félagsmenn,
og væri það mál vel á veg
komið. Ennfremur var sagt frá
mjög góðri samvinnu milli Fé-
lags íslenzkra stórkaupmanna
og stórkaupmannafélaga á
hinum Norðurlöndunum, og
væri þessi samvinna sífellt
að aukast. Þá var og fagn-
að hinum öra og mikla vexti
Verzlunarbanka íslands hf. á
sl. ári, og var í því sambandi
m. a. gerð ályktun, þar sem
skorað var á stjórn Seðlabanka
íslands og ríkisstjórn að veita
Verzlunarbankanum nú þegar
gjaldeyrisréttindi, svo að hann
gæti fullnægt öllum bankavið-
skiptum verzlunarstéttarinnar.
Á fundinum voru einnig gerðar
ályktanir um verðlagsmál, tolla-
lækkanir og afnám geymslufjár
í bönkum.
Að lokinni skýrslu formanns
og framkvæmdastjóra las gjald-
keri félagsins, Sveinn Björns-
son, stórkaupmaður, upp reikn-
inga íélagsins og skýrði þá.
Kom greinilega í ljós, að hagur
félagsins hefur aukizt mjög
mikið á sl. starfsári, og ber að
fagna því.
Annar af fulltrúum FÍS í
stjórn íslenzka vöruskiptafélags
ins sf., Bergur G. Gíslason,
stórkaupmaður, skýrði frá starf
semi þess félags, svo og reikn-
ingum fyrir sl. ár. Guðmundur
Ámason, stórkaupmaður, full-
trúi FÍS í stjórn Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, skýrði frá
störfum sjóðsins á sl. ári, svo
og skýrði hann reikninga sjóðs-
ins. í skýrslu Guðmundar kom
fram, að vöktur sjóðsins er
orðinn mjög mikill, . og hafa
mjög margir sjóðsfélagar feng-
ið úr honum lán. Innborguð ið-
gjöld til sjóðsins frá stofnun
hans nema nú ca. 27 millj. kr.
og eru peningar Lífeyrissjóðsins
ávaxtaðir í Verzlunarbanka ís-
lands hf að verulegu leyti.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga stórkaupmennirnir, Krist-
ján G. Gíslason, sem hefur ver-
ið formaður félagsins undan-
farin 3 ár, og var hann endur-
kjörinn einróma. Aðrir, sem
ganga áttu úr stjóminni voru
stórkaupmennirnir Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, Sveinn Björns
son, Gunnar Ingimarsson og
Jón Hjörleifsson. Sveinn Björns
son baðst eindregið undan end-
urkjöri, en hinir voru endur-
kjörnir með samhljóða atkvæð-
um. Hannes Þorsteinsson var
kjörinn í,stjómina til eins árs.
Stjórnxna skipa nú eftirtaldir
menn: Kristján G. Gíslason, for-
maður, en meðstjórnendur eru
þeir Hilmar Fenger, Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson, Friðrik
Sigurbjörnsson, Gunnar Ingi-
marsson, Jón Hjörleifsson og
Hannes Þorsteinsson.
Endurkoðendur voru endur-
kjörnir samhljóða þeir Ólafur
Haukur Ólafsson og Tómas Pét-
ursson. Vegna þess, að nú
stendur yfir endurskoðun á lög-
um og uppbyggingu Verzlunar-
ráðs íslands var samþykkt á
fundinum að fresta kjöri full-.
trúa félagsins í stjórn Verzlun-
arráðs íslands, þar til síðar, og
fór því kjör þessara fulltrúa
ekki fram að þessu sinni. — í
fundarlok þakkaði formaður fé-
lagsins Sveini Björnssyni sam-
veruna í stjórn félagsins og
fyrir góð störf, svo og þakkaði
hann Jundarmönnum góða
fundarsókn og fundarstjóra,
Agli Guttormssyni, fyrir góða
fundarstjórn.
FulEtrúarað SJálfstæðis-
félaganna ■ Árnessýslu
Kynnist SERVIS
og þér kaupii) Servis
Félag vestfirzkra
skreiðarframleið-
enda stofnað
FÖSTUDAGINN 13. apríl s.l. var
stofnað á ísafirði Félag vest-
firzkra skreiðarframleiðenda Og
voru mættir á stafnfundinum
flestir skreiðarframleiðendur á
félagssvæðinu.
Hlutverk félagsins er að vinna
að hvers kónar hagsmunamálum
félagsmanna sinna, bæði varð-
andi framleiðsluna og sölu henn-
ar. Enn fremur að félagið annist
sjálft sölu á framleiðslu félags-
manna, komi í Ijós,-að það teljist
hagkvæmt.
Á fundinum voru rædd ýmis
vandamál skreiðarframleiðenda á
Vestfjörðum, svo sem verðhlut-
fall milli stórfisks og smáfisiks í
skreið, en sem kunnugt er er
vinnslukostnaður margfaldur á
smáfiski, en hann er einmitt uppi
staðan í framleiðslunni á Vest-
fjörðum.
f stjórn félagsins voru kosnir:
Bogi Þórarinsson, kaupfélagstj.
Patreksfirði, Þórður Júlíusson út-
gerðarmaður ísafirði, Einar Guð-
finnsson útgm. Bolungarvík, Ósk
ar Kristjánsson framkvæmdastj.
Súgandafirði og Jón ö. Ðárðar-
son kaupm. ísafirði. — Jón Páll.
Fjórar gerðir — oftast fyrir-
liggjandi. — Viðgerða- og
varahlutaþjónusta að
Laugavegi 170. • Simi 17295
AFBORGUNARSKILMÁLAR
Austurstræti 14. - Sími 11687.
Hekla
STOFNFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Árnes-
sýslu var haldinn á Selfossi mið
viikudaginn 28. marz s.l. og var
hann mjög fjölmennur. Fundar-
stjóri var Gunnar Sigurðsson í
Seljatungu.
Axel Jónsson, fulltrúi Mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins,
mætti á fundinum og flutti ýtar
lega ræðu um starfssvið full-
trúaráðanna, einnig skýrði hann
lög þau er ráðinu voru sett.
í stjórn Fulltrúaráðsins voru
kosnir:
Helgi Jónsson, Selfossi, formi.,
Einar Eiríksson, Miklholtshelli,
ritari, Einar Sigurjónsson, Sel-
fossi, gjaldkeri. Meðstjórnendur:
REYKTO ekki
í RÓNilNU!
Bjarnþór Bjamason, Stokkseyri,
Georg Michelsen, Hveragerði,
Matthías B. Sveinsson, Hvera-1
gerði, Óskar Magnússon, Eyrar
bakka, Pétur Aðalsteinsson, íra
fossi, Róbert Róbertsson, Brún,
Sigmundur Sigurðsson, Syðra-
Langholti og Þorsteinn Sigurðs-
son, Selfossi.
Þá fór fram kosning fulltrúa í
kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins I Suðurlandskjördæmi.
Þá var sameiginleg kaffi-
drykkja og voru fjörugar urnræð
ur um stjórnmálaviðhorfið með-
an setið var undir borðum og
kom glöggt fram einhugur Sjálf
stæðismanna með stefnu ríkis-
stjórnarinnar í bjóðmálum. *
Húseigendafélag Reykjavíkur.
F élagslíl
Knattspyrnufélagiff Valur
Knattspyrnudeild
Æfingatafla sumariff 1962.
Meistara- og 1. flokkur.
Mánudögum kl. 9.00—10.30.
Miðvikudögum kl. 9.00—10.30.
Föstudögum kl. 7.30—9.00.
Fundir annan hvern föstudag
kl. 9.00.
2. flokkur
Þriðjudögum kl. 7.30—9.00
Fimmtudögum kl. 9.00—10.30.
Sunnudögum kl. 10.30—11.30.
Fundir annan hvern þriðju-
dag kl. 9.00
3. flokkur.
Mánudögum kl. 7.30—9.00.
Miðvikudögum kl. 7.30—9.00.
Föstudögum kl. 9.00—10.30.
Fundur annan hvern miðviku
dag kl. 9.00.
4. flokkur,
Mánudögum kl 6.30—7.30.'
Miðvikudögum kl. 6.30—7.30.
Föstudögum kl 6.30—7.30.
5. flokkur A og B
Mánudögum kl 5.30—6.30.
Þfiðjudögum kl. 6.30—7.30
Föstudögum kl 6.30—7.30.
5. flokkur C og D.
Mánudögum kl. 5.30—6.30.
Þriðjudögum kí. 5.30—6.30.
Fimmtudögum kl. 5.30—6.30.
Knattþrautir
Fimmtudögum kl. 7.30—9.00.
Munið að mæta stundvíslega
og hætta stundvíslega. Æfingin
skapar meistarann.