Morgunblaðið - 14.06.1962, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. júní 1962
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FORDÆMI UNGRA
MANNA
CJtarfsemi Varðbergs, félags
^ ungra áhugamanna um
vestræna samvinnu, hefur
frá upphafi verið með glæsi-
brag. Félagið hefur haldið
marga merka fundi, þar sem
vandamál lýðræðisþjóðanna
óg barátta þeirra við yfir-
gang heimskommúnismans
hefur verið rædd. Hinir
ungu menn, sem að félaginu
standa, hafa verið í stöðugri
sókn, en kommúnistar og
þeir nytsömu sakleysingjar,
sem ánetjazt hafa þeim,
hafa verið á undanhaldi.
Merkasti þáttur starfsemi
Varðbergs stendur yfir þessa
dagana, þar sem er ráðstefna
70 ungra manna frá ollum
Atlantshafsbandalagsþj óðun-
um nema Portúgal. En þar
er fjallað um þjóðir Atlants-
hafsbandalagsins næsta ára-
tuginn.
I . Varðbergi hafa ungir
menn úr öllum lýðræðis-
flokkunum þremur tekið
höndum saman til baráttu
fyrir háleitum hugsjónum;
fyrir því að tryggja, svo
ekki verði um villzt, að ís-
lendingar standi við skuld-
bindingar sínar um sam-
stöðu með öðrum lýðræðis-
þjóðum til varðveizlu frelsis
og mannréttinda og and-
stöðu gegn ofbeldis- og ein-
ræðisstefnum. Þessir menn
hafa á mörgum hlutum ólík-
ar skoðanir, en þeir telja það
fyrstu og síðustu skyldu
sína að berjast fyrir frelsi og
mannréttindum. í Varðbergi
víkja því ágreiningsmálin
fyrir sameiginlegum hug-
sjónum.
Þá sögu verður að segja
eins og hún er, að eldri
stjórnmálaleiðtogar hafa
ekki ætíð borið gæfu til að
láta þau grundvallaratriði
stjóma gerðum sínum, sem
einkenna afstöðu Varðbergs-
manna. Það er sjálfsagt og
eðlilegt að lýðræðissinnar
deili um stefnumið og af-
stöðu til hinna margháttuðu
mála, en það er í hæsta máta
óeðlilegt að þær deilur leiði
til þess að látið sé af and-
stöðu gegn kommúnisma og
jafnvel tekið upp samstarf
við erindreka einhvers mesta
kúgunarvalds, sem sagan
greinir frá.
Það er gleðilegt, að ein-
mitt yngri kynslóðin skuli
gera sér grein fyrir þessu,
og er vonandi að af því megi
draga þá ályktun, að sá tími
sé senn liðinn, þegar lýð-
ræðissinnar láta svo blind-
ast af pólitísku ofstæki eða
tækifærisstefnu að þeir víli
ekki fyrir sér samstarf við
umboðsmenn heimskommún-
ismans.
„HELDUR DEYJA
FYRIR EN LIFA
ÁN"
/klafur Thors, forsætisráð-
herra, flutti ávarp á
setningarfundi Varðbergsráð-
stefnunnar, þar sem hann í
fáum og einföldum orðum
lýsti afstöðu mikils meiri-
hluta íslenzku þjóðarinnar
til Atlantshafsbandalagsins
og hugsjóna þess. Hann
sagði ástæðuna til þess hve
margir íslendingar berðust
af heilum hug fyrir öflugri
þátttöku íslands í NATO
stafa af því
„að í heild skilur þjóðin
að NATO er brjóstvörn frels
isins, að án Islands er NATO
ekki nægilega sterkt og að
öll starfsemi NATO er til
vemdar hugsjónum, sem ís-
lendingar vilja heldur deyja
fyrir en lifa án“.
Þessi orð forsætisráðherra
segja í rauninni allt. Þess
vegna er sérstök ástæða til
að árétta þau.
SORGLEG
STAÐREYND
k r eftir ár endurtekur sú
sorglega staðreynd sig
að hundruð unglinga halda
á Þingvöll um hvítasunnu-
helgina og drekka sig þar
ofurölvi. Að þessu sinni
munu óvenju mikil brögð
hafa orðið að þessum ósóma.
Fjöldi unglinga veltist um í
ölæði á hinum fagra og
söguríka stað, mesta helgi-
stað þjóðarinnar. Við stór-
slysum lá og löggæzlumenn
og skátar áttu í erfiðleikum
með að firra vandræðum og
ósköpum.
Hvemig á að hindra að
slík smán og niðurlæging
endurtaki sig framvegis?
Það er vissulega ekki auð-
velt. En til róttækra ráð-
stafana verður að grípa í
þessum efnum. Slíkt fram-
ferði er ekki aðeins þeirri
æsku til himinhrópandi van-
virðu, sem þannig hagar sér,
hvort heldur er á Þingvöll-
um eða annarsstaðar. Það er
þjóðarsmán, lífshættuleg því
unga fólki, sem við hana er
riðin og saurgun mesta sögu-
staðar landsins.
☆
UM þessar mundir kjósa demó-
kratar og repúblikanar í
Bandaríkjunum frambjóðendur
sína við öldungadeildar- og
fylkisstjórakosningarnar, sem
fara fram í haust.
í mörgum fylkjum er hörð
samkeppni innan flokkanna um
það hvern eigi að bjóða fram.
Tveir eða fleiri flokksmenn
gefa kost á sér, sem væntan-
legir frambjóðendur og síðan
fer fram kosning innan flokks-
ins. Fyrst kjósa fulltrúar kjör-
dæma fylkisins þann, sem þeir
vilja að verði í framboði, en
nokkru síðar fer fram almenn
atkvæðagreiðsla flokksmeðlima
og hún ræður úrslitum.
Sigrar Edward Kennedy?
í Massaohusetts berjast tveir
demókratar, Edward Kennedy,
bróðir Bandaríkjaforseta, og
Edward McCormack, um að
vera í framboði fyrir flokkinn
við öldungadeildarkosningarnar
í haust. Ættir beggja njóta
mikils álits í fylkinu og er bar-
áttan milli þeirra hörð.
Kjördæmafulltrúar demókrata
Repúblikanar í Kaliforníu kusu Richard Nixon til að vera í
framboði við fylkisstjórakosningarnar þar í haust. Hér fagnar
hann sigrinum með fjölskyldu sinni.
öemdkratar og repúblík-
anar kjósa frambjdðendur
í Massachusetts hafa komið sam-
an til fundar og kveðið upp úr-
skurð sinn. Varð Edward Kenn
edy hlutskarpari. Fulltrúar 40
kjördæma tóku þátt í atkvæða-
greiðslunni. Þegar fulltrúar 23
kjördæma höfðu greitt atkvæði,
hafði Edward Kennedy hlotið
663, en Edward McCormack
334. Þá dró McCormack sig í hlé
og sagði: „Ég ætla að láta fólk-
ið dæma.“ Þar með lýsti hann
því yfir, að hann ætlaði að
keppa við Kennedy í haust, þeg-
ar almenn atkvæðagreiðsla fer
fram innan flokksins.
Nixon í framboði
— Mér tókst það, Jack, sagði Edward Kennedy, þegar hann
hringdi til forsetans, bróður síns, eftir að kjördæmafulltrúar
demókrata í Massacliusetts höfðu valið hann, sem frambjóð-
anda flokksins við öldungadeildarkosningarnar á hausti kom-
anda. Kona Edwards, Joan, stendur við hlið hans.
Richard Nixon, fyrrv. vara-
forseti Bandaríkjanna og fram-
bjóðandi repúblikana við for-
setakosningarnar 1960, tekur
nú þátt í kosningabaráttu á ný.
Hann gaf kost á sér, sem væntan
legur frambjóðandi repú-
blikana í fylkisstjórakosningun-
um í Kaliforníu á hausti kom-
anda og var kjörinn með mikl-
um meirihluta. Hann á harða
baráttu fyrir höndum, því að
demókratar eru í meirihluta í
Kaliforníu, eða fjórir á _móti
hverjum þremur repúblikunum.
Framvegis verður að marg
falda löggæzlu á Þingvöll-
um, fyrst og fremst á þeim
helgum, sem reynslan hefur
sýnt að hættast er við skríl-
mennsku á staðnum. Lög-
reglan verður að fá þar
bætta aðstöðu til þess að
taka vandræðafólkið úr um-
ferð og hindra það í að
verða sjálfu sér að voða og
staðnum til vansæmdar.
í þessu sambandi er sér-
staklega ánægjulegt að minn
ast þeirrar mikilsverðu að-
stoðar, sem skátar veittu lög
reglunni á Þingvöllum um
síðustu helgi. Framkoma
skátanna sýndi rétta mynd
þess æskufólks á íslandi,
sem ann sóma sínum og kem
ur fram af háttvísi og ábyrgð
artilfinningu.
Aðbúnaðurinn á Þingvöll-
um yfirleitt er mál út af fyr
ir sig. En á það hefur oft-
lega verið bent hér í blaðinu
að honum er vægast sagt
mjög áfátt. Þar er gömul og
hrörleg kirkja, gistihús, sem
hvorki er boðlegt innlendum
né erlendum gestum, fjós-
kofi að falli kominn, úreltur
og ófullkominn bústaður
prests og þjóðgarðsvarðar,
ekkert skýli fyrir löggæzlu-
menn, ekki einu sinni raf-
magn frá Sogsfossum, enda
þótt sjálft Þingvallavatn sé
hin mikla orkulind þeirra.
Þannig rækja íslendingar
skyldur sínar við fornfræg-
asta sögustað sinn, þar sem
stóð vagga þingræðis og lýð-
ræðis norrænna manna. Það
er dapurleg staðreynd.