Morgunblaðið - 26.09.1962, Síða 15

Morgunblaðið - 26.09.1962, Síða 15
Miðvikudagur 26. sept. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 15 KVIKMYNDIK ★ KVIKMYNDIR ★ KVIKMYNDIR U »—I Þd ★ KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR CM: ★ KVIKMYNDIR ★ HÁSKÓLABÍÓ: Fimm brenni- merktar konur. Mynd þessi sem er amerísk er ibyggð á skáldsögu eftir rithöf- undinn Ugo Pirro. Myndin gerist í Júgóslavíu árið 1943, er Þjóð- verjar hafa hertekið landið. Fimm ungar júgóslavneskar stúlk ur, Jovanka (Silvana Mangano), Daniza (Vesa Miles), Marja (Barbara Bel Goddes), Ljuba (Jeanne Moreau) og Mira (Carla Gravina), hafa lagt lag sitt við einn af foringjum nazista, Keller að nafni, en skseruliðar taka þær höndum og refsa þeim með því að snoðklippa þær. Var það eins ttoonar brennimerki, er mjög var notað á stríðsárunum við þær sem vingott áttu við setuliðs- menn í hinum herteknu löndum. — Skæruliðar ráku þessar brennimerktu konur út úr borg- inni og urðu þær að liggja úti og stela mat sér til viðurværis. Stúlkurnar finna lík Þjóðverja, sem skæruliðar hafa skotið. Þær taka byssur þeirra og klæðast fatnaði þeirra og taka til fanga einn Þjóðverjanna, Reinhardt höfuðsmann, sem aðeins var særður. Skömmu síðar ráðast þær með skothríð á flokk Þjóð- .verja, sem eru að ræna kvikfén- aði í þorpi einu. Leiðir það til iþess að þær ganga í lið með skæruliðun., en foringi þeirra er Velko (Van Heflin), kunningi Jovanka. Stúlkurnar taka þátt í baráttunni með félögum sinum af miklum dugnaði og hugprýði, en aginn hjá Skmruliðum er harður og miskunnarlaus og fá elskendurnir Branlo (Harry Gu- ardino) og Daniza að kenna á jþvi, er þau hafa brugðist á verð- inum og þannig orðið til þess , að þýzkur njósnarar komust að felustað skæruliða. Skærulið- arnir halda nú til átthaga sinna til árásar á Þjóðverja meðan þar ifier fram mikil hensýning og hátíðahöld. Reinhardt höfuðs- maður reynir að flýja, en Ljuba, sem elskar hann neyðist til að skjóta hann. Árásin á Þjóðverj- ana tekst og faila þar margir af háttsettum foringjum þeirra. En mannfall verður einnig mik- ið hj'á Skæruliðum. Þegar þeir eru komnir í fjallaskarð eitt, sjá iþeir þýzika herdeild nálgast. Vel- ko Skipar mönnum sínum að halda áfram ferðinni, en sjálfur hyggst hann tefja för Þjóðverj- anna með vélbyssu sinni, — og Jovanka verður eftir hjá honum. Svo sem sjá má af þessum stutta útdrætti, er þetta mjög efnismikil mynd. Hún er einnig mjög vel gerð enda er leikstjór- inn snillingurinn Dino de Laur- entiis, sem stjórnaði myndunum „Stríð og friður", „Önnu“ og „Ris-stúlkunni“ í samvinnu við leikstjórann Carlo Ponti, og fleiri myndum, sem hér hafa ver ið sýndar. Myndin er einnig mjög vel leikin, enda fara mikilhæfir leikarar með mörg hlutverkin. t 1SVIKAHRAPPURI NNfl lÖNY^ **%CUB JiS 333k mmgsggmg HAFNARBÍÓ: Svikahrappur- inn. Mynd þessi fjallar um líf ævintýramannsins Ferdinard Waldo Demara, sem var snill- ingur í að villa á sér heimildir og lenti í margsikonar ævintýr- um, sem hann þó slapp oftast furðulega frá. Munu sagnir um hann hafa birtst í íslenzkum blöðum. — Þegar myndin hefst íbúðir tíl sölu 3ja og 4ra herbergja hæðir í sambýlishúsi við Safa- mýri. Seljast tilbúnar undir tréverk, sameign inni múrhúðað, húsið fullgert að utan, tvöfalt gler o. fl. Aðeins 4 íbúðir saman um þvottahús. Ágæt teikning. Hagstætt verð. ARNI STEFÁNSSON, hrl. Málflutningur — Fasteignasala Suðurgötu 4 — Símar: 14314 og 34231 Ungur piltur getur fengið atvinnu nú þegar við framleiðslu- störf. — Upplýsingar í Heildverzluninni HEKLU Hverfisgötu 103 — Sími 11275. Skrífstofustútka sem er vön algengum skrifstofustörfum óskast nú þegar. Heildverzlun Péturs Péturssonar Hafnarstræti 4 — Sími 11219. Sniðkennsla — lifliáltaka Dagnámskeið hefst 2.’ október. Kvöldnámskeið hefst 23. október. — Innritun hafin. Sigrún Á. Sigurðardóttir, Drápuhlíð 48 — Sími 19178. er Demara (Tony Curtis) skóla- kennari á Haven-eyju í Maine- fylki í Ameríku, en undir gerfi- nafninu Martin Goddart. Tveir ríkislögreglumenn koma og sækja hann, fara með hann um borð í vélbát og loka hann þar inni í klefa hlekkjaðan við eina kojuna. — Þar fer Demara að rifja upp lífssögu sína, sem er býsna margbrotin og skemmti- leg, þrátt fyrir allt, og eru at- burðirnir raktir í myndinni. Dem ara á þegar í bernsku bágt með að Skilja og sætta sig við lög og reglur borgarlegs lífs. Og árin líða. Hann kemst í herinn, og til þess að komast í foringja- skólann falsar hann heimi'ldar- skjöl og segist vera dr. Röbert Lloyd, háskólaprófessor. En hann getur ekki haldið þeini titli lengi og tekur þá það til bragðs að hverfa. Hann gengur nú í klaust- ur, hverfur þaðan fljótlega. Lend ir þá á fylliríi og herinn nær í hann og setur 'hann í fangelsi. Síðar er hann látinn laus og fer þá beint í rikisfangelsið og fær þar yfirfangavarðastöðu und ir fölsku nafni. Honum ferst starf ið þar prýðilega, en verður þó að hrökklast þaðan. Næst skýtur honum upp í Kanada sem lækni og verður nú herlæknir á skipi. Kemst hann þar í mikinn vanda, sem hann þó leysir svo vel að hann hlýtur aðdáun og myndir eru birtar af honum í blöðun- um. En það verður hionum til falls. Öll svik hans komast upp, — en myndinni lýkur þannig að auglýst er að Demara er ekki af baki dottinn . . . Mynd þessi er fjörleg og skemmtileg og leikur Tony Curt- is prýðilega hlutverk Demara. Margi- aðrir leikarar fara þarna vel með hlutverk sín, svo sem ágæti leikari Karl Ma'lden, sem leikur prest og góðan vin Dem- ara frá bernskuárum hans. Listdansskóli Guðnýjar Pétursdóttur 10 vikna Ballet-námskeið hefst 8. okt. n.k. Kennt verður í Reykjavík og Kópavogi. Upplýsingar í sima 1-24-86 frá kl. 1—7 daglega. 5 herb. hœðlr Til sölu eru glæsilegar 5 herbergja hæðir í sambýlis- húsi við Bólstaðarhlíð. Seljast tilbunar undir tré- verk, sameign inni fullgerð, húsið fullgert að utan, tvöfalt gler o. fl. Hitaveita fljótlega. Mjög góð teikning. ÁRNl STEFÁNSSON, hrl., Málflutningur — Fasteijjnasala. Suðurgötu 4 — Sínu 14314 og 34231. Nýleg 2ja herb. íbuð Til sölu er nýleg 2ja herbergja íbúð við Ljósheima. Teppi á gólfum fylgja. Vönduð innrétting. Laus til afnota um áramót. ÁRNI STEFÁNSSON. HRL. Málflutningur — Fasteignasala. Suðurgötu 4. — Símar: 14314 og 34231. Sicjnal heldur munni yðar hreinum Rauöu rákirnar í Signal tannkreminu innihalda Hexachlorophene, sem hreinsar tennur yðar og heldur x munni yðar hreinum. En Signal gerir meira en að halda tönnum yðar mjallahvítum, það ver yður einnig andremmu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.