Morgunblaðið - 01.05.1962, Side 19
Þriðjudagur I. maí 1962
Mnnnr^rtfATHÐ
19
Samsöngur Karla-
kórs Keflavíkur
ÍOAS-menn hafa verið stór-
virkir síðustu daga. Meðfylgj
andi mynd er af flaki flug-
vélar, sem þeir sprengdu í
loft upp í fyrradag á flugvell
inum við Algeirsborg. Flug-
vélin hafði flutt liðsauka
franskra hermanna frá Frakk
landi. Að unnu verki lýstu
OAS-menn þvi yfir að næsta
flugvél, sem flytti slíkan liðs
auka yrði skotin niður áður
en hún naeði að lenda.
t gær sprengdu OAS-menn
stóra plastsprengju í einni af
aðalstöðvum stjórnarinnar í
miðri Aigeirsborg og í morg
nn voru sprengjur sprengdar í
Iögreglustöð einni í París og
ritstjómarskrifstofu eins dag
blaðanna. Manntjón varð ekki
I París, en í sprengingunni í
Algeirsborg létu 2 menn lífið
og nokkrir særðust.
Aðalfundur
Meistara-
félags
húsasmi&a
AÐALFUNDUR Meistarafé-
lagis húsasmiða var haldinn
íöstud'aginn 16. þessa mánaðar.
Formaður félagsins Ingódfur
Finnbogason setti fundinn og
flutti skýrslu um starfsemi fé-
lagsins síðastliðið starfsár. Hann
gat þess, að viðskiptafræðingur
hefði tekið saman kostnað meist
ara í húsasmíði vegna atvinnu
reksturs þeirra fyrir félagið, og
hafði þessi athugun sýnt, að á-
lagning húsasmíðameistara er
langt frá því að vera nægilega
há til þess að standa straum
af ýmsum kostnaði þeirra.
Þá gat formaður urn kjara-
eamninga við Trésmiðafélagið
frá því í sumar, en aðalbreyt-
ingarnar urðu þær, að kaup-
hækkun varð sem svarar 11% á
beinu kaupi.
Á árinu var saminn og sam-
þykktur nýr uppmælingartaxti
Og verður farið að vinna eftir hon
um á næstunni.
Ýmis fleiri mál voru tekin tii
meðferðar.
Fráfarandi formaður Ingólfur
Finnbogason, baðst undan endur-
bosningu, ásamt gjaldikera félags-
ins Antoni Sigurðissyni, en þeir
hafa átt sæti í stjórninni frá
etofmun félagsins 1954. Var þeim
þakkað fyrir vel unnin störf í
þágu félágsins.
Formaður var bosinn Gissur
Bigurðsson, varaformaður -lissur
BímonarsOn, gjaldiberi Daníed
Eimarsson, ritari Össur Sigurvins-
eon og vararitari Leo Guðlaugs-
eon. Fulltrúi í stjórn Meistara-
eamibandlsins var bosinn Ingólfur
Finnbogason og ful'ltrúar á Iðn-
þing Tómas Vigfússon og Ingólf-
Ur Finnbogason.
I»AÐ BR allaf mikil'l viðburð-
ur í fásinsinu hér syðra, þegar
Karlakór Keflavikur lætur tiil
sín heyra. Síðastliðinn föstudag
flutti kórinn sitt fjórða verk-
efni á starfsórinu, fyrir þétt-
setnu Nýja Bíó, sem rúmar yfir
400 manns.
Karlakórinn Keflavíkur hef-
ur oft áður gert vel, en að þessu
sinni var skrefið fraimávið
stærra og hærra en fyrr. Það
er undravert hvað þessi 30
manna hópur getur afkastað,
allt menn, sem ganga að dag-
legum erfiðum störfum og eiga
ekki margar tómstundir, en þær
virðast vel nötaðar, og hinn
snjalli stjórnandi Herbert Hriber
ohek, veit hvernig á að fara að
því að geoa mikið úr litlu og er
óhræddur við að leggja hin
þyngetu verkefni fyrir kórinn.
Að vísu mundi enn betur fara
ef kórinn væri fjölmennari, sér-
staklega í tveim fyrstu röddun-
um.
Dernetz hefur annast raddiþj á'lf-
un flestra söngmannanna og hef
ur það haft sín góðu áhrif, eimnig
var ómetanlegur styrkur fyrir
kórinn hin glæsilegi einsöngur
Snæbjargar Snæb j arnardóttur,
svo og þeirra Hjálmars Kjartans-
sonar og Sverris Ólsen.
Undirleik allan flutti Ragn-
heiður Sfcúladóttir svo afbragðs-
vel að hvergi skeikaði, þó hún sé
ung að árum og enniþá nemandi í
Tónlistarskóla Keflavikur.
Fyrri bluti söngskrár voru
eingöngu íslenzk lög. í fremstú
röð þar voru Lofsöngur eftir
Bjarna Böðvarsson í útsetningu
Hribersohek, með einsöng Snæ-
bjargar og Söngur Völvunnar,
eftir Bjarna J. Gíslason, sem var
frumflutt á þessum samsöng.
Bjarni hefur samið mörg lög yfir
ólík efni og er þetta eitt af hans
beztu lögum — undirtónninn er
seiður Völvumnar og sterk per-
sónuleg mörk höfundar á laginu
öllu.
Síðari hluti söngskrár voru
óperukaflar eftir erlenda höf-
unda. Aría og kór úr óperunni
Norma eftir Bellini, með einsöng
Hjálmars Kjartamssonar, var svo
vel flutt að með ólíkindum var
af ebki stærri kór, en stjórnand-
anum brást þar ekki listin, hann
virðist vita hvað má bjóða kórn-
um.
Miserere úr II Trovatore og at-
riði úr Vald örlagana risu hæzt.
í Miserere sungu einsöng þau
Snæbjörg Snæbjamardóttir og
Sverrir Olsen með þeim glæsi-
brag að sóma sér mundi hvar
sem væri.
í atriðinu úr Valdi örlaganna
fóru með einsöngshlutverkin þau
Snæbjörg og Hjálmar Kjartans-
son. Söngur Snæbjargar og fram-
koma er heiillandi, enda ætlaði
fögnuði áheyrenda seint að linna.
f þessum erfiðu og þróttmiklu
lögum lét kórinn ekki sitt eftir
liggja og leysti úr læðingi ótrú-
legan styrk og þrótt, samfara
mýkt og nákvæmni — þar mun
hönd stjórnandans hafa haft sitt
að segja einnig.
Þetta er glæsilegasti samsöngur
Karlakórsins og ætti sanarlega
skilið að heyrast víðar en í Kefla
vík einni.
Kórnum var ákaft fagnað og
söng hann nokkur aukalög og end
urtók sum af lögum, sem á söng-
skránni voru.
Kórnum, stjórnanda, einsöngv-
urum, undirleikara og tónskáld-
inu, Bjarna Gíslasyni, bárust
margir blómvendir og voru á-
kaft hyllt af þabklátum og stolt-
um áheyrendum — stoltum yfir
því að þetta skuli vei^a hægt að
gera í Keflavík.
Helgi S.
Ný SVR-leið
Ha«;ar - Seltjarn-
arnes
ÞRIÐJUDAGINN 1. maí hefja
Strætisvagnar Reykjavíkur akst
ur á nýrri leið. Ber sú leið heit-
ið Hagar—Seltjarnarnes og verð
ur nr. 24. Ekið verður á hálf-
tíma fresti, frá kl. 7:10—23:40.
Ekið verður úr Lækjargötu um
Fríkirkjuveg, Skothúsveg, Hring
braut, Birkimel, Dunhaga. Hjarð
arhaga, Fornhaga, Ægissíðu,
Nesveg, Seltjarnarnesveg að
Mýrarhúsaskóla. Til baka verð-
ur ekið um Seltjarnarnesveg,
Ægissíðu, F ornhaga, Birkimel,
Hringbraut, Skothúsveg, Frí-
kirkjuveg, Lækjargötu á Lækj-
artorg.
Á klukkutímafresti, eða 10
mín. yfir hvern heilan tíma er
ekið um Skólabraut og Mela-
braut.
Brottfarartími frá Mýrarhúsa
skóla er átta mín. fyrir heilan og
ihálfan tíma.
Ekið er éinni klubkustund
lengur á laugardags- og sunnu
dagskvöldum.
Seltjarnanesvagninn hefur ek
ið á hálftima fresti. Verða því
ferðirnar helmingi fleiri þegar
Hagar—Seltjarnarnes-vagninn
byrjar og ekið ýmist á 10 eða
20 mín fresti vestur á Seltjarn-
arnes.
NÝLEGA var kveðinn upp í
Hæstarétti dómur í skaðabóta-
máli, er Þorsteinn Þorleifsson,
Kópavogi, höfðaði gegn Júpiter
Og Marz h.f vegna slyss, er hann
varð fyrir í frystihúsi þessara fé-
laga.
Málavextir eru sem hér segir:
Þ. 6. júlí 1958 vann stefnandi
við flökunarvél í hraðfrystihúsi
Júpiters og Marz h.f. á Kirkju-
sandi. í sal þessum voru tvær
flökunarvélar og unnu þrír menn
við hvora vél í umrætt skipti
hafði steínandi um stundarsakir
unnið við gæzlu annarrar flök-
unarvélarinnar og hafi gæzlan
verið í því fólgin að líta eftir
vinnslu vélarinnar og stöðva
hana, ef eitthvað færi afiaga.
Stefndi k.vaðst hafa staðið fyrir
framan vélina á gólfinu, sem hafi
verið blautt og hált. Þá hafi
karfa allt í einu verið hent í
hnésbót honum, svo að hann hafi
heykzt við Og fallið fram yfir sig
á vélina. í fallinu hafi hann borið
fyrir sig hmdurnar, en þá lent
með vinstri hendina í flökunar-
vélina með þeim afleiðingum að
vísifingur og langatöng þeirrar
handar hafi skorizt svo illa, að
nema hafi orðið verulega fram-
an af báðum fingrunum. Stefn-
andi kveðst hvörki hafa verið að
hreinsa vélina né eiga neitt við
hana, er slysið vildi til.
Stefnandi taldi, að annar þeirra
manna, er unnu við að raða í hina
flökunarvélina, hafi kastað karf-
anum, enda hafði þeim kröfum er
voru Ofstórir fyrir flökunarvél-
arnar, verið hent niður um gat,
er var á gólfinu á milli vélanna
til handflökunar á neðri hæð
hússins.
Engir sjónarvottar voru að
slysi þessu.
Stefnandi krafðist bóta að upp
hæð kr. 283.675.40 og byggði
stefnukröfur sínar á því, að
stefndu væru skaðabótaskyldir
gagnvart honum samkvæmt regl
um skaðabótaréttar um húsbónda
ábyrgð, þar eð starfsmaður
þeirra hafi orðið valdur að slys-
inu á ólögmætan og saknæman
hátt.
Þá hafi stefnu vanrækt að til-
kynna öryggiseftirliti ríkisins um
slysið, eins og þeim bar skylda
til. Hljóti þeir af þeim sökum að
bera hallann af sönnunarskorti
um slysatvik og beri því að
leggja hina staðfestu skýrslu
stefnanda til grundvallar um það,
hvernig slysið vildi til.
Þá hélt stefnandi því að lokum
fram, að öryggisútbúnaði flökun-
arvélarinnar hafi verið áfátt.
Stefndu. Júpiter og Marz h.f.
kröfðust sýknu og reistu sýknu-
kröfu sína á því, í fyrsta lagi, að
hér hafi verið um óhappatil-
viljun að ræða, Og verði stefn-
andi þar af leiðandi að bera tjón
sitt sjálfur. í öðru lagi að stefn-
anda hafi ekki tekizt að sanna,
að slysið hafi orðið með þeim
hætti, að stefndu beri ábyrgð á
því Og sé skýrsla stefnanda
mjög ósennileg.
Um bótaábyrgðina urðu niður-
stöður þær sömu í héraðsdómi og
í Hæstarétti. í forsendum að
dómi meiri hluta Hæstaréttar
segir, að leggja verði skýrslu
stefnanda til grundvallar um at-
vik að slysinu, þar sem stefndi
hafi látið hjá líða að tilkynna
Öryggiseftirliti ríkisins um slysið,
eins og íyrir er mælt í 20. gr.
1. 23. 1952. Síðan segir: „Verður
því við það miðað, að starfs-
maður (stefndu) hafi af gáleysi
valdið því, að (stefndi) hrasaði
með þeim afieiðingum, sem lýst
er í hinum áfrýjaða dómi. Ber
því að leggja fébótaábyrgð vegna
slyssins á (stefndu), og eru eigi
efni til að skipta þeirri ábyrgð“.
Samkvæmt því voru Júpiter og
Marz h.f. dæmdir til að gre#fe
Þorsteini Þorsteinssyni kr. 17?.-
196.00 ásamt vöxtum og kr. 30.000
málskostnað fyrir báðum réttum.
Einn Hæstaréttardómari Gizur
Bergsteinsson, skilaði sératkvæði.
Niðurstaða hans varð á þá leið,
að sýkna bæri Júpiter og Marz
h.f. af kröfv'.m stefnanda, þar sem
ósannað væri, að slysið hefði bor
sem stefndu bæru ábyrgð á að
lögum.
Húsnæði til sölu
2ja nerb. svo til ný hæð við Ljósheima. Vönduð,
nýtízkuleg innrétting. Teppi á stofum fylgja. Er
laus strax.
2ja herb. íbúð á góðum stað í Kópavogi. Er ófull-
gerð. Verð aðeins kr. 230 þús.
3ja herb. íbúð við Þverveg. Er í ágætu standi. Verð
kr. 250 þús. títborgun aðeins kr. 100 þúsund.
3ja herb. ný jarðhæð í þríbýlishúsi við Goðheima.
Er fullgerð að öllu leyti. Innréttingar óvenjulega
vandaðar. Útborgun aðeins kr. 200 þúsund. Er
laus strax.
3ja til 4ra herb. hæðir við Kleppsveg í byggingu, til
afhendingar strax. Hitaveita væntanleg.
4ra herb. nýleg, góð hæð við Kleppsveg. Tvöfalt
gier. Hitaveíta væntanleg. Sér þvottahús á hæðinni.
4ra herb. nyleg hæð við Laugarnesveg. Stærð 115
ferm. Fyrsti veðréttur laus. Hagstætt verð og skil-
málar.
5 herb. risíbúf við Lönguhlíð. Um 120 ferm. Hita-
veita. Tvær íbúðir um hita og inngang.
5 herb. hæðir í smíðum við Háaleitisbraut. Mjög
gott fyrirkomulag. Sér hitamæling. Sameign að
mestu búin útí og inni. Mjog hagstætt verð. Hefi ti-1
sölu 2ja. 3ja 4ra og 5 herb. hæðír í byggingu á
ýmsum stöðum í bænum.
Hefi kaupendur að ýmsum stærðum af fullgerðum
íbúðum, sérstaklega 2ja og 3ja herb. íbúðum.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðui"götu 4 — Sími 14314 og 34231.