Morgunblaðið - 18.07.1962, Page 20

Morgunblaðið - 18.07.1962, Page 20
Sumarbúðir Sjá bls. 13 Fiéttasímar Mbl — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 161. tbl. — Miðvikudagur 18. júlí 1962 Maður slasast i Bolungarvik Fór á dráttarvél fram af brimbrjót Bolungarvík, 17. júlí. KLUKKAN rétt fyrir 2 e.h. varð allalvarlegt slys hér við hafnargarðinn. Ungur maður, Sigurður Oddsson frá ísafirði, fór fram af brimbrjótnum á dráttarvél með ámokstursskúffu og slasaðist. Nánari tildrðg slyssins eru bau, að hlé var um þessar mundir við vinnuna. Verið var að klæða kafara í búning sinn, en hann er að vinna við hafn- argerðina hér. Sigurður Odds- son frá ísafirði, sem hefur unn- ið hér að undanförnu, var að eiga við dráttarvél. Er hún með ámoksturstæki og notuð til að moka steypuefni í Steypuhræivél. Mun hann hafa sett dráttarvélina í gang og ek- dð henni síðan aftur á bak, en vélin var mjög nærri brún brimbrjótsins. Sáu menn, sem þarna voru nærstaddir, að vél- in bakkaði út af brimbrjótnum og fór maðurinn í sjóinn með henni. Nærstaddur, ungur maður, Baldur Bóasson, frá ísafirði, stakk sér þegar til sunds frá kafarabátnUm. Þá hafði þegar verið kastað út bjarghring af bátnum. Hafði Sigurður brotizt tdl hans, en Baldur hjálpaði honum að bátnum og var þá Sigurður jpeð miklum kvölum. Var strax kallað á ólaf Hall- dórsson, héraðslækni. Fyrir- skipaði hann að fara með manninn samstundis í sjúkra- hús fsafjarðar, þar sem myndir voru teknar af meiðslunum. — Sagði héraðslæknirinn að mað- urinn hefði dofnað örðu meg- in upp í mitti og eru meiðsli hans ekki fullkönnuð enn, en vafalítið má telja að hryggur hans hafi laskazt. Dráttarvélinni var náð upp með hafnarkrananum rétt á eft- ir. — Fréttaritari. er nú aflahæsta skipið á síldveiöunum nyrðra. Hið landskunna aflaskip Víðir II frá Garði' kemur hlaðið af síld til Vopnafjarðar, en Víðir II Ljósm. Mbl.: Sigurjón. unum I nótt, Einnig er brædd síld úr flutningaskipunum þrem ur og slattar af síldarbátunum og er tveggja sólarhringa Framhald á bls. 19. Saltað á nær stöðvum í um FYRRINÓTT og fram á morgun var góð síldveiði út af Langanesinu og komu bátarnir inn í gær með síld til söltunar á Austfjarða- hafnir og Norðurlandshafnir, alla leið til Siglufjarðar, en þangað er 14 tíma sigling. — Voru margir væntanlegir þangað í gærkvöldi og nótt. I gærdag var sáralítil veiði og fá skip fengu síld, enda mörg á leið inn eða komin í höfn. Þó fengu einhverjir köst sunnan með fjörðunum. í gærkvöldi voru bátarnir að byrja að kasta, er blaðið fór í prentun og öll- gær hafði ekki frétzt um veiði. Fréttaritarar blaðsins á síld- arstöðvunum símuðu eftirfar- andi fréttir í gær: RAUFARHÖFN — Saltað er hér á öllum söltunarstöðum. Þessi skip hafa komið með síld í bræðslu í dag: Sigurfari 592 mál, Agúst Guðmundsson 390, Garðar 466, Bergvík 250, Sig- urvon 522, Geir 240, Sæfell 800 og Árni Geir 270. — Einar. 14 klst. sigling til Siglufjarðar SIGLUFIRÐI — Tvö síldar- skip komu drekkhlaðin af aust- ursvæðinu í dag, Helga með 1600—1700 mál og Helgi Helga- son VE með svipað magn. Og fjölmörg skip eru væntanleg í kvöld og nótt. Þó nú sé 14 síld- klst. sigling af miðunum til Siglufjarðar landa skip ekki í bræðslu, ef von er um að koma henni í salt þar. Fara sum skip in á Austfjarðarhafnirnar og á Norðurl andshaf nirnar nær, en ef þar er fullt sigla önnur alla þessa leið til að losna við síld- ina í salt. Eru sum skipin far- in að hafa með sér ís og ísa síldina og geymist hún þá ágæt- lega. Hér var saltað í dag, byrjað að ræsa kl. 11 og búist er við MorgunblaSið vill hafa það er sannara reynist Kommúnisea sk'ptir Jbað ekki máli Kom.-núnístablaðið hefur nú þrjá daga í röð birt rosafregn ir með sínu stærsta letri um það, að Adenauer kanzlari hafi í ræðu sagt að Island hafi sótt um inngöngu í Efnahagsbanda lagið. Fregn sína birti blaðið samkvæmt skeyti frá NTB fréttastofunni. I forystugrein hér í blaðinu í gær stóð eftirfarandi: „Segja má að kommúnista- blaðið hafi haft nokkra afsök un, þótt það hefði gjarnan mátt kanna máiið betur“. Þannig var mál með vexti, að skcyti NTB-fréttastofunnar var óglöggt, þar sem villur voru í því af völdum truflana, eins og raunar sést í „Þjóðvilj anum" í ga r, þar sem mynd er birt af skeytinu. Morgttnblaðið fékk einnig þetta skeyti, en taldi sjálfsagt að komast til botns í málinu og bað þar af leiðandi AP- fréttastofuna að kanna málið til botns, því að blaðið vill ekki flytja aðrar fréttir en þær, sem það veit að eru sannar. Niðurstaða þeirrar rannsóknar var sú, ein og sjá má af mynd af meðfylgjandi skeyti, að gaumgæfileg athug un á ræðu Adenauers hefði sýnt, að þar hafi hvergi verið minnzt á ísland. Hvernig svo sem á því stend ur, þá er hitt rétt að inn í frétt ir hefur það slæðzt að Aden- auer hafi vikið að inngöngu íslands. En jafnvel þótt það hefði veriö, þá skipti það ekki meginmáli. Aðalatriðið er að forsætis- ráðherra íslands hefur lýst því yfir, að ekki sé nóg með að engin umsókn hafi verið scsul, heidur líka að aldrei hafi kom ið til greina að sækja um aðild að Efnahagsbandalaginu, nema sú yrði kiiðurstaða eftir umræð ur á Alþingi. Málið sjálft ligg ur því ljóst fyrir, en að því er NTB-skeytið varðar, þá er munurinn sá, að „Þjóðviljinn“ birtir það, þótt það sé óglöggt án þess að reyna að kynna sér málið nánar Morgunblaðið vel ur hins vegar þá leið ábyrgs blaðs að kanna málð til hlítar og upplýsa hið rétta. Vanfraust London, 17. júlí (NTB). STJÓRNARANDSTAHAN brezka lagði í dag fram vantrauststillögu á brezku stjórnina, er rætt var um breytingar þær, sem Mac- millan hefur gert á skipun ráð- herra sinna. Yantrauststillagan gerir ráð fyrir því, að þing neðri málstofunnar verði þegar í sitað leyst upp, og gengið til nýrra kosninga. Vantrauststillagan var m. a. undirrituð af foringja Verkamannaf Iokksin.s, H u g h Gaitsikell, varaformanninum Ge- orge Brown, o. fl. : Ekki eru taldar neinar líkur á að saltað verði á flestum stöðv-iþví, að tillagan verði samþykkt. 77 ára bóndi stór siasast í traktorssiysi í gær varð 77 ára gamall bóndi l bæði hjólin öðru megin farið yf- í Austur Landeyjum, Þorvaldur . ir hann. Ólafur Björnsson, lækn Jónsson á Skúmsstöðum, fyrir ir á Hellu, kom á staðinn. Og traktor, með þeim afleiðingum Björn Pálsson flaug austur tii að hann mjaðmargrindarbrotnaði 1 að flytja hann á sjúkrahús. Lenti rifbrotnaði og meiddist e.t.v. j Björn á sjúkraflugvelli á Berja meira- fitjum og tók langan tíma að Ekki er blaðinu fyllilega kunn flytja sjúklinginn á börum að ugt um hvernig slysið vildi til, | flugvélinni, þar sem erfitt var Talið er að Þorvaldur hafi ekið að hreyfa hann. Var hann flutt traktornum sjálfur og sennilega ur inn á Landspítalann og leið dottið af honum. Hafi eftir atvikum í gærkvöldi. Drengur iéll fram af 10 m hömrum SAUÐÁRKRÓKI, 17. júlí. — Það bar við sk föstudag, er tveir krakkar frá bænum Lág- múla á Skaga voru að leik ná- lægt sjónum, nokkru innan við bæinn, að annað þeirra, drengur 8 ára gamall féll fram af 10 m. háum hömrum, niður í fjöru. Telpan, 5 ára, dóttir konunnar í Lágmúla, varð strax vör við slysið og hljóp þegar heim til móð ur sinnar, til að láta vita hvern ig komið var. Konan, Erla Guð- varðardóttir, sem var ein heima ásarht krökkunum, hringdi strax í héraðslækninn á Sauðárkróki, Friðrik Friðriksson, er brá skjótt við og kom á slysstaðinn, en Lág múli er norðan til á Skaga, rétt innan við Ketubjörg. Flutti hann drenginn á sjúkrahúsið á Sauð- árkróki. Þrátt fyrii þetta háa fall, munu meiðsli drengsins ekki vera tal- in alvarleg. Hann hafði hlotið höf uðhögg og einhver minni háttar meiðsl, en ekki brot, Er stráksi nú að verða hinn brattasti og má vænta þess að hann nái sér að fullu hið bráðasta. Drengurinn er úr Reykjavík og var í sumardvöl hjó móðursystur sinni og manni hennar, Hlöðver Þórarinssyni. — Jón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.