Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 1

Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 1
24 síðui 49 árgangur 202. tbl. — Fimmtudagur 13. september 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins avid Ben-Guríon kom í heimsdkn til íslands í gær Virðuleg mótlökuathofn á Reyk|avíkurflugvelli FJÖLMENNI var á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi, þeg- ar Viscount-flugvél Flugfélags íslands stöðvaðist í flóðljós- um fyrir framan flugvallarbygginguna og David Ben-Gurion, forsætisráðherra ísraels, og frú hans stigu út úr vélinni. Við landgöngubrúna biðu Ólafur Thors, forsætisráðherra, og frú hans og fögnuðu hinum tignu gestum íslenzku ríkis- btjórnarinnar. í ávarpi sínu á flugvellinum, sagði David Ben-Gurion m.a., að það væri honum tilhlökkunarefni að kynnast „þessu cyland íss og elds“, eins og hann komst að orði. Flutti hann islenzku þjóðinni kveðjur Israelsþjóðar. í ávarpi sínu sagði Ólafur Thors m.a., að íslendingar hefðu fylgzt með einstæðu átaki ísraelsríkis undir glæsi- legri forystu David Ben-Gurions. „íslenzku þjóðinni er vissu lega mikill heiður að komu yðar hingað“, sagði forsætisráð- herra íslands, og bauð í nafni ríkisstjórnarinnar Ben-Gurion og frú ásamt fylgdarliði þeirra velkomið til landsins. Móttökuathöfnin var stutt en virðuleg og ógleyman- legur viðburður, þegar forsætisráðherra íslands heilsaði leið- toga hinnar gömlu og virtu menningarþjóðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Má í því sambandi minnast þeirra orða, sem David Ben-Gurion hefur viðhaft um það sem íslendingar og ísraelsmenn ættu sameiginlegt; hann sagði: „íslendingar eru þjóð bókanna, en ísraelsmenn þjóð Bókarinnar“.. í fylgdarliði forsætisráðherra- hjóna ísraels eru .a. samkvæmt þeim upplýsingum sem Morg- unblaðið hefur fengið, Yitzhak Navon, skrifstofustjóri forsætis- ráðherrans, Shmuel Bendor, sendiherra, yfirmaður Vestur- Evrópudeildar utanríkisráðuneyt is ísraels, og dr. Renana Ben- Gurion Leshem, dóttir forsætis- ráðherr ah j ónanna. Meðal þeirra sem viðstadir voru ko-mu David Ben-Gurions til Reykjavíkur voru Emil Jóns son sem gegnir störfum utanrík isráðlherra í fjarveru Guðmundar í. Guðmundsson-ar, og frú, Birg- ir Thorlacius ráðuneytisstjóri. Ní- els P. Sigurðsson deildarstjóri, sendiherrar Norðurlanda hér á landi, Sigurgeir Sigurjónsson að alræðismaður ísraels hér á landi og :.uk þeirra sendiiherm ísraels á íslandi, með aðsetri í Stokk- hólmi Arie Arodh og aðalræðis- maður íslands í Tel-Aviv Fritz Naschitz. Knm frá Danmörku. Eins og skýrt hefur verið frá í fróttum hefur David Ben-Gur- ion verið á ferð um Norðurlönd undanfarnar vikur og er ísland síðasti áfangi hans. Hann kom hingað frá Kaupmannahöfn. Með al þeirra sem kvöddu hann á Kastrup-flugvelli var Jens Otto Krag, forsætisráðherra Danmerk ur. Áður en forsætisráðherra Isra els fór frá Kastrup-flugvelli ræddi hann við fréttamenn og vék meðal annars að Arababanda laginu. Aðspurður sagðist hann ekki hafa trú á því, að Araba- bandalagið mundi leysast upp. Hann sagði ennfremur að hann teldi það geta haft mikil áhrif til tryggingar friði, í Mið- Austurlöndum og í heiminum, ef sett yrði á stofn ráð Mið-Aust urlanda í líkingu við Norðurlanda ráðið þar sem allir hjálpuðu hver öðrum á vinsamlegan hátt. Um Eichmann réttarhöldin sagði hann, að engar líkur væru á því að slík réttarhöld vrðu haldin á nýjan leik í ísrael. Vel fagnað. Ferðin til Islands gekk að ósk um og kom flugvélin á þei-m tím-a sem ráðgert hafði verið. Hún renndi sér upp að flugvallarbygg ingunni kl. 22,45 í gærkvöldi, en þá var þar fyrir margt fól-k eins og fyrr getur. Var forsætisráð- herranum innilega fagnað af þeim sem viðstaddir voru og mörg forvitin augu fylgdu hon um eftir, meðan færi gafst. Lög- reglumenn höfðu tekið sér varð stöðu á flugvellinum og við leið forsætisráðherranna til Ráðherra bústaðarins. Þegar Ben-Gurion gekk út úr flugvélinni sáu viðstaddir, að þar var á ferð virðulegur maður með hvitt, úfið hár, heldur lágur vexti en þrekinn og ber aldur sinn vel. Hann talar lágt, er góð- legur og hlýtt viðmót heillaði alla sem viðstaddir voru. Þegar íslenzku forsætisráð- herrahjónin höfðu fagnað gestum sínum flutti Ólafur Thors svo- hljóðandi ávarp: „Herra forsætisráðherra! Við þökkum yður fyrir að hafa lagt á yður að lengja langa ferð j 1 svo mikið til bess að kynn- ast íslenzku þjóðinni og heiðra hana með heimsókn yðar. Við vonum að þeir dagar, sem þér dveljið hér á landi verði yður á allan hátt eins ánægjulegir og framast er unnt. Með aðdáun hafa íslendingar fylgzt með einstæðu átaki hins nýja Ísraelsríkis undir sterkri og glæsilegri forystu yðar. íslenzku þjóðinni er vissulega mikill heið- ur að komu yðar. í nafni ríkisstjórnar íslands býð ég yður Og frú Ben-Gurion og fylgdarlið yðar innilega vel- komin.“ Að ávarpi Ólafs Thors loknu, Framhald á bls. 3. Forsætisráðherrarnir ganga í áttina að bifreiffunum eftir móttökuatliöfnina á Reykjavíkurflug- velli í gærkvöldi. — Sjá fieiri myndir á hls. 3. (Ljósm. Mbl. ól. K. M.) Friðarsamningar við A-Þjóðverja, Moskvu, 12. september. SENDIHERRA Vestur- Þýzkaíands í Moskvu, Hans Kroll, skýrði frá því í dag, að hann teldi fullvíst að Rússar muni undirrita frið- arsamning við A-Þjóðverja, áður en langt um líður. Kroll skýrði frá þessari skoðun sinni, er hann ræddi við þýzka fréttamenn í dag, en undanfarið hefur sendi- herrann átt viðræður við Krúsjeff, við Svartahafið. Kroll var ekki langorður um viðræður sínar við hinn rússneska ráðamann. Hins vegar kom í Ijós, að Krús- jeff hafði tjáð sig fúsan til að bíða með alvarlegar um- ræður um Berlínarmálið, þar til kosningar til Bandaríkja- þings hafa farið fram, síðar í haust. Þá var frá því skýrt í dag, að yfirvöld í A-Berlín hafi frestað mikilvægum fundi, sem halda átti um friðarsamningana, þar til kosningar eru um garð gengnar í Bandaríkjunum. Þess má geta, að áður hafa ráðamenn eystra látið að því liggja, að ekki sé við Banda- ríkjamenn ræðandi um Berlín- armálið, fyrr en að kosningum lokið. Þessu hefur verið mótmælt í Bandaríkjunum, og segja tals- menn stjórnarinnar þar þetta vera „tómt þvaður“ í kommún- istum. Samkomu- lag um verð búvaraj I GÆRKVÖLDl náði blaðið tali af formanni Stéttarsam- bands bænda, Sverri Gísla- syni bónda í Hvammi, og spurðist fyrir um niðurstöð- ur funda í G-manna-nefnd- inni. Hann sagði að sam- komulag hefði náðst um verð lagsgrundvöll landbúnaðar- vara, en gat á þessu stigi ekki gefið nánari skýrslu um sam- komulagið. Blaðið hefur eft- ir öðrum leiðum fengið þær upplýsingar að um verulega hækkun sé að ræða til bænda og jafnframt leiðrétt- ingu á þeim misrétti er þeir töldu sig hafa orðið fyrir sL haust.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.