Morgunblaðið - 23.09.1962, Page 4

Morgunblaðið - 23.09.1962, Page 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 23. sept. 1962 Smávegis um sambúð kirkju og kommúnisma r* ># ■ eftir ölaf Olafsson krlstniboða HVERNIG kristinni kirkju hef- ur farnazt í löndum með komm- únískt stjórnarfar, er óefað við- kvæmt mál. Að minnsta kosti hefur reynzt erfiðleikum bundið að fá heildaryfirlit um það. Brezkur maður, John Law- rence að nafni, hefur reynt að bæta úr því, enda haft til þess skilyrði öðrum fremur. Hann var í nokkur ár fréttafulltrúi í brezka sendiráðinu í Moskvu. Hann hefur farið austur þang- að mörgum sinnum. Nýlega gaf • hann út Sögu Rússlands, og hef- ur fengið lof fyrir. Hann er einn ig kunnugur vel þeim þjóðum, er fylgja Ráðstjórnarríkjunum að málum. í þessu greinarkorni er stuðst við greinar eftir hann, en þær eru óhlutdrægar og byggjast á persónulegri þekkingu og reynslu. Fullur þriðjungur mannkyns- ins hefur um árabil búið við kommúnískt stjórnarfar, sem sé i Kína, í Rússlandi og fylgiríkj- um þess. Að sjálfsögðu eru að- stæður breytilegar og viðhorf ólík í jafn óhemjulega stórum ríkjum. Þannig hafa kommún- istar farið með völd í Rússlandi í fjörutíu ár, en í flestum hin- um landanna miklu skemur. Eins og alkunna er hefur af- staða stjórnarvalda Rússlands til trúarbragða yfirleitt, og þó eink um til kristinnar kirkju, þrá- faldlega breytzt. Svo mjög hefur kveðið að á- hrifum kirkjunnar í þjóðiífi Rússa og Pólverja, á liðnum tímum, að hann hafa engar rík- isstjórnir getað sniðgengið með öllu, eða látið afskiptalausa og farið sínu fram eins og hún væri ekki til. Allt öðru máli gegnir um Kína. Þar eru kristnir menn svo veigalítill minnihluti, að hugs- anlegt var að kirkjan yrði lát- in í friði, ríkisstjórnin sýndi henni svipað afskiptaleysi og öðrum minniháttar samfélögum. Reyndin varð allt önnur. Svo margt sögulegt gerðist í sam- bandi við það, að frá því verð- ur að segja sér i lagi. Rétttrúnaðarkirkjan (orþó- doksa) í Rússlandi hefur notið þess hve þjóðleg hún er, yfir- völdunum mjög að skapi. Mótmælendakirkjan í Austur- Þýzkalandi er látin gjalda þess hve þjóðleg hún er. Á hana er litið sem fulltrúa þýzkrar þjóð- rækni og óttast að afleiðing þess geti orðið sú, að hún hallist á- kveðið að sameiningu Þýzka- lands. En það hefði óhjákvæmi- lega valdamissi kommúnista í för með sér. Sem stendur þyk- ir ekki hyggilegt að grípa til opinberra ofsókna gegn kirkj- unni. Hins vegar stafar henr.i hin mesta hætta af myrgvísleg- um mótaðgerðum kommúnista henni til tjóns. í bæ einum með um 30 þús. íbúum fækkaði kirkjulegum barnaskírnum á níu árum úr þrem hundruðum niður í sextíu, en giftingum úr 350 niður í tuttugu. Fermingum fækkaði hlutfallslega meira á sama tíma. Svo mjög hafa borg- aralegar athafnir kommúnista unnið á. Rómversk-kaþólska kirkjan er þó miklu óvinsælli í löndum kommúnista en evangeliska kirkjan eða mótmælendur. Því veldur ófrávíkjanleg og opinská andspyrna páfastólsins gegn kommúnisma og ennfremur, að kirkjan er rígskorðuð alþjóðleg stofnun. Mótmælendakirkjan er, bæði í Kína og Austur-Evrópu, undir sterkum grun um að vera vin- veitt Bandaríkjunum. Hin forna þjóðkirkja Arm- ena hefur haft hag af að hún er í nánum tengslum við arm- enska þjóðræknishreyfingu ut- an Rússlands. Af öllum minni- hlutaþjóðflokkum Ráðstjórnar- ríkjanna, hafa Armenar notið mestra vinsælda. Kirkja þeirra hefur haft vissa þýðingu fyrir utanríkismálin, vegna áhrifa sinna meðal þess mikla fjölda Armena, sem eru í nágranna- löndunum. Hins vegar er sá möguleiki ekki útilokaður, að armensk þjóðræknishreyfing gangi ríkisvaldinu úr greipuin og snúist gegn því. Hjá Armen- um eru kirkjumál og þjóðmál svo samofin. Er þetta rétt eitt dæmi þess, hve samskipti kirkju og kommúnisma geta verið flókin. Yfirgnæfandi meirihluti krist- inna manna í Rússlandi eru í rétttrúnaðarkirkjunni. Henni næst stærst er aðalkirkjufélag mótmælenda, baptistar. Lítið er vitað um afdrif Volgu Þjóðverja. Þeir hafa dreifzt um Síberíu og víðar. En þeir voru lúterskir. Einnig voru Eistland og Lettland að mestu leyti lút- ersk. Fyrstu árin undir ráð- stjórn átti kirkja þeirra landa við afar þröngan kost að búa, líkt og aðrar stofnanir, sem ástæða þótti til að ætla að kynnu að verða aflgjafi andkommúnískr- ar þjóðræknishreyfingar. Marg- ir prestar flýðu undan rúss- neska birninum áður en hann hremmdi lönd þeirra. Þeir sem eftir urðu voru yfirleitt fang- elsaðir eða fluttir úr landi. Að- eins tíundi hluti prestastéttar- innar héldu embættum sínum. Biskupar Eistlands höfðu postul- lega erfðavígslu, en samhengið rofnaði er þeir voru allir hrakt- ir frá embættum sínum og fang- elsaðir. Kjör eistnesku og lett- nesku kirknanna hafa verið bærilegri síðan Stalin féll frá, þó varla svo að orð sé á ger- andi. Rómversk-kaþólskir menn í Ráðstjórnarríkjunum eru yfir- leitt af pólskum uppruna, og eru Iangflestir búsettir í landbúnað- arhéruðum, sem áður lutu pólsk um yfirvöldum. f Moskvu er ein rómversk- kaþólsk kirkja í notkun. Kaþólsk ir menn sækja guðsþjónustur rétttrúnaðarmanna, þar sem þeir eiga ekki annarra kosta völ. I Næst stærsta kirkjufélag Rússlands, baptistar, telur hálfa fjórðu millj. meðlima og áhang- enda sem eru ekki allir skírðir sem fullorðnir). Forseti þess, Zhidkow, nýtur álits sem einn af ágætismönnum kristninnar. Rússneskir baptistar kváðu yfir- leitt vera heittrúarmenn í þess orðs beztu merkingu. Þeir eru viðurkenndir sem góðir þjóðfé- lagsþegnar. Smærri trúflokkar eru afar margir í Rússlandi og hafast sumir hverjir við sem-illa liðin neðanjarðarstarfsemi, og hafa sætt ofsóknum yfirvaldanna allt frá keisaratímum. Þeir bera á sinn hátt vitni „ólæknandi trú- hneigð“ rússnesku þjóðarinnar. Rétttrúnaðarkirkjan hefur allt af stórveldi verið í þjóðfélag- inu. Með valdatöku bolsévika hófst tuttugu ára ofsóknartíma- bil, sem er útaf fyrir sig mikill kapituli í píslarvættissögu krist innar kirkju í heiminum. Kirkju hús eru alltof fá, enda troðfull um helgar. Gizkað er á að um þrjátíu millj. manna sæki kirkju, sjálfsagt ekki hverja helgi. Flest börn eru skírð, ef til vill af rótgrónum vana hjá mörgum, fremur en beinlínis af trúarlegum ástæðum. Kristin- dómsfræðsla barna og unglinga til 18 ára aldurs, er bönnuð ut- an heimilanna, eða til þess er gert er ráð fyrir að þau séu ónæm orðin fyrir trúarlegum áhrifum. En er unga fólkið hef- ur. staðfest ráð sitt og stofnað eigið heimili, fer það ósjaldan að fordæmi hinna eldri í trúar- efnum. Fjandskapur kommúnista í garð rétttrúnaðarkirkjunnar, or- sakaðist upphaflega nokkuð af því, að hún var talin vera með- mælt endurreisn keisarastjórnar í landinu. Það er fyrir löngu úr sögunni. í síðari heimsstyrjöld sýndi kirkjan í verki hollustu sína við ríkisstjórnina. Aftur á móti trúa kommún- istar þeirri kreddu enn, að trú- arbrögð séu „ópíum fyrir fólk- ið.“ Er þá átt við að þau séu hin mesta hindrun fyrir þjóðfélags- lega þróun og vísindalegar fram farir. Þau dragi úr viljafestu og trufli með draumórum hugsjón- ir þeirra, sem vilja berjast fyr- ir betra heimi. Um 1939 þótti séð að hinar tíðu kristindómsofsóknir hefðu misst marks. Var kirkjunni veitt aukið frelsi innan vissra tak- marka. Biblían hefur verið gef- in út í litlu upplagi, en ekki leyft að hafa hana til sölu í bókabúðum. Nokkur klaustur voru opnuð og guðfræðikennsla leyfð, án þess að í sambandi við Bréfberar í Reykjavík munu I , næstu daga fá ný einkennis- | klæði í stað hinna gráu, sem ’ þeir hafa íklæðst til þessa. 'i Nýju einkennisfötin eru grá- j fblá á lit og úr mun betra i efni en hin gömlu. Myndin sýnir einn bréfberanna í nýja | , einkennisbúningnum. (Ljósm. Mbl. ól. K. M.) j hana fari fram kennsla í komm- únískum fræðum. Á árunum 1943 til 1958 virð- ist stefna ríkisstjórnarinnar hafa verið sú, að leyfa guðsþjón- ustuhald og menntun presta, en aðra kirkjulega starfsemi enga. Þó var þess vænzt að kirkjan sem slík styddi friðarhreyfingu kommúnista. Búizt var við, að ef kirkjulífið yrði hamið inn- an kirkjuveggja og klausturs- múra, þá myndi það verða sjálf- dautt. En er su von brást þjörmuðu stjórnarvöldin að kirkjunni með nýjum aðgerðum, þó alls ekki sambærilegum við ofsóknirnar fyrir þrjátíu árum. Mörgum klaustrum og kirkjum hefur verið lokað, prestar og biskup- ar verið dregnir fyrir rétt og bornir lognum sökum. Kunnugir telja að kirkjulegri starfsemi og trúarlífi almenn- ings stafi hætta af síaukinni iðn- væðingu þjóðfélagsins. Sökum menntunarskorts presta stéttarinnar, bæði rétttrúnaðar- og baptistakirkj unar, er hún illa undir það búin að leysa kirkju- leg vandamál líðandi stundar. Kennsla í guðfræði hafði verið afnumin með öllu um tuttugu ára skeið. Mikill skortur er á hæfum kennslukröftum við hina nýju prestaskóla, sem þó bæta úr brýnni þörf. Meðal hinnar ungu kynslóðar prestastéttar- innar eru menn, sem fylgjastvel með tímanum, að svo miklu leyti sem kringumstæður leyfa. Kirkjunnar menn er fengið höfðu menntun sína fyrir bylt- inguna (1918), hafa nú látið af störfum. Þeir menn sem tóku vigslu til prestsþjónustu á of- sóknatímabilinu, verðskulduðu hina mestu aðdáun. En mennt- un þeirra var að eðlilegum á- stæðum mjög ábótavant. Kirkj- unni bætast nú æ fleiri ungir menn frá prestaskólum, er tóku til starfa að stríðslokum. Líkur benda til að rétttrúnaðarkirkja Rússlands muni að fáum árum liðnum ,hafa fleiri unga menn í ábyrgðarstöðum en kirkja nokkurs annars lands. Ólafur Ólafsson. . . . allir þekkja Medica kremin Heildsölubir gðir: O. JOHNSON & KAABER HF. HOYAIMG ALUMINIIM Sölustjóri A/S Nordisb Aluminiumindustri, Oslo, herra K. Ildstad mun dvelja hér á landi alla þessa viku. Sölustjórinn verður til viðtals þennan tíma á skrifstofu okkar og veita allar upplýsingar varðandi framleiðslu- vörur verksmiðjusamsteypunnar. Einnig mun hann heimsækja þau fyrirtæki sem óska kynnu sérstakra upp lýsinga eða leiðbeininga. Einkaumboð á íslandi fyrir A/S NORDISK ALUMINIUMINDUSTltl, OSLO Friðrik Jorgensen Ægisgötu 7 — Símar: 11020 og 11021.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.