Morgunblaðið - 19.08.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
188. tbl. — Sunnudagur 19. ágúst 1962
Veröur Wjö ,
Uaöaiaust i
eftir 14 daga?!
Myiiil, soiuiii dagl
í leif að
fjögurra
laufa
smára
Á myndinni sjást fjórar af
fegurðardrottningunum á
Langasandi í leit að fjögurra
laufa smára. Á miðri mynd-
inni er íslenzki þátttakand-
inn, María Guðmundsdóttir,
vinstra megin við hana eru
fulltrúar frá Malaja og Jórd-
aníu, en fremst á myndinni
er ungfrú Ekvador, sem á-
samt Maríu komst í undan-
úrslit. — Ekki fylgir sögunni,
hvort einhver þeirra fann
óskablómið. — (Sjá frásögn
frá keppninni á bls. 2).
Mikil en stygg
síld á Héraösflóa
Finnbogi á híelga Helgasyni telur
horfurnar góðar
Mynd er fjórar síður að stærS
í stóru broti. í ritstjórnargrein
segir m. a. að blaðið muni flytja
mikið af fréttum og öðru efni i
stuttu samanþjöppuðu formi á
fáum síðum og að blaðið sé óhóð
stjórnmálaflokkum og hags-
munasamtökum.
Morgunblaðið býður hið nýja
blað velkoií' <S ‘ islenzkra
dagblaða.
I FYRRINÓTT og gærmorg-
un varð áfram vart mikillar
síldar á Jónsmiðum nr. 2,
eins og síldveiðimenn kalla
svæðið á miðjum Héraðsflóa,
þar sem Jón skipstjórí á
Pétri Thorsteinssyni fann
síld í fyrradag. Var mikið
kastað þar undir morguninn
og fengu mörg skip sæmileg
köst, en síldin var dálítið
erfið og gekk sumum bátun-
um, einkum þeim, sem tóku
upp styttri næturnar um
daginn vegna smásíldarinnar
illa, því þeir þurfa að fara
nær torfunum og vill síldin
þá hrökkva undan.
Skipin fóru yfirleitit inn á
Austfjarðahafnirnar, þar sem
saltað var alls staðar í gær-
morgun, en söltun átti að ljúka
um hádegi. Síldin er mikið
blönduð.
Fanney leitaði síldar á Stranda
grunni og Ælgir á miðsvæðinu,
og hafði orðið var lítilsháttar
síldar í gænmorgun.
Ánægður með yfir 20 þús.
Blaðið átti um tvö leytið í
gær stutt samtal við hinn mikla
aflamann, Finnboga Magnússon
á Helga Helgasyni, en haran var
þá inni á Raufarhöfn að landa
um 1800 málum. Með því bjóst
Finnbogi við að skipið væri bú-
ið að fá ríflega 20.500 mál og
tunnur á sumarsíldveiðinni.
— Þetta er orðið ágætt. Mað-
ur getur verið ánægður með
það, sagði Finnbogi. Þetta hefur
bara verið svo sundurlaust upp
á síðkastið. Það er frekar vont
að eiga við hana. T. d. var þessi
síld sem við erum að koma með
stygg, en hún fékkst út af Hér-
aðsflóa.
— Hvernig lízt þér á horf-
urnar?
— Hvernig lízt þér á horfurn-
ar?
— Mér lízt þannlg á að hægt
verði að vera við síldrveiðar í
september. Það er þó hætt við
að maður verði að sækja hana
langt út á haf, þegar líður á.
Framh. á Lls 23
DAG-URINN sem varðskipið
Óðinn kom til Grímseyjar
fyrir sköno.mu, er krökkunum
í Grímsey eftirminnilegur. —
Þeim var öllum boðið um
borð, þar sem þau fengu m.a.
að sjá kvilkmyndir. Þau voru
sótt í skipsbátnum og flutt aft
ur í land. Adolf Hansen tók
Stofnað hlutafélag um
byggingu iðnaðarhúsa
þessar myndir af nokkrum
krökkuITum um borð og þau
eru að fara frá borði eftir
skemmtilega heimsókn í Óð-
in.
Fólksbíll ók
fyrir lögreglubil
UM kl. 4 í fyrrinótt varð hörku-
árekstur á gatnamótum Snorra-
brautar og Hverfisgötu. Rákust
þar saman fólksbifreið og lög-
reglubíll, og skemmdust báðir, en
fólk sakaði ekki.
LögreglubílJinn var á leið aust-
ur Hverfisgötu, með tvo
drukkna menn í fangahúsið við
Síðumúla og jafnframt að sinna
kalli. Ók bifrejðin áfram á grænu
ljósi yfir gatnamótin. Þá kom
utanbæjarbíll akandi norður
Snorrabrautina og út á gatna-
mótin og varð íyrir lögreglubíln-
um. Við árcksturinn kastaði fólks
bíllinn á umferðarljósastaurinn.
Einn maður var í fólksbílnum,
en 3 lögregluþjónar og tveir ölv-
aðir fangar, er engan þeirra sak
aði. Bílarnir skemmdust báðir,
einkum þó fólksbíllinn. Leikur
grunur á að ökumaðurinn hafi
verið ölvaður við akstur.
Sir Winston Churchill mun halda
heim af Middlesex sjúkrahúsinu
eftir helgina, e.t.v. strax á þriðju
dag. Sir Winston, sem nú er 87
ára að aldri hefur verið í sjúkra
húsinu síðan daginn eftir að
hann fótbrotnaði í hótelherbergi
sínu í Monte Carlo hinn 29. júní
HINN 17. maí s.l. var haldinn
fundur í Iðnskólanum í Reykja-
vík, sem t>oðað var til af Félagi
íslenzkra iðncrekenda og Lands-
sambandi iðnaðarmanna til að
fjalla um fram komnar tillögur
skipulagsdeildar Reyikjavíkur-
borgar um iðnaðarsvæðið við
Grensásveg. Á þeim fundi var
m.a. samþykkt að kjósa nefnd til
þess að undirbúa stofnfund hluta
félags um byggingarframkvæmd-
ir. I nefndinni áttu sæti: Sveinn
B. Valfells, Guðmundur Halldórs
son, Bragi Hannesson, Tómas
Vigfússon, Sveinn K. Sveinsson,
Þórir Jónsson og Helgi Ólafsson.
Af hálfu þessarar nefndar var
hinn 15. ágúsf s.l. láoðað til stofn
fundar hlutafélags um byggingar
framkvæmdir við Grensásveg. Á
fundinum mættu um 40 iðnrek-
endur og iðnaðarmenn og var
Guðmundur Halldórsson, forseti
Landssamfoands iðnaðarmanna,
fundarstjóri.
Á fundinum var gengið frá
stofnsamningi og hann undirrit-
aður af 34 aðilum, sem skráðu
sig fyrir hlutafé. Heiti hins nýja
félags er Iðngarðar h.f. og verð-
ur hlutafé félagsins 4 millj. kr. til
að byrja með. Ætlunin er að auka
það síðar meir, þegar gengið hef
1« verið frá samningum við
borgaryfirvöldin í Reykjavík um
áður nefndar lóðir. Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda og Lands-
samfoandi iðnaðarmanna var falið
að afla frekara hlutafjár með út-
boði innan samtakanna og geta
meðlimir skráð sig fyrir hlutafé
í skrifstofum þeinra.
í stjórn Iðngarða h.f. voru
kjörnir: Sveinn B. Valfells, for-
maður, Guðmundur Halldórsson,
varaformaður, Þórir Jónsson, rit-
ari, Sveinn K. Sveinsson, gjald-
keri, Tómas Vigfússon, vararit-
ari. Varamenn í stjórn voru
kjörnir: Gissur Símonarson og
Ásgeir Bjarnason.
(Frétt frá Fél. fsl. iðn-
rekenda og Landssamb.
Iðnaðarmanna).
Nýtt dag-
blað, Mynd
í GÆR kom út fyrsta tölublað
af nýju dagblaði, Mynd, sem
gefið er út í Reykjavík. Er þetta
síðdegisblað, útgefið af Hilmari
A. Kristjánssyni. Ritstjóri er
Björn Jóhannsson.
Fiugið til Eyia p
stopuft niesto
D A ij 3 L A U
OtUík
W!t tl
na
ESEBIB