Morgunblaðið - 31.05.1962, Blaðsíða 23
^ MVK&ti N m AÐ l Ð
•Fimmtudagur • 311 maj 1962
2?
Sameiginleg skólaslit
í Laugardal í dag
Buizt við miklu fjölmenni
f DAG fara fram sameiginleg
skólaslit barna og unglingaskól-
anna í Reykjavík í Laugardal
til að minnast þess að 100 ár
eru nú liðin frá því að barna-
skóli var lögfestur í Reykjavik.
Hefst athöfnin kl. 14:45 e.h. og
er gert ráð fyrir að 4—6 búsund
nemendur taki j>átt í skólaslit-
unum, sem verða sennilega bæði
hin fyrstu og síðustu sem þannig
fara fram í Reykjavík sökum
þess hve ört borgin stækkar.
Barnaskóli í Reykjavík var
fyrst settur 1862 í Bieringsihúsi
við Hafnarstræti, þar sem nú
er Ingólfshvoll. 50—60 börn inn
rituðust í skólann er hann var
vígður, en fyrsti skólastjóri hans
var Helgi Helgesen. Til gamans
tná geta þess að nú erv 12.600
nemendur í barna og unglingá-
skólunum í Reykjavík. — Kvik-
inynd verðúr tekin af hátíða
Ihöldunum í Laugardal í dag og
verður hún sýnd í skólunum á
vetri komanda, en síðan geymd
6em heimild.
Athöfnin í Laugardal hefst með
því að nemendur 10 ára og eldri
ganga fylktu liði inn á leikvang
inn undir merki síns skóla og
með þeim skólastjórar og kenn-
arar. Nemendur í bamaskólum
10 ára og eldri og í gagnfræða-
skólum eru í kringum 10 þús-
und.
Ekki er hægt að hafa yngri
nemendur með í skrúðgöngunni,
vegna þess að engin farartæki
eru til, sem anna flutningi þess
mikla fjölda, en of mikil
áhætta að stefna þeim inn í
Laugardal án fylgdar. I>ess er
Ihinsvegar óskað að foreldrar
Ikomi með yngri börnin svo að
þau geti verið viðstödd er skól-
unum er slitið og horft og hlust
að á það sem fram fer.
Það sem fram fer er að öllu
leyti þetta:
\j Ávörp flytja:
' Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta
málaráðherra. Dr. Bjarni Jóns-
son, vígslubiskup. Jónas B. Jón-
asson, fræðslustjóri.
Fjöldasöngur: Dr. Pál'l ísóilfs-
60n stjórnar.
Einsöngur: Guðmundur Jóns-
eon syngur.
Leikfimissýning: Drengir úr
Laugarnesskóla sýna undir stjórn
Skúla Magnússonar.
Lúðrasveit Reykjavíikur og
— /jb róttir
Framh. af bls. 22.
í dag leika svo Þjóðverjar og
Jtalía í Santiago; Rússar og Júgó
slavar mætast í Arica; Spánn og
Tékikóslóvakía leiða saman hesta
6ína í Vina del Mar Og í Ranca
gua mætast Ungverjar og Eng-
lendingar.
Sumarbúðir í
Reykliolti
í SUMAR eru starfræktar í Reyk
Iholti sumarbúið r unglinga og
standa að þeim Akurnesingar og
Stykkishóimarar. Verða haldin
•tvö námskeið, hið fyrra fré 13.
til 23. júní og hið síðara frá 25.
júní til 7. júlá. Þátttökugjald er
7ö kr. á dag.
• Forstöðumaður námiskeiðanna
er Sigurður Helgason skólastjóri
í Stykkishólmi en honum til að
stoðar Helgi Hannesson frá
Akranesi.
Upplýsingar um námskeiðið
gofa Sig. Helgason Styikkishólmi
og skrifstofa ÍSÍ og til þessa
aðila ber að senda umsóknir fyr
ir 5. júná n.k.
lúðrasveitir skólanna leika.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
slífc sameiginleg skólauppsögn
fer fram en með tilliti til þess
hve borgin stækkar ört, má bú-
ast við að þetta verði einnig í
síðasta skipti sem svona athöfn
getur farið fram.
Athöfnin á Laugardalsvellin-
um hefst kl. 2,45 með leik Lúðra
sveitar Reykjavíkur. Það skal
tekið fram, að öllum er heimill
aðgangur. Er ekki að efa að
mikill fjöldi manns mun verða
viðstaddur þennan einstæða at-
burð.
Til nemenda
Nemendur 10 og 11 ára eiga
að koma á leiksvæði viðkom-
andi skóla. Þurfa þeir að vera
tilbúnir að leggja af stað frá
skólanum í síðasta lagi kl. 2.
Eldri nemendur þurfa að sjá
um sig sjálfir inn í Laugardal
Og eiga að vera komnir þangað
í síðasta lagi kl. 2,30. Er ástæða
til að minna nemendur á að
treysta ekki á um of á síðasta
strætisvagn þangað.
Ef kalt er í veðri er nauðsyn-
legt að nemendur séu í hlýjum
fötum, en allir verða að vera
snyrtilegir til fara.
— Efnahagsstofnun
Framhald af bls. 24.
mín Eiríksson, bankastjóri og dr.
Jóhannes Nordal, bankastjóri.
Sameinar störf efnahagsrn. og
hagdeildar Framkvæmdabankans
Mbl. hafði í gær samband við
Jónas Haralz og bað hann um
frekari upplýsingar um hina
nýju Efnahagsstofnun. Hann
sagði, að síðan norsku sérfræð-
ingarnir, er seinni hluta síðast-
liðins árs unnu að undirbún-
ingi framkvæmdaáætlunar, fóru
skömmu fyrir jól, hafi stjórnin
og embættj^menn hennar haft
áætlun þeirra í athugun og unn-
ið að því að ganga frá henni. En
þar eð séð væri að ekki væri
hægt að halda því verki áfram,
án þess að sérstök stofnun hefði
það á hendi, fylgdist með fram-
kvæmd áætlunarinnar og semdi
aðrar áætlanir síðar, þá hefði
Efnahagsstofnun verið sett á
stofn. Einnig er gert ráð fyrir að
þessi Efnahagsstofnun semji
þjóðhagsreikninga, sem hagdeild
Framkvæmdabankans hefur nú
og geri áætlanir um þjóðanbú-
skapinn fram í tímann. Hag-
deild Framkvæmdabankans flyzt
því til þessarar stofnunar og
efnahagsmálaráðuneytið verður
lagt niður. Þau verkefni sem
efnahagismálaráðuneytið hefur
haft með höndum, aðallega að
fylgjast með þróun efnahagsmál-
anna og semja skýrslur um þró-
un fyrir rikisstjórnina, falla nú
undir efnahagsstofnunina. Jón-
ais sagði að hér væri því ekki
um það að ræða að skapa nýja
stofnun, heldur fella saman
stofnanir sem fyrir eru, svo þær
verði betur færar um að leysa
þessi verkefni af hendi. Starfs-
lið Efnahagsstofnunarinnar yrði
fyrist og fremst það fólk sem
hefur unnið störf í Framkvæmda
bankanum og skrifstofurnar
verða að nokkru leyti í þeim
skrifstofum, sem hagdeildin
hafði áður.
Jónas segir að sarns konar
stofnanir hafi á undanförnum
árum verið settar á fót í flest-
um löndum Vestur-Evrópu og í
surnum þeirra hefðu þær starf-
að lengi, eins og í Hollandi og
Frakklandi. í Englandi er nú ver
ið að setja á fót efnahagsstofnun
og í Noregi er ætlunin að koma
þessum störfum í fastara form
með því að fela þau slíkri stofn-
un.
Þessi unga stúlka hefur ekki
sjálf verið mikið í fréttunum, en
nafnið sem ihún ber stendur í
hverju blaði um allan heim.
Þetta er Dominique Salan, dóttir
Salans hershöfðingja, sem nýlega
var dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir að hafa stjórnað hryðju-
verkum OAS í Alsír. Dominique
er 17 ára gömul. Hér sést hún
að kaupa blóm sem hún svo fór
með í heimsókn til móður sinnar,
er situr í gæzluvarðhaldi í Fresn
esífangelsi. Auk blómanna færði
hún henni sex skádsögur eftir
Hemingway. Vinir Salans-sjón-
anna tóku Dominique á heimili
sitt í nánd við París, er foreldrar
hennar voru handteknir.
Hásefahlutur um 50
þús. á vertíðinni
BÍLDUDAL, 30. maí. — Vertíðar
bátar eru nú hættir. Aflahæstur
var mótorbáturinn Andri með
rúmlega 666 lestir í 81 sjóferð.
Hásetahlutur var 49.400 kr.
Hann er að búa sig á síldveiðar.
Næstur var Pétur Thorsteins-
son með 665 lestir í 75 sjóferð-
um, hásetahlutur 48.080 kr.
Hann verður leigður í. síldarrann
sóknir í sumar.
Námsafrek þriggja systkina.
Barnaskólunum hér var slitið
í byrjun maí. Skólastjóri var
eins og undanfarið Sæmundur
Ólafsson. Auk hans kenndu tveir
kennarar við skólann. 90 nem-
endur voru í skólanum 1 vetur.
Ja'kob Hjálmarsson var hæstur
í unglingaprófi, og fékk 8.86.
Hæst yfir skólann er svo systir
hans, Marta Hjálmarsdóttir 4.
Ný dómstóla-
skipan
í Frakklandi
PARÍS, 31. maí (AP) — Franska
stjórnin stofnaði í dag algjöran
herdómstól, til þass að fjalla um
hryðjuverk OAS-hreyfingarinn-
ar. Hinn nýi dómstóll leysir af
hólmi blandaðan dómstól borg-
ara og hermanna, sem leystur
var upp í síðustu viku. Var það
dómstóll, sem kvað upp dóminn
yfir Raoul Salan, fyrrum hers-
höfðingja og síðar yfirstjórn-
anda OAS-hreyfingarinnar; en
honum þótti hafa verið sýnd lin-
kind um of með lífstíðarfangels-
isdómi þtim er hann hlaut.
Ákvað de Gaulle, sem sjálfur
varð æfareiður, er hann frétti
um dómsniðurstöðuna að leysa
dómstólinn þegar upp.
í forsæti hins nýja dómstóls
verður hershöfðingi en að auki
munu sitja í honum 4 menn
aðrir. Einn þeirra verður lög-
fræðingur í herþjónustu. Sama
máli gegni um saksóknarann
fyrir dómstóli þessum. Dómstóll
inn mun heyra undr varnamála-
ráðuneytið en ekki dómsmála-
ráðuneytið. — Sá dómstóll, sem
upp var leystur, var skipaður
hermönnum úr bæði landher og
flota — en að auki óbreyttum
borgurum, og var einn þeirra
síðarnefndu dómsforseti.
Tilkynningin um hinn nýja
dómstól var gefin út að loknum
ráðuneytisfundi í dag. ____
deild, fékk 9.50. Hera Hjálmars
dóttir systir þeirra varð efst í
1 deild með 4.83. Foreldrar
þeirra eru Hjálmar Ágústsson,
verkstjóri í Hraðfrystihúsinu og
Svandís Ásmundsdóttir.
Miklar gatnaframkvæmdir.
Miklar framkvæmdir eru í
gatnagerð á staðnum, verið að
bera ofan í allar götur. Byrjað
er að byggja eitt íbúðarhús og
fleiri byggingar standa fyrir
dyrum. — Hannes.
— Listasafn
Framhald af bls. 2.
Áskriftum safnað
Listaverkabókin á að koma út
17. júní 1963 og er Björn Th.
Björnsson, listfræðingur, sem
sér um útgáfuna, farinn að vinna
að henni. Á þetta að verða fyrsta
íslenzka listasagan, sem út kem-
ur, og hefst á kafla um hina
nýju náttúruskynjun í ættjarðar
Ijóðum 19. aldar og fyrstu til-
raunir til landslagsmálverka. í
henni verða auk þess á annað
hundrað mynda af listaverkum
og ljósmyndir af listamönnum.
Er þriðjungur myndanna í lit-
prentun. Aftast verður svo listi
yfir áskrifendur, sem munu telj-
ast stofnendur safnsins. Bókin á
að kosta 1500 kr. og seld með
afborgunarskilmálum. Munu því
eintokin 5000 gefa 7,5 millj. kr.
í byggingarsjóð, seljist þau öll.
Safnstjórnin hefur snúið sér
til allra verkalýðsfélaga innan
ASÍ og beðið um að safnað
verði áskriftum og reynt að
tryggja sem mest af sölunni. En
jafnframt er leitað til allra unn-
enda lista um að leggja málinu
lið.
Listsýning á Akranesi
Á meðan listaverkin í þessu
safni hafa ekki fengið samastað
hefur þeim verið komið fyrir
í haganlega gerðum grindum í
skrifstofu ASÍ. Er ætlunin að
kynna verkin með farandsýning-
um úti á landi á meðan og hefur
þegar verið haldin ein sýning
á hluta af listaverkunum, á Sel-
fossi í fyrra. Sóttu þá sýningu
um 400 manns.
Næstkomandi föstudag verður
opnuð önnur sýning af því tagi,
í Iðnskólanum á Akranesi og þar
komið fyrir 35 málverkum,
þ. á m. stórum og kunnum
myndum. Sér verkalýðsfélagið á
staðnum um þessa sýningu á
Akranesi. En á vissum tímum
mun Hjörleifur Sigurðsson, list-
málari, ganga með gestum um
sýninguna og veita upplýsingar.
Hver ók á konu á
Laugavegi
sl. laugardag?
LAUGARDAGINN, 26. maá var
eldri kona, Guðleif Ólafsdóttir,
Lönguhlíð 21, stödd á Laugavegi
skammt vestan Frakkastígs. Mik
il umiferð var á Laugavegi, Og
er bílalestin nam einhverju sinni
staðar hugðist konan ganga yfir
götuna á meðan lestin stæði kyrr.
Er hún var komin í gegnum bíla
lestina vissi hún ekki fyrri til
en piltur á skellinöðru ók á hana.
Pilturinn spurði konuna hvort
hún hefði meiðst en konan taidi
svo ekki vera. Síðar fór hún að
kenna til í hendinni, og kom þó
á daginn að hún var brotin.
Slysið varð um kl. 11:30 um
morguninn. Pilturinn, sem ók
skellinöðrunni, er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við um
ferðardóild rannsóknarlögregl-
unnar, svo og sjónarvottar ef
einhverjir væru.
— Tyrkjastjórn
Framh. af bls. 1
lands, Adnan Menderes, sem
sviptur var völdum í upp-
reisn hersins í maí 1960. —
Menn þessir voru á sínum
tíma hnepptir í fangelsi og
hefur Inonu aðeins viljað
veita þeim sakaruppgjöf
smám saman og að takmörk-
uðu leyti — en leiðtogar hins
stjórnarfiokksins vilja láta
málið ganga greitt fyrir sig.
ATLAS
Crystal King
Og
Crystal Cjueen
ÞEIR ERU KONUNGLEGIR!
■Ar glæsilegir utan og innan
★ hagkvæmasta innrétting
sem sézt hefur
ÍC stórt hraðfrystihólf með
sérstakri „þriggja þrepa“
froststillingu
Á sjáifvirk þíðing
ic færanleg hurð fyrir hægri
eða vinstri opnun
★ nýtízku segullæsing
ÍC innbyggingarmöguleikar
i( ATLAS gæði og fimm ára
ábyrgð
Á þrátt fyrir augljósa yfir-
burði eru þeir lang ódýr-
astir
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum um allt land.
O. KORNERUP - HANSEN
Sími 12606. — Suðurgötu 10.
Svar við gátu dagsins: SpiL