Morgunblaðið - 31.05.1962, Blaðsíða 8
8
MORGUIVBLAÐIÐ
Fimmtudagur 31. maí 1963
Myndin sýnir, hvar gert er ráð fyrir hinni nýju hótelbyggingu.
Nýtt frá Kaupmannahöfn:
hana á gaflhliðinni fiserst
Ráðhústorgi.
Wivex reisir hótel
Hinn gamalkunni veitingastaður
færir út kvíarnar
Flestir fslendingar sem
til Kaupmannahafnar hafa
komið, þekkja hinn gaml-
kunna veitingastað Wivex.
Hann stendur á horninu
gegnt Káðhústorgi með
Tívolí-skemmtigarðinn
fræga að haki sér. í nýjum
dönskum hlöðum er nú
sagt frá því, að forráða-
menn staðarins hafi ákveð
ið að reisa stórt hótel í
stað álmunnar, sem snýr
út að Bernstroffsgade —
og verður hafizt handa um
hyggingarframkvæmdir í
haust.
Aðalbygging Wivex, sú er
stendur við Vesterbrogade
og snýr að ráðhúsinu, var
byggð árið 1889 og er þvi
mjög komin til ára sinna.
Engu að siður er áformað að
hún standi áfram óbreytt um
sinn. Munu áreiðanlega marg
ir láta sér bað vel líka, því
að staðurinn er með afbrigð-
um vinsæll og við hann
bundnar margar minningar.
Á stærð við Garð og Sögu
Hótelbyggingin nýja verð-
ur 4 hæðir. f henni verða a.
ö. 1. 85 herbergi með u.þ.b.
170 rúmurn alls. Má hafa til
samanburðar, að þetta er
svipaður fjöldi og á Hótel
Garði hér í Reykjavík og
sömuleiðis líkt og verða mun
í Hótel Sögu, þegar það hef-
ur tekið til starfa að fullu.
Verður reistur nýr veitinga-
salur, sem snúa mun inn að
Tívolí-skemmtigarðinum.
Verður sú bygging lægri en
aðalibyggingin. — í kjallara
hinnar nýju byggxngar verða
bifreiðageymslur og mun
bílunum verða ekig niður i
Glæsilegt hótel.
Hið nýja hótel verður af
fullkomnustu gerð og má
ætla að marga muni fýsa að
fá þar inni. Á efstu 'hæð-
inni verða 10 gistiherbergi
með svölum út að Tívolí-
garðinum, þar sem gestir geta
legið í sólbaði og notið veð
urblíðu, sem ekki er fátið i
Kaupmannalhöfn að sumar-
lagi, eins og margir íslend-
ingar þekkja af eigin raun,
Það er mikill kostur við
þetta nýja hótet, hvað það er
vel rta&sett — í hjarta Kaup-
mannahafnar. Aðeins 2ja-
3ja mínútna gangur er til að-
aljái-nbrautastöðvarinnar oð
aðalflugafgreiðslunnar í borg
inni.
Hafizt handa í haust
Áætlað er að þessar nýju
byggingarframkvæmdir muni
kosta nálægt 9 millj. danskra
króna — eða sem svarar 55
milljónum íslenzkra króna.
Ákveðið hefur verið að loka
veitingastaðnum að sumar-
önnum loknum eða hinn 1.
október n.k. Verður þá þegar
byrjað að rífa núverandi
álmu við Bernstorffsgade —
og síðan gert allt sem unnt -e,
til þss að ljúka byggingar-
framfcvæmdunum á sem allra
skemmstum tíma.
Umboðsmaður
óskasto tii að selja allar tegundir salts til innflytjenda
og neytenda. Sendió meðmæli.
A/S Norske Satkompagni.
Póstbox 743 — Bergen.
Stúlka
sem er vön verzlunarstörfum, óskast strax. Aldur
22—30 ára. Upplýsingar ekki í síma.
Apótek Austurbæjar.
Atvinna
Okkur vantar fólk í vinnu í fiskverkunarstöð vorri
í Vestmannaeyjum. Fæði og húsnæði fyrir hendi.
Mikil vinna. Talið við Einar Sigurjónsson, sími 10 og
381, Vestmannaeyjum.
............. ísfélag Vestmannaeyja hf.
Bezt að augSýsa í Morgunhlaðinu
Flaggstangahúnar
FLAGGLÍNUR
FLAGGLÍNUFESTAR
Verziun
0. Eilingsen
— Krabbamein
Framh. af bls. 1.
meinsfélag íslands og Reykja-
víkur hafa nú keypt og standa
jafnt að kaupunum. Húsnæðis-
skorturinn var orðinn mjög til-
finnanlegur og háði starfseminni
mjög, en frá því 1954 höfðu fé-
lögin eina skrifstofu í Blóðbank-
anum, sem var löngu orðin alltof
lítil.
Krabbameinsfélagið hefir nú
hlotið $50 000.— styrk frá krabba
meinsstofnun í Washington
(National Institute of Cancer) til
tveggja ára undirbúningsrann-
sóknum á magakrabbameini hér
á landi. Hcfur próf. Júlíus Sig-
urjónsson verið ráðinn til að
vinna að þessum rannsóknum
með próf. Dungal, sem fyrst um
sinn ganga aðallega út á það
hvernig krabbamein sé útbreitt
hér eftir landshlutum, en einnig
er ætlunin að reyna að fá úr því
skorið hvort sjúkdómurinn sé al-
gengari hjá einni stétt en annari,
og íer sérstaklega ætlun mín
(segir prófessorinn), að fá saman
burð á sjómönnum og bændum,
því að þær tölur sem við höfum,
benda til þess að sjúkdómurinn
sé miklu algengari meðal bænda
en sjómanna. Gæti það staðið í
sambandi við mismunandi matar
æði. í þessu sambandi kemur
maður fxá háskólanum í Illinois
til að vinna hér í samráði við
Okkur, Warwick Armstrong að
nafni. Hann hefur tekið p’róf í
landafræði við 'háskóla í Illinois,
og hefir á'huga fyrir geografiskri
pathologi, þ. e. sambandinu
milli landðhátta ®g sjúkdóma.
Mun 'hann taka sýnishorn af jarð
vegi, drykkjarvatni, athuga
geislavirkni o. s. frv. á ýmsum
stöðum á landinu, en rannsókn-
arstöðvar í Urbana í Illionis
munu gera ýmsar rannsóknir á
sýnishornum af mold, vatni
0. s. frv. sem sent verður héðan,
svo að unnt verði að fá saman-
burð á samsetningu moldar og
vatns frá ýmsum stöðum á land-
•inu þar sem krabbamein er mis
algengt.
Ennfremur segir í skýrslunni:
„Eins og ykkur mun öllum kunn-
ugt. hafa á öndverðu þessu ári
birst tvö nefndarálit útvaldra
lækna, sem tilnefndir voru til að
rannsaka sambandið milli reyk-
inga og lungnakrabbameins. önn
ur nefndin var dönsk, tilnefnd
af danska krabbameinsfélaginu,
en hin tilnefnd af þekktasta
læknafélagi Bretlands, Royal
College of Fhysicians, sem valdi
hæfustu menn sína til að kynna
sér áhrif reykinga á heilsu
manna. Báðar komust þær að
sömu niðurstöðu nl. að sígarettu-
reykingar eru aðalorsök lungna
kraibbameins. sem hefur farið
'hraðvaxandi í flestum menning-
arlöndum síðustu áratugi.
í báðum þessum löndum hafa
þessar rannsóknir orðið til að
opna augu þeirra, sem ekki gerðu
sér það ljóst áður, að þjóðfélagið
getur ekki staðið aðgerðalaust
frammi fyrii þessari hættu sem
mönnum stafar af reykingunum.
Alls staðar er verið að stækka
Húseigendafélag Reykjavíur.
sjúkraihús til þess að unnt sé að
taka við lungnakrabbameins*
sjúklingum og hjartasjúklingum,
sem deyja unnvörpum úr þessum
sjúkdómi. Við verðum að fylgjast
með eins og aðrir, því að við
getum ekki látið þetta fólk deyja
drottni sínum án þesr að nokkuS
sé reynt til þess að bjarga lífi
þess. ,
12 ár eru liðin síðan fyrst var
minnst á reykingahækkuna í
Fréttabréfi krabbameinsfélagsina
og jafnan verið hamrað á því
síðan. Sl. vetur höfum við sent
ungan lækni í flesta unglinga-
skóla í Rvík. til að útskýra þessa
hættu fyrii nemendum. og hefir
hann stuðst við litmyndir, sem
ameríska krabbameinsfélagið hef
ur látið útbúa í þessum tilgangi,
En til þess að fræðsla þessi beri
tilætlaðan árangur, þarf hún að
komast inn í barnaskólana,
þannig að börnin viti um hætt-
una áður en þau byrja að reykja.
Slík fræðslustarfsemi kostar
mikið fé Varðandi þetta mál
skrifaði próf Dungal landlækni
bréf, þar sem hann fer fram á
að 25 aura skattur, sem rynni
til krabbameinsfélagsins, tkyldi
lagður á hvern sígarettupakka.
Myndi slíkur skattur nema kr,
2,5 millj. kr. á ári og mætti mikiS
fyrir þá upphæð gera.
Fyrir 30 árum siðan veikt*
ust aðeins 1—2 á ári af lungna-
krabbameini, en sl. ár voru skróa
ir 24 með þennan sjúkdóm. Má
reikna með að tala sjúklinga
með lungnakrabbamein geti fari#
upp í 100 á ári á þessum áratug,
í 5 ára yfirliti, sem Ólafur
Bjarnason hefur samiS yfir
krabbameinsskráninguna, sá#t a8
1773 krabbamein hafa veriS
skráð, 885 í karlmönnum «g 888
í konum. Af þessum meinum er
næstum helmingurinn í melting-
arfærum, eða 730. Karlmenn eru
þar í miklum meirihluta, meS
447 á móti 283 hjá konum. Ræð.
ur magakrabbameinið þar mestu
um. Hins vegar er krabbamein
í brjóstum og kynfærum miklu
algengara hjá konum: 338 á móti
88 hjá karlmönnum. Þar kemur
fram að magakrabbamein er al*
gengara í sveitum en í kaup.
stöðum.
Leitarstöðin hefur verið með
sama hætti og áður. Ekkert
krabbamein fannst þar á sl. ári,
Rekstrarhalli hefur orðið 100
þús. kr. og er hún töluverður
fjárhagsbaggi á félaginu.
Margir einstaklingar hafa fært
félaginu góðar gjafir, tveir ein-
staklingar 25 þús. kr. og margir
10 þús., 5 þús og minni gjafir,
Flestir vilja ekki láta nafns síns
getið, er því ekki getið hér um
nöfn þessa fólks
Eftir ræðu förmanns urðu
nokkrar umræður, síðan fór
fram stjórnarkosning Og venju-
leg aðalfundarstörf.
Stjórnina skipa nú: Próf. Nieis
Dungal, formaður; Hjörtur Hjart
arson frm stj., gjaldkeri; Bjarni
Bjarnason læknir, ritari.
Meðstjórnendur: Frú Sigríður
J. Magnússon, Gísli Jónasson fv.
skólastj.. Gunnar Möller hrl., Dr.
med. Friðrik Einarsson yfirlækn-
ir, Bjarni Snæbjörnsson læknir
Hafnarfirði, Frú Ingibjörg
Ögmundsdóttir símstjóri Hafn-
arfirði.
Endurskoðendur: Björn E,
Árnason og Ari Thorlacius.
Starfsfólk Krabbameinsfélags-
ins er nú Halldóra Thoroddsen,
skrifstofustjóri, Guðm. Benja-
mínsson, afgreiðslumaður og Jón
Oddgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri fjáröflunar o. fl. — í dag,
uppstigningardag, er merkjasölu
dagur félagsins úti á landi ea
í Reykjavík og Hafnarfirði föstu
daginn 1. júní.
Benedikt Blöndal
Lögmannsstörf
Fasteignasala
Austurstræti 3. Simi 10228.
i