Morgunblaðið - 18.07.1962, Qupperneq 15
Miðvikudagur 18. júlí 1962
MORGVTSBL AÐIÐ
15
r---------r--------------------------------- — • •* -
— íslandsmið
Framíhald af bls. 8.
900. í»etta er allt svo þræl-
skipulagt, sjáið þér.
— En hvað þurfið þér að
fá mikla veiði til þess að
þetta borgi sig? Hve margar
vikur þarf til að fylla þessar
900 tunnur, og hvenær borg-
ar útgerðin yðar sig.? Hvað
hafði þér ver>ð fljótast
ur að fylla þessar 900 tómu
tunnur í íslandsferð?
— Einu sinni var ég hepp-
inn: — þá vorum við ekki
nema 9 daga í túr. En yfir-
leitt gerir maður ráð fyrir, að
það þurfi 5 vikur til þess að
fylla tunnumar. Btundum get
ur það vitanlega dregizt leng
ur. En til þess að maður geti
talað um slæma síldarvertíð,
þarf maður að hafa verið að
reyna að veiða í átta vikur,
án þess að fá í tunnurnar,
sem maður fór með að heim-.
an. I>að er raunalegt að
þurfa að koma til Álasunds
aftur með tómar tunnur.
— En tökum nú t.d. ef þið
fyllið tunnurnar ykkar í 5
vikna túr. — Hvað gerið þið
þá?
— Við skipum þeim í land
og tökum nýjar „tomtunner"
um borð og tökum stefnuna
beint á Langanes.
— En þá er nú farið að
líða á bezta tíma sumarsíld-
arinnar.
— Jú, vitanlega. En samt
sem áður hefur það komið
fyrir að „Aspö“ hefur gert
annan túrinn sinn á styttri
tíma en þann fyrsta. En þriðji
túrinn er stundum meiri von
arpeningur, að ég ekki tali
um þann fjórða.
— Gera síldarskipin héðan
nokkurntíma fleiri en þrjá
túra?
— Ojú, það kémur fyrir.
Eg hef verið á íslandsmiðum
fram í nóvember og haft gagn
af því. En það sem ég kalla
fslandsmið eru svo stór —
þau ná frá íslandi hingað
aústur í hafið norður af Fær-
eyjum. Það er ómögulegt að
vita hvar hún er, síldin, en
ef maður leitar nógu þrálátt
þá finnur maður hana —
nema maður sé skrambi ó-
heppinn.
— Þér sögðuð áðan, að ef
skipið yðar gæti fengið allar
tunnur fullar á 5 vikum þá
gæfi það góðan ágóða. Hvern
ig skiftist fengurinn — aflinn
milli skipsins og skipverja?
— Skipið fær sinn hlut
60% fengsins en hásetarnir
40%.
— Og hvað borgar kaup-
andinn að saltsíldinni ykkar,
frá „fyrstu hendi“, sem kall-
að er hér í Noregi?
— Samningsverðið er kr.
1.83 pr. kíló, en svo er fyrir-
heit um styrk sem í sæmi-
legu veiðiári getur numið tíu
aurum á kíló, núna í ár. En
það skiftir aðvitað ekki nema
litlu máli með uppbótina —
aðalatriðið er að við finnum
síldina.
— Ætlið þér eingöngu að
veiða í reknet. Og hve mikið
af þeim hafið þér með í ferð-
ina?
— Jú, það eru eingöngu
reknet, sem ég nota. Skipið
mitt er svo lítið, að ég hef í
rauninni ekki rúm fyrir
tvennskonar veiðarfæri í
senn. Við höfum 100 net —
12 faðma stubba — og treyst
um á þau. Við getum haft 75
net úti í einu — mannskapur
inn leyfir ekki meir, sérstak
lega ef vel veiðist.
— Eruð þér Álasundsibúi
Grönvik? Hvað segir konan
yðar um, þegar þér farið í ís
landsferðina yðar?
— Eg bý ekki í Álasundi,
en í næstu sveit hér fyrir ut-
an bæjarmörkin. Og konan
mín —hvort hún sé hrædd
um mig á sjónum? Onei, hún
er aldrei hrædd við hættur
á síldveiðunum á sumrum. En
nú skal ég segja yður nokkuð
Eg var með Aspö á línuveið-
um í vetur og framan af vori
við suðurlandið, aðalllega fyr
ir austan Vestmannaeyjar. Og
þá komu þar einhverjir ó-
veðursdagar, sem sagt var
frá í útvarpinu hér í Noregi,
svo að ég fékk skeyti, frá kon
unni, þar sem hún spurði
hvort allt væri vel? Eg varð
því miður að svara henni, að
Aspö hefði ekki orðið vör við
þetta óveður úr útvarpinu.
því við hefðum verið í logni
allan tímann.
— En á sumrin þá?
— Á sumrin eru konurnar
okkar ekki hræddar um okk
ur við íslandsstrendur en þeg
ar við förum héðan út fyrir
Svinöy á vetrarvertíðinni.
Og nú vil ég ekki tefja
skipstjórann með fleiri spurn
ingum, því að ekki er nema
hálfnað að skipa út tunnun-
um og þeir eru aðeins fjórir 1
við verkið. Þar á meðal tveir
nýbyrjendur, sem aldrei hafa
farið á „islandssill" áður, en
hlakka til. „Ef veðrið verður
vont fáum við að koma til '
Seyðisfjarðar og koma á bak
íslenzkum hesti", segja þeir.
„Og það verður gaman, því
að okkur >er sagt að þeir séu
svo „villtir".
Skúli Skúlason
KVEN
GLÓFINN
FOÐRAÐIR
verksmiöjanMAX” \
LÚDÓ-sextett — Söngvari: Stefán Jónsson.
Ferðafólk
Eins og síðastliðið sumar er hægt að fá veiðileyfi í Seyð-
isá. — Eru þau til sölu hjá Jóni Einarssyni, verði á
Hveravöllum, sem nefur eftirlit með ánni.
Sigmar Ólafsson, Brandsstöðum.
Guðm. Tryggvason, Finnstungu.
Sólrík 3|a herb. íbuð
í Austurbænum á hitaveitusvæði til leigu frá 1. ágúst.
Ársfyrirframgreiðsla. — Tilb. merkt „2000“ sé
skilað tii afgreiðslu Mbl. fyrir föstudagskvöld.
Múrarar oskast
Viljum ráða strax nokkra múrara. Frekari upplýsingar
gefnar á Teiknistofu SÍS, Jötunshúsinu Hringbraut
119, sími 19600.
Starfsmannahald S í S
Sjóstongaveiði
NÓI fer þrjár veiðiferðir
daglega. —
Fyrsta flokks útbúnaður
um borð.
og Leiðir
Tjarnargötu 4. — Sími 20800.
t
f
f
f
BREIÐFIRÐINGABtÐ
Gömlu dansarnir
eru í kvoid kl. 9
Hljómsveit Þorsteins Eiríkssonar
Dansstjóri: Helgi Eysteinsson
Ókeypis aðgangur.
BREIDFIRÐINGABÚÐ — Sími 17985.
T
f
f
Til leigu stórvirkar
ýtuskóflur,
vélskóflur, jarðýtur, ásamt drátt-
arbíl og flutningavagni.
Sími 17184.