Morgunblaðið - 27.05.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.05.1962, Blaðsíða 5
f SunnudagUr 27. maí 1962 MORGUNBLAÐIÐ 21 * Ausiurbæjarskoli Laugamesskoli ghdfsbrj, homanna * • ».♦ skoli MelaskóJ laugar nes- skólj Kjördeildaskiptingin í Reykjavík /~^ SJA NANAR NÆSTU SIÐU Flugvöllur á Álftanesi er bezta lausnin Eftir Brand Tómasson, yfirflugvirkja víkrurflugv'elli og slíta þannig starfsemi Flugfélags fslands í sundur. Nær mundi að sameina flugfélögin á einum stað. MÖRGUM er það nú áhugaefni hvar framtíðarflugvelli Reykja- víkur verður fundinn staður. En flestir, sem um þetta mál Ihafa fjallað, bæði í blöðum og útvarpi, hafa að mínum dómi ekki kynnt sér málið nægilega og þar af leiðandi eru þeir mis- jafnlega færir um að meta og vega þetta mikilvæga mál. Vitanlega er það hlutverk sérfræðinga að velja framtíðar- flugvelli okkar stað, en menn, sem öðlazt hafa nokkra þekk- ingu á flugmálum okkar eftir langt starf í þágu flugsins á ís- landi, ættu þó að geta lagt eitt- hvað til málanna. >eir, sem unnið hafa að flugmálum okkar frá upphafi ættu að vita hvar skórinn kreppir að. Mér varð það ljóst íyrir mörg um árum, að Reykjavíkurflug- völlur yrði ekki til frambúðar. En mér var ekki síður ljóst, að Keflavikurflugvöllur getur ekki þjónað Reykjavík og nágrenni svo að vel fari. Á Álftanesi er bezta flugvall- arstæði, sem völ er á hér í grennd og það mun leitun á betra flugvallarstæði við borgir erlendis: Ég mun síðar færa rök að þessum atriðum. Ingólfur Aðalsteinsson, veður- fræðingur á Keflavíkurflugvelli, ritaði nýlega grein í Morgun- blaðið og minnir okkur þar á, að Keflavíkurflugvöllur sé fyrir hendi og flytja beri allt utan- landsflug þangað. Hann er ann- ar maðurinn, sem þar vinnur og vekur máls á þessu í blöðunum. Hvort.það er vegna þess að þeir hafa atvinnu sína á Keflavíkur- flugvelli skal ósagt. Ennfremur telur hann, að brýnasta verkefnið, sem nú liggi fyrir í flugmálunum, sé að byggja stóran þotuflugvöll á norðurlandi. — Ég verð nú að segja, að okkur ber fyrst og fremst að hugsa um okkar þörf og láta hagsmuni erlendra flug- félaga sitja á hakanum. Akur- eyrarflugvöllur fullnægir okkur enn sem komið er og þarf litlu við hann að bæta til þess að hægt verði að nota hann sem varaflugvöll um alllanga fram- tið. Fyrir hvern ætti þá að byggja nýjan þotuvöll á Norð- urlandi? Fyrir 10—20 árum var því spáð, að Keflavíkurflugvöllur yrði úr sögunni sem farþega- völlur eftir 10—20 ár. Reynslan hefur nú sýnt, að þessi spádóm- ur var ekki fjarri yfir hafið án viðkomu — svo að ástæðulaust er að gera sér áhyggjur af varavelli fyrir Keflavíkurvöll. Ingólfur telur, að reka beri innanlandsflug áfram á Reykja- Hvað gerðu svo yfirvöld Reykjavíkur. Ætli þeim þætti ekki dýrt að eyða dýrmætasta svæði höfuðstaðarins undir flug völl fyrir 3—4 flugvélar í inn- anlandsflugi? Ætli það kæmi þá ekki krafa um að innanlands- flugið flytti lika? Og þá erum við komnir að kjarna málsins: Hvað kostaði það að byggja flugvöll fyrir innanlandsflugið rétt utan við bæinn, t. d. á Álftanesi? Kostnaðurinn við 1600 metra braut yrði u. b. b. 50 milljónir króna, en u. þ. b. 75 milljónir, ef byggðar yrðu 2100 metra brautir, sem nægja millilandafluginu. Ekki er reikn að með flugvélastæðum né kaup um á landi, en áætlunin að öðru leyti byggð á þeirri reynslu sem fengizt hefur af flugvallargerð hér á landi. Hvort mundir þú svo lesandi góður álíta happasælla — að hafa flugvöll á Álftanesi það stóran, að hann þjónaði allri okkar flugstarfsemi, eða að hafa nokkurn hluta hennar á Kefla- víkurvelli og hinn í Reykjavik — með öllum beim aukakostn- aði og óþægindum, sem slíkri skiptingu fylgdi? Kostnaður við flutning farþega, starfsmanna og á vörum yrði fljótlega meiri en munurinn á byggingarkostn- aði á velli fyrir innanlands- og utanlandsflug. Og það yrði líka mikill kostn- aðarauki að byggja yfir starfs- lið flugfélaganna, 1—200 fjöl- skyldur suður á Keflavíkurflug- velli, því þangað yrði megin- hluti starfsliðsins að flytjast, ef öll flugstarfsemi yrði flutt íra höfuðlstaðnum. Ingólfur er einn þeirra mörgu, sem byggja allt á nýja Kefla- víkurveginum. Það er eins og þessir menn ímyndi sér, að þessi nýi vegur verði einhver kappakstursbraut. Ég er síður en svo á móti lagningu þessa nýja vegar, þó ég segi, að aksturs- hraðinn verði oft á tíðum ekk- ert meiri en á þeim vegi, sem nú er notaður. Því veldur is- lenzk veðrátta, hálka og bleyta, sem verður á veginum töluverð- an hluta ársins. Svo ræddi Ingólfur um fjar- lægðir flugvalla frá borgum er- lendis. Sagði hann, að Svíar teldu 50 km hæfilega fjarlægð vegna hávaðans. Þetta er rangt, því ástæðan fyrir vali flugvall- arstæðis utan við Stokkhólm var einfaldlega sú. að umrætt svæði var hið eina, sem til greina kom fyrir jafnstónan völl og byggður var. f námunda stór borganna er ekki alltaf auðvelt að finna heppilegt flugvallar- stæði. Ef flugvöllur er 3—4 km frá byggð er hévaðinn að mestu úr sögunni. Hins vegar verða menn að gera sér grein fyrir því, að flugsamgöngum er ekki haldið uppi til neinnar borgar án þess að einhver hvinur heyrist í lofti. Hvað um bílaumferðina — er hún kannske hávaðalaus? Ég þekki nokkra, sem búa nærri Kastrup-flugvellinum í Kaupmannahöfn, og hitti einn þeirra nýlega. Sagði hann, að þegar þoturnar hefðu hafið inr,- reið sína, hefðu heyrzt margar óánægjuraddir frá fólkinu, sem býr næst vellinum, einkum þeim, sem áttu hús fyrir brautar endum. Sögðust margir ekki geta sofið, kvörtuðu yfir tauga- veiklun — vegna hávaðans. Þetta fólk krafðist þess, að ríkið fjarlægði völlinn eða keypti húsin svo að það gæti flutt. „Ég get vel skilið fólikið, sem bjó fyrir brautarendunum“, sagði þessi kunningi minn, „þvi það er óverjandi að láta fóSk búa þar, bæði vegna hávaðans og slysihættunnar. Sjálfur bý ég á hlið við eina brautina, 1—2 km fjarlægð. Ég varð auðvitað var við hávaðann, en aðeins fyrst. Ég vandist honum fljót- lega. Ríkið brá hins vegar skjótt við og keypti húsin af fótkinu við brautarendana, en það býr þar samt enn“. Alls staðar er lögð áherzla á að flugvellir séu eins nálægt þeim borgum, sem þeir eiga að þjóna, og kostur er — án þess að hávaðinn trufli lif borgar- anna. Og þeir, sem eru sivo heppnir að hafa ónotuð flugvall arstæði á nesjum eða í hliðstæð um afkimum, eru vel settir. Flugvöllur á Álftanesi mundi t. d. aldrei trufla framþróun byggðarinnar í nágrenni Reykja vikur. Ein athugasemd Ingólfs var skarpleg, enda kom hann þar inn í sitt fag, þ. e. veðurfræðina. Hann sagði betri veðurskilyrði á Álftanesi en Keflavíkurflugvelli. Það eitt gæti að mínum dómi réttlætt byggingu «Álftanesflug- vallar, því látum við ekki ör- yggismálin alltaf sitja í fyrir- rúmi? Við ættum a.m.k. að gera það. Sigurður Jónasson talaði „Um daginn og veginn“ í útvarpinu ekki alls fyrir löngu og ræddi m. a. um framtíð flugmálanna.’ Það, sem hann sagði um Reykja víkurflugvöll, var sennilega Framhald á bls. 29. Mætum snemma á kjörstað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.