Morgunblaðið - 16.09.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.09.1962, Blaðsíða 5
, Sunnudagur 16. sept. 1962 íuortcTJNnr. aðið 5 LJÓÐ dagsins velur að L þessu sinni Jóhann Haf- stein. Um val sitt segir hann: ÉG HEF valið „Fákar“ eftir Einar Benediktsson vegna þess að mér hefur svo oft fundizt ég vera kominn á bak sönn- um gæðingi í góðra vina hópi, þegar ég hef lesið kvæðið eða heyrt með það farið. Það lyftir, bætir og hressir. f morgunljómann er lagt af stað. Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð. Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað, ]>ar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð. — Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með. Betra á dauðlegi heimurinn eigi. — Brúnirnar þyngjast, þeir harðna á hvarm. Það hrökkva af augunum neista-él. Biðullinn þyrpist með arm við arm. Það urgar í jöxlum við bitul og mél. Þeir stytta sporin. Þeir stappa hófum og strjúka tauma úr Iófum og glófum. I Höfuðin lyftast. Hin lifandi vél I logar af fjöri undir söðulsins þófum. i Nú hrífur eðlið hvern hlaupagamm. Hófblökin dynja fastar á vang. Sveitin, hún hljóðnar og hallast fram. Hringmakkar reisa sig upp í fang. Það hvín gegnum nasir og hreggsnarpar granir. Nú herðir og treystir á nágrana þanir. Það þarf ekki að reyna gæðingsins gang, þeir grípa til stökksins með fjúkandi manir. Það er stormur og frelsi í faxins hvin, sem fellir af brjóstinu dægursins ok. Jörðin, hún hlakkar af hófadyn. Sem hverfandi sorg, er jóreyksins fok. Lognmóðan verður að fallandi fljóti; allt flýr að baki í hrapandi róti. Hvert si>or er sem flug gegnum foss eða rok, sem slær funa í hjartað og neista úr grjóti. Maður og hestur þeir eru eitt fyrir utan hinn skammsýna markaða baug. Þar finnst, hvernig æðum alls fjörs er veitt úr farvegi einum, frá sömu taug. Þeir eru báðir með eilífum sálum, þó andann þeir lofi á tveimur málum, — og saman þeir teygja í loftsins laug lífdrykk af morgunsins gullroðnu skálum. Hesturinn, skaparans meistaramynd, er mátturinn steyptur í hold og blóð, — sá sami, sem bærir vog og vind og vakir í listanna heilögu glóð. — Mundin, sem hvílir á meitli og skafti, mannsandans draumur í orðsins hafti, — augans leit gegnum litanna sjóð, — allt er lífsins þrá eftir hreyfing og krafti. Sá drekkur hvern gleðinnar dropa í grunn, sem dansar á fákspori yfir grund. í mannsbarminn streymir sem aðfalls-unn af afli hestsins og göfugu lund. Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. _ Og knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann riki og álfur. — Ef innl er þröngt, tak hnakk þinn og hest og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er bezt. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl, sem ei þaggast. ei lund, sem ei kætist við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. (Einar Benediktsson). Orð lefsins Jörðin viknar og kiknar, heimur bliknar og kiknar, tignarmenni lýðs- ins á jörðu blikna, jörðin vanhelg- ast undir fótum þeirra, er á henni búa, því að þeir hafa brotið lögin, brjálað boðorðunum og rofið sátt- málann eilífa. t>ess vegna eyðir bölv- un jörðinni, og íbúar hennar gjalda, þess vegna farast íbúar hennar af hita, svo að fátt mannna er eftir orðið. Jes. 24. 4-6. ] Flugfélag íslands: Millilandaflug — Millilandaflugvélin Hrímfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntanleg aftur til Reykja vífcur kl. 22:40 í kvöld. Flugvélin fer til Oslo og Kaupmannahafnar kl. 10:30 í fyrramálið. Millilandaflugvél- in Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið. Innanlandsf lug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Húsavíkur, ígafjjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun: er áætlað eð fljúga til Akureyrar (3 ferðir), Eg- ilsstaða, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar ísafjarðar, Kópaskers, Vesmannaeyja (2 ferðir) og Þórshafnar. ' ^>nar fiarveiandi Arinbjörn Kolbeinsson til 24/9 (Bjarni Konráðsson). Bjarni Bjarnason frá 17/9 um ó- ákveðinn tíma (Alfreð Gíslason), Bjarni Jónsson til septemberloka). (Björn t>. Þórðarson). Bergsveinn Ólafsson um óákveðinn tíma (Pétur Traustason augnlæknir, Þórður Þórðarson heimilislæknir). Björn Guðbrandsson til 1 okt. (Úlf- ar Þórðarson). Gunnlaugur Snædal frá 20/8 í mánuð. Hannes Þórarinsson til 3 okt. (Ragn ar Arinbjarnar). Karl S. Jónasson óákveðið. (Ólafur Helgason). Kristján Þorvarðsson til 25/9. (Ófeig ur Ofeigsson). Kristjana Helgadóttir til 15. okt. Staðg.: Einar Helgason Klapparstíg 25. Viðtalstími 10-11, sími 11228, vitj- ana beiðnir í sama sima. Kristín Jónsdóttir til 1 okt. (Ólaf- ur Jónsson). Stefán Bogason 27/8 til 27/9. (Jón Hannesson). Sveinn Péturson um óákveðinn tíma. (Úlfar Þórðarson). Valtýr Albertsson til 25/9. Pennavinir íri, 19 ára gamall, sem safnar fri- merkjum og póstkortum, hefur á- huga á að eignast íslenzkan penna- vin. Heimilisfangið er: Seamus O. Reachtagain 4 Bothar Na Beithe de Sraid Corcaighe, Ðaile Atha Cliath Eire (Ireland). Tvær enskar stúlkur 13 og 14 ára óska eftir að komast í bréfasamband við íslenzka jafnaldra sína. Heimilisföngin eru: Jean Arnold 113 Lutterworth Rd., Worthampton, England. og Helen Burrows 2, Briton Road, W orthamp ton, EngJand. Norskur drengur óskar eftir að komast í bréfasamband við 11—13 ára íslenzkan dreng. Áhugamál hans eru íþróttir, frímerki og blaðatitlar. Heimilisfangið er: Bernhard Sandvik, Stenberget 16, Trondheim, Norge. Tvær enskar stúlkur óska eftir að komast 1 bréfasambönd við íslend- inga. Heimilisföngin eru: Barbara Edmunds, La Trinita 19, Stanmore, London, England. og Christine Barnes 53B Baskett, Road London W 10 England. Nokkrir ítalskir háskólastúdentar, sem leggja stund á verkfræði, hag- fræði, tungumál og sálfræði óska eftir að komast í samband við ís- lenzkar stúlkur. Heimilistfang eins þeirra (sem gefur upplýsingar um hina) er Edoardo Politano 28 Corso Matteotti Torino, Italy. Enskur piltur, 17 ára gamall vill skrifast á við íslenzkan jafnaldra sinn. Áhugamál hans eru: Tónlist, bækur, stjórnmál, tennis og sund. Heimilsifangið er: Christopher Maudsley, 36 Hollingbourne Road, Norris Green, Liverpool 11, England. Tvítugur Portúgali óskar eftir að skrifast á við íslenzka stúlku. Heimiiisfangið er: José Baltazar Fava Rica, R. Fialho de Almeida 32-50 Esq., Lisaboa 1, Portugal. Skrifstofustúlka Dugleg stúlka, 20—30 ára gömul getur fengið at- vinnu hjá þekktu fyrirtæki, við venjuleg skrif- stofustörf. Tilboð, er tilgreini: aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Morgunblaðsins auðkennt: „20—30 — 7834“. Teiinur yCar þarfnast daelegrar umhirðu RED WHITE TANN- KREM fulinægir öllum þörfum yðai á því sviði. RED WHITK er bragðgott og friskandi og inniheldur A 4 og sr um fram allt mjög ódyrt. Heildv. Kr. Ó. Skagfjörð h.f. S>mi: 2 41 20. IAUGARDALSVÖLLDR í DAG K L. 4 LEIKA KR. - FRAM til úrslita í Reykjavíkurmótinu. Framlengt verður, ef með þarf. Tvítugur Svíi, sem hefur komið til íslands og hefur áhuga á landinu, tónlist og íþróttum, vill komast í bréfasamband við íslenzka stúlku. Heimilistfangið er: Anders G. Carlsson N. Parkgatan 3, Vánnás, Sweden. 11 ára gömul dönsk stúlka ósk- ar eftir að skrifast á við íslenzka jafnöldru sína. Áhugamál hennar eru: frímerki, bækur og ballett. Heimilisfangið er: Marianne Br^rup c/o Nielsen, Fuglegárdsvænget 88 Gentofte, Danmark. Ungur tékkneskur jazzunnandi ósk- ar eftir að komast í bréfasamband við íslenzka jazzunnendur. Heimilisrfang- ið er: Milan Cadek, 3, Konevova 2456, Praha, Czechoslovakia. + Gengið + 23. ágúst 1962. Kaup Sala 1 Enskt pund 120,38 120,68 1 Bandankjadollar 42,9P 43,06 1 Kanadadollar .... .... 39,85 39,96 100 Danskar krónur .... 620,21 621,81 100 Norskar krónur .... 600,76 602,30 100 Sænskar krónur .... 833,43 835,58 100 Pesetar 716,0 100 Finnsk mörk ... 13,37 13,40 :oo Franskir xr. > .... 876,40 878,64 100 Belffisk:- fr .... 86,28 86,50 100 Svissnesk. frankar ....994,46 997,01 100 V-þýzk mörk .... 1.074,28 1.077,04 100 Tékkn. c »4ur .... .... 596,40 598,00 Enginn nema heigullinn gortar af því, að hann hafi aldrei verið hrædd- ur. — M. Lannes Hugrekki felst ekki í því að loka augunum fyrir hættunni, heldur hinu að horfast í augu við hana og vinna bug á henni. — Richter Komdu öllu í lag hið innra, og hið ytra kemur af sjálfu sér. — Haweis 8TÍLKA óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. MbL fyrir 18. þ.m. merkt: „Skóverzlun — 7863“. INGÓLFSCAFÉ | BIIMGÓ í dag kl. 3 MEfiAL VINNINGA: 19 Teborð — Stálborðbúnaður • Hárþurrka — Standlampi o. fl. ____Borðpantanir í síma 12826.__ INGÓLFSCAFÉ Gömlu dansarnir í kvöid ki. 9. Hljómsveit Garðars leikur. Dansstjóri: Sigurður Runólfsson. BoSrapantanir í síma 12826. SILFURTUNCLID Gömlu dansarnir í kvöld Hljómsveit M&gnúsar Randrup. Stjórnandi: Ólatur Ólafsson. Húsið opnssð kl 7. — Sími 19611. Ókeypis aðgangur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.