Morgunblaðið - 23.09.1962, Síða 18

Morgunblaðið - 23.09.1962, Síða 18
MCRCVNBLAÐ1Ð _ f ' i I f L_ ) 1 t 1J ? ‘ Sunnudagur 23. sept. 1962 Sigmundur Sveinsson Kveðja VEG-NA þess að ég gat ekki fylgt Sigmundi Sveinssyni síðasta spöl» inn, langar mig til að senda hon» um kveðju mína og hlýjar hugs- anir, þangað sem hann dvelur núna, og þakka honum fyrir hans ástúðlega viðmót og vináttu á umliðnum árum. Hress og glað- ur, með blessunarorð á vörum, kom hann inn úr dyrunum, og á sama hátt fór hann í hvert sinn er hann kvadidi. Hann hringdi til mín þegar hann var að búa sig í sína síðustu för að Sólheimum. Hafði hann þá legið undanfarna daga en var eitthvað hressari þá stundina. Hann hlakkaði til að fara austur. Hann sagðist vera reiðubúinn að fara héðan alfar- inn, hann kviði engu í því efni. Það var aðeins eitt sem hann ætti efir að ganga frá. Ég vona að hann hofi fengið þá ósk sína uppfyllta að ljúka því. Það var gott að vera í návist Sigmundar. Það hafa líklega flest ir fundið, sem kynntust honum nokkuð að ráði. Fávitarnir á Sól heimum í Grímsnesi, heimilinu sem dóttir hans, frú Sesselja hefir byggt upp af miklum mynd arskap og nærfærni við fávitana, sanna bezt hugarþel þeirra til Sigmundar. Þegar þeir sáu hann koma, uppljómuðust andlitin og þeir þyrptust í kringum hann og kölluðu hann afa, en þegar hann kvaddi, voru andlitin tómlátleg og þá sást enginn brosa. Sigmundur Sveinsson var óvenjulegur maður, óeigingjarn og vildi öllum hjálpa. Hann jós á báðar hendur af auðlegð hjarta gæziku sinnar til að reyna að græða líkamleg og andleg mein samferðafólks síns á lífsleiðinni. Hann hafði stöðugt bænasam- band við almættið og þegar hon um fannst mikið við liggja, þá talaði hann við guð eins og mað- ur við mann. og með öllum þeim krafti sem 1 honum bjó, varð honum oft að bæn sinni. Margir hafa talað og skrifað fallega um Sigmund, en ekkert var þar ofsagt. Hann var láns- maður eins og hann hefur sjálf- ur sagt, átti góð og vel gefin börn og yndisiega konu, og fékk að lifa langa ævi við góða heilsu. Vinir Sigmundar, sem eru marg ir, munu lengi minnast hans. Helga Þ. Smárl. Hætta lánum til smíða á línuveiðurum utan Færeyja A HAUSTI komanda mun ferða Skrifstofan SUNNA efna til 28 daga ævintýraferðar um Aust- urlönd. Hefur ferð þessi verið lengi og vel undirbúin, til þess að hún megi bæði verða þátttak- endum hin eftirminnilegasta og þó eigi alltof kostnaðarsöm. — Skoðaðir verða hinir merkustu sögustaðir í nálægari Austur- löndum, dvalizt viku í „Landinu helga“, sex daga í Egyptalandi, Bagdad sótt heim, og verður það austasti áfangastaðurinn. Öll þessi 28 daga ferð með dvöl í beztu gistihúsum og ann- arri fyrirgreiðslu verður lítið dýrari en sem svarar andvirði flugfarseðlanna einna saman, ef keyptir væru sínu í hvoru lagi. Reynslan í Austurlandaferð- um hefur kennt, að hæfilegur hraði og fjölbreytni verður að haldast í hendur, til þess að ferðin verði þægileg og lærdóms rík, en með því rnót-i ætti hún að geta orðið það ævintýri, sem ógleymanlegt verður hverjum þeim, er þess nýtur. Héðan verður flogið til Lon- don og þaðan til hinnar fornu Væringjaborgar, Istanbul, við Sæviðrasund. Þar á að skoða hið markverðasta, sem enn má finna frá fornum og sögufræg- um dögum keisara, kalifa, pre- láta, soldána, kirkjur, musteri, leikvanga og hallir, sem bera vitni hinni margbreytilegu sögu þessarar gömlu menningarborg- •r. — Frá Istanbul verður flogið til Beirut, og eftir viðdvölina þar verður farið í bifreiðum upp í Libanonsfjöll til Balbek og ann- arra sögufrægra staða á leiðinni til Damaskus, sem er sögufræg og sérkennileg borg I útjaðri Sýrlands-eyðimerkurinnar. Má gera ráð fyrir, að mörgum þyki forvitnilegt að sjá „bazari" hinna austurlenzku borga, hlusta á köllin frá turnum must- eranna, renna inn í hina annar- legu móðu þess lífs, sem sum- staðar er í dag mjög svipað því og það var á dögum kalífa „Þús- und og einnar nætur“. Frá Damaskus verður ekið suður til Amman, höfuðborgar Jórdaníu og haldið til Jerúsalem, en eins og fyrr segir er gert ráð fyrir vikudvöl í „Landinu helga". Þar verða skoðaðir hinir kunnu kristnu helgistaðir, Betlehem, Golgata, Getsamane. Farið verð- ur til Jeriko, út í eyðimörk Judeu og reynt að skoða það, sem forvitnilegast þykir í land- inu að fornu og nýju. Þátttakendur munu eiga þess kost að sjá hið markverðasta á fjórum dögum, en nota tvo til þess að fara til Bagdad og sjá þar m. a. hinar gömlu rústir Babylonar. Að lokinni Gyðingalandsdvöl- inni verður flogið til Egypta- lands og dvalizt heila viku í landi Faraóanna. Meðan Kaíró verður gist fer hópurinn til Pyramidanna miklu og fer hluta leiðarinnar á fararskjótum eyðimerkurinnar, úlföldum. — Stillt verður svo til að unnt sé í þeirri för að njóta hins sér- kennilega sólarlags þessa eyði- merkursögu og undralands. / ' ■■■ -I - ' ■■'■ ' ■" -■■■ - - I .... . ; Guðni Þórðarson, fararstjórí í 28 daga Austurlandaferð Sunnu, ásamt líbönskum stúdentum við rústirnar af hofi Sólguðsins í Balbek. Frá Kaíró verður farið upp Nílardal til hinna gömlu höfuð- borga Forn-Egyptalands, Luxor og Karhak, en þaðan yfir Nílar- fljót til Dauðadalsins, þar sem skoðaðar verða konungsgrafirn- ar miklu. Frá Egyptalandi verður flogið Setjið pakkann á borðið en barnið fer í skóíann Corn Flakes er bezta hressingin sem skólabarnið fær er það vaknar á morgn- anna, og gleymið ekki að fá yður líka. Það birtir yfir því við bragðið og kemur yður í sólskinsskap, hvernig sem viðrar. Fæst í næstu matvörubúð. til Jerúsalem og farið þaðan yf- ir „lokuðu landamærin" til ísraels, en engin Austurlanda- ferð er fullkomin án þess að sótt sé heim hið nýja ísraels- ríki, enda geymir það bæði forn- helga sögustaði og mikil mann- virki þeirrar þjóðar, sem nú er að endurreisa mikið menningar- líf á gömlum slóðum. Frá Tel Aviv verður flogið til Aþenu og þar skoðað hið mark- verðasta, t. d. Akropolis og farið til Delfi, hinnar fornfrægu vé- fréttaborgar. Frá Aþenu verður haldið til Rómar, og eftir nokkra dvöl í „borginni eilífu" verður flogið til Lundúna og þaðan heim. — Lýkur þar þessari 28 daga Aust- urlandaför, sem margra mun freista, og verður vegna hag- kvæmra samninga, ótrúlega ó- dýr. Fararstjóri verður Guðni Þórðarson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar SUNNU, en hann hefur ferðazt um öll lönd hinnar væntanlegu ferðar og á að baki langa reynslu í farar- stjórn víða um heim. Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl. í Þórshöfn, 29. ágúst. FÆREYSKA „Realkredit- stofnunin“, sem selur hluta- bréf sín í dönsku kauphöll- inni, tilkynnti í dag, að hún lánaði ekki fé til smíða á fleiri línuveiðurum erlendis. Frá 1957 hefur „Realkredit- stofnunin“, sem danski ríkis- sjóðurinn ábyrgist, lánað gegn 1. veðrétti helming þess fjár, sem notað hefur verið til smíða 44 línuveiðara. Þar af hafa 42 verið smíðaðir í Noregi. „Realkreditstofnunin“ hefur veitt lán til smíði 6 línuveiðara á árunum 1963 og 1964. Segir stofnunin, að þá munu Færey- ingar eiga 50 nýja línuveiðara og upp frá því geti þeir sjálfir^ annazt viðhald flotans og aukið hann eftir þörfum. Færeyskar skipasmíðastöðvar geta smíðað 3 línuveiðara árlega. Verð á línuveiðurum hefur hækkað það mikið að undan- förnu og talið er að þeir verði of dýrir til þess að hagnaður verði af þeim. Til þessa hefur verið hagnaður af öllum línu- veiðurum, en hann hefur ekki verið mikill. Stjórn „Realkreditstofnunar- innar" skipa tveir Færeyingar og einn Dani. Landsstjórnin i Færeyjum hefur á þessu ári gert samning við skipasmíða- stöð í V-Noregi um smíði 15 línuveiðara, en lánastöðvun „Realkreditstofnunarinnar" nær ekki til þeirra. — Arge. Trúlofunarhringor afgreiddir samdægurg HALLDÓR Skolavörðustij 2 Ferö til Austurlanda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.