Morgunblaðið - 31.05.1962, Page 5

Morgunblaðið - 31.05.1962, Page 5
Fimmtudagur 31. maí 1962 MORCXJNBL 4»iÐ 9 Læknar fiarveiandi Esra l»étursson um óákveðínn tíma (Halldór Arinbjarnar). Jón Hannesson til 1. júlí (Stefán Bogason). Jón K. Jóhannsson frá 18. maí í 3—4 vikur. Kristján Jóhannesson um óákveðinn tíma (Ólafur TSinarsson og Halldór Jóhannsson). Kristín E. Jónsdóttir til 28. maí, (Björn Júlíusson, Holtsapóteki kl. 3—4 þriðjudaga og föstudaga). Kristinn Björnsson til 2. júní (And- rés Ásmundsson). Ófeigur J. Ófeigsson til júníloka (Jónas Sveinsson í maí og Kristján Þorvarðsson í júní). Ólafur Þorsteinsson til maíloka — (Stefán Ólafsson). Ragnhildur Ingibergsdóttir til 15. júní (Brynjólfur Dagsson). Tómas A. Jónasson frá 9. maí í 6 vikur (Björn Þ. Þórðarson). Sveitir oft sinn iðka það. í ])au tíðum gripið. I»ar menn velja veðra stað. I»au vinna fyrir skipið. Dufgus. Svar við gátu dagsins er á næst öftustu síðu. BLÖÐ OG TÍMARIT Samtíðin, júníblað, er komið út. Forustugreinin er um hinar geysilegu endurbætur, sem gerðar hafa verið á rafeindaheilanum. í>á eru: Kvenna- þættir, Deikkonan Heidi Briihl. Flug- félag íslands 25 ára ( viðtal við Svein Sæmundsson). Skáldpresturinn 1 Holti o.fl. oil, Pví minna vald, sem maðurinn hefur, þeim mun gjarnara er honum að beita því. — Petit-Senn. Miklu valdi setti að beita með var- kárni — Seneca. Vani er fjötur. Við spinnum þráð hans daglega og að endingu get- um við ekki slitið hann. —• H. Mann. Háttur heimsins er að semja lög, en fylgja vananum. — Montaigne. Vaninn er ýmist bezti þjóninn eða versti húsbóndinn. N. Emmos. ÞE)SSA fallegu mynd tó'k Ijós- sem eru nýfarnir að sjá horfa myndari blaðsins Ól. K. M. undrandi út í heiminn, en fyrir utan bæinn í góða stúlkan brosir móti sólinni. veðrinu í gær. Kettlingarnir, Víg Hrolns Sveinbjnrnusonar ó Hroinseyri 4. mnrz 1213 Hrafn var heiðursmaður, hann var sonur Sveinbjarnar. Hrafnseyri sæmd með sat hann sem ríkur goðorðsmaður. Veglyndur, vinsæll, prúður, vildi hvers nauðsyn leysa, læknir hann var líknsamur, læknir frægur um álfu. f sjöunda lið er sagður, sé Hrafn frá Geirþjófi, er Geirþjófsfjörð gjörði byggja, glöggt, sem Landnáma hermir. Bárður svarti, er byggði, með búsæld Selárdalinn, afi Hrafns var hetjan, hann var sonur Atla. Þorvaldur þokkaringur, þá Vatnsfjarðar goði, Hrafns varð hatursmaður, Hrafni því vildi granda. Tvívegis tilraun gjörði hann, en tókst í hvorugt sinnið. Frændur Hrafns fantinn vildu, færa þá til Heljar. Þrjátíu og tveir þá fóru þrjótar til Arnarfjarðar. Bundu þeir fólk á bæjum, hörnin sem fullorðna. Engum hlífðu þeir hrottar, hér dreng einn undirriðu. Er þeir komu að Eyri, einum manni þeir lyftu skildi með spjótum á upp á virkið dyr til opna. Eftir það inn þeir ruddust, eld kveiktu fyrir dyrum, hótuðu hæinn brenna, bóndinn ef upp ei gæfist. „Heldur en bær sé brenndur, bezt er þú ráðir mínu lífi“, mælti mætur manngöfgi Hrafn við Þorvald. Eftir það óttusönginn, ágætur Hrafn lét hef ja Valda klerk vitran meður völdum klerkunum sínum. Þorvaldur mjög þýlyndur, því næst lét Hrafn þá taka. Á kné Hrafn kraup svo niður, á kaldan höggstokk háls lagði. En Hrafn því gjörði hafna, hann vildi ei Þorvald feigan. Til málltíðar setti hann síðan, svo með hans föruneyti. Aldrei sagðist Hrafn sitja um, síðar líf Þorvalds mundi. Þorvaldi hann hesta léði, hrausta til Dýrafjarðar. Virkl um bæ sinn vaskur vandað Hrafn lét gjöra. Vitur hann lét vaka, varðmenn flestar nætur. Eitt sinn í vondu veðri, vildi Hrafn láta vaka. Varðmenn það vildn eigl, veður þeir töldu ófært. Þennan dag fór Þorvaldur þræll slunginn vestur Glámu. Barð Þorvaldur bað höggva, blíðan velgjörðarmann sinn. Það kaldur kauðinn framdi, Kolbeinn það fyr afsagði. Lausafénu lét ræna, ljúfmennið Iirafn er átti. Ferju þeir fantar tóku, fénu á henni burtræntu. Um vorið eftir páska, aðra rátnsferð Þorvaldur, fór til Amarfjarðar. Fólinn þingmenn Hrafns rænti. Einar Bogason, frá Hnífsdal. Hrafnseyri var fyrrum köll- uð Eyri við Arnarfjörð. Höf. 50 ára er í dag Sigurður L. Þorgeirsson, húsasmíðameistari, Bollagötu 16. Hann er fæddur að Helgafelli í Helgafellssveit, sonur hjónanna Ingiibjargar Björnsdóttur og Þorgeirs Jónas- sonar. Hann fluttist til Iteykja- víkur um tvítugt og hefur verið búsettur þar síðan. Sunnudaginn 27. maí s.l. voru gefin saman í hjónaband í Kap- ellu Háskólans af séra Ólafi Skúlasyni, ungfrú Matthiildur Jónsdóttir, Vesturbrún 22 og stud. teol. Bolli Gústafsson frá Akureyri. Opiniberað hafa trúlofun sína ungfrú Ólöf Árnadóttir, Lyng- holti 8, Akureyri og Hörður Þór hallsson, sjómaður, Ásgarðsvegi 5, Húsavík. Nýlega voru gefin saman í hjónaband Erla Þórisdóttir Long, Álfhólsvegi 40, Kópavogi og Þór arinn Hauikur Hallvarðsson, Lang holtsvegi 184. Heimili þeirra er að Langiholtsvegi 184. (Ljósm.: Studio Guðmundar, Garðastr. 8). m Skipstjórar athugið Ung kona óskar eftir að komast sem kokkur á síld- veiðibát í 9umar. Tilboð merkt: 4537“ sendist Mbl. fyrir hádegj á laugardag. Skrúðgarða- og lóðaskipulag — Máva- hlíð 16. Sími 17730. — Getum bætt við nokkrum lóðum til standsetningar. E. B. Malmquist. Herbergi og eldhús eða lítið einbýlishús óskast fyrir einhleypa konu, sem vinnur úti. Til'boð sendist afgr. Mbl., merkt: „Ein- hleyp — 4534“. íbúð óskast Góð 2ja herb. íbúð, helzt á hitaveitusvæði óskast sem fyrst. Er einhleyp og kenni við skóla. Uppl. í sima 23418 kl. 4—8 í kvöld. Skrúðgarðavinna Þ. Ingi Jónsson. Sumarúðun skrúðgarða er að hefjast. Tekið á móti pöntunum í sínie 33142 frá 1—6 alla virka daga. Til sölu stoðir undan loftum 1200— 1500 fet, 2-4 tommur. Uppl. að Háaleitisbraut 20 á fimmtudag eða í síma 35141. Ungur meiraprófsbílstjóri, sem vinnur vaktavinnu óskar eftir aukavinnu. Tilib. send ist Mbl. fyrir 6. júní, merkt: „Aukavinna - 4530“ Karlmannsreiðhjól með gírum og skálabrems- um, aftan og framan, til sölu, ódýrt. Uppl. í síma 12745. íbúð óskast Ibúð, 5—6 herbergja óskast til leigu nú þegar eða síð- ar á árinu. Upplýsingar í síma 16223. Kona óskar eftir léttri og hreinlegri heima- vinnu. Tilib. sendist Mbl. fyrir þriðjudag, merkt: „Heimavinna — 4520“. 2ja-3ja herb. íbúð óskast fyrir haustið. Til-boð send- ist til afgreiðslu Mbl., merkt: „Fyrirframgreiðsla — 4591“. Austin 8 Austin 8, ógangfær, er til sölu mjög ódýr. Uppl. eftir kl. 7 Grænuhlíð 3. Sími 32511. Óska eftir íbúð 2 herb. með eldhúsi eða eldunarplássi. Tvennt full- orðið. Upplýsingar í síma 13903. Mjólkurísvél örugg’ og afkastamikil — (3ja fasa) til söiu. Uppl. í síma 10169, en aðeins kl. 7—9 sd. Stúlka með unglingapróf óskar eftir atvinnu strax. Margt kemur til greina. Uppl. í síma 34412. Kona óskar eftir ráðskonustöðu hjá vegavinnuflokk eða öðru slíku. Uppl. í síma 10429. Húshjálp — íbúð Lítil íbúð óskast strax til leigu. Get útvegað hús- hjálp. Uppl. í síma 37508 eftir kl. 8. Skúr Góður bíl- eða vinnuskúr ca. 16 ferm., til sölu. Tilboð merkt: „Skúr — 4776“ legg ist inn á afgr. Mbl. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslo er iangtum ódýrara að auglýsa i Meigunblaðinu, en öðrum blöðum. — Óska eftir að koma 11 ára stúlku í sveit gegn meðlagi. Uppl. í síma 1182, Keflavík. <S> I. DEILD Laugarda'svöllur 1 dag (fimmtudag) kl. 8,30 keppa Valur - KR Missið ekki af þessum leik Hópferðabifreið Til leigu er 30 manna hópferðabifreið, til lengri eða skemmri tíma. Upþlýsingar í síma 36228 frá kl. 9—12 og 6—8 alla daga. Sölumaður Ein af þekktari heildverzlunum bsejarins óskar að ráða sölumann til að selja landsþekkta úrvalsvöru. Verzlunarskólamenntun og kunnátta í ensku og ein- hverju Norðurlandamálanna æskileg. Tilboð sendist til Mbl. fyrir 10. júní nk., merkt: „Áhugasamur — 4529“. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.