Morgunblaðið - 13.09.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 13.09.1962, Qupperneq 3
fimmtudagar 13. sept. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 3 Castro Magnús sinnar á kaldan klaka og ofur- selt landið Rússum vegna skulda og kommúnisks herstyrks. Hann hefur gert land sitt að rússneskri herstöð og tileinkað sér argvítug- ustu kúgunaraðferðir kommún- ista. Til að undirstrika samúð sína með þessum aðgerðum Castros hafa „lsenzkir“ kommún- istar sent sérstakan fulltrúa sinn, Magnús Kjartansson ritstjóra í kurteisislieimsókn til hans. Sú afstaða vekur enga sérstaka furðu, en hitt er jafn undarlegt að menn, sem í rauninni ekki eru kommúnistar, skuli enn ganga til liðs við erindreka heims kommúnismans i tilraunum þeirra til að koma íslandi undir járnhæl Moskvuvaldsins líkt og K. ba er nú. Þegar heiðarl'iikann skortir 1 ráðherrabústaðnum í gærkvöldi. A myndinni sjást m.a. frá vinstri: Emil Jónsson, ólafur Thors, David Ben-Gurion, frú Ben- Gurion og frú Ingibjörg Thors. — Ben-Gurion Framhald af bls. 1 tók Ben-Gurion til máls og mælt- ist hönum á þessa leið: „Herra forsætisráðherra! Innilegt þakklæti fyrir heim- boð yðar til íslands og þær vin- gjarnlegu móttökukveðjur sem jþér nú létuð falla í okkar garð. Okkur er ánægja að því að sækja iheim land sem ísrael hefur átt svo vinsamleg samskipti við frá því ríkið var endurreist 194S. Ég færi yður alúðarkveðjur þjóð- ar okkar og ríkisstjórnar. Pað er miér tilhl ökku n a refn i að hitta forsetann, eiga við yður Ihr. forsætisráðlherra og samráð- fcerra yðar árangursriikar við- ræður, kynnast betur þjóð þessa eylands íss og elds og sjá eitt hvað af landinu sjálfu. Ég er þess fullviss að heimsóknin til þessa fjarlægasta lands Norðurlanda Jnua verða eins skemmtileg og fróðlag og heimsóknir okikar til hinna Norðurlandanna fjögurra. Leyfið mér að ljúka máli mínu með hinni hebresku kveðju — ehalom sem þýðir „í friði“. „Svo þið eruð allir hér .. .* Þegar forsætisráðherrarnir höfðu flutt ávörp sín kynnti Ól- afur Thors þá sem viðstaddir voru úr móttökunefndinni og frúr þeirra. Meðal þeirra voru sendiherrar allra Norðurlanda. Þegar forsætisráðherra ísraels var kynntur fyrir Bmil Jónssyni utanríkisráðherra spurði hann. „Voruð þér ekiki í fsrael?“. „Nei“ svaraði Emil Jónsson. „Það var Guðmundur í. Guðmundsson, ut anríkisráðherra, sem þangað fór. Hann er sá rétti utanríkisráð- herra. Eg gegni aðeins störfum hans í forföllum." „Hvar er hann“ spurði Ben- Gucion? „Hann er í Bandaríkjunum", sagði Emil Jónsson. Þegar Ben-Gurion var kynntur fyrir sendiherra Dana, sagði hann. „Ég kem einmitt frá Dan- mörku“. „Já, ég vona að þér hafið notið dvalarinnar þar“ sagði sendiherr- ann. Og forsætisráðherrann kinkaði bolli góðlátlega. Þegar hann hafði verið kynntur fyrir sendiherrum Norðurlanda, sagði hann glaðlega: „Svo þið eruð allir hérna, sendiherrar Norður- landa“. Síðan gengu forsætisráðherr- arnir í bíl, sem þeirra beið, og var ekið til Ráðherrabústaðarins. Þar var sezt að veitingum nokkr- um og ræðzt við um stund. David Ben-Gurion og fylgdar- lið hans dvelst á íslandi fram á sunnudag n.k. í dag, fimmtudag, ræðast þeir við forsætisráðherr- arnir í stjórnarráðinu. Síðan David Ben-Gurion, frú Paula og dóttir þeirra, dr. Renaua Ben- Gurion Lesheim, stíga út úr flugvélinni í gærkvöldi. heimsækir Ben-Gurion Þjóð- minjasafnið. Kl. 12.30 heldur Ólafur Thors honum hádegis- verðarboð að Hótel Borg. K1 19.30 verður kvöldverður í boði forsetahjónanna að Bessastöðum. Eins og kunnugt er hefur leið- togum Framsóknarflokksins ver- ið gert kleift aS fylgjast með öllu því er fram hefur fariS í . Efnahagsbandalagsmálinu. Þetta er líka eðlilegt því í mikilvæg- ustu málum á aS leitast viS að ná lýðræðislegri samtöðu. Frant- an af leit út fyrir að Framsóknar- menn ætluðu aS taka ábyrga af- stöðu í Efnahagsbandalagsmál- inu, en í gær kveSur nokkuð við annan tón í ritstjórnargrein í Timanum. Þar segir m. a.: „Þá leggja Framsóknarmenn mikla áherzlu á að umræður við erlenda aðila séu ekki tímabær- ar fyrr en íslendingar hafa komið sér niður á eftir hverju þeir sækjast í samningum við EBE og geta þá einbeitt sér að því að koma málstað sínum á framfæri“. En svo kynlega vill til að í sama blaði Tímans eru birt um- mæli Eysteins Jónssonar á ráð- stefnu Frjálsrar menningar þar sem hann segir m. a.: „Mér virðist þetta standa þannig að hyggilegt sé fyrir fs- lendinga að bíða átekta, fylgjast sem bezt með því sem gerist, nota tímann til að athuga og ræða hér heima fyrir sem ýtar- legast hvar við stöndum og hvað til greina gæti komið og hvað ekki. Og nota einnig öli heppi- Ieg tækifæri til þess að auka skilning þeirra þjóða, sem hér eiga hlut að máli, á algjorri sér- stöðu íslenzku þjóðarinnar". Hvernig á að auka . skilning? Eysteinn Jónsson segir þannfg opinskátt að nota eigi „öll heppi- ieg tækifæri til þess að auka skilning þeirra þjóða sem hér eiga hlut að máli“ á málstað íslendinga. En Tíminn segir „að umræður við erlenda aðila séu ekki tímabærar". Mönnum hlýtur að vera spurn, hvernig eigi að auka skilning þjóðanna á afstöðu okkar, ef ekki má við þær ræða. Þessi nýja afstaða málgagns Framsóknarflokksins bendir þvi miður til þess að tilhneigingar séu hjá Framsóknarmönnum til þess að bregðast málstað íslands í þessu máli, svipað og í landhelg ismálinu, en reyna þess í stað að hagnýta það í pólitískum tilgangi, þótt lítil von sé um árangur. Óska Ýslandi þess Eins og kunnugt er hafa komm únistar mjög glaðst yfir þróuu þeirri, sem orðið hefur á Kúbu, þar sem einæðisherrann Castro hefur myrt og fangelsað fjölda manna, komið efnahag þjóðar David Ben-Gurion flytur ávarp sitt. Frú hans með blómvönd frá forsætisráðherrafrú íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.