Morgunblaðið - 22.05.1962, Side 3
Þrið.iudagur 2fi. maf 1062\1
MORGUNBLAÐIB
19
ASTANDIÐ í Laos er mikið rætt
þessa daga, og meðal þeirra at-
riða, sem vikið hefur verið að,
i því sambandi, er afstaða Banda
ríkjamanna, en hersveitir þeirra
hafa haldið uppi vörnum gegn
Pathet Lao-herliðinu. Banda-
ríkjamenn hafa alls veitt rúm-
lega 400 milljónir daia, til þess
nð byggja upp varnir, og styrkja
nðstöðu andkommúnista í Laos.
t vetur hættu þeir þó aðstoð
Einni, sem þá nam 3 millj. doll
»ra á mánuði. Töldu þeir að
Nosavan og Boun Oum hefðu að
nokkru leyti brugðizt, og ekki
eýnt æskilegan áhuga á því að
fá komið á þjóðstjórn í Laos.
Svo virðist, sem um talsverðan
ekoðanamun hafi verið að ræða,
varðandi væntanlega þjóðstjórn,
og er talið, að Boun Oum og
Nosavan óttist samninga við
I’athet Lao. Nú hefur, hins veg
lir, verið tilkynnt í Washington,
að í athugun sé að hefja aftur
þann f járhagslega stuðning, sem
felldur var niður á sínum tíma.
Ýmsir telja, að Bandaríkja-
etjórn hafi ekki tekið skynsam
lega ákvörffun, er þeir hættu
t járhagsaðstoðinni og eftirfar-
andi grein, þýdd og endursögð
úr U.S. News & World Report,
tekur þá afstöðu til nánari at-
hugunar. Fer greinin hér á eftir:
Nú, þegar svo virðist, sem til
étaka kunni að draga miili banda
rískra hermanna og kommúnista
í S-Vietnam, virðast ráðamenn
í Bandaríkjunum stetfna að því
að neyða stjórnendur Laos til
samvinnu við kommúnista. —
Stefna Bandaríkjanna — sem
hlotið hefur samþykki í Rúss
landi — er að reyna að kwma á
frið í Laos, með myndun þjóð-
stjórnar „hlutlausra“, komrnún-
ista og andkommúnista. Til þess
að reyna að hraða slikum samn-
ingum, hafa Bandaríkjamenn
hætt 3 millj. dala mánaðarlegri
eðstoð sinni, við stjórn landsins.
lEinnig hefur vopnasendingum, og
sendingum annarra birgða verið
hætt. Auk þess er ætlunin að
kalla heim bandariska hernaðar
aérfræðinga þar og hætta loft-
ílutningum vopna og birgða til
Btjórnarhersins.
Stjórnin, en æðstu menn henn
»r eru Boun Oum og Nosavan,
reyna að láta þessar aðgerðir
ekki á sig fá. í maíbyrjun leit-
aði Nosavan til andkommúnista
t Thailandi, S-Vietnam, Filipps-
eyjum, Formósu, S-Kóreu og
híalaya, um aðstoð, til að halda
áfram baráttunni.
SIGUR KOMMÚNISTA?
Hætta er nú á þvi að Laos
falli alveg undir yfirráð komm-
únista, eða verði skipt miili
þeirra og andkommúnista.
Nosavan, hershöfðingi, er harð
tir í horn að taka, og vill ekiki
iifhenda land sitt kommúnistum.
Hins vegar eygir hann nú að-
eins eina lausn, skiptingu lands-
ins. Hann veit, sem er, að engin
von er til þess, að vinna aftur
norðurhluta landsins, án þess að
IBandaríkjamenn skerist beint í
leikinn. Hins vegar er það skoð
Un Nosavans, að verja megi dal
inn við Mekong ána og S-Laos,
ef Bandaríkj amenn breyta stefnu
Binni, og koma honum ti‘1 hjálp-
ar.
Andkommúnistar í Laos eru
ekki eins hjálparvana, og þeir
virtust vera fyrr á árum. Stjórnar
herinn telur niú 70.000 hermenn,
sem síðasta árið hafa notið þjálf
unar bandarískra hrnaðarsérfræð
inga. Um 4000 þeirra, mest m,egn
is liðsforingjar og tæknifræðing
ar, hafa fengið sérstaka r»ennt-
un.
Auk þess hafa um 11.000 Laos-
búar, sem búa á því svæði, sem
er undir yfirráðum kommúnista,
fengið vopn í hendur, og verið
þjálfaðir af Bandaríkjamönnum.
Þessir menn eru af Moe-þjóð-
flokknum, og eru taldir mjög
skæðir skæruhermenn.
Bandaríkjamenn, sem dvalizt
hafa með herliði stjórnarinnar,
segja að bardagahæfni herlið-
anna hafi stórum aukizt.
Hersveitir „hlutlausra“ Og
kommúnista telja um 38.000 her
liða. Þeir eru hins vegar ekki
undir einni stjórn.
Ákvörffunin 1961: Eftir þeim
upplýsingum, sem hægt hefur
verið að afla í Laos, Thailandi
og S-Vietnam, hafa bandarískir
ráðamenn lítið gert til þess að
fylgjast með ástandinu í Laos,
síðan vorði 1961, er Kennedy-
stjórnin komst að þeirri niður-
stöðu, að bezt væri að Laos
yrði „hlutlaust" ríki.
Engar fregnir benda til þess,
að stjórnin í Washington hafi
lagt sig eftir að kynnast breytt-
um viðhorfum. Engin sendinefnd
sérfræðinga hefur komið til Laös
í rúmt ár. Hins vegar segja hern
aðarsérfræðingar, sem dvalizt
hafa í Laos, að ýmis viðhorf,
sem legið hafi til grundvallar
stefnu Bandaríkjamanna, sé
breytt, eða ekki fyrir hendi.
Sem dæmi má nefna, að talið
var, að kommúnistar og hlut-
lausir gætu hertekið Laos á
nokkrum dögum, ef ekki yrði
komið á fót stjórn, sem þeir
ættu sæti í. Hið andstæða hefur
gerzt. Pathet Lao hefur orðið að
leita stuðnings hjá herliði komm
únista í N-Vietnam, og fengið
þaðan beztu hersveitir, sem völ
var á.
Önnur skoðun var sú, að með
samningum mætti koma í veg
fyrir, að kommúnistar notuðu
Laos sem stökkbretti til frekari
landvinninga í SA-Asíu. Hingað
til hefur engum tekizt að koma
á vopnahlé í Laos. N-Vietnam
hefur sent 10 hersveitir til bard
agasvæðanna.
Kommúnistar ráða nú yfir aðal
samgönguleiðinni um Laos, sem
tengir Norður- og Suður-Viet-
nam. Rússar flytja loftleiðis
birgðir til Tohepone, nærri landa
mærum S-Vietnam, auk þess
sem þeir hafa aðra stóra birgða
stöð, sem þeir sjá fyrir birgð-
um með flutningum loftleiðis.
Jafnvel þeir bjartsýnustu, í hópi
vestrænna manna í Vientiane,
gera sér grein fyrir því, að jafn-
vel þótt komið yrði á fót þjóð-
stjórn, myndi engin leið að koma
í veg fyrir, að kommúnistar í S-
Vietnam fengju sín vopn og vist-
ir.
Enn ein skoðun bandarískra
ráðamanna var sú, að stjórnin í
Laös væri óstarfhæf. Hins vegar
eru margir Bandaríkjamenn,
sem dvalizt hafa í Laos, þeirrar
skoðunar, að stjórn Boun Oum
og Nosavans, sé sú bezta, sem
nokkru sinni hafi verið í Laos.
Aðstoð sú, sem þeir nutu, hafi
verið eins skynsamleg og hægt
var.
Hins vegar veita Bandaríkja-
menn enn 6 milljónum dala, ár-
lega, til aðstoðar við flóttamenn
í Laos, og hefur það fé gert
mikið gagn.
Fáir vinir Bandaríkjanna: —
Vegna stefnu Bandaríkjastjórn-
ar eiga Bandaríkin nú mjög fáa
vini í Laos. Kommúnistarnir líta
á Bandaríkjamenn sem heims-
valdasinna, „hlutlausu“ aðilarn-
ir vantreysta þeim og andkomm-
únistar telja þá hafa brugðizt
sér.
Ráðamenn í Asíu eru margir
þeirrar skoðunar, að Bandarílkja
stjórn hafi sézt yfir mjög mikils
vert atriði:. Hve mikinn áhuga
hafa kommúnistar á því að taka
Laos, og hiver er máttur þeirra
til slíkra aðgerða?
Enginn er í vafa um, hvað vak
ir fyrir þeim í framtíðinni. Jafn-
vel Sövétríkin, sem lýst hafa
fylgi sinu við hlutleysi Laos,
vilja gera Laos að kommúnista
ríki, þótt síðar verði. Laos er
jofnvel þýðingarmeira fyrir Ho
Chi Minh, kommúnistaleiðtogann
í N-Vietnam. Hann dreymir um
alger yfirráð yfir Indókína, en
fyrst yrði hann að ná völdum í
Laos.
Vandamál kommúnista: Geta
kommúnista er annar handlegg
ur. Sem stendur, eru hlutlausir
og komm-únistar algerlega háðir
loftflutningum vopna og birgða.
Ef frá eru taldir vikulegir flutn
ingar með vörubílum, frá N-
Vietnam, ráða þeir ekki yfir öðr
um flutningaleiðum,
Kínverjar hafa um 40.000 her-
liða nærri landamærum Laos.
N-Vietnam ræður yfir um 350.000
vel þjáifuðum herliðum. Hins
vegar eru hernaðarsérfræðingar
á þeirri skoðun, að bæði löndin,
til samans, gætu ekki séð af
fleiri en 100.000 herliðum til bar-
daga í sjálfu Laös.
Hvorki Kínverjar, né herliðar
N-Vietnam, ráða yfir matvæla
birgðum, svo nokkru nemi. Sam
gönguleiðir við landamæri Laos
eru mjög ófullkamnar, og erfitt
um aðflutninga. Verksmiðjur
þær, sem framleiða fyrir herina,
eru þúsundir mílna í burtu, i
N-Kína og Mansjúríu.
Herforingjar telja, að hvortd
N-Vietnam, né Kína, geti lagt
ú-t í styrjöld, svipaða þeirri, seim
háð var í Kóreu, á sínum tíma.
Hins vegar myndu Bandaríkja
menn, og stuðningsmenn þeirra,
einnig eiga erfitt með aðflutn-
inga, en talið er, að auðvelt væri
þó að verja svæðið við Mekong
ána, og S-Laos.
Erfiffleikar, en----: Hví eru
þá Bandarikjamenn að hóta því
að hætta öllum stuðningi við
stjórnina í Laos, og krefjast
þess, að komið verði á fót þjóð-
stjórn, sem haft gæti í för með
sér skiptingu Laos, eða jafnvel
að landið falli undir yfirráð
kommúnista?
Þetta svar er haft eftir vest-
rænum, háttsettum manni, sem
dvalizt hefur um árabil í SA-
Asíu:
„Bandaríkjamenn virðast hafa
sett kommúnistum stólinn fyrir
dyrnar í S-Vietnam. Þeir hafa
einnig heitið Thailandi því, að
landið verði varið fyrir árásum.
Margt bendir einnig til þess, að
Bandaríkjamenn hafi alls ekki
í hyggju að hætta. afskiptum af
málum í SA-Asíu.
En ef það er stefna þeirra að
tryggja sjálfstæði Thailands og
S-Vietnam, hví ætla þeir sér þá
að nokkru leyti, eða öllu, að
selja Laos í hendur kommúnist-
um? Víst er Laosmálið erfijt mál
fyrir alla þá, sem afskipti hafa
af því. Hitt er aftur á móti stað
reynd, að frelsi Thailands og
S-Vietnam verður vart tryggt
nema með frelsi Laos“.
Kong Le hefur talizt til „hlutlausra“ í Laos. Hann steypti stjórn landsins 1960, og hugðist
koma á samningum viff kommúnista. Þá var sett á stofn stjórn Souvanna Phouma, í Vienti-
ane. Hún hrökklaffist frá, og Nosavan tók borgina, siðar á því ári. Þá tók Kong Le höndum
saman viff kommúnista (Pathet Lao) undir stjórn Souhanouvong. Mynd þessi var tekin í
Tékkóslóvakíu fyrir skömmu, er Kong Le var í heimsókn í hergagnaverksmiffja.
A
sími’
3V33J
iVAUT TIL LEiau:
V/c/s kól*lu r
Xranabt lar
Dva/’/arbílar
1*1 ut nin.ga uag nar
)UN6flVINNin/á4R7r
simí 34333
UTAN UR HEIMI
Afhenda Bandaríkjamenn
kommúnistum Laos?