Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 23

Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 23
Fimmtudagur 13. sept. 1962 M OF CVJSm 4ÐIÐ 23 Myndin að ofan er frá ráðstefnunni í London. Frá vinstri: Duncan Sandys, nýlendumálaráð-’ herra, Makarios, erkibiskup, Robert Menzies, Jolm Diefenbaker og Néhru, íorsætisráðlierra Indlands i ior- Vinsemdar gæt'r á sætisráðlierranna í London London, 12. september, NTB —AP. FUNDUR forsætisráðherra brezku Samveldislandanna hélt áfram í London í dag. Fulltrúar margra landa lýstu skoðunum sínum á væntanlegri aðild Breta. Ýmsir þeirra hafa komið fram með gagnrýni, en í fréttum segir, að hún sé hvorki meiri né alvarlegri, en gert hafi verið ráð fyrir. Það kom fram af ummæl um Macmillans, forsætis- ráðherra Breta, í dag, að hann hefur í hyggju að efna innan skamms til fund ar með ráðherrum sínum. Mun ætlunin að ræða þar sérstaklega þau mál, sem nú ber hæst á ráðstefnunni. Sir Alexander Bustamente, forsaetisráðherra Jamaica, sagði í dag, að Rómarsamn- ingurinn vaeri eins og hnífur, sem skildi Samveldislöndin hvert frá öðru. Sir Abubakar Tafawa Bal- ewa, forsætisráðherra Nigeríu sagði land sitt ekki geta geng ið í Efnahagsbandalagið. í gær kom samhljóða yfirlýsing frá fulltrúa Ghana. Ráðherrann varpaði fram þeirri spurningu, hvernig á því stæði, að ekki væri hægt að bjóða landi hans sömu kjör og ætlunin væri að bjóða Indlandi og Pakistan. Þá lýsti hann þeirri skoðun sinni, að Afríkuríkin ættu að geta átt beinar viðræður við löndin í Efnahagsibandalag- inu. Hins vegar kvaðst hann ekki getað sagt til um end- anlega afstöðu lands síns til aukaaðildar, fyrr en samn- ingi Breta við bandalagsrík- in væri lokið. Sir Roy Welensky, frá Mið - Afríkuríkjasambandinu, sagðist styðja aðild Breta að Efnahagsbandalaginu. Kæmu þar bæði til sjónarmið efna- hagslegs og stjórnmálalegs eðlis. Hann lýsti því ennfrem ur yfir, að ef af aðild Breta að EBE yrði, þá myndu lönd þau, sem hann.er fulltrúi fyr- ir, sækja um aukaaðild að bandalaginu. Welensky sagði einnig, að hann gæti ekki fallizt á þá skoðun, að efnahagslegt sam- starf á þeim grundvelli, sem nú væri fyrirhugað, fæli í sér nýlenduveldi. Hann sagði það vera skoðun sína, að lönd Afríku gætu vel átt viðskipti við þau lönd, sem lengst væru á veg komin, og þegið frá þeim aðstoð, því að efnahagslegur styrkur væri versti óvinur kommúnism- ans. Makarios, erkibiskup, áleit, að aðild Breta að EBE myndi mjög draga úr styrk og sam- stöðu innan Samveldisins. Hann kvaðst ekki reiðubú- inn að ræða einstök vanda- mál, sem Kýpur þyrfti að leysa, ef af aðild Breta yrði, þar sem umræður við Breta um útflutning Kýpur hefðu ekki farið fram, enn sem kom ið er. Hins vegar taldi hann verzlunarmöguleika Kýpur í hættu, ef samstaða innan Sam veldisins veiktist. Forsætisráðherra Tangany- ika, Rashudi Kawawa, sagði að land hans gæti ekki fall- izt á að gerast aukaaðili banda lagsins. Hann kvaðst einnig hafa leyfi til að mæla fyrir munn Uganda og Kenya, því að aðild að EBE myndi tá'kna endalok Efnahagsbandalags Afríku. Þá taldi hann hlutleys isstefnu Tanganyika ekki leyfa aðild að bandalaginu. Þótt Kawawa gæti ekki talið sig fylgjandi stjórn- málasamstarfi, er leiða kynni af inngöngu í bandalagið, þá sagði hann land sitt óska eft- ir nánari viðskiptum við EBE. Varaforsætisráðherra Mal- aya, Tun Abdul Razak, taldi ekkert á móti aðild Breta að hafa, svo framarlega, sem efnahagslegt og stjórnmálalegt hlutverk Breta í Samveldinu yrði ekki minna, ef af aðild þeirra yrði. John Diefenbaker, forsætis ráðherra Kanada, sagði í ræðu sinni í dag, að Kanada væri mjög fylgjandi auknum verzlunarviðskiptum vest- rænna landa. Kvað hann það gleðja sig, að Bandaríkja- menn hefðu nú sýnt áhuga á því að leita samninga við Efnahagsbandalagið. Sagði hann Kanadamenn reiðubúna að leggja mikið á sig til að koma á auknu samstarfi við öll vestræn ríki, þróuð sem vanþróuð. Þá var skýrt frá því í dag, í Briissel, að ákveðið hefði ver ið að næstu umræður um að- ild Breta og Dana myndu fara fram í lok þessa mán- aðar. — Iþróttir Framhald af bls. 22. 29.02.6. 6. Ivanov Rússl. 29.04.8. 1 kúluvarpi kvenna urðu úrslit þessi: EM-meist. Tamara Press Rússl. 18.55. 2. Garisch Þýzkal. 117.17. 3. Zybina Rústsl. 16.95. 4. Huebner Þýzkal. 15.97. 5. Hof- man Þýzkal. 15.72. 6. Salageam Rúmeníu 15 26. Þá var keppt í 400 m grindhl. undanrásir og beztum tíma náði Janz 51.0 og Van Praagh Frakkl. 51.1. Undankeppni í kringlukasti fór fram. Pitowski Póll. kastaði lengst 54.72 m Kampameets Rússl. 53.96. 52.50 þurfti til að komast í úrslit og vera meðal 12 fyrstu og flestir beztu köstuðu aðeins einu sinni. Meðal þeirra sem voru slegnir út er Norð- maðurinn Stein Haugen sem þeir höfðu bundíð hvað mestar vonir við af sínum mönnum. Hann kastaði 52.52 m og var 14. í röð- inni. Vonbrigði það. Sá 12. var með 52.77. Loks var keppt í 100 m hlaupi kvenna undanrásum og 400 m hlaupi karla undanrásum. Bezt- um tíma náði Brightwell Eng- landi 46.6. Ekkert óvænt skeði í þessum undanrásum. 18 menn eru eftir í hlaupinu. Djakarta, 12. september, NTB. Herdómstóll i Djakarta dæmdi í dag 6 menn til dauða fyrir að hafa sýnt Sukarno, Indónesíuforseta, banatilræði, 14. maí sl. Meðal hinna dauða dæmdu er Kartosuwirje, for- ingi múhameðskra ofstækis- maiuta. — Umfes'bak.önnun Framhald af bls. 24. eitt spjald en ekkert. Er þeim tilmælum því beint til allra hlut- aðeigandi, að gera sitt bezta í dag. Þegar öll spjöld verða komin til skila, verður dregið úr þeim sem rétt eru útfyllt fyrir báða dagana og verða þá veitt verð- laun fyrir þátttökuna, eins og áður hefur verið skýrt frá. Eru það 10. þús. krónur, sem Um- ferðarnefnd hefur lagt til, og fimm þúsund frá Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda, sem álítur það mikið hagsmunamál fyrir alla bifreiðastjóra að könnunin tak- ist sem bezt. Mannað geimfar til tunglsins innan 10 ára, — segir Kennedy, Bandaríkjaforseti Houston, Texas, 12. sept. — NTB-AP — í R Æ Ð U , sem Kennedy, Bandaríkjaforseti, flutti hér í dag, sagði hann, að innan 10 ára myndu Bandaríkja- mcnn hafa sent mannað geimfar til tunglsins og náð því aftur til jarðar. Forset- inn lýsti því yfir, að mikil á- lierzla yrði lögð á allan und- irbúning að þessu geimskoti, því að það væri þýðingar- mikið fyrir Bandaríkin að gcgna forystuhlutverki á sviði geimvísinda. Forsetinn sagði ennfremur, að nú sem stæði, væru Rússar á undan Bandaríkjamönnum í þessu efni. Því yrðu Banda- ríkjamenn að leggja hart að sér í þessu efni. Þá vék forsetinn að því, að nú sem stæði, gæti enginn sagt til um það, hvort geimrannsóknir myndu leiða til friðsamlegrar notkunar geimsins. Ef Banda- ríkjamenn tækju forystuna í þessum málum, þá væri hins vegar stórt skref stigið í þá átt, að svo mætti verða. Kennedy vék að því, að af þeim 45 gervihnöttum, sem nú eru á braut umhverfis jörðu, væru 40 bandarískir. Sagði forsetinn, að „Mariner 2“, sem nú er á leið til Venusar, væri mesta framlag til geim- rannsókna til þessa. Forsetinn er á eftirlitsferð í Texas um þessar mundir, og kynnir sér m. a. herstöðvar. Happdrætti Krabbameins- félagsins DREGIÐ var nýlega í happdrætti Krabbameinsfélagsins og' komu upp þessi númer: 13524 Land-Rover . 15515 Hjólhýsi 7962 Hjólhýsi Tveir menn hafa gefið sig fram, sem eigendur að hjólhýsun- um, þeir Hjörtur Hjartarson prentari í Kópavogi og Jóhann Helgason starfsmaður hjá Stræt- isvögnum Reykjavíkur. Sá sem vann Land Roverinn hefur hins vegar ekki gefið sig fram enn. Óvenjulegt mál fyrir Mannréttindadómstól Er skylduvinna læknis, sem ekki hefux þegið styrk frd ríkinu, brot á mannréttindum? Osló, 12. september — NTB. ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Mann- réttindadómstóll Evrópu fjalli á þessu hausti um mál norsks tann- læknis, Stein Andreas Iversen. — Telur Iversen, að félagsmála- ráðuneytið norska hafi brotið á sér lög, er það skipaði honum að innan af hendi þjónustu í Moskenes, en henni gegndi hann um árs skcið, fram til 31. maí 1961. Samkvæmt skipun ráðu- neytisins varð hann einnig að starfa í ár á öðrum stað í Noregi. Forsaga málsins er sú, að Iversen tók stúdentspróf 1953. Að því loknu sótti hann um að fá að nema við tannlæknaháskól- ann í Noregi, en var ekki tekinn í hann. f þeirri umsókn, sem þá var hafnað, hafði hann beiðzt þess að fá ieyfi til að nema er- lendis, en því var neitað, og borið við, að próf hans hefði verið of lélegt. Þá hélt Iversen til Þýzkalands fyrir eigin reikning og 1957 lauk hann prófi frá háskólanum í Dússeldorf. Próf þaðan veitir sömu réttindi í Noregi og norskt tannlæknapróf, enda hafa fleiri norskir tannlæknar numið þar. Þar sem Iversen hefur aldrei þegið neinn styrk frá norska rík- inu, — og þar af leiðandi aldrei ritað undir neina skuldbindingu um að starfa í Noregi, á vegum hins opinbera, þá telur hann skipun ráðuneytisins ekki hafa við lög að styðjast. Að loknu námi gegndi Iversen herskyldu, eins og tilskilið er. Strax og hsnni lauk, krafðist fé- lagsmálaráðuneytið þess, að hann tæki til við „skyldustörf“ fyrir norska ríkið. Iversen neitaði þessu og sendi mótmæli, en þeim var visað á oug. Málið hefur nú aftur komið S dagskrá, og er það Johan Hjort, hæstaréttarlögmaður, sem rekur málið fyrir Iversen. Telur lög- fræðingurinn, að lög þau, er mæla fyrir um slík skyldustörf í þágu ríkisins, brjóti í bága við mannréttindaskrá Evrópu. Þórsmörk í haustskrúða NÚ ER Þórsmörkin að komaSt I haustskrúða, en að haustinu er mikil litadýrð þar innfrá. Ferða félagið ætlar því að efna til helgarferðar þangað inn eftir næstkomandi laugardag. Verður farið kl. 2 á laugardag og komið aftur á sunnudagskvöld. Þ" efnir Ferðafélagið til göngu ferðar á Esju á sunnudag og verð ur farið frá Austurvelli kl. 9 og farseðlar seldir við bílana. Ferð á Tinda- fjallajökul GUÐMUNDUR Jónasson, fjalla- bilstjóri hefur undanfarin ár efnt til helgarferða á haustinu inn á hálendið, enda reynsla margra reyndra ferðamanna að haust- ferðir taki fram ferðum um ann- an árstíma og fer aðsókn að þeim vaxand). Nú um næstu helgi fer hann á Tindafjallajökul. Á að leggja af stað kl. 2 á laugar- dag og aka alla leið upp að skála Fjallamanna. Á sunnudaginn verður gengið á jökulinn og haid- I ið heim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.