Morgunblaðið - 19.08.1962, Blaðsíða 15
Ssunnudagur 19. ágúst 1962
MORGVNBLAÐÍÐ
15
Fyrstu Kollafjarð-
arlaxarnir 1964
Miklar framkvæmdir við
eldisstoðina i sumar
UM þetta leyti er eitt ár liðið
frá því, að ríkið festi kaup á
jörðinni Kollafirði og hafnar
voru þar framkvæmdir við
byggingu tilraunaeldisstöðvar
fyrir laxfiska. En fyrstu göngu
seiðunum frá eldisstöðinni þar
verður sleppt í sjó á næsta
vori og er þess að vænta, að
þau skili sér aftur sem 4 —6
punda laxar sumarið 1964.
þar væri blómlegt býli frem-
ur en að þar væri að rísa
fyrsta tilraunaeldisstöð fyrir
laxafiska á íslandi. Mikiar
vonir eru tengdar við fyrir-
tæki þetta en starfssvið þess
er víðtækt. M. a. er ráðgert
að sleppa laxaseiðum í ár í
Kollafirði, og munu þau ganga
aftur upp 1 árnar, þegar seið-
in hafa náð fullum þroska.
og votheysturni í vatnsforða-
búr.
í fyrra var aðaláherzlan lögð
á, að ganga frá klakhúsinu
og koma upp aðstæðUm til eld
is. Settir voru upp eldiskassar,
búnir til seiðaskurðir og vatn
leitt að þeim svo og að klak-
húsinu. í sumar hefur hins veg
ar einkum verið kappkostað að
koma fyrir vatnsleiðslum að
eldistjörnunum, sem unnið hef
ur verið við að ganga endan-
lega frá. Auk þess er lokið
við að leggja vatnsleiðslur að
eldishúsinu, sem gengið hefur
Aðaivatnsgeymir. 1 baksýn er eldishús með 13 steinsteyptum tjörnum.
☆
Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri og Eric Mogensen, stöðvar-
stjóri, við einn seiðaskurðanna. Klakhús og vatnsturn í
haksýn. —
verið frá og á nú aðeins eftir
að hleypa vatninu á.
Síðastliðið haust fékk Kolla
fjarðarstöðin nokkur þúsund
sumargömul laxaseiði úr eldis
stöð Rafmagnsveitu Reykja-
víkur við Elliðaár og hafa þau
verið þar í eldi síðan. Þessi
seiði eru nú orðin allt að 10
—15 cm 1 haust og flest að
verða tilbúin að ganga í sjó
á næsta vori. í fyrrahaust
fékk stöðin einnig hrogn úr
ám í Árnessýslu, Elliðaán-
um, Leirvogsá og nú síðast
seiði úr Laxá í Kjós. Hrogn-
unum var klakið út í klakhús-
inu sl. vetur og í vor. Þegar
'seiðin voru laus við kviðpok-
ann hófst fóðrun þeirra, bæði-
í eldiskössum í klakhúsi og
seiðaskurðum utanhúss. Er
fæðau fyrst í stað hökkuð
nautalifur, en er seiðin eldast
er þeim að mestu gefin þorsk-
hpogn og síðan fiskimjöi, loðna
og fiskúrgangur í vissum
blöndum.
Sumt af seiðunum frá í vor
munu verða tilbúin að ganga
í sjó næsta vor og má vænta
þess að fyrstu laxarnir muni
skila sér’til baká í Kollafjörð
vorið 1964, þá 4—6 pund að
stærð. Vegna þessa er nú
áherzla lögð á, að koma fyrir
vatnsleiðslum og tjörnum í
Kollafjarðar-túnum og næsta
skrefið et að koma fyrir tjörn
um niðut við sjó, en upp í þær
mun laxinn ganga, þegar þar
að kemur.
Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóri, sagði eftirfarandi við
blaðamenn Mbl. um þessa stöð
í fyrradag:
„Þessi stöð er mikið þjóð-
þrifafyrirtæki, sem þarf að
komast upp sem fyrst. Til þess
að hægt sé að vinna að raun-
hæfurn fiskiræktarmálum hér-
iendis, þarf að vera tilrauna-
stöð, þar sem hægt er að
prófa sig áfram með kynbæt-
ur á laxfiski, framkvæma
ýmsar eldistilraunar, m. a. að
finna hið fullkomna fóður,
handa laxaseiðum, gera rann-
sóknir á laxasjúkdómum
o. fl. Þessi stöð er hugs-
uð sem brautryðjandi í
fiskeldi í landinu og það er
von okkr.r, sem að þessu
stöndum, að Kollafjarðarstöð-
in muni verða mönnum hvatn
ing til að hefja fiskeldi á eig-
in spýtur, hvort heldur sem
þeir vilja koma sér upp laxa-
búum eða ala seiði, til þess að
sleppa í veiðiár. Auk þess má
telja að gott útlit sé fyrir sölu
á laxi á erlendum markaði og
segja má, að aukin laxafram-
leiðsla í landinu þýði auknar
gjaldeyristekjur fyrir þjóðina,
sagði Þór Guðjónsson, veiði-
málastjóri, að lokum.
Laxaseiði.
Fréttamaður Mbl. brá sér
upp í Kollafjörð í fyrradag í
fylgd með veiðimálastjóra,
Þór Guðjónssyni," til þess að
líta á framkvæmdir þar.
☆
Reisulegt er að sjá heim að
Kollafirði og mætti ætia, að
Fyrstu laxarnir munu væntan
legir eftir 1% ár.
Eins og fyrr getur er nú um
1 ár liðið, síðan framkvæmdir
hófust í Kollafirði, en ríkið
fyrir forgöngu Ingólfs Jóns-
sonar ráðherra keypti jörð
ina 1. ágúst 1961 og þar
var hafizt handa skömmu
síðar. Lögð var áherzla á, að
notfæra sér öll húsakynni, sem
fyrir voru á jörðinni. Hefur
þanmg hlöðunni verið breytt
í klakhús, fjárhúsi í eldishús
Eldistjarnir í byggingu