Morgunblaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.09.1962, Blaðsíða 10
MORGl WBT .4ÐID Laugardagur 22. sept. 1962 Þriggja binda verk um ísl. bókmenntir í fornðld kemur út hjá A.B. NÚ er bóksölu- og bókaút- giáíutíminn að nálgast, og prentarar og bókbindarar önn- um kafnari en nokkum annan tím-a ársins. Við gengum því á fund tveggj a bókaútgefenda til að fregna hvaða bsekur þeir væru með í undirbún- ingi: ★ Alemn nabóka'élagið hefur þá sérstöðu meðal útgefenda að gefa út bækur allt árið, nema í janúarmánuði, sem sagt 11 mánaðabækur á ári. Síðan koma aukabækur, 4 bindi af ritum Gunnars G nn arssmar á þessu ári og ein gjafabók á jólum. En á veg- v. v bókaverzlunar Sigfúsar Eyinundssonar, sem er dóttur- fyrMæki þess, koma nú nokkr ar jólabækur. Á skrifstofu Almenna bóka félagsins hittum við Baldvin Tryggvason, framkvæmdastj., og Eirik Hrein Finnbogason, bókmenntaráðunaut. Við byrjuðum því að spyrja um októberbækurnar. — Þæi eru tvær, sagði Baldvin, önn- ur framlhald af bókaflokkn- um „Lönd og þjóðir“ og hitt bókin „Framtíð manns og heims“ eftir Pierre Rousseau, prófessor við Sorbonne-háskól ann. Af „Löndum o.^ þjóðum" er röðin komin að Bretlandi. Þá bók skrifar John Osborne, blaðamaður, en Jón Eyþórs- son þýðir á íslenzku. Bækurn ar sem út eru komnar, um itússland, Frakkland og Italíu hafa hlotið miklar vinsældir. Siðan verður haldið áfram, bókin um Japan og síðar Mexico koma í vetur og Ind- land 1963. „Framtíð manns og heims“ er bók sem dr. Broddi Jóhann esson flutti nokkra kafla úr í útvarpið á sl. vetri og þýðir hann bókina. Hún kemur út í heild og með kortum og skýr ingarmyndum. Aðrar þrjár bækur eru að koma út hjá okkur í haust. Er þá fyrst að telja bók- menntasögu eftir Einar Ól. Sveinsson, er nefnist „íslenzk ar bókmenntir í fornöld", og kemur fyrsta bindið af þrem- ur út núna. I því er alllang- ur inngangur og síðan kaflar um kveðskap íslendinga í fornöld og um Eddukvæðin. Þetta er stórt verk og merki- legasta rit um íslenzkar fom- bókmenntir sem komið hefur út. Mér er kunnugt um að Universitet-forlagið í Osló hefur sýnt miki in áhuga á að fá þessa bók til útgáfu. I heild verður verkið um 500 siður með mörgum myndum. Jafnstórt upplag og á Norðurlöndum Þá kemur stór og mikilbók um helztu trúarbrögð 'heims. Þessi bók kom upphaflega út á vegum Life og var unnin af yfir 100 vísindamönnum og fræðimönnum á svipaðan hátt og Heimurinn okkar. Bókin fjallar um 6 helztu trúarbrögð mannkynsins, Kristindóm, Gyðingdóm, Múhameðstrú, Búddadóm, Hindúasið og kínverska heimspeki. — Bókin ' er í stóru broti og í henni um 400 myndir, helmingur í litum. Mikill fjöldi myndanna eru eftir- prentanir af málverkum, svo bókin er einnig sennilega mesta safn erlendra lista- verka, sem gefið hefur verið út á íslandi. Biskupinn yfir íslandi, herrr Sigurbjöm Ein arsson, þýðir bókina. Þessi bók er gefin út í samvinnu við hin Norðurlöndin, myndir prentaðar erlendis, en texti og bókband unnið hér. Það má kannski geta þess, að upp lagið hér hjá okkur er svipað og í hverju hinna Norður- landanna. Samkvæmt þeirri reynslu, er við höfum fengið í sambandi við „Heimurinn okkar“, sem er uppseld og „Frumstæðar þjóðir", sem að- eins eru eftir 200—300 eintök af, þá teljum við að við þurf- um þetta stórt upplag. Þetta eru nóvemberbækur og eiginlega jólabækurnar. En að auki gefum við eins og venjulega jólabók þeim fé- lagsmönnum, sem keypt hafa 6 bækur og fleiri á árinu. I ár kemur út bókin „Galdra- málin í Tisted" sem er skýrsla er Árni Magnúss. safnaði. Hún kom fyrst út um 1700 í Dan- mörku og vakti geysilega at- hygli, þar eð hún var það fyrsta, sem talað var gegn galdraofsóknum á prenti. — Þessi bók hefur aldrei komið út á íslandi. Andrés Björns- son þýðir. Þetta er gjafabók og verður hvergi til sölu. Skálöverk Gunnars 4500 bls. I október og nóvember koma svo tvö bindi af skáldverkum Gunnars Gunnarssonar og eru þau þá orðin 6 talsins og að- eins tvö ókomin, sem væntan lega koma út fyrri hluta næsta árs. Þá verður lokið út- gáfu þessa mikla safns, sem verður í heild um 4500 síður. I fimmta bindi eru Fóstbræð- ur og Jörð, og í því sjötta Kristur, Konungssonur og Grámann. — Hvernig er annars reynsla ykkar af því að gefa út bækur, t. d. um mitt sum- ar? Það er óvenjulegt fyrh> komulag á íslandi. — I sumar komu út hjá okkur tvær skáldsögur og Fuglabókin, og gek'k vel með þær allar. Fuglabókin kom í Grímur Hreinn Finnbogason og Baldvin Tryggvason. júnfbyrjun og gekk svo vel að áhöld eru um hvort hún endist til jóla. Vetrarbækurn- ar gengu líka vel, t. d. ævi- saga Hannesar Þorsteinssonar. Yfirleitt gefum við ekki út bækur í janúar, bó var það reynt einu sinni, þegar „Svo fcvað Tómas“ kom út, og gekk það ágætlega. — En hvaða bækur eru að fcoma út á vegum Bókaverzl. Sigfúsar Eymundssonar? — Þar eru að koma á mark aðinn fjórar bækur. Fyrst er að nefna ljóðabók eftir Pál H. Jónsson ,sem nefnist „Á 17. bekk.“ Þetta er önnur Ijóðabók Páls og hafa flest ljóðin ekki komið fyrir al- mennings sjónir fyrr. Þá er bók eftir sovézkan höfund, sem smyglað var út úr Ráðstjórnarríkjunum, á- samt fleiri handritum, og gef- in er út undir höfundarnafn- inu Abram Tertz. Bókin hef- ur verið þýtt á flest Vestu -- Bvróputungumál og nefnist á íslenzku „Réttur er settur". Þetta er nýtizkuleg skáldsaga, sem sver sig mjög í ætt við sögur yngri kynslóðarinnar. Þýðandi er Jökull Jakobsson. Önnur þýdd bók er ensk skáld saga, sem á frummálinu heit- ir „When the .dssing had to stop“, en ekki hefur verið gef ið nafn á íslenzku ennbá. — Þetta er ástarsaga með ívöfðu stjórnmálatafli nútámans. — Hersteinn Pálsson þýðir. Og fjórða bókin, sem út kemur á þessu ári, er úrval úr greinum og ritgerðum Snæ bjarnar Jónssonar, bóksala, gefin út í tilefni af 7C ára af- mæli hans á þessu ári. Finn- ur Sigmundsson hefur annazt valið í hana í samráði við höfundinn. — Að lökum, tafði prentara verkfallið útgáfuna hjá ykk- ur? — Já, það tafði útgáfuna á Bretlandsbókinni og Framtíð manns og heims. Þær áttu að koma um mánaðamótin, en tefjast óhjákvæmilega eitt- hvað. Nýtt læknatal og lögfræðingatal i undirbúningi hja Isafold Pétur Ólafsson. Pétur Ólafsson, forstjóri í ísafold var á förum til Þýzka- lands og önnum kafinn við ýmiss konar útréttingar dag- inn áður. Þó tókst okkur að ná stuttu samtali. — Við í ísafold byrjum að undirbúa útgáfubækurnar í janúarmánuðj og auðvitað er unnið að þeim allt árið. En það þýðir ekki að gefa út bækur nema í nokkrar vifcur fyrir jólin, sagði Pétur. Að- albókasalan er reyndar þrjá síðustu mánuði ársins, kennslubækur í október og aðrar bækur seint í nóvem- ber og desember. En betta er ekki aðeins íslenzkt fyrir- brigði. Eg las t .d. í ensku bókmenntatímariti fyrir nokkr um árum grein, þar sem var fundið að þessu og sagt að fyrir nökkrum árum hefðu jólabækurnar komið sex vik- um fyrir jól á markaðinn í Englandi, en nú þremur vik- um. Og sama þróun er hér. Við elda Indlands stærsta jólabókin Við inntum eftir bví hvaða bókum væri helzt von á hjá ísafold á næstunni. Ein stærsta bókin, sem kem ur út nú fyrir j ólin verður „Við elda Indlands“ eftir Sig. A. Magnússon, blaðamann, en hann dvaldist í fyrra á Ind- landi. Þetta er 300 síðna bók með 40 myndasíðum. Guð- mundur Daníelsson verður með eina af sínum samtals- bókum, viðtöl við fólk á Suð- urlandi. Nefnist hún „Verka- menn í Víngarði“ og er nokk- urs konar framihald af „I húsi náungans“. Einnig er að koma nýtt smásagnasafn eftir Guð- mund L. Friðfinnsson. Og Þorbjörn Björnsson frá Geita- skarði skrifar þætti, sem koma út í bók er nefnist „Að kvöldi“. AÆ þýddum bókum eru vafalaust merkastar bók eftir Friðlþjóf Nansen, kafli úr „Fram over Polhavet“, þar sem. sagt er frá því er þeir Nansen og Johannssen voru 15 mánuði á ís í Norðurhöf- um, og einnig finnsk skáld- saga eftir Evu Jenpeltun, sem er þekktur kvenrithöfundur í sínu landi. Bókin heitir „Mær in gekk á vatninu." O'f langt yrði að telja upp allar þær bækur, sem ísafold er með í undirbúningí en þær sem eru að koma út í þessum mánuði, eru: „Studia Cent- enalia“, minningarrit um Benedi'kt S. Þórarinsson með greinum um hann eftir 11 kunna íslenzka og erlenda fræðimenn. Einnig lítið rit sem heitir „Varnarræða Björns Jónssonar ráðherra", Framhald á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.