Morgunblaðið - 31.05.1962, Page 3
Fimmtudagur 31. maj 1962
MORCVNBIAÐ1Ð
3
í D A G hefst við Vest-
mannaeyjar alþjóðamót
sjóstangaveiðimanna og
stendur það til 2. júní. —
Mótið munu sækja mn 40
útlendingar, auk all-
margra íslendinga. Und-
anfarið hefur verið tals-
verður áhugi meðal Vest-
mannaeyinga fyrir þessari
íþrótt og hafa ýmsir góð-
ir borgarar þar brugðið
sér á veiðar.
Sem kunnugt er, er nú
hinni eiginiegu vertíð í Eyj-
um lokið. Fljótt hefjast nýj-
ar vertíðir. svo sem vorver-
Gælt við þann gula með stöng
mennsku dettur engum í hug
að stunda. Tómstundaiðja
hafa lundaveiðar verið um
nokkurt árabil og nú allra
síðast sjóstangaveiði.
★
Myndirnar sem hér birtast
á síðunni eru af nokkrum fé-
lagsmönnum í Sjóstangaveiði
félagi Vestmannaeyja að sef-
ingu nú um miðjan mánuð-
inn. Stærsta myndin sýnir
sægarpana, þar sem þeir'
hvíla sig stundarkorn meðan
verið er að „kippa“ á ný mið.
!>á er mynd af 3 fiskum í
vatnsskorpunni, sem allir
komu í senn á eitt og sama
færið. Loks er svo mynd af
meistaranum, Þórarni Jóns-
syni. — Ljósmyndari blaðs-
ins í Vestmannaeyjum, Sig-
urgeir Jónasson, tók mynd-
irnar.
tíð og sumarveiðar. Næst
verða það kannski síldveið-en
ar, humartroll, dragnótaveið-
ar eða handfæraveiðar.
★
Aðrir vilja gera sér þessa
atvinnugrein að íþrótt og fá
þeir þá gjarnan leigðan bát
stund og stund og bregða sérút
með nýtízku veiðarfæri, svo-
nefndar sjóstengur, og draga
þá oft allgóðan afla úr sjó,
að sjálfsögðu mjög mis-
munandi mikinn. Einmitt í
Vestmannaeyjum er fremur
fátt hægt að gera sér til
dægrarstyttingar, annað en
draga föng úr sjónum í ein-
hverri mynd. Þar verður
hvorki stunduð lax- né sil-
ungsveiði, skíðaíþrótt þekkist
ekki þar um slóðir og hesta-
Sauöburöur gengur víöast vel,
en gróður er lltill
BLAÐIÐ hafði í gær samband við nokkra fréttaritara sína í
sveitum landsins og spurðist fyrir um sauðburð og gróðurfar.
— Fara hér á eftir frásagnir þeirra.
Hvallátrum
Vorið hefur verið hér kalt og
gróðursnautt. Er fé því mest
heima við. Enn ganga nætur-
frost og er því útlit slæmt með
gróður. Sauðburður hefur yfir-
leitt gengið sæmilega nema
hvað á einum bæ, Geitagili, hef-
ur borið talsvert á lambalátum.
Milli 20 og 30 kindur hafa látið
lömbunum. Auk þess er til að
tvílembur beri öðru lambinu
dauðu. Búizt er við að langt
verði þangað til að kýr verða
látnar út, þar sem gróður er
nær enginn. Menn voru í vetur
vel birgir með hey, en nú eru
þau á þrotum, og þarf að gefa
mikinn fóðurbæti. Enginn sauð-
gróður er á úthögum. Tvær
kindur komu fram fyrir
Bkömmu, sem legið höfðu úti í
vetur, önnur í fjallinu upp af
Rauðasandi. Var hún illa hald-
in. Hitt var lamb er gekk af í
Kollsvík, og var í sæmilegu
standi. — Þórður.
Húsavík
Tíðarfar hefur að undanförnu
verið mjög breytilegt um hita-
stig, en veðurvonzka éngin. 17
stiga hiti var hér á laugardag
en 2 stiga frost í nótt sem leið.
Sex stiga frost var þá í Mý-
vatnssveit. Má búast við að
þetta fari mjög illa með gróður,
og var þó ekki á bætandi, þar
sem víða bar á miklu kali í
túnum. Sauðburður hefur yfir-
leitt gengið vel. Ekki er al-
mennt farið að setja niður
kartöflur hér. Afli var ágætur
í sl. viku en er nú lélegur.
— Fréttaritari. .
Skriðnklaustri
Sauðburður byrjar hér yfir-
leitt um 20. maí, en nokkru
fyrr hér á Skriðuklaustri. Tíð-
arfar var mjög kalt þar til um
síðustu helgi að gerði þrjá mjög
góða daga. Komst hiti upp í 22
stig hér á Skriðuklaustri. í gær
kólnaði snögglega og gerði
hörkufrost sl. nótt. Segja má
að nokkur gróður sé kominn en
tæplega sauðgróður fyrir lamb-
ær á útjörð, enda skógur ekki
farinn að laufgast, þótt farinn sé
hann að grænka. Klaki er enn
mikill í jörðu, en mikil frost
voru í vetur • og vatnsleiðslur
frusu víða. Vegir eru að verða
sæmilegir á Héraði. Þetta vor
er mjög ólíkt tveimur síðustu
vorum, sem voru mjög góð.
— Jónas.
Egilsstaðir.
Búið er að hreinsa snjó af
veginum norður yfir Fjöll, en
bann er á honum sökum aur-
bleytu. Vegir hér um slóðir eru
sæmilegir og eru bændur að
aka til sín áburði. Ari.
Mykjunesi í Holtum.
Hér hefur sauðburður gengið
vel þrátt fyrir vorkulda. Sauð-
gróður er orðinn sæmilegur,
jafnvel á útjörð, en hefur þó
verið lítill fram undir þetta.
Sl. nótt var 3—i stiga frost og
klaki á jörðu í skugganum fram
undir hádegi. Eftir er svo að
vita hvernig lömb verða en flest
ir voru búnir að sleppa fé fyrir
sauðburð. Er það jafnan vani
hér um slóðir, því hvorki eru
hús né mannafli til að annazt
sauðburð á húsi. Hann hefsthér
um miðjan maí.
— Magnús.
Plasthiminiiui
settur upp
N Ú hefur verið ákveðið að
plasthimni þeim, sem upphaf-
lega hafði verið talað um að
setja upp yfir sviðinu í Há-
skólabíói, verði komið upp í
sumar. Hefur himininn legið í
geymslu í bíóinu' og beðið þess
að hinn danski sérfræðingur,
sem sá um að réttur hljóm-
burður væri í húsinu, kæmi aft-
ur og úrskurðaði að hans þyrfti
með.
Er Daninn nú nýbúinn að
vera hér, og gera mælingar á
heyrðinni í öllu húsinu, m. a.
með upptökum á bönd og mæl-
ingum af böndunum. Komst
hann að þeirri niðurstöðu að
plasthiminn yrði til bóta.
Himinn þessi er úr þykku,
gagnsæju, hörðu plasti og mik-
ill fyrirferðar. Verður honum
komið fyrir ofan við sviðið, og
á að koma í veg fyrir að hljóðið
berist upp í turninn þar uppi
yfir, en flytjist í þess stað fram
í salinn.
SIAKSTEINAR
„Nú er runninn nýr
dagur!“
„Sigur þjóðbyltingarinnar f
Kína og stofnun hins kínverska
aiþýðulýðveldis er afdrifartk-
asti viðburður í sögu þessarar
aldar, þegar frá er talin rússn-
eska byltingin 1917. Þessi sigur
er i tölu þeirra viðburða, sem
gerbreyta yfirbragði heimsins,
allt mannkynið vaknar að
morgni eftir langa nótt og lýk-
ur upp einum munni: nú er
runnin nýr dagur !“
Þessa hástemmdu lýsingu á
sigri kommúnismans í Kina er
er ekki að finna í skýrslu SÍA-
mannsins Skúla Magnússonar,
er þar hefur dvalizt í 4 ár við
nárr., og Morgunblaðið birti
fyrir nokkrum dögum. Nei,
þessa Iýsingu er að finna i bók
kom.múnistasagnfræðingsins
Sverris Kristjánssonar um Kina
sem kommúnistaforlagið „Heims
kringla" gaf út fyrir nokkrum
árum hinum kinversku „félög-
um“ tii lofs og dýrðar.
Sennilega munu flestir sam-
mála um, að lýsing Skúla Magn-
ússonar á þjóðfélagsástandinu í
Rauða-Kina sé einhver hin ó-
hugnanlegasta, sem birzt hefur
í islenzku blaði. Hún er hroll-
vekjandi. Og þar skýtur óneitan
lega mjög skökku við utanað-
lærðar Iýsingar Sverris Kristj-
ánssonar og annarra leigupenna
kommúnista, sem ekkert þekkja
til mála af cigin raun.
„Öllum ævintýrum
glæstari“
Það er fróðlegt að bera nú á-
róðurslýsingar Sverris Kristj-
ánssonar á. þjóðfélagsástandinu
í Kína saman við lýsingar hins
kommúníska, íslenzka stúdents
á ástandinu, eins og það' raun-
verulega er.
„Já, hann (þ.e.
Maó Tse-tung)
er kominn til
ríkis !“, segir
Sverrir. „f
sama mund er
kínverska þjóð-
in sjálf komin
til ríkis . . .“
Og hann spá-
ir : „Nú stjóm-
ar Maó Tse-tung sköpum kín-
verskrar sögu í salarkynnum
keisaranna í Peking. Nú spinn-
ur þjóðsagan ekki lengur þráð
sinn um. Maó Tse-tung. Ævin-
týrið endaði vel eins og ævin-
týri eiga að gera. En hin raun-
verulega saga, sem Maó Tse-
tung spinnur í Peking, verður
án efa öllum ævintýrum glæst-
ari“ (!)
Allir niósna um alla
Skúli Magnússon lýsir hinu
„glæsta ævitýri“ hins vegar
m.a. á þessa leið :
„Hverju mannsbami hlýtur
að vera ljóst, að allir eru alltaf
að njósna um alla“.
„Ég fæ ekki betur séð en að
Kommúnistaflokkur Kína sé
með verstu úrhrökum, sem ver-
aldarsagan greinir“.
„Ekkert afl er í landinu, sem
getur myndað mótvægi gegn
gerræði flokksins, haldið honum
innan viss ramma. Hver ein-
staklingur er eins og sprek í
ólgusjó, getur engu valdið um
framtíð sína, getur aðeins lot-
ið boði að ofan“.
„Leiðtogarnir éru því HRÆDD-
IR hver við annan og berast á-
fram og ósjálfbjarga í hringiðu"
„Kerfið er despótík, þar ligg-
ur meinsemdin grafin.“
Skyldu nú nokkrar efasemd-
ir læðast að Sverri Kristjáns-
syni næst, þegar hann verður
beðinn að „vitna“ um „yfir-
burði" hins kommúniska skipu-
lags?
Nokkrar efa-
semdir um
„yfirburðina"?