Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 1. maí 1962 MOPnrisnt ***ib 21 Ólöf Gunnarsdóttir Fæðd 6. apríl 1888. Dáin 15. apríl 1962. ÉG hafði ekki hugsað mér að hafa þessi minningarorð mörg, enda býst ég ekki við að hin framliðna kona hefði óskað þess, því eðli hennar var hlédrægt, og starf hennar því ekki marg- |þætt í hinu opinbera þjóðlífi. En að minni meiningu getur annar starfsvettvangur verið þyngri á metaskálum verðleik- ans, og það er um hann sem ég vil fara nokkrum orðum, hvað Viðkemur hinni lótnu. Ef lýsing sú, sem ég ætla með þessum lín- um mínum að draga fram í dags Ijósið, á hennar sterka og sér- etæða persónuleika, gæti orðið um leið öðrum til fyrirmyndar og eftirbreytni, þá yrðu orð mín ekki oftöluð. Ólöf ólst upp i föðurhúsum, og þaðan vék hún svo að segja aldrei; foreldrum sínum þjónaði hún til þeirra æviloka, af þeirri dæmafáu kostgæfni, sem ég býst vart við að eigi sér aðra líka. Hún var dóttir hjónanna Salvar- ar Guðmundsdóttur. og Gunnars Gunnarssonar, trésmiðs, sem voru lengst af kennd við Óðinsg. 1, þar sem þau áttu heima meiri hluta ævinnar, gamlir og góðir Reykvíkingar, dugnaðar- og iðju fólk og hraustleika kyn, sem og börn þeirra erfðu í ríkum mæli. Bræður hennar eru þeir Tryggvi Gunnarsson, fyrrum glímukóng- ur íslands og gamall fþróttajöf- ur; Sveinn, læknir, er var á sín- um tíma vel vígur á tvennum vettvangi lífsins; og Björn, verzl unarmaður. Þeir bræður voru hver öðrum meiri hraustmenni, svo stundum mátti varla greina á milli, hver var bezt búinn að kröftum I>eir bræður dáðu allir hina góðu systur sína, eins og hún vann til í ríkum mæli; sem hún og gerði þá og sakna þeir því hennar mjög, eins og að lík- um lætur. Ólöf giftist aldrei, en átti einn son á yngri árum, Hrafn Jónsson að nafni, gjörvi- legur og mannvænlegur maður, góðkunnur „Reykvíkingur“, og eitt hraustmennið til í ættinni. Þótt örlögin hefðu ekki ákveðið þennan barnsföður hennar sem lífsförunaut, þá leyfi ég mér að fullyrða af gömlum kynnum, að I^nn var ástmaður hennar í líf- inu; og honum ann hún einum til æviloka, svo trygg og heil- steypt var Ölöf þar sem hún tók því. Ólöf var á sínum góðu árum glæsileg og gjörvileg kona, eins og þau systkini voru öll. Eitt var það þó, sem mér fannst alltaf prýða hana bezt, og auka á glæsileika hennar, öðru fremur, og það var hennar mikla og fallega hár, sem liðaðist niður fyrir hnésbætur, enda var hún talin einhver hárprúðasta kona landsins á sínum tíma. Og ekki má gleyma hennar tindrandi fallegu augum. Ég efa svo ekki að ýmsir hinir andlegu eðlis- kostir í fari hennar skilji spor eftir í sandi minninga þeirra er þekktu hana, og mættu þeir því verða öðrum til fyrirmyndar og eftirbreytni. Að svo mæltu og úm leið og ég enda þessi fáu orð mín, vil ég leyfa mér, og veit að mér er trúað fyrir af öllum vinum og vandamönnum hinnar framliðnu konu, að „flytja gagnkvæm þakkarorð, þótt ég sérstaklega beini þeim orðum mínum að bræðrum hennar og syni, sem hún kallaði alltaf augasteininn sinn um ævina, með hjartans þökk frá þeim fyrir hina auð- sýndu fórnarlund og sonar umhyggju..“ Að endingu vil ég svo p. .sónulega þakka gömul falslaus kynni, ,^em oft eru bezt í minningunni," með ösk um að hinir fornu draumar hennar ræt- ist ó landi Ijóss og friðar, á betri hátt, en ég ætla að þeir hafi gert hér, í þessari vonbrigðaríku jarðvist. Guð blassi hann. Hjörleifur M. Jónsson. Guðlaugur Eyjólfsson Minning EIN mynd stendur mér skýrt fyrir hugarsjónuni frá bernsku og ég held að tíminn vinni ekki á henni. Það var síðla eumars. Norðan strekkingur út Eskifjörð og við drengirnir að leik í fjörunni heima. ' Okfeur verður litið út fjörð- Inn og sjáum við þá lítinn ára- feát koma fyrir Mjóeyrarodd- *um. Var eirui maðux á og reri knálega, Smám saman færðist hann innar eftir firðinum og bárum við strax kennsl á manninn, sem var Guðlaugur Eyjólisson að koma utan frá Seley, en þar hafði hann þá stundað sjóinn um sumarið. — Hann hafði strengt kaðli fyrir aftan bak og bundið sinn hvom enda um árahlummana og þannig seig hann í. Og ekki var gefist upp, en í naust heilu og höldnu haldið. Þessi mynd af Guðlaugi er táknræn fyrir allt hans líf og starf. Hann gafst aldrei upp, heldur seig á og því sem hann byrjaði á lauk hann. Ekki var hann að spyrja um launin eða hvort þetta erfiði borgaði sig eða færði honum þann gróða sem skyldi, heldur hitt að standast hverja þá raun sem lífið færði honiun í fang. Og vissulega gerði hann það. Þrc-kmenni var hann. Heyrð- um við börnin margar sögur af kröftum , hans og harðneskju. Þegar við vorum ónýt við að taika iim lýsi var vitnað óspart til Guðlaugs. Hann hefði sopið lýsið eins og vatn í Seley, þess vegna hefði hann krafta í kögglum. Smiður var Guðlaugur ágæt- ur. Margan bát.inn smíðaði hann. Minnist ég þese lengi að einn árabát smíðaði hann fyrir mig og annan mann á Eski- firði. Hafði hann mikla unun Hann byrjar daginn með Eftirlætis morgunverður fjölskyldunnar er Corn Flakes. Vegna þess að það er efnaríkt, staðgott, handhægt og ódýrt Inniheldur öll nauðsynleg vitamin. — Handhægasta máitíðin hvenær dags sem er. (Það eina sem þarf að gera er að láta það á diskinn og hella mjólk út á). Corn Flakes á hverju heimili Fæst í næstu matvöruverzlun. CORN FLAK af að geta gert betta fyrir okk- ur og vandað sem bezt og eins gert okkur kleift að kaupa bát- inn, en efni okkar af skornum skamniti. Fór svo að hann skil- aði þessu verki með ágætum. Reiknaði ég síðar út að fyrir þetta verk hefði hann vart haft 50 aura á tímann. Og ánægjan var beggja þegar flotsett var. Margar svona myndir gæti ég dregið upp af kynnum mín- um við Guðlaug, sem öll voru á einn veg. Tryggð hans slik að ebki varð á betra kosið og hon- um var hægt að treysta af hverjum og einum. Guðlaugur var fæddur að Efriey í Meðallandi, 16. nóv. 1880. Foroldrar hans voru Þor- björg Hinriksdóttir og Eyjólfur Einarsson, bóndi þar. Atvikin höguðu þvi svo að 10 ára gamall flyzt hann til Reyð- arfjarðar og var því á Aust- fjörðum til ársins 1934, að hann flutti til Keflavíkur æ heima síðan. Til Eskifjarðar flutti hann 1905. Kvæntist Mál- hildi Þorkelsdóttur, ættaðri af Vatnsleysuströnd og eignuðust þau tvær dætur, Þorbjörgu, bú- setta í Reykjavík, og Jónu, búsetta í Keflavík. Fjölda mörg ár var Guðlaug- ur formaður í Seley. Þar var verstöð og þaðan gengu margir róðrarbátar. Hann átti sér þar verbúð og ekki er mér kunn- ugt um annað en að hann hafi fisfcað vel, sótt sjóinn eins og allt annað af kappi og þó með stakri forsjá. — Margar sögur kann ég af veru hans þar og margra annarra. Þetta var eins konar ævintýraland, heimur út af fyrir sig. Þar mættust marg- ir og hóðu sína lífsbaráttu. Eins og ég sagði áður voru trésmíðar aðalstarf Guðlaugs síðari ár. Þær stundaði hann bæði á Eskifirði og eftir að hann kom til Keflavíkur. Þar sem Guðlaugur var fastheldinn á forna siði og það sem honum hafði reynzt haldbezt í lífinu, hélt hann tryggð við og á lofti. Hann var vanur að athuga hvem hlut vandlega áður en hann myndaði sér skoðun, hafði stundum mifcið fyrir því, en þegar niðurstaðan var feng- in, þá var hann ekki eftirbátur annarra um að fylgja henni fram. Aldrei vildi hann réttum málstað halla og f/rirvarð sig ekki fyrir að biðja afsökunar, ef hann vissi að hann óviljandi gerði örðum rangt, vísvitandi gat slíkt ekki komið fyrir. Ég tel að ævi Guðlaugs hafi verið mikið efni fyrir ævisagna ritara og leitt til þess að vita að hún var hvergi skráð. Hann verður mér jafnan minnisstæður. Ég kveð hann með þökk fyrir góða samfylgd og blessa minningu hans. Og þeir verða margir sem undir þá kveðju taka. Ámi Helgason. byggði hann mörg hús, og átti þarhann svo síðar seldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.