Morgunblaðið - 15.05.1962, Side 1
24 síður
19. ávgangur
109. tbl. — Þriðjudagur 15. maí 1962
Prentsmiðja Morgu nblaðsins
15 létust í f lugslysi
í Grænlandi
Kanadisk leiguflugvél, er var oð
kama úr áætlunarflugi frá S-Straum-
firði, fórst i lendingu
15 Danir, ]>ar á meðal 2 toörn, týndu lífinu, er kanadisk Cataiina-
flugvél fórst í lendingu við Godtháb, sl. laugardag. Ekki er enn
Ijóst, með hverjum hætti slysið varð. Telja sumir, að flugvélin
ihafi hrapað, rétt fyrir lendingu á. sjónum, en margt þykir þó benda
til þess, að vélin hafi, í lendingu, rekizt á lagís, er marað hafi rétt
nndir yfirborðinu. Flestir, eða allir, sem fórust, irvjnu hafa drukknað,
og styður það hugmyndina um að vélin hafi rekizt á ís, í lending-
unni. Alls var 21 með flugvélinni, en af þeim komust aðeins 6
lífs af.
Kanadisk leiguflugvél
Flugvélin var í eigu „Eastern
Provincial Airways". Lagði Ihún
af stað frá Syðri-Straumfirði um
10 leytið á laugardagsmorgun, í
éætlunarflug til Godtháb. 3
znanna áhöfn var á Gatalina-flug
vélinni, flugstjórinn og vélamað-
ur báðir kanadiskir, en aðstoðar
flugmaðurinn danskur.
Vélin hafði verið tekin á leigu
af Dönsku Grænlandsverzlun-
inni, og var þetta ein síðasta ferð
vélarinnar, því að innan skamms
mun annað flugfélag, A/S Grön-
landsfly, taka við af kanadiska
flugfélaginu.
Þeir björguðust, sem
fyrst komust út
Allt bendir til þess, að flugið
frá Syðra-Straumfirði hafi geng-
ið að óskum, þar til vélin bjóst
til lendingar. Catalina-flugvélar,
eru yfirleitt þannig úr garði
gerðar, að þeim má lenda bæði á
láði og legi, og svo var einnig um
þessa vél.
Fregnum ber enn ekki saman
um, hvernig slysið hafi borið að
höndum, en hafi vélin rekizt á
lagís, undir yfirborðinu, í lend-
ingunni, er ljóst, að ísinn hefur
þegar í stað rifið gat á alumini-
umklæðningu vélarinnar.
Áhöfnin bjargaðist, og þrír af
farþegunum, er voru aftast £ vél
inni, en þaðan er greiðast um út-
gang. Hinir 15 munu hafa
drukknað. f>eir voru allir í
miðri flugvélinni, en þaðan er
P. Reumerf
slasast
POUL Reumert, leiikari, varð
fyrir því óþ|appi, s.l. laugar-
dag, að detta í stiga í Konung-
lega leikhúsinu í Kaupmanna
höfn.
Hlaut hann talverða áverka
í andiiti Og blæddi mikið úr,
er að var komið. Töldu
menn í fyrstu, að Reumert
hefði slasast alvarlega. Var
hann þegar fluttur í sjúkra-
hús, en þar kom í ljós, að ekki
var um alvarleg meiðsli að
ræða. Grunur leikur þó á, að
hann hafi hlotið heilahristing.
Mun Reumert verða rúm-
fastur í sjúkrahúsinu um sinn,
til nánari athugunar.
Reumert hefur að undan-
förnu Jeikið hlutverfk kardinál
ans í Becket. Falla sýningar
Íniður, þar til hann er aftur
heill heilsu.
mun óhægara um vik að komast
út.
Framhald á bls. 23.
Þolinmæði Serkja þrotin:
Hermenn Serkja skutu í gær
16 Evrópumenn til bana
Algeirdborg, Oran, 14. maí — AP — NTB —
1 DAG dró til alvarlegustu tíðinda, sem gerzt hafa í Alsír, siðan
alsírska útlagastjórnin (FLN) gerði samkomulag við frönsku
stjórnina, um vopnahlé í Alsir. Hermenn úr liði FLN gripu í dag,
í fyrsta sinn, síðan vopnahléinu lauk, til vopna gegn Evrópumönn-
um. Óku þeir um götur Algeirsborgar og skutu á Evrópumenn úr
vélbyssum. A. m. k. 16 (sumar fréttir segja 18) Evrópubúar létu
lífið og 54 særðust. Er siðast fréttist var talið, að um endanlegar
tölur væri ekki ræða. Svo virðist, sem þolinmæði Serkja sé
nú á þrotum, eftir linnulaus hryðjuverk OAS-manna, síðan sam-
komulagið í Evian Les Baines var gert, um miðjan marzmánuð s.I.
Strax í býti í morgun gerðul í úthverfi Algeirsborgar. Stóð
OAS-menn vélbyssuárás á Serki, | skotlhríðin, á varnarlaust fólkið,
í fullar 12 mínútur, og gerðu
OAS-menn aðeins hlé til að hlaða
byssur sínar á nýjan leiik, meðan
árásin stóð. Höfðu árásarmenn-
imir tekið sér stöðu á nýrri í-
búðarhúsaby ggingu, en þaðan
höfðu þeir góða ytfirsýn yfir nær
liggjandi stræti.
Sprengjuvörpur síðari
hluta dags.
Síðari hluta dags héldu OAS-
menn enn áfram hryðjuverkum
Framhald á bls. 23.
Siðastliðinn föstudag var»
haldinn fundur í borgarráðil
Reykjavikur og var fjallað/
þar uin kjörskrárkærur. Þetta
er eini borgarráðsfundurinn
á kjörtimabilinu, sem opinn
er öllum. Þarna voru viðstadd
ir fulltrúar framboðslistanna
við borgarstjórnarkosningarn
ar og gættu hagsmuna sinna
við afgreiðslu á kærunum.
Innst við borðið sitja borg
arráðsmennirnir, taldir frá
vinstri: Björgvin Frederiksen,
Auður Auðuns, Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, fyrir
enda borðsins, FáU Líndal,
skrifstofustjóri sem var fund-J
arritari, Magnús Ástmarssonl
og Guðmuildur J. Guðmunds-
son, sem er varamaður Guð-
mundur Vigfússonar í ráðinu.
Sjá viðtal og lýsingu á
starfsdegi borgarstjóra á bls.
10. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Niöurlægjandi staða listamanna i kommúnistarikjunum:
„Flokkurinn notar listina sem
tæki til að breyta heiminum"
• „FLOKKURINN ræður yfir ríkisvaldinu. Allar lykil-
stöður í útbreiðslustarfsemi eru í hans höndum, bókaút-
gáfur, blöð, tímarit, útvarp, kvikmyndir, bæði um það,
sem framleitt er í landinu sjálfu og það, sem flutt er
inn •••• •••• ••••• Einnig er hægt, ef það dugar ekki til, að
banna með aðstoð lagafyrirmæla dreifingu hvaða lista-
verks eða hugsunar sem vera skal, ef flokknum sýnist
svo. Það er því algerlega á vaidi flokksins, hvaða blóm
fá að vaxa opinberlega í menningarlífi landsins ....“
0 Þessa lýsingu er að finna í skýrslu, sem íslenzkir
kommúnistar í Austur-Þýzkalandi hafa samið um ástand
menningarmála þar í landi, og sent félögum sínum í öðr-
um kommúnistaríkjum og til Æskulýðsfylkingar komm-
únista hér heima. Kemur þar glöggt fram, hvílíka fjötra
hið kommúníska skipulag leggur á allt andlegt Iíf, og þar
gefur einnig að líta góða mynd af hinni niðurlægjandi
stöðu skálda, rithöfunda og annarra listamanna gagnvart
hinum allsráðandi Kommúnistaflokki og ríkisvaldi hans.
í skýrslunni segir ennfremur, svo að dæmi séu tekin:
0 „Annað hlutverk þess
(Rithöfundasambandsins —
innskot Mbl.) er allfrábrugð
ið því, sem við þekkjum
heimafyrir, sem sé að skipu-
leggja andlega framleiðslu
skálda og rithöfunda
Sem dæmi um vanhugsað
verkefni var nefnt: rithöf-
undi var falið að skrifa skáld
verk um baráttuna gegn
kvikfjársjúkdómum í lýð-
veldinu“.
0 „Ritskoðendur segja að
sjálfsögðu síðasta orðið um
útgáfu allra verkd“.
0 „Menninguna í öllum
þáttum hennar verður að
nota til að ala upp almcnn-
ing í sósíaliskum anda, fylla
hann eldmóði til nýrra átaka
við uppbyggingu sósíalism-
ans. í því er hin sósíalska
menningarbylting fólgin. —
Flokkurinn notar listina sem
tæki til að breyta heimin-
um“.
• „Listamennirnir geta að
eins uppfyllt þetta verkefni,
ef þeir lúta uppeldi flokks-
ins og forsjá og þjóna tíman-
legum verkefnum hans með
list sinni. Þeir verða að hafa
fullkomið vald á hinni día-
lektísku efnishyggju“.
0 „Eitt er enn, sem hindr-
ar framgang stefnunnar út í
yztu æsar. Mikill hluti al-
mennings vill hvorki sjá
hana né heyra“
Hér fara svo á eftir nokkr-
ir athyglisverðustu kaflarnir
úr þessari skýrslu:
„Rithöfundasambandið.
Þýzika rifhöfundasamibandið
Framh. á bls. 6.