Morgunblaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 5
< Laugardagur 22. sept. 1962 MORGIJIVBIAÐIÐ 5 í SÍÐASTLIÐINNI viku voru afhent prófskírteini þeim, er lulku sveinsprófi í húsasmíði frá ISnskólanum hér í Reykja vilk á síðastliðnu vori. Út- skrifuðust um 30 sveinar og hlaut einn þeirra hæ’Stu eink- unn, sem tekin hefur verið við skólann í þeirri grein. Br það Björn Traustason frá Hörigs- hóli í Vestur-Húnavatnssýslu og hlaut hann ágætis einkunn- ina 9,25. Blaðamaður Mbl. óskaði Birni til hamingju með prófið í fyrradag og ræddi við hann stundarkorn. — Hvert var prófstykkið þitt, Björn? — Það var hluti af eldhús- innréttingu, tveir skápar með hurðum ag fimm Skúffur á milli þeirra. Ég lét það af hendi í eldlhús norður í Grund í Húnavatnssýslu. — Hver var meistari þinn? — Hann heitir Guðbjörn Guðimundsson Glaðheimum 20, og ég byrjaði hjá honum í júní 1958. — Hafðir þú smíðað eitt- hvað áður? — Já, ég lærði smíði í Reyikjanesskóla við ísafjarð- ardjúp, þar sem ég var í 1. og 2. beklk gagnfræðasikóla. Á vorprófi 2. bekkjar fékk ég 10 í smíði, og veturinn eftir vann ég fyrir mér með því að kenna smíði við skólann. — Reykjanesskóli er mjöig góður skóli, sagði Björn. og ekki sízt fyrir þá, sem ætla íbúð Til leigu er 3ja herb. íbúð 90 ferm. rishæð í Háloga- landshverfi. Tilboð send- ist afgr. Mbl., merkt: Fyrirframgreiðsla - 3386“ fyrir þriðjudag. Systkini óska eftir 2ja—3ja herb. ibúð. Uppl. í sima 23572. Björn Traustason með sveins bréfið. Reykjavíkur að þessu sinni. Þá hef ég með búskapnum í sumar unnið dálítið að heima- vistarbyggingu við Reylkjæ nesskóla og þangað er ég að fara núna seinna í dag. Þessi Hluut hæstu einkunn, sem fengizt hefur í húsusmíði að halda áfram iðnnámi. í smíði er aðaláherzlan löigð á að læra að brýna verkfærin og kenna að beita þeim rétt, en það er auðvitað fyrsta skil- yrðið til þess, að menn geti síðar smíðað eitthvað. — Hvað starfar þú núna? — Ég tók við búi af föður mínum á Hörgshóli síðastlið- ið vor, og þar ætla ég að vera næstu 2 til 3 árin. Síðustu dag ana hef ég verið í göngum og réttum fyrir norðan og ég kom bara í snögga ferð til heimavistarbygging er byggð á vegum Guðbjörns, meistara míns. Hún er 300 fermetrar að stærð og var byrjað á henni fyrir rúmum 3 mánuðum, og hefur hún gengið sérlega vel. Er ætlunin, að hún verði til- búin til notlcunar 15. október næstkomandi. — Líkar þér vel að geta stundað búskapinn og iðnina jöfnum höndum? — Já, það gefur góða fjöl- breytni. Annars gerði ég þetta fyrst og fremst til þess að aðstoða föður minn, sem er orðinn heilsulítill, og hjálpa foreldrum mínum með syst- kinin. Áttu mörg systkini? Já, við erunx 9 talsins, og ég er elztur. — Hverjir eru foreldrar þínir. — Faðir minn heitir Trausti SigurjónssLn og móðir mín Sig ríður Sigfúsdóttir. — Hvað hyggstu gera, þeg ar þú hættir búskap. — Mig langar til þess að fara til Svíþjóðar eða Dan- merkur og læra iðnfræði. Það myndi taka mig 25 mánuði en það er ekki alveg ákveðið ennþá. — Vissirðu, að þú yrðir hæstur á prófinu? — Nei, ég hafði enga hug- mynd um það og fannst það alveg útrúlegt. þegar Guð- mundur Halldórsson formaður prófnefndar rétti mér skír- teinið og sagði mér úrslitin. Gullbrúðkaup áttu í gær hjón- in Lovísa Sigurðardóttir og Björn Jósefsson fyrrv. héraðs- læknir á Húsavíik. Þau eru nú etödd í Reykjavík, þar sem Lo- vísa dvelst í Landsspítalanum. 65 ára er í dag Halldór Sig- urðsson fisksali Melavegi 21. 50 ára er í dag Laufey Ólafs- dóttir Laufásvegi 6. Hún verður í dag stödd að heimili sonar síns að Víðihvammi 21, Kópavogi. Síðastliðinn sunnudag voru gefin saman í hjónaband í Dóm- kirkjunni af séra Óskari J. Þor- lóíkssyni ungfrú Kristín Anna Sigurðardóttir (Sigurðar Magnús eonar fulltrúa) Miðstræti 7 og Kjartan Reynir Ólafsson stud. jur. (Ólafs Þorgrímssonar hæsta- réttarlögmanns) Víðimel 63. Nýlega hafa verið gefin sam- en í hjónaband af séra Óskari J. Þorlákssyni María Frímanns- dóttir Álfheimum 40 og Bald- ur Ólafsson gjaldkeri, Háagerði 89. Heimili þeirra verður að Hvassaleiti 22. Ennfremur ungfrú Jórunn Sörensen og Jón M. Björgvinsson skrifstofumaður. Heimili þeirra verður að Frí- kirkjuvegi 11 . Ennfremur Hallfriður Jakobs- dóttir Goðheimum 11 og Her- bert Haraldsson stúdent, Ásvalla- götu 22. Heimili þeirra er að Ásvallagötu 22. í dag verða gefin sam,an í hjónaband í Landakotskirkju ungfrú Bergljót Sveinsdóttir Lindarhvammi 11 Kópavogi og Kjartan Sigurjónsson, organleik- ari, Baugsvegi 31, Rvk. Heimili ungu hjónanna verður að Borg- arholtsbraut 21, Kópavogi. í dag verða gefin saman í hjónaband á Akranesi af séra Jóni M. Guðjónssyni Erla Ein- arsdóttir Heiðarbraut 61 og Garð ar Kjartansson. I dag verða gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Jóni Thorarensen ungfrú Hulda G. Johansen hárgreiðslukona (Thulin Johansen fulltrúa) Skaftahlíð 10 og Steindór I. Ólafs son starfsmaður Pan American flugfélagsins, Keflavíkurflug- velli, (Sveinssonar loftskeyta- manns) Dunhaga 13. Heimili þeirra verður að Baldursgötu 12. Loftleiðir: Laugardag 22. september er Snorri Sturluson væntanlegur frá New York kl. 09.00. Fer til Luxem- borgar kl. 10.30. Kemur til baka frá Luxemborg kl. 24.00. Fer til New York kl. 01.30. Snorri Þorfinnsson er væntanlegur frá New York kl. 11.00. Fer til Luxemborgar kl. 12.30. Þor- finnur karlsefni er væntanlegur frá Hamborg, Kaupmannahöfn og Gauta- borg kl. 22.00. til New York kl. 23.30. Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla er á leið til Rússlands, Askja lestar á Norðurlandshöfnum. Jöklar: Drangajökull er á leið til Ríga, Langjökull er á leið tid New York, Vatnajökull fór í gær frá Calais til Amsterdam. Flugfélag íslands — Millilandaflug: Millilandaflugvélin Gullfaxi fer til 08:00 í dag. Væntanleg aftur til Rvík. kl. 22:40 í kvöld. Flugvélin fer til Glasgow og Kaupmannahafinar kl. 08:00 í fyrramálið. Millilandaflugvél- in Hrímfaxi fer til Bergen, Oslo, Kaup í dag. Væntanleg aftur til Reykja- mannahafnar og Hamborgar kl. 10:30 víkur kl. 17:20 á morgun. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Hornafjarðar, ísafjarðar, Sauðárkróks, Skógasands og Vest- mannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils- staða, Húsavíkur, ísafjarðar og Vest- mannaeyja. Skipaútgerð ríkisins: Hekla kom til Amsterdam í morgun, Egja er á Vest- fjörðum á norðurleið, Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21.00 í kvöld til Reykjavíkur, Þyrill fór frá Reykja- vík í gær til Norðurlandshafna, Skjald breið er í Reykjavík, Herðubreið fór frá Reykjavík í gær austur um land í hringferð. Eimskipafélag íslands: Brúarfoss fer frá Reykjavík kl. 12.00 í dag til Dubl- in og New York, Dettifoss er á leið til New York, Fjallfoss er í Kotka, Goðafoss fer frá New York í dag til Charleston, Gullfoss fer frá Reykja- vík kl. 15.00 í dag til Leith og Kaup- mannahafnar, Lagarfoss er á leið til Reykjavíkur, Reykjafoss er á leið til Raufarhafnar og Húsavíkur, Sel- foss fer frá Reykjavík kl. 17.00 í dag til Rotterdam og Hamborgar, Trölla- foss er 1 Reykjavík Tungufoss fer í dag frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Hafskip: Laxá fór frá Akranesi 20. þ.m. til Stornewav, Rangá er á leið Reykjavíkur. Tvær stúlkur í föstum stöðum óska eftir góðri 2—3 herbergja íbúð. Upplýsingar í sima 37747 eftir kl. 13 á laugardag. Til sölu: Westinghouse ísskápur, — svefnherbergissett, stórt rúm með springdínu og 2 kommóður. UppL Drápu- hlíð 36, rishæð. Unglingsstúlka óskast í létta vist. Uppl. í sima 33866. Vantar 2—3 herbergja íbúð í Mið bænum. Mikil fyrirfram greiðsla, ef óskað er. — Uppl. í síma 10065. Píanokennsla Ingibjörg Benediktsdóttir, Vesturbraut 6, Hafnar- firði. — Sími 50190. Tilboð óskast í Skoda ’56 sendibifreið með bilaða vél. Tiliboð sendist afgr. blaðsins, merkt: „Skoda — 3382“. Til sölu útidyrahurð með karmi og læsingum. Sími 15308 kl. 17—20. Flugmaður óskar eftir 3—4 herb. ,búð Fyrirframgreiðsla og góð umgengni. Uppl. í síma 1-49-85 næstu daga. Ung hjón óska eftir 1—3 herb. íbúð frá 1. okt. Uppl. í síma 33920 eftir kl. 2. Ráðskona óskast 1. október. Lítið heimili. Öll þægindi. Tilb., merkt: Október — 3387“ sendist Mbl. fyrir 26. þ. m. Verkamenn vaniar Upplýsingar í síma 36177 og 33443. Stúlku vantar til afgreiðslustarfa 1. október. Sveinsbakarí Bræðraborgarstíg 1. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Grensásbakarí Grensásvegi 26. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Setjarar ! Mann í handsetningu og umbrot, vantar okkur. Vikingsprent Hverfisgötu 78 — Sími 12864. Skoda 7956 Tilboð óskast í ákeyrðan Skoda Oktavia árgerð 1956, sem er til sýnis í Vökuportinu. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð merkt „Skoda — 7933“ sendist afg- MbL fyrir 26. sept.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.