Morgunblaðið - 26.09.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.09.1962, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 26. sept. 1962 MORGVHBLAÐ1Ð 17 Hannes'ma Sigurðardóttir - Minningarorð FYRIR nokkrum dögum var ég staddur á heimili venzlafólks míns og vina, frú Hannesínu Sig- urðardóttur og barna hennar, að Ljósvallagötu 16. Þar átti ég með þeim ágæta og ógleymanlega sam verustund, sem leið fyrr en varði. Húsfreyjan fylgdi mér til dyra að vanda, fasprúð og virðuleg og kvaddi mig með bros á vör. — Hinn 20. þ. m. frétti ég að hún væri látin, hefði háttað hress að kveldi, en'var liðið lík klukkan þrjú að nóttu. Sannast hér enn sem fyrr, að „fótmál dauðans fljótt er stigið“. Þetta vitum við öll mannanna börn, en munum sjaldnast eftii því, nema þegar dauðinn heggur óvænt skarð í vorn eigin vinahóp. Segja má að þetta ætti að vera okkur til lær- dóms og áminningar um að hafa allt í lagi, ef vor biði líkur dauð dagi. En hver er jafnan viðbúinn að kveðja pennan heim? Svari hver fyrir sig. Segja má einnig, að gott sé fyrir þann sem snögg- lega deyr, að iosna við mikil veik indi lengri eða skemmri tíma, en fyrir þá, sem eftir lifa, eru svona atburðir mikil andleg raun, sem oft veldur htilsutjóni. — En hvenær sem vinur deyr, er sem allt hljóðni í vitund manns um sinn. Litið er til baka með sár- um trega, en jafnframt fyllist hugur manns þakklæti til hins horfna vinar, fyrir allt, sem hann var okkur. Og í því ljósi skulu hér rituð nokkur minningarorð um frú Hannesínu Sigurðardótt- ur. Hún var fædd að Akri á Eyrar bakka 9. júní 1890. Foreldrar hennar voru þau hjónin Sigurður Jónsson, verzlunarmaður og Vik- toría Þorkelsdóttir. Voru þau af þekktum ættum austur þar og mestu sæmdar hjón, sem veittu börnum sínum hið bezta uppeldi. Bræður Hannesínu, eru hinir þjóðkunnu skipstjórar Jón og Kolbeinn og Ólafur, sem einnig er sjómaður, allir búsettir hér í bæ. Lítið var um skólagöngu kvenna á æskuárum Hannesínu þegar batnaskóla sleppti. En fyrsti vísir að húsmæðraskólum var hússtjórnarskóli Hólmfríðar Gísladóttur, Þingholtsstræti 18. Þar var Hannesína við nám einn vetur. Árið 1907 giftist hún Þor- leifi Guðmundssyni frá Háeyri. Þau bjuggu fyrstu árin á Eyrar- bakka og í Reykjavík en 1914 fluttust þau til Þorlákshafnar, þar sem Þorleifur rak búskap og út- gerð jöfnum höndum til ársins 1927 að þau fluttust til Eyrar- bakka. Þar bjuggu þau í „húsinu“ (Garði) til ársins 1930. Þá fluttu þau aftur til Reykjavíkur og áttu þar heima jafnan síðan. Þor- leifur andaðist vorið 1941. Þá voru þau hjón fyrir nokkru flutt að Ljósvallagötu 16 og þar hefur frú Hannesína búið síðan með þeim börnum sínum, sem ekki hafa enn myndað sjálfstætt heimili. Börn þeirra Þorleifs eru: Sigrún, iðnaðarmær, Viktoría, verzlunarmær, Sigurður fyrr- verandi skipstjóri, Guðmundur, Stýrim., Sigríður, sjúklingur og Kolbeinn, stúdent. Ennfremur hafa þrjú fósturbörn alizt upp á heimilinu: Haraldur Eyvinds, sjómaður, frændi Þorleifs, og tvö dótturbörn þeirra hjóna Hanna S. Georgsdóttir, skrifstofumær, og Hörður Skúíason, er andaðist 9 ára gamall og var öllum harm- dauði. Allur er þessi barnahópur ágætlega greint fólk og hinir nýt ustu þegnar þjóðfélagsins, sem bera foreldrum sínum og heimili hinn bezta vitnisburð. Skal ekki farið um það fleiri orðum hér. En geta skal þess, að eitt barn- anna, Sigríður, hefur nú dvalið í sjúkrahúsi meira en aldarfjórð- ungsskeið haldin þungbærum sjúkdómi. Má öllum ljóst vera hvílík raun það er — ekki sízt móðurinni. Þegar litið er yfir framanskráð er augljóst, að frú Hannesína hef- ur átt annríkt um dagana, eink- um fyrri hluta ævinnar meðan börnin vöru að komast1 á legg, og meðan þau Þorleifur bjuggu í Þorlákshöfn. Þar var þá afar fjölmennt heimili, búskapur mikill og útgerð. Auk þess var þá fjöldi báta gerður út frá Þor- lákshöfn og höfðu útgerðarmenn þá margskonar viðskipti og fyrir greiðslu hjá búendum í Þorláks- höfn. Var þar því mikill gesta- gangur. — Árið 1919 til 1923 var Þorleifur annar þingmaður Ár- nesinga bg því langdvölum að heiman ár hvert. Var þá enn meiri vandi á höndum húsfreyj- unnar, en hún stjórnaði hinu stóra heimili með festu og skör- ungsskap. Hún stóð við hlið bónda síns í önn dagsins með hinni mestu prýði og var það þó ekki alltaf auðvelt því að mágur minn, Þorlejíur, var ör í lund á yngri árum, og hafði* stundum mörg járn í eldinum. En konu sinni unni hann mjög og hafði hún því mikil áhrif á hann alla tíð og reyndist honum hinn trygg asti og styrkasti förunautur, sem hvarvetna kom fram með prúð- mennsku og glæsileik. Hún skóp honum og börnunum ágætt heim- ili og að síðusu stundaði hún mann sinn í langri og þungri banalegu með frábæru ástríki og nærgætni, sem allir kunnugir munu lengi minnast. Þau hjón voru samhent um að veita börnum sínum hið bezta uppeldi. Meðan þau bjuggu í Þor- lákshöfn höfðu þau jafnan heim- iliskennara og síðan voru börnin studd til framhaldsnáms eftir mætti. Ég hygg að börnin muni öll vera sammála um, að þau hafi átt frábæra og ástríka móður, sem öllu vildi fórna fyrir velferð þeirra, enda var samlíf þeirra með ágætum allt til hinztu stundar. Frú Hannesína var glæsileg kona í sjón og framkoma henn- ar öll prúðmannleg og virðuleg. Hún var ágætum gáfum gædd, skapmikil en stillti skap sitt svo að fágætt mun vera. Ég hefi þekkt hana um fjögurra áratuga skeið og séð hana bæði á gleði- og sorgarstundum. Ég minnist hve frábært þrek hún sýndi við fráfall eigiivmanns síns og ást- sæls dóttursonar, og í þungbæru veikindastríði elskaðrar dóttur, sem varað hefur nú um þriggja áratuga skeið. En frú Hannesína æðraðist aidrei og talaði fátt um eigin hag því hún var dul í skapi og óhiutdeilin um ann- arra hag. — Hún lét því almenn félagsmál lítt til sín taka, því að heimilið var hennar heimur. Á hinn bóginn var hún ákveðin í skoðunum um almenn mál og ræddi um þau með einurð og festu, sem herini var eiginleg og var því mjög rökvís í umræðum. Hún las mikið alla tíð og var mjög fróð um þau mál, sem efst voru á baugi hverju sinni. Það var því ánægjulegt og lærdóms- ríkt að vera gestur hennar og eiga samræður við hana. ,Hún var tryggur vinur, sem jafnan var gott að leita til og vera samvist1- um með. En nú er hún horfin sýnum og jarðarförm fer fram í dag. Fjölmennur hópur ástvina og frænda hefur misst eina traust- ustu stoðina úr hópi hinna eldri og finnst skarðið stórt. En ekki skal æðru mæla. Sá hinn sami hópur þakkar hinni látnu það sem hún var þeim og mun jafnan minnast hennar með^ást °S virð- ingu. Ingimar Jóhannesson. NYKOMIÐ FKA Max Factor i Varalitir 8 nýir litir Pancake-Panstick Cremepuff — Laust púður Hreinsunar og næringarkrem Allt til augnasnyrtinga. v/Lækjartorg. Verkamenn vantar í vinnu á Seltjarnarnesi. Upplýsingar á skrifstofunni sími 18088. Sveitarstjóri Seltjarnarneshrepps. Drengnr eða stulka 15 til 16 ára óskast til sendiferða. Hf. Ölgerðin Egill Skallagrímsson Afgreiðsjustúlka í blómabúð - ó s k a s t . Umsóknir með meðmælum og mynd, ef til eru, sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. sunnudag, merkt: „Blómabúð — 3418“. Skipnsmiðii Dráttarbrautina h.f. Neskaupstað vantar nokkra skipasmiði. — Mikil vinna. Getum útvegað íbúðir. Uppl. Hótel Vík herb. nr. 4 frá kl. 2—5 í dag. Duglegur sólumaður óskast strax. PLASTPRENT S/F Skipholti 35. Skrifstofustúlka óskast Stúlka vön skrifstofuvinnu óskast um 3ja mánaða tíma' í forföllum annarrar. Til greina kæmi V2 dags vinna. — Upplýsingar í síma 20420, fimmtudag kl. 10 til 12. VÖLUNDARSMÍÐI á hinum fræga Parker V-5121 Líkt og listasmiðir löngu liðinna tíma, vinna Parker-smið- irnir nú með óvenjulegri umhyggju við að framleiða eftir- sóttasta penna heims Parker “51”. Þessir samvizkusömu listasmiðir ásamt nákvæmum vélum og slitsterkara efni, er það sem skapar Parker “51” penna. . . . viðurkenndur um heim allan fyrir beztu skrifhæfni. íyrir yður eða sem gjal parker “51” A PRODUCT OF <£> THF PARKER PEN COMPANY

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.