Morgunblaðið - 19.08.1962, Blaðsíða 23
Sunnudagur 19. ágúst 1962
MORGVTSBI.AÐIÐ
23
— Ég má ekki vera að því
að tala við ykkur lengur, ég
þarf að skipta um bleyju á
barninu mínu.
Þannig lauk Eartha Kitt
blaðamannafundi sínum í
Kaupmannahöfn fyrir nokkr-
um dögum, þegar hún kom
þangað eftir átta daga ferða-
lag frá New Yörk. Hún var
með átta mánaða gamla dóttur
sína með sér. Þær mæðgur
litu hálf ræfilslega út eftir
sjóferðina, því tel-puhnokkinn
var að taka tennur og hafði
verið óróleg aíðari hluta leiðar
innar.
—Tími er kominn til að við
litla og stóra Kitt fáum svo-
lítið frí, sagði Eartha Kitt enn
fremur. En eftir áætlun dans-
og söngkonunnar að dæma
virðast frídagar ekki vera á
næstu grösum. Hún skemmtir
um skeið í Tívoligarðinum í
Kaupmannahöfn, síðan fer
„Afsakiö, ég þarf að skipta
um bleyju á barninu..
Óvenjuleg Mið-
hálendisferð
GUÐMUNDUR Jónasson, fjalla- fram í október, þegar tíð hefur
bílstjóri, hefur í sumar farið fjöl verið hagstæð. Eru meðal haust-
margar ferðir með fólk um öræf- ferðanna áætlaðar ferðir á Hlöðu
in og er nú með ferðamenn í fell, á Tindafjallajökul, í Hrafn
Öskju. Næstkomandi laugardag tinnusker og að Hagavatni með
hefst síðasta sumarleyfisferð
hans í sumar, 9 daga miðhálendis
ferð.
í þessari ferð verður fyrst farið
um Veiðivatnasvæðið og norður
Sprengisand, en þar verður beygt
af leið og haldið að sæluhúsi
Ferðafélags Akureyrar og Lauga
felli og gist þar Þá haldið vestur
yfir Austari-Jökulsá og um
óbyggðirnar norðan Hofsjökuls
til Skagafjarðar. Hefur fátt verið
um ferðir á þessar slóðir og má
því teljast flestum ferðamönnum
ókannað land.
Haustdagar búa yfir töfrum
Guðmundur skipuleggur ætíð
mikið af helgarferðum á haustin,
enda búa íslenzkir haustdagar
yfir miklum töfrum, og heldur
hann þeim áfanga jafnvel langt
göngu á Langjökul.
hún til Gautaborgar og
Stokkhólms, þá tekur við
ferðalag til Austurlanda og
skemmtir hún m.a. í stórborg
unum Tokíó og Hong-kong,
og einnig er í bígerð að koma
við í Sydney í Ástralíu. Og
hvert sem hún fer verður barn
ið í fylgd með henni. Eartha
Kitt segist ekki geta hugsað
sér að láta barnfóstrur eða
einhverja frænkur annast upp
eldi barnsins, og hún skilji
barnið ekki við sig fyrr en
það nái 16 ára aldri. Má því
gera ráð fyrir að Kitt litla
!7 McDonald verði all víðföruL
— S'ildin
Framih. af bls. 24.
En það er geysilegt síldarimagn
djúpt út af Héraðsflóanum og
getur orðið mikil veiði, ef torf-
urnar stækka og síldin verður
epakari. Nú er þetta svoddan
peðringur.
— Ætlarðu að stanza lengi í
landi núna?
— Meðan verið er að landa.
Það er aldrei stoppað, ef veður
leyfir, alltaf lifað í voninni. Það
getur alltaf viljað til að heppnin
sé með.
— Hún hefur verið með þér
1 sumar.
— Með köfluim, en þó ek/ki
alltaf.
Brætt og saltað
í gær skrifaði fréttaritari bLaðs
£ Eskifirði eftirfarandi:
Á hádegi í dag hefur bræðsl
an tekið á móti 40 þús. málum,
bræðir 800 mál á sólarhring.
Saltað hefur verið í 6000 tunnur,
frysitar 3000. Stanzlaus söltun
vár frá kl. 6 í gærkvöldi til kl.
12 í dag. Síldin er mjög góð til
Söltunar.
Drangjökull lestar hér frosinn
fisk. — G.W.
★
Fréttaritarinn á Norðfirði sím
aði að síldarverksmiðjan hefði
nú tekið á móti yfir 170 þúsund
málum en um 130 þúsund tunn-
um í fyrra. Bræðsla hætti þar um
þetta leyti í fyrra. Samtals er
búið að salú < 17000 tuunur á
Norðfirði.
Eartha Kitt var spurð að
því, hvers vegna maður henn-
ar, William McDonald, ferð-
aðist aldrei með henni. Hún
svaraði:
— Hann er svo hræðilega
afbrýðisamur. Hann myndi fá
taugaáfall ef hann vissi um
allt sem gerist bak við tjöld-
in í skemmtanalífinu. Það er
skiljanlegt þegar litið er á
ætterni hans, en hann er af
írskum, skozkum og þýzkum
ættum. Nei, það er betra að
hann sitji heima og hugsi um
starf sitt .... ég sé um mitt.
★
Þó aldurinn sé tekinn að
færast yfir Eartha Kitt er hún
enn jafn grönn og spengileg
og á sínum yngri árum. Megr-
unaræfingar hennar eru ekki
flóknar: hún syndir klukku-
stund á dag, hjólar, sippar og
drekkur þess á milli eitt glas
af sjóðandi vatni. Milli atriða
drekkur hún eiryiig sjóðandi
vatn til að mýkja upp rödd-
ina. — Sumir halda að ég
súpi á vodka milli þátta. segir
hún, en það er ekki rétt. Það
kostar ekki mikið að bjóða
mér á skemmtistaði, því ég
drekk ekki áfengi og narta
rétt aðeins í allan venjulegan
mat.
Vögguvísa
í sjónvarpi
SJÓNVARPID í Austur-Þýzka-
landi hefur fengið réttindi til
að gera sjónvarpskvikmynd eftir
skáldsögu Elíasar Mar, Vöggu-
vísu, og vann þýzkur maður, dr.
Rúggert, í sumar að því að ganga
frá handritinu, sem gert er eftir
þýzkri þýðingu á bókinni í Aust-
ur-Þýzkalandi, sem komu út 1958
undir nafmnu „Chibaba, Chi-
baba“.
Mbl. spurðist fyrir um þetta í
gær hjá Sveini Bergsveinssyni,
sem er umboðsmaður Elíasar
Mar í Austur-Þýzkalandi, og sem
hafði milligöngu um samninga
varðandi kvikmyndunina, en
Sveinn er nú staddur hér heima.
Sagði hann að í vor hefðu sjón-
varpsmenn snúið sér til hans og
beðið um að fá að kvikmynda
bókina og mundu þeir fara eins
nálægt bókartextanum og unnt
væri í kvikmynd. Lýsti dr.
Ruckert, sem hefur skrifað sjón-
varpsleiki og unnið að öðrum,
því fyrir Sveini hvernig hann
hugsaði sér fyrsta sviðið, þar
sem unglingar í Reykjavík eru
að búa sig undir innbrot og leizt
Sveini vel á þá stefnu sem kvik-
myndamenn virtust ætla að taka.
Bókin fjallar um unglingavanda
mál eftirstríðsáranna í Reykja-
vik. Sagði Sveinn, að Elías hefði
þar hitt á gotc efni og að sínum
dómi gert því góð skil. Allar
þjóðir ættu við þessi vandamál
að stríða og hefðu áhuga á því
efni, og væri það vafalaust ástæð
an til þess að leitað var eftir
þessu efni í sjónvarp.
Ekki kvaðst Sveinn vita hve-
nær myndin yrði sýnd í Austur-
þýzka sjónvarpinu né hve víða
hún kynni að fara síðar.
— Rousseau
Frahald af bls. 22
Þetta er sjálfsævisaga í skáld-
söguformi, hrífandi og minnis-
stæð fyrir það hve bersögull og
hreinskilinn höfundurinn er. Þar
kemur skýrt fram maðurinn, sem
var á bak við skáldið og heim-
spekinginn Rousseau.
Voltaire talaði til heilans, en
Rousseau til hjartans, og áhrif
Rousseaus á síðari tíma urðu
meiri en hins. Norski bókmennta
fræðingurinn Gerhard Gran kall-
ar hann „det 19. árhundrets til-
blivelse". Það getur heimfærzt
á hann, bæði sem skáld Og jafn-
réttisfrömuð. Rómantík 19. ald-
innar átti auðuga lind þar sem
hann var, og sem einn af beztu
hvatamönnum frönsku stjórnar-
byltingarinnar og rithöfundur
varð hann virk stoð öllum þeim,
sem börðust fyrir þlóðfélagsum-
bótum eftir hans dag.
— Færeyingar
Framlhald af bls. 3.
gizka sem stunda þessar grein
ar?
— Um eitt þúsund piltar
og stúlkur.
— Ekki verða þetta samt
taldar þjóðaríþróttir í Færeyj
um?
— Nei, kappróðurinn er
þjóðarífrótt enda er hann líka
tvímælalaust vinsælastur.
Hann er stundaður jafnt af
stúlkum sem piltum og stend
ur með miklum blóma. Frá
maíbyrjun eru æfingar fjór-
um til fimm sinnum í viku í
flestum baejunum og svo leiða
menn saman hesta sina á Ól-
afsvökunmi.
— Fá Jþróttafélögin í Fær-
eyjum opinberan styrk?
— Nei, ekki beinan styrk.
Lögþingi* heldur uppi skipa
útgerð og þegar knattspyrnu
flokkar geta notað sér á-
ætlunarferðir hennar í keppn
isferðum milli eyjanna fá
þeir ókeypis far, en það er
ekki nema örsjaldan sem svo
vel hittir á. Annars verða fé-
lögin sjálf að standa straum
af ferðakostnaði og afla sér
fjár til starfseminnar.
— Það er eðlilega mikið
starf framundan í íþróttamál
um Færeyja. Eru fyrirhugað
ar einhverjar stórframkvæmd
ir á næstunni.
— Það er verið að byrja
á nýju íþróttasvæði í
Þórdhöfn mg einnig er hafin
bygg'ing nýrrar sundlaugar,
sem verður yfirbyggð að ein
hverju leyti og vonumst við,
til að geta notað hana meir
en laugina sem fyrir er, en
hún er bara opin að sumar-
lagi. Þá má segja að fullur
hugur sé i að fá þjálfara og
það verður áreiðanlega gert
við fyrsta tækifæri.
— Þið ferðuðust talsvert
um Island?
— Já, við fórum til Akur-
eyrar, ísafjarðar, Akraness og
Keflavíkur. Það var tekið
mjög vel á móti okkur á öll-
um þessum stöðum og við
fórum í ferðalög um Borgar-
fjörðinn, Eyjafjörðinn og
Þingvelli. Það var yndislegt
veður á þessum ferðalögum.
— Hafið þér komið áður til
íslands?
— Já, einu sinni. Þá var ég
hérna á skútu í þrjú ár. Það
var skömmu fyrir 1930. —
Reykjavik hefur .breytzt
mikið á þrjátíu árum. Hún
er orðin stórborg, sem mað-
ur ratar ekki um lengur —
en ég andaði þó léttar þegar
ég sá Dómkirkiuna á s'num
gamla góða stað.
Gizenga gerii
hungurverhiali
Hefur fastað
« 4 daga
LEOPOLDVILLE, 18. ágúst
(AP/NTB). — Það upplýstist
í Leopoldville á laugardaginn
að Antoine Gizenga, fyrrum
varaforsetisráðherra Kongó,
hefði gert hungurverkfall —
og ekki matast síðustu 4 daga.
Gizenga hefur undanifarna.
átta mánuði verið í haldi á
lítilli eyju skammt frá mynni
Kongó-fljóts. Varaforsætisráð-
herrann hélt á sinum tíma all-
lengi kyrru fyrir í Stanleyville
og var bá borinn beim sökum
af þjóðþingi Kongó, að hann
undirbyggi samsæri gegn rikis
stjórn landsins. — Samkvæmt
upplýsingum manna, sem áður
voru mjög nákomnir Gizenga,
er líðan hans m.jög bág orðinc
Af hálfu Sameinuðu þjóð-
anna lýsti Robert Gardiner
því yfir í Leopoldville í dag,
að læknar myndu fylgjast
með líðan Gizenga.
Skodubílur og
austurviSskipti
MBL. barst I gær eftirfarandi
yfirlýsing frá Tékkneska bifreiða
umboðsins:
„Sem umboðsménn hinna
heimskunnu og gamalreyndu
Skodaverksmiðja (stofnsettar
1859) biðjum vér yður vinsam-
lega að ljá rúm eftirfarandi
ábendingum um Skodabíla vegna
nýbirtra blaðagreina um hátt
verðlag á Austur-Evrópuvörum.
Vér bjóðum nú lægsta verð
fólks- og statiunbíla hér á landi
miðað við vélarafl, stærð og
gæði. Sama má segja um verðlag
Skodabíla í Noregi, þar sem inn
flutningur ei frjáls og Skoda
þykir sérlegs hentugur og orku-
mikill bíll á malarvegum í fjöl-
sóttu landi. Því fer víðs fjarri,
að verð á Skodabílum hér geti
talizt í neii.u samræmi við það
háa verðlag á Austur-Evrópuvör
um sem ui.dantekningarlaust er
fjallað urn í áðurnefndum grein-
um. Við óskum þess aðeins, að
kaupendur bíla hér á landi geti
valið eða hafnað án fordóma á
hlutlægum grundvelli.
Tékkneska
bifreiðaumboðið h.f.“