Morgunblaðið - 19.08.1962, Blaðsíða 17
Sunnudagur .9. ágúst 1962
MORCVTSBLAÐ1Ð
17
ALLAR MÖSKVASTÆRÐIR
ALLIR GARNSVERLEIKAR
STERKARI — ENDINGARBETRI
LETTARI — FYRIRFERÐARMINNI
SÖKKVA FLJÓTAR
3 HNUTALAUSAR NYLONNÆTUR
Halldóra Úlafsdóttir
um þínum, og mættu sem flest-
ar íslenzkar húsmæður feta í
fótspor þín.
— Svo óska ég þér innilega
til hamingju með daginn, og guð
gefi að ævikvöldið verði þáa
sem bjartast.
Grétar Hinrikssoi*.
Melkoti -
ÞESSAR fátæklegu línur geta
ekki orðið ævisaga, aðeins örfáir
punktar og stiklað á stóru. Ekki
ætla ég að rekja ættir hennár
nokkur hundruð ár aftur í tím-
ann, eins og oft vill verða í af-
xnæljsgreinum, til iþess að sanna
xnannkosti þess er skrifað er um,
Ihér þarf þess ekki með.
Halldóra Ólafsdóttir er fædd 19.
égúst 1872 að Svarfhóli í Staf-
Iholtstungum, en ólst upp hjá for
eldrum sínum á Einifelli í sömu
eveit. Ung að árum mun hún
Ihafa fellt hug til eiginmanns
síns Elíasar Jóihannessonar í
Efranesi i sömu sveit, en þau
voru gefin saman í hjónaband
8. júlí 1899, og hafa því verið
gift í rúm 63 ár.
Halldóra flutti til manns síns
er þá stýrði búi föður síns að
Efranesi, og þar bjuggu þau til
ársins 1907. I»á fluttu þau að
Melkoti og hafa búið þar síðan.
I>að hefur ekki verið sérlega
glæsilegt fyrir efnalítil ung
hjón að koma á lítið kot með
lélegum húsakosti eins og Mel-
kotið þá var. Túnið kargaþýft
og ill vinnandi og þar eftir lítið.
Mig minnir að Elías hafi sagt
mér að túnið hafi gefið af sér
35 hestburði fyrsta árið sem
þau bjuggu á jörðinni, eins og
sjá má, iþá hefur hún ekki þolað
stóran bústofn.
En bjartar vönir, þrautseigja
og dugnaður ásamt einstakri
málefnalegri samstöðu þeirra
hjóna (ég man ekki eftir þxí
að þeim yrði sundurorða allan
þann tíma er ég var hjá þeim
og mun það vera einstakt í okk-
ar þjóðfélagi) tókst þeim að
igera lítið og niðurnítt kirkju-
kot að glæsilegu óðalsbýli eins
og Melkotið er í dag.
Ekki er mér nákvæmlega
kunnugt um höfðatölu búpepings
Iþeirra síðustu árin, en ég hygg
að ýkjalaust fæði jörðin 30 naut
gripi og 300 ær. öll hús eru
(þeirra verk, er standa nú þar.
Eins Og sjá má er eikin orðin
eeði stór, er þau hjón sáðu sem
lítilli jurt í tunguna milli stóru
ánna Norðurár og Hvítár, sem
oft hafa gert bændum skráveif-
ur en líka fært þeim björg í bú,
og mætti nefna þær með réttu
slagæðar héraðsins.
Borgarfjörður syðri hefur af
mörgum verið nefndur hjarta
Suðurlands, og er ég þeim sam-
mála er það hafa mælt.
Borgarfjöfðurinrf er fagurt
hérað, Og slíkt umhverfi hæfir
frænku minni Halldóru. Hún
var og er fríð kona, en lág vexti,
með stóra og góða sál. í>að vitum
við bezt sem höfum verið hjá
henni sem börn, en ég sem þess
ar línur rita naut hennar góða
uppeldis í níu sumur. Það góða
veganesti er hún lagði mér til
éður en ég lagði á hin torrataða
veg lífsins, nun endast mé/
lengi, og hyigg ég að svo sé um
tfleiri sem hjá henni hafa dval-
izt.
Sá sem kemur að Melköti hlýt
ur að veita athygli hvað allt er
snyrtilegt og vel um gengið utan
garðs og innan og reglusemin er
þar er í hávegum höfð að vart
mun hliðstætt finnast á landi
voru.
Um gestrisni frænku minnar
þarf ekki að fjölyrða, henni
verður bezt lýst með því er hún
sagði við mig er íþrótta- og,
hestamannamót voru haldin á
bökkum Hvítár: „Sjá þú um
drengur minn að enginn sleppi
fram hjá bænum án þess að
koma inn og fá hressingu“.
Halldóra eignaðist 5 börn er
komust á legg: — Ólöfu búsetta á
Fellsöxl í Skilmannahreppi,
Þóru búsetta í Hafnarfirði, Ólaf
á Akranesi, *g Magnús og Jó-
hönnu í föðurgarði, þar sem þau
haf^ alið aldur sinn og verið for
eldrum sínum ómetanleg aðstoð,
ekki síst eftir að þau tóku að
reskjast. Haía þau nú »ýverið
tekið við búsforráðum og fest
kaup á jörðinni þar sem gömlu
hjónin hættu búskap vegna ald-
urs.
Ekki efa ég að sami myndar
bragurinn haldist á Melkots-
heimilinu hjá þeim systkinum,
því eins og máltækið segir þá
fellur eplið sjaldan langt frá
eikinni. Einn þáttur í lífi Hall-
dóru voru hin erfiðu ljósmóður
störf, er hún gegndi í sveit sinni
í áratugi við misjöfn skilyrði,
og mun það ekki hafa verið heigl
um hent í þá daga að fara jafnt
nætur sem daga, vetur og sum-
ar í hvaða veðri sem var langa
vegu allt á hestum, en þá var
lítið um vélknúin farartæki og
fáir vegir við þeirra hæfi, en
þessi störf sem önnur leysti hún
af hendi með fórnfýsi Og sínum
alkunna dugnaði. Oft er hún
búin að sanna hið gamal kunna
máltæki: „Margur er knár, þótt
hann sé smár'*.
Mun hún hafa verið sérlega
lánsöm í þessu starfi, ásamt
alúðlegri ástundun við sínar
mörgu sængurkonur. Víst eru
þær margar er hugsa með hlýj-
um hug til frænku minnar í dag
og minnast hennar ástúðlegu um
önnunar er hún kom eins og sól
argeisli inn úr hríðinni og vetr-
arsortanum til að lina þjáning-
ar iþeirra.
Já frænka mín, þú getur að
loknum vinnudegi borið höfuðið
hátt og verið hreykin af afköst-
VAUXHALL VICTOR
FJÖGURRA DVRA. FIMM MANNA, AFGREIÐSLUFRESTUR 3 DAGAR
REYNSLUBÍLL FYKIR HENDI. VERÐ MEÐ MIÐSTÖÐ KR. 159,200,00
SAMBAIMD ÍSL. SAIHVIMMUFÉLAGA
Sambandshúsinu. Sími 17080
VICTOR DE LUXE
VICTOR SUPER
HNÚTALAUS NYLONNET
OG NÆTUR
N*HNÝTTAR |
xmæmA
ERU MUN ODÝRARI EN
LEITIÐ UPPLYSINGA
Simi 20000
Hinar hnútalausu BADIMOTLESS síldarnætur eru þegar komnar í notkun hjá
íslenzkum skipum á sumarsíldveiðunum, og reynast afburða vel. Þeir sem hafa
í huga að fá sér síldarnætur fyrir 'haustvertíðina ættu að hafa samband við
okkur sem allra fyrst.