Morgunblaðið - 19.08.1962, Blaðsíða 2
2
MOnCUNRLAÐlÐ
Sunnudagur 19. ágúst 1962
Vnrð
Langasandi. 16. ág. NTB
í GÆBjMOBGUN birtist úr-
skurður dómnefndar alþjóða-
fegurðarsamkeppninnar á
Langasandi, um það, hverjar
16 fegurðardísir af 52 skyldu
keppa til úrslita. Fulltrúi ís-
lands í keppninni, María Guð-
mundsdóttir, var ein í þeim
hópi. Úrslitin átti að kunngera
seint á laugardagskvöld.
Þaer fegurðardrottningar
sem komust i undanúrslit eru
frá eftirtöldum löndum:
Argentínu, Ástralíu, Kána,
Ekvador Englandi, Finnlandi,
írlandi, Islandi, ísrael, Japan,
Hollandi, Panama, Þýzkalandi,
Bandaríkjunum og Venezuela.
Einn þátttakandinn, ungfrú
Frakkland, fékk taugaáfall í
gæædag vegna ofþreytu og
gáfu læknar fyrirskipanir um
að hún skyldi liggja í rúminu
í dag.
Eins og frá var skýrt í M!bl.
fyrr í vikunni hafa myndir af
Maríu Guðmundsdóttir þegar
birzt á forsíðum sjö franskra
tízkufolaða og tímarita, auk
fjölda innsíðumynda, stærri
og smærri. Birtum við að
þessu sinni myndir af forsíð-
um þriggja þeirra blaða: ein
er af haustútgáfu franska
tízkublaðsins Collections, en
hinar tvær af apríl- og júní-
hefti Jardin des Modes. Mynd-
in á júníheftinu var í tví-
broti.
Hvolfþök notuð
frá alda öðli(!)
Frá byggingarnefnd sýningar-
og íþróttahúss
Mbl. hefur borizt eftirfarandi
yfirlýsing frá byggingarnefnd sýn
ingair- og íþróttahúss i Beykja-
vík, þar sem m.a. er mótmælt
skrifum um að íslendingar séu að
gerast sérstakir brautryðjendur
í gerð hvolfþaka með sýningar-
og íþróttafoúsinu í Laugardal:
í tveim blöðum í Reykjavík
hafa birzt greinar, þar sem rsett
er um byggingu sýningar- og
íþróttahússins 1 Laugardal á vill-
andi hátt.
Af því tilefni þykir rétt að
taka fram eftirfarandi:
1. Aðalsalur hú.--sins ásamt
áhorfendasvæði er að utanmáli
47x50 m. Vegna þeirrair notkun-
ar, sem salurinn er aetlaður til,
þótti ekki koma til greina að
hafa súlur í honum, enda hefðu
þaer skyggt mjög á útsýni frá
áfoorfendapöllum. Var því um
tvennt að gera að hafa stálþak
yfir allri byggingunni eða hafa
hvelft þák. Nákvæmar athugan-
ir leiddu í ljós, áð stálþak mundi
verða cau 2 millj. krónum dýr-
ara en sú þakgerð, sem valin
var.
2. Hvolfþök á borð við það,
sem ákveðið var á sýningar- og
íþróttafoúsinu, hafa tíðkazt frá
aldaöðli, eins og öllum má kunn-
/* NA IShnúiar SV 50hnúfar X SnjúÁoma • 01/ \7 Skúrir S Þrumur ws KuUottkH ‘Zs' HiitttkH H Hm$ | •L*Lma$l
Kl. 9 í gærmorgun var all-
mikil lægð yfir hafinu suður
af íslandi og virtist vera á
hreyfingu ANA-eftir. Lítur
því út fyrir A og NA átt hér
á landi á næstunni, og má
búast við nokkurri rigningu
við Suðurströndina. Norðan-
lands er veður mjög stillt, en
víða dumbungslegt á annesj-
Um og á miðum úti.
Veðurhorfur á hádegi í gær:
SV-Mið: Vaxandi austan-
átt, allhvasst og rigning með
morgninum.
SV-land, Faxaflói og Faxa-
flóamið: Hægviðri og víðast
þurrt veður í dag en austan
kald'i og skýjað og sums
staðar rigning þegar líður á
nóttina.
Breiðafjörður til NA-lands
og miðin: Hægviðri, víða
léttskýjað í innsveitum um
hádaginn en þokuloft að
næturlagi.
Austfirðir ag miðin: Hæg-
viðri og þurrt í dag en aust-
an gola og skýjað í nótt.
SA-land og miðin: Austan
gola og síðar kaldi, skýjað,
rigning þegar líður á nóttina.
Austurdjúp: Hægviðri, skýj-
að, einkum sunnan tifo
ugt vera, er kynna sér þessi mál,
þvi að flestar frægustu bygging-
ar Evrópu frá liðnum öldum eru
byggðar með hvolfþökum mis-
munandi gerða.
Eftir að járnsteypa tók að ryðja
sér rúms, hefur gerð hvolfþaka
orðið auðveldari en áður var,
enda mjög táðkuð í byggingum,
þar sem samfellt gólfrými er
nauðsynlegt eins og í íþrótta-
húsum, sýningarhúsum og öðr-
um samkomuhúsum, svo og stór-
um verksmiðjum o.s. frv.
Nefna má nokkur dæmi þessu
til staðfestingar:
Circus Schuman, Kvikmynda-
húsið Saga, Radiohuset og KB-
höllina í Kaupmannahöfn; Tand-
bergs Radiofabrik og Norsk elek'-
trisk kabelfabrik báðar í Osló,
auk þess sem þar er í undirbún-
ingi íþróttahús svipaðrar gerðar
og í Reykjavík; Blackbergs járn-
brautarstöðina í Stokkhólmi,
íþróttahöll í Umeá, verksmiðju-
toyggingar Scania-Vabis í Söder-
talje, allar f Svíþjóð, tennishöll 1
Wimbledon í Englandi; sýning-
arhallir i Bruxelles, aðalíþrótta-
húsið á olympíuleikvanginum 1
Róm; aðalsundfoöllina í Sofiu i
Bulgaríu, sýningarhallir í Búda-
pest og Leningrad, flugstöðvar-
byggingar á Idlewind-flugvellin-
um í New York og í St. Louis,
sýningarskála í Seattle og síðasí
en ekki sízt aðalsamkomuhús
einhvers frægasta tækniháskóla
heims MIT í Massasdhusetts I
Bandaríkjunum. Þannig mætti
lengi telja, þó að hér verði stað-
ar numið.
Það er því mjög orðum aukið,
að með byggingu sýningar- og
íþróttahússins í Laugardal séu
íslendingar að gerast sérstakir
brautryðjendur um gerð hvolf-
þaka.
— Ráðstefna
Framh. á bls. 1
framifarir og bætta afkomu v ið
fiskveiðarnar — nerna taka
málið upp á breiðara grund-
velli.
Gengið er út frá, að þeir, sem
að efnahagssamstarfi Evrópu-
ríkjanna standa, geri sér þetta
einnig ljóst og að viðræðum um
sameiginlega stefnu í fiskveiði-
málum verði því hagað þannig,
að fiskveiðiþjóðum Norðurland-
anna gefist kostur á að taka
þátt í mótun stefnunnar.
Enn viö sama hornið
EINS og Morgunblaðið hefur
skýrt frá, er það algerlega úr
lausu lofti gripið og hreinar
blekkingar, þegar Timinn og
Framsóknarmenn reyna að
halda því fram, að bændum á
íslandi hafi fækkað í tíð nú-
verandi ríkisstjórnar. Þvert á
móti sýna upplýsingar, sem
Morgunblaðið hefur fengið
hjá Pálma Einarssyni, land-
námsstjóra, sem hefur undir
höndum skrár yfir jarðir á
íslandi og er öllum hnútum
kunnur, að sveitaheimilum
hefur fjölgað í tíð núverandi
ríkisstjórnar. Pálmi Einars-
son benti á í samtali við
Morgunblaðið, að venjan
væri sú að 30—50 nýbýli
bættust í búreksturinn á ári
og gerir það melra en vega
upp á móti þeim, sem fara í
eyði. Svo sé enn.
Ennfremur skýrði hann frá
því, að 1960-61 hafi 5261
heimili talið fram bústofn, en
5078 á árunum 1958-1959. Af
þessu sést, og þarf ekki að
fara í grafgötur um það, að
hin nýja „uppgötvun" Fram-
sóknarmanna er í samræmi
við flestar aðrar bollalegg-
ingar þeirra um stjómmála-
ástandið á íslandi í dag, þ. e.
hún er fölsuð.
Þegar Morgunblaðið hefur
skýrt málið, eins og það lá
fyrir og samkvæmt upplýs-
ingum Pálma Einarssonar,
landnámsstjóra, gerir Tíminn
sér lítið fyrir og dylgjar um
það í gær, að ekki sé hægt
að treysta landnámsstjóran-
um. Orðrétt segir blaðið:
„ÞYKIST blaðið <þ. e.
Morgunblaðið) hafa fengið
EINHVERJAR tölur um það,
að heimilum í sveit hafi fjölg
að á árunum 1960-61.“
Þessar „einhverjar tölur",
sem Morgunblaðið fékk, voru
frá Pálma Einarssyni, en nú
reynir Tíminn að dylgja um
það að ekki sé hægt að
treysta heimildum hans. ___
Þannig er allt upp á sömu
bókina lært í þessu „bænda-
blaði“, haldið er fast við
rangan málstað, falsanir og
blekkingar og prentsverta
ospöruð til óhróðurs um
Viðreisnarstjómina. En bænd
ur, sem aðrir vita, að hún hef
ur gert meira átak en nokkur
stjórn önnur til að reisa við
efnahag landsins og koma
nauðsynjamúlum í örugga
höfn.