Morgunblaðið - 31.05.1962, Síða 10
10
MORGVIVBLAÐIÐ
Fimitttudagur 31' maí 19R2
Iðnaðarhúsnœði
óskast til kaups, helzt á jarðhæð. Stærð 250—400
fermetrar.
Til greina kemur bæði fokhelt og lengra komið hús-.
næði. —■
Tilboð ósamt upplýsingum sendist afgreiðslu blaðs-
ips fyrir laugardagskvöld, merkt: „Iðnaður — 4528“.
Stulkur
Fertugur maður óskar að kom
ast í samband við stúlku, sem
vill ferðast til ótlanda í sum-
ar, sér að kostnaðarlausu, til
aðstoðar við innkaup á kven-
fatnaði.
Tilboð með upplýsingum og
helzt mynd, sem endursendist,
sendist blaðinu fyrir miðviku-
dagskvöld, merkt: „Ferðalag
— 4523“.
NOTID: •
HARPO #
HÖRPU SILKI •
HÖRPU JAPANLAKK •
HÖRPU BÍLALAKK •
HÖRPU FESTIR •
Jíazpa
Hér sjást seinustu leifarnar af hólnum, sem Batteríið var á
Framundan er nokkuð af uppfyllingunni og Ingólfsgarður á
bak við.
Hvar var Batteríið?,
Ég hef verið að dunda við
það seinasta aldarfjórðung að
tína saman efni úr sögu Reykja-
víkur og hef skipt því niður í
sjálfstæða kafla. Eru þegar
komnar út þrjár bækur með
þessum söguköflum í fyrstu
bókinni, „Fortíð Reykjavíkur",
sem út kom 1050, heitir einn
kaflinn Víggirðingar Reykjavik-
ur og er ágrip af sögu „Batterís-
ins“ eða Jörundarvígis. Lýkur
þeirri grein á því, að þar sem
virkishóllinn var áður sé. nú
Sænska frystihúsið.
Enginn hefur í mín eyru borið
brigður á þetta þar til fjn-jra laug
ardag, að í smágrein í „Vísi“
stendur að þetta sé „yitleysa.
Batteríið var niðri viðl sjó í
beinu framhaldi af Kglkofns-
vegi“.-----
Nú geng ég ekki fram í þeirri
dul, að engar villur sé í grein-
um mínum um Reykjavik. Þótt
allrar samvizkusemi s4 gætt,
geta hæglega slæðst inn villur
þar sem verið er að grst-fa upp
gamlar minningar. En hér getur
ekki talist að um „gamla“ minn-
ingu sé að ræða, því að nú eru
aðeins rúm 40 ár síðan Batteríið
hvarf, og margir muna eftir því.
Og ég vil ekki viðurkenna að ég
hafi farið með vitieysu, þegar ég
nefndi staðinn þar sem það hafði
verið. Verð ég því að bera hönd
fyrir höfuð mér.
Það er hverju orði sannara, að
Batteríið var hóll, sem skagaði
eins og ofurlítill höfði fram í sjó-
inn neðan við Arnarhólstún, og
var votlendur slakki í milli túns-
ins og hólsins. Leiðin þangað
úr Miðbænum lá um trébrú
fyrir ofan lækjarósinn og var
djálítill kippur þaðan norðaustur
á Batteríið.
Lækjarósinn var þá hér um
bil þar sem nú eru gatnamót
Tryggvagötu og Kalkofnsvegar.
En vestan undir virkishólnum
var Sölvhólsvör, en þar eru nú
gatnamót Kalkofnsvegar og
Sölvhólsgötu. (Sjá Minningar
Ágústs Jósepssonar).
Þegar lækurinn var settur !
spennitreyju, var hann fram-
lengdur og var útfallið hjá
virkishólnum, fyrir vestan
hann. Þarna kom síðar Kalkofns-
vegur. En er Ingólfsstræti var
framlengt yfir Arnarhólstún út
að sjó fór það fyrir austan virk-
ishólinn, milli hans og býlisins
Hafnar, og var hús Fiskifélags-
ins reist á lóð Hafnar. Þannig
héldu Ingólfsstræti og Kalkofns-
vegur hólnum með Batteríinu á
milli sín.
Hafnargarðarnir voru fullgerð-
ir 1917 og á öndverðu árinu 1919
tók hafnarstjórn milljón króna
lán til þess að gera 26.000 fer-
metra uppfyllingu og hafnar-
bakka í krikanum vestan við Ing
ólfsgarð. Sú uppfylling náði
langt norður fyrir Batteríið. Og
þá var dauðadómur þess upp
kveðinn. Þá voru settar á það
mokstursvélar, klettarnir voru
sprengdir og allt fór það í upp-
fyllinguna.
Þar sem slíkar umbyltingar
eru gerðar, kennileiti af numin
og land stækkað, er oft erfitt að
benda á hvar þessi og þessi
horfni staður var áður. En hér
er ekki um að villast.
HólUnn, sem Batteríið var á,
náði yfir það svæði, sem nú tak-
markast af Kalkofnsvegi, Sölv-
hólsgötu og Ingólfsstræti (og
hefur sennilega náð út í Geirs-
götu). En á þessu svæði stend-
ur Sœnska Frystihúsið og tvö
port.
Árni ÓÞ
Skrifstofustúlka
vön vélritun og enskum bréfaskriftum óskar eftir
atvinnu. Góð málakunnátta. Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir sunnudag, 3. júní, merkt: „Atvinna —• 4521“.
5 krifs iofus túl ka
Stúlka, 18—30 ára, óskast til símavörzlu og almennra
skrifstofustarfa.
Upplýsingar í skrifstofu Ludvig Storr, Laugavegi 15.
Iðnaðarfyrirtæki
Fyrirtæki með léttan iðnað óskast keypt. — TilboS
sendist Mbl. fyrir 7. júní, merkt: „Iðnaður — 4522“.