Morgunblaðið - 15.05.1962, Síða 12

Morgunblaðið - 15.05.1962, Síða 12
12 MORGIJTSBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. maí 1962 rogpHstMaMfc Dtgefandi: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (átim.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjóm: kðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. ÞJOÐFYLKING KOMMÚNISTA ¥vjóðfylking" kommúnista, ”*■ Framsóknarmanna og Þjóðvamarmanna er það takmark sem umboðsmenn Moskvuvaldsins hér á landi stefna nú að. Sú staðreynd hefur verið rækilega af- hjúpuð með skýrslu mið' stjómar Kommúnistaflokks ins, sem Einar Olgeirsson flutti á þingi flokksins í marz 1900, og nú hefur ver- ið birt hér í blaðinu. Þar er því nákvæmlega lýst hvern ig kommúnistar hyggjast ná völdum á Islandi, fyrst og fremst með aðstoð Fram- sóknarflokksins. Vera má að sumum finn- ist þetta harla ótrúlegt. En þegar nánar er aðgætt em þessi áform kommúnista hér á landi í fullu samræmi við vinnubrögð þeirra í þeim löndum, þar sem þeir hafa hrifsað völdin í sínar hend- ur og ríkja síðan í skjóli hervalds og ofbeldis. Það er athyglisvert, hve vel Framsóknarflokknum er borin sagan í fyrrgreindri skýrslu miðstjórnar Komm- únistaflokksins. Þar er lögð áherzla á það, hve Fram- sókn hafi staðið sig vel í stuðningi við kommúnista innan verkalýðssamtakanna. Telur Einar Olgeirsson það lofa góðu um samstarfið við Framsókn innan „þjóðfylk- ingarinnar“. ★ Mikill meiri hluti íslend- inga hlýtur að gera sér Ijós- an þann háska, sem þjóðfylk ingaráform kommúnista fela í sér. Ef þeim tækist að koma þeim í framkvæmd, hlytu afleiðingamar að verða sömu hér og í öðrum lönd- um þar sem kommúnistum hefur tekizt þetta herbragð. Um það þarf enginn viti bor- inn maður að fara í grafgöt- ur. Það sýnir því eindæma ábyrgðarleysi að annar stærsti flokkur landsins, Framsóknarflokkurinn, skuli styðja kommúnista af alefli í valdabaráttu þeirra. Sá stuðningur kemur greinileg- ast fram innan verkalýðs- samtakanna. En völd komm- únista þar hafa örlagarík á- hrif á þróun íslenzkra efna- hagsmála. Það sannaðist greinilega á verkföllunum í fyrra og því sem síðan hefur gerzt. Þjóðfylking kommúnista og Framsóknarmanna leggur nú höfuðkapp á að ná völd- um í höfuðborg íslands. — Valdataka þessara flokka í Reykjavík á að verða undir- búningur að sameiginlegri ríkisstjóm þessara flokka. En þessi áform mega ekki takast og þau munu heldur elcki takast ef Reykvíkingar halda vöku sinni og gera sér ljósan þann geigvænlega háska, sem þeim og allri ís lenzku þjóðinni er búinn ef „þjóðfylkingin“ nær tilgangi sínum. Allir hugsandi menn verða að snúast gegn þeirri hættu, sem hér er á ferðinni, Nú eins og jafnan áður verða Reykvíkingar að tryggja borg sinni samhenta og dug andi stjóm frjálshuga manna. SIGURLAUN MANNSINS ¥ ágætri grein, sem Ragnar Jónsson ritaði í blaðið sl. sunnudag um borgarstjórnar kosningarnar í Reykjavík, komst hann m. a. að orði á þá leið, að síðustu ár hefði dýrkeypt reynsla kennt okk ur að þvi aðeins fengu jafn- vel hinir mikilhæfustu leið- togar endurfætt lönd sín, að þeir hefðu kjark til að leita samstarfs og uppörfunar hjá stórhuga mönnum á öllum sviðum. Hann kvað forráða- menn Sjálfstæðisflokksins hafa öðrum fremur áttað sig á því, að það eru ekki stjórnmálamenn einir, sem skapa heim okkar í dag. Þar væru vísindamenn, lista- menn, athafnamenn og allur almenningur að verki. Síðan kemst' Ragnar Jónsson að orði á þessa leið: „Þetta er það lýðræði í verki, sem heimurinn keppir nú að, og vitneskjan um þessa einföldu staðreynd er hinn stóri sigur mannkyns- ins. Það eru sigurlaun manns ins eftir síðustu orustuna við einræðið og afturhaldið. En þeir hrokagikkir, sem enn eru uppi standandi og tjórna jafnvel heilum heims veldum er afneita forystu- hlutverki lista, trúarbragða og vísinda í heiminum, en einblína á eigin alvizku, eru nú endanlega að tapa leikn- um — og snúa bakinu við fólkinu. Áhangendur þeirra hérna heima eru til fyrir- myndar, að hafa látið sér segjast, lagt sjálfir á flótta frá megin átökum lífsins og fengis hælisvist hjá vinum á víxl, sem pólitískir f-lótta- UTAN UR HEIMI Bandarisk aðstoð við Indland lækki WASHINGTON, 11. maí. (AP) Utanríkismálanefnd bandarísku öldungadeildarinnar samþykkti í dag, meö 8 atkvæðum gegn 7, að skera niður um fjórðung þá fjárhagsaðstoð, sem gert hafði verið ráð fyrir að Indlandi yrði veitt á yfirstandandi fjárhags- ári, er lýkur 30. júni. Þá var og samþykkt, að hliðstæð lækkun yrði gerð á fjárveitingu næsta fjárhagsárs. Það var fulltrúi demókrata í Missouri, Stewart Symington, sem bar fram frumvarpið um lækkunina. Kom þessi sam- þykkt nefndarinnar mjög á ó- vart. Gert hafði verið ráð fyrir 727 milljón dala aðstoð við Ind- verja á þessu ári, og 815 millj. dala aðstoð næsta fjárhagsár. Hubert A. Humphrey, varafor maður nefndarinnar, og John Sparkman, fulltrúi demókrata í Alabama, lýstu yfir því, að at- kvæðagreiðslu lokinni, að þeir myndi berjast fyrir því, að málið yrði tekið fyrir á fund- um sjálfrar öldungadeildarinn- ar. — Þá var samþykkt, á sama fundi nefndarinnar, að veita Bandaríkjaforseta vald til þess að fella niður algerlega aðstoð við einstök ríki, í sérstökum til- fellum. Slíkt gæti komið til greina, ef land, sem nyti banda- rískrar fjárhagsaðstoðar, gerði upptækar bandarískar eignir í landi sínu, eða legði sérstaka eignaskatta á bandarísk fyrir- tæki, eða gerði aðrar þær ráð- stafanir, sem beint væri gegn þeim. Sú tilslökun er þó gerð, að fjárhagsaðstoð verði ekki felld niður í slíkum tilfellum, nema því aðeins, að viðkomandi ríki geti sýnt fram á, innan sex mánaða, að slíkar ráðstafanir hafi verið gerðar í skjóli al- þjóðalaga. i Það, sem fyrir nefndinni vak- ir, er að koma í veg fyrir, að Indverjar verji bandarísku fé til hernaðar, og mun þá sér- staklega höfð í huga deilan við Pakistan um Kashmir. — Vill nefndin, að Bandaríkjaforseti gefi þinginu skýrslu um það hvernig Indverjar noti fé sitt, þ.e. hve mikill hluti fari til hernaðar. Ljós til tunglsins Lexinton, Massachusetet 11. maí AP FRÁ því var skýrt hér í dag, að tvisvar sinnum í þessari viku hafi bandarískum vís- indamönnum tekizt að varpa ljósi til tunglsins. Er það í fyrsta sinn i sögunni, sem ami ar hnöttur hefur verið lýstur upp frá jörðinni. Tæki það, sem hér um ræðir, er svokalliað Maser- tæki. Byggist starfsemi þess á því, að Ijósgeislar eru magn 21. marz kom brezki leikarinn Rex Harrison vinum sínum mjög á óvart með því að ganga að eiga leikkonuna Rachel Roberts. Voru þau gefin saman við borgaralega athöfn í Genna á ítalíu. Hjónaefnin höfðu dvalizt í ítölsku bað- strandarborginni Portofino, en fóru þaðan með leynd til Genna í .von um að ekki spyrðist um fyrirætlun þeirra. En þegar til Genna kom hafði þegar safnast margmenni við ráðhúsið, þar sem athöfnin fór fram. Var myndin tekin eftir að brúðkaupið hafði farið fram. aðir á sérstakan hátt, likt og þegar hátalari magnar hljóð- bylgjur. I stað þess, að dreifa ljósbylgjunum á sama hátt og hátalari, safnar Maser þeim öilum saman og beinir i eina átt, í einum samþjöpp- uðum Ijósgeisla. Til þess að safna geisiunum saman, og' senda þá, er notaður lítilil rúbín. Rúbín sá, sem notaður var nú, er mjög lítill, aðeins sver- ari en venjulegur blýantur. Ljósbylgjunum er safnað saman i honum, unz nægilegt magn er fyrir hendi, þá er því „skotið“ burt. S'l. miðvikudagskvöld var ljósi beint 13 sinnum að tungl- inu og var tilraunin endurtek in 20 sinnum í gærkvöldi. Svo lítið dreifðist geislinn að blettur sá á tunglinu, sem lýst ist, var aðeins um 2 mílur I þvermál. Sérstakar lineur voru notaðar við sendinguna. Endurkast ljóssins til jarð- arinnar tókst að mæla, með stjörnukíki, þótt það værí ekki sýnilegt mannlegum aug um. Slíkir geislar eru mjög sterkir og má m. a. skera stál með þcim. Segja vísindamenn, að hér kunná að vera um að ræða dauðageisla framtíðar- innar og að með stærri Maser tækjuin mætti beina geislun. um að geimförum og eld. flaugum, til að eyðileggja þau. Hins vegar, segja visinda- menn, að geislana megi líka nota mannkyni til gagns, t. d. við uppskurði, til sjónvarps- sendinga o. fl. menn. Þessi lærdómur mun vera hinn eini ávinningur, er við fengum af vinstri stjórn- inni sálugu, og má vel við það kannast, að hún hafi því, þegar öllu er á botninn hvolft ekki til einskis lifað“. Þessi ummæli eru hin at- hygilsverðustu og allir lýð- ræðissinnaðir menn hljóta að geta tekið undir þau. Það er lýðræði í verki, frelsi ein- staklinga og þjóða, sem heimurinn keppir að í dag. En hinn alþjóðlegi kommún- ismi er hinn mikli þröskuld- ur á vegi mannkynsins til betra og fegurra lífs. Sá þröskuldur verður þó yfir- stíginn, þróunin heldur á- fram og frelsið mun enn sem fyrr verða hyrningar- steinn framfara og velmeg- unar í heiminum. BARÁTTAN GEGN KRABBAMEINI Darátta vísindanna gegn krabbameininu heldur stöðugt áfram. Sú fregn hlýtur að vekja fögnuð að sænskir vísindamenn hafi nýlega unnið vísindaafrek, sem talið er marka stórt spor í þessari baráttu. Þeir hafa beitt protongeislum gegn krabbameini með góð- um árangri. Ungur sænskur vísinda- maður, sem varið hefur dokt orsritgerð um þetta efni, hef ur skýrt frá gangi og efni rannsókna, sem framkvæmd ar hafa verið í Uppsölum sl. átta ár. Kveðst hann vænta þess að áður en langt um liði yrði unnt að hagnýta almennt protongeisla til heilaaðgerða ,en ýmsar frek- ari rannsóknir þyrfti áður en aðferðinni yrði almennt beitt gegn krabbameini í legi. Mannkynið bíður þess með eftirvæntingu að læknavís- indunum takist að sigrast á krabbameininu. Einskis má láta ófreistað til þess að styðja vísindin í þessari þýð- ingarmiklu baráttu við hinn skæða sjúkdóm.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.