Morgunblaðið - 26.09.1962, Qupperneq 3
Miðvikudagur 26. sept. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
3
hverfa
í GÆR rifu bæjarhreinsun-
armenn gamla húsið á Smiðju
stíg 5. Þetta var á sínum tima
merkilegt hús. Helmingur
’þess var byggður árið 1850
af snikkurunuip Eyjólfi Þor-
varðssyni og Einari Jónssyni,
en árið 1861 eignaðist
Smáth það. Hann lét bygigja
suðurendann árið 1866. Eftir
Boga eignaðist Pétur Péturs-
son, lögregluþjónn og bæjar-
gjaldkeri húsið og bjó þar.
Fyrirrennarar hans í bæjar-
gjaldikerastarfinu böfðu flest-
ir verið kaupmenn, sem höfðu
afgreiðslu bæjarreikninga í
verzlunum sínum. En nú flu'tti
Pétur skrifstofuna í stofu í. Þetta er suðurendinn á svokölluðu Eyjólfs-hús.’ við Smiðjustíg, en þeim megin hafði Dalhoff
húsi sínu og voru því þar gullsmíðaverkstæði eftir síðustu aldámót.
Cömlu
húsin
!
Elzta bæjarskrifstofan rifin
I fyrstu sjálfstæðu skrifstofur
í bæjarins á árunum 1887 og
fram undir aldamót. Þaðan
flutti bæjarskrifstofan á Lauf
ásveg 5. í nýrri endanum á
húsinu var til húsa einn
fremsti gullsmiður bæjarins,
Dalhoff, sem margir gamlir
Reykvíkingar muna eftir.
Þessar upplýsingar fékk
blaðið í gær hjá Lárusi Sig-
urbjörnssyni. Þar eð hann
■ ■Ss ;
Reitt til höggs
molar Jtianu
vissi að húsið var byggt í
tvennu lagi, lagði hann á ráð-
in um að lyfta af því þakinu
í tvennu lagi. Ekki verður þó
hægt að reisa húsið í Árbæ,
vegna þess að veggir í því
eru alveg ónýtir, en þakið
verður hagnýtt a.m.k. í vetur
yfir timburstafla þar upp frá.
En þetta er skarsúðarþak, sem
gæti komið að góðum notum
seinna á annað hús.
Stórvirkar aðfarir
í gær var einnig verið að
rífa annað gamalt hús í bæn-
um, gamla Blöndalsfjósið við
Haga. Við það voru notaðar
aðrar og stórvirkari aðferðir,
þar eð krani braut það niður
með nokkrum höggum.
Ljósmyndari blaðsins var
þar viðstaddur og tók þessar
myndir af högginu sem reið
húsinu að fullu. Á þeirri
fyrstu er kúlunni sveiflað,
þeirri næstu lendir hún á
veggnum, sem hrynur, eins
og sézt á þriðju myndinni. ■
Jsl. samtíöarmenn"
æviskrá 5000 Islendinga
UM 5 þúsund manns muniu á
næstunni fá bréf með spurninga-
lista ujn helztu æviatriði og
starfsferil á ævinni. Bréfin eru
frá nýrri útgáfu „Samtíðarmenn"
og verið er með spurningunum
að safna efni í nýtt og stórt ísl.
ritverk sem ber nafnið „íslenzkir
samtíðarmenn“. Að útgáfunmi
„Samtíðarmenn“ standa Gunnar
Einarsson í Leiftri og Oliver
Steinn í Hafnjarfirði.
Þeir félagar skýrðu málið fyrir
blaðamönnum í gær og var þar
einnig mætt ritnefnd ritsins en
hana skipa sr. Jón Guðnason frv.
skjalavörður, Haraldur Péturs-
son safnahúsvörður og Pétur
Haraldsson prentari.
Sr. Jón skýrði svo frá að rit-
nefndin hefði valið flesta opin-
bera starfsmenn, athafna, for-
ystumenn og trúnaðarmenn fyr-
irtækja er stærri eru, forvígis-
menn í félagsmálum. rithöfunda,
listamenn o. fl. frægt fólk meðaí
skemmtikrafta og á fleiri svið-
um.
Alls hefur ritnefndin nöfn nær
5000 manna og vonast eftir svari
þeirra við spurningalistanum inn
an hálfs mánaðar. Nefndin mun
síðar samræma svörin og búa til
prentunar.
Allt ritið er byggt á samtíðar-
mönnum. Ritið er ráðgert 1
tveim bindum og að hið fyrra
komi út s. h. 1963 og hið síðara
f. h. 1964. Verður þetta hið mik-
ilvægasta upplýsingarit og án
efa vinsælt mjög. v
Fulbrightstoinunin
auglýsir styrlsi
MENNTASTOFNUN Bandaríkj-
anna hér á iandi, Fulbright-stofn-
unin, auglýsir eftir umsóknum
um náms- og íerðastyrki handa ís
lenzkum háskólaborgurum, sem
þegar hafa lokið háskólaprófi og
hyggja á frekara nám við banda
ríska háskóla á skólaárinu 1963—
1964.
Umsækjendur um styrki þessa
verða að veva íslenzkir ríkisborg
arar og hafa lokið háskólaprófi,
annaðhvort hér á landi eða ann-
arsstaðar utan Bandaríkjanna.
Þeir sem ekki eru eldri en 35 ára
að aldri verða að öðru jöfnu
látnir ganga fyrir um styrkveit-
ingar. Nauðsynlegt er að um-
sækjendur hafi mjög gott vald á
enskri tungu.
í þetta skipti verður ekki mögu
legt að taka á móti umsóknum
um styrki til framhaldsnáms í
læknisfræði. Þeir sem hins vegar
kunna sjálfir að hafa komizt að
við nám vestan hafs í þessum eða
öðrum fræðum, geta síðan sótt
um sérstaka ferðastyrki, sem
stofnunin mun auglýsa í aprílmán
uði næsta áf.
Umsóknir um námsstyrki þessa
skulu hafa borizt Menntastofnun
Bandaríkj anna, pósthólf 1059,
Reykjavík, fyrir 20. október n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu stofnunarinnar, Kirkju
torgi 6.
STAKSTEIIVAR
Léleg verkalýðsf©i usta
Ekki er ofsögum sagt af því,
hve lélega forustu heildarsam-
tök launþega hafa haft að und-
anförnu. Miðstjórn Alþýðusam-
bands tslands hefur ekkert gert
til þess að reyna að leita leiða
til raunhæfra kjarabóta, en
hleypur sv^ upp til handa og
fóta nokkrum vikum áður en
hán á að láta af völdum og þyk-
ist þá alit vilja gera til að bæta
kjör verkalýðsins. En verka •
menn eru þess minnugir, að þeg-
ar þeir áttu þess kost að bæta
kjör sín verulegí í vor án átaka,
þá lýsti núðstjórn ASl því yfir
að kjör lægstlaunaðra verka-
manna væru ekki í hennar
verkahring. Hún vildi ekki einu
sinni ræða þá lausn að ..ðrar
stéttir færu hægt í sakirnar
meðan verkamenn bættu kjör
sín. Vita kommúnistar þó jafn-
vel og aðrir, að stór stökk í
kaupgjaldsmálum nýtast yfirleitt
ver en hægfara sókn til bættra
kjara, vegna þess að verðhækk-
anir koma þegar í kjölfar stór-
felldra kauphækkana, en miklu
þægilegra er að halda þeim í
skefjum, ef kaupið hækkar hóf-
lega, en jafnt og þétt.
Kauphækkanir
og framleiðsluaukning
Raunhæfar kja.abætur geta
auðvitað einungis byggzt á
framleiðsluaukningu. Þess vegna
ber að Ieggja meginkapp á að
auka afraksturinn. Til þess eru
tvær 'eiðir, annars /egar, að
heilbrigt efnahagslíf ríki svo að
framleiðsluöflin nýtist sem bezt
við hina arðvæmegustu franv-
leiðslu, en fjármunum sé ekki
beint að atvinnugreinum, sem í
raun réttri skila minna í þjóðar
búið en aðrar, en einstakir
menn geta hagnast á, vegna þess
að ríkið styrkir þær beint eða ó-
beint. Hins vegar er hægt að
auka vinnuhagræðingu, fyrst og
fremst með heilbrigðu samstarfi
vinnuveitenda og launþegit og
auka þannig afrakstur fvrirtækj
anna, bæði þeim sjálfum og
verkalýðnum til hags. — Fyrri
kjarabótaleiðinni berst stjórn
Alþýöusambands íslands á móti
með hnúum og hnefum ’ og seg-
Iist >lja þaö aðalstefnuirál sitt
að hindra viðreisn efnahagslífs-
iris og taka á ný upp þá stefnu,
sem dregur úr afköstunum og
þar með kjarabótunum. llm síð-
ari ieiðina er stjórnin a.m.k,
skeyti ^arlaus, og raunar er
vitað, að Moskvukommúnistar
telja hana mjög skaðsamlega, því
að þá s« erfiðara að egna ti! ó-
frið&r milli launþega og vinnu-
veitenda.
Fara á hiarabótaleiðinft
Launþegar gera sér nú í stöð-
ugt ríkari mæli grein fyrir þvi
að nauðsynlegt er að lá.ta skyn-
semina ráða í kjaramálum og ná
kjarabótum með heilbrigðu sarrt-
starfi, samfara fullri festu, í stað
þess að leyfa póli‘ískum ævin-
týramönnum og valdasjúkum að
hagnýta launþegasamtökin í per-
sónulegri og pólitískri baráttu
sinni, oftast andstætt hagsmun-
um launþega, enda væri það
saga til næsta bæjar, ef hags-
munir meginþorra íslenzku Djóð-
arinnar væru samofnir mark-
miðum heimskon:imúnisman&.