Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 24
24 MORGVTSBLÁÐIÐ Sunnudagur 7. okt. 1962 ; : ■ IVIENNT ER MATTUR Notið frístundirnar til hagkvæms náms í BRÉFASKÚLA SÍS 1. Skipulag og starfshættir samvinnufélaga*. 5 bréf. Kennslugjald kr. 100.00. Kennari Eiríkur Pálsson, lögfræðingur. 2. Fundarstjórn og fundarreglur: 3 bréf. Kennslu- gjald kr. 200.00. Kennari er Eiríkur Pálsson. 3. Bókfærsla I, byrjendaflokkur: 7 bréf. Kennslu- gjald kr. 350.00. Kennari Þorieifur Þórðarson, for- stjóri. 4. Bókfærsla II: 6 bréf, frarnhald fyrra flokks sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00. 5. Búreikningur: 7 bréf og bókin „Leiðbeiningar um færslu búreikninga". Kennari Eyvindur Jóns- son, búfræðingur. Kennslugjald kr. 150.00. 6. íslenzk réttritun: 6 bréf eftir kennarann Sveinbjörn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 350.00. 7. íslenzk bragfræði: 3 bréf eftir kennarann Svein björn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 150,00. 8. íslenzk málfræði: 6 bréf eftir kennarann Jónas Kristjánsson, cand. mag. Keimslugjald kr. 350.00. 9. Enska I, byrjendaflokkut: 7 bréf og ensk les- bólc. Kennari er Jón Magnússon, fil cand. Kennslu- gjald kr. 350.00. 10. Enska II: 7 bréf, auk Jeskafla, orðasafns og málfræði. Framhald fyrra f'uKks, sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00. 11. Danska I, byrjendaflokkur: 5 bréf og Litla dönskubókin eftir kennarann Ágúst Sigurðsson, cand. mag. Kennslugjald kr. 250.00. 12. Danska II: 8 bréf og kennslubók í dönsku eftir kennarann. Kennslugjald kr. 300.00. 13. Danska III: 8 bréf, svo og kennslubók, lesbók, orðasafn og stílhefti eftir kennarann. Kennslugjald kr. 450.00. 14. Þýzka: 5 bréf þýdd og samin af kennaran- um Ingvari Brynjólfssyni, menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 350.00. 15. Franska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar- anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara. 16. Spænska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar- anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 450.00. 17. Esperanto: 8 bréf. Kennslugjald kr. 200.00. 18. Reikningur 10 bréf. Þorleifur Þórðarson kennir. Kennslugjald kr. 400.00. 19. Algebra: 5 bréf eftir kennarann, Þórodd Oddson menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 300.00. 20. Eðlisfræði: 6 bréf eftir kennarann Sigurð Ingi mundarson, efnafræðing. Kennslugjald kr. 250.00. 21. Mótorfræði I: 6 bréf eftir kennarann Þorstein Loftsson, vélfræðing. Kennslugjald kr. 350.00. 22. Mótorfræði II: 6 bréf um dieselvélar eftir kennarann, Þorstein Loftsson. Kennslugjald kr. 350.00. 23. Siglingafræði: 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðs- son stýrimannaskólakennari. Kennsiugjald kr. 350.00. 24. Landbúnaðarvélar og verkfæri: 6 bréf. Kenn- ari er Haraldur Árnason, lendbúnaðarvélaverk- fræðingur. Kennslugjald kr. lóo.OO. 25. Sálarfræði: 4 bréf. þýdd og tekin saman af kennaranum dr. Brodda Jóhannessyni og frú Val- borgu Sigurðardóttur. Kennslugjald kr. 200.00. 26. Skák I, byrjendaflokkur: 5 bréf á sænsku. Kennslugjald kr. 200.00. 27. Skák II: 4 bréf. Kennslugjald kr. 200.00. 28. Starfsfræðsla: Bókin „Hvað viltu verða“. Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur svarar bréfum nemenda og gefur upplýsingar og leiðbeiningar varðandi starfs- og stöðuval. Kennslugjald kr. 200.00. Bréfin eru samin og svörin leiðrétt af ágætum kennurum í hverri grein. Skólinn leggur ekki til svara- og verkefnahefti, en mælist til. að nemendur noti litlar stílabækur eða laus blöð. Áherzlu ber að leggja á það, að ganga sem bezt frá svörunum, skrifa greinilega og hafa spássíu fyrir leiðréttingar. Það er góð regla að skrifa aðeins í aðra hvora lmu. Nemandi getur tekið eina námsgrein eða fleiri eftir því sem ástæður hans leyia. Um leið og hann sækir um kennslu í einhverri grein, sendir hann kennslugjaldið fyrir þá námsgrein, eða vottorð frá Sambandsfélagi um, að hann hafi greitt því kennslu gjaldið, eða biður um fyrstu námsbréfasendingu í póstkröfu. Nemandi verður að gæta þess, að gefa upp greinilegt heimilisfang. Nemand^ eru svo send tvö fyrstu bréf námsgreinarinnar. Hann svarar fyrst bréfi nr. 1 og sendir það til baka. Svarar bréfi nr. 2 meðan hann bíður eftir svari Bréfaskólans. Þegar skólinn fær svar nr. 1, sendir hann nemanda bréf nr. 3 og 1. bréf leiðrétt. Þegar skólinn fær svar nr. 2 sendir hann nemanda bréf nr. 4 og leiðrétt bréf nr. 2, og svo koll af kolii, þangað til flokkur- inn er búinn. Svar við hverju bréfi verður að vera komið til skólans eigi síðar en 3 mánuðum eftir að bréfið var sent út. Annars verður litið svo á, að nemandi hafi hætt námi, og hefur hann þá fyrirgert kennslugjaldi sínu. TTndanþágu frá þessu getur skólinn veitt, ef ætla má, að póstsamgöngur hafi hamlað, eða nemandi hafi verið veikur. Innan þessara tímatakmarka ræður nemandi því sjálfur, hve mikill námshraði hans er, en heppilegast er fyrir hann að svara bréfunum eins fljótt og hann getur. Nýir nemendur fá inngöngu, hvenær sem er á starfstíma skólans. Þegar nemandi hefur lokið námi, fær hann vott- orð um það frá skólanum. Nemendur verða að skuldbinda sig til að sýna ekki óviðkomandi mönnum bréf skólans, né svör. Bréfaskólar eru mikið notaðir erlendis. Sam- vinnusambönd nágrannalanda okkar reka flest bréfaskóla. Þeir eru hentugir fyrir fólk á öllum aldri og hvaða atvinnu, sem það stundar. Nem- andinn getur notað frístundir sinar hvenær sem þær eru, til að lesa bréfin og svara þeim. Hann ræður sjálfur að miklu leyti námshraða sínum. Á þann hátt notast frístundirnar miklu betur en í venju- legum skólum. Bréfaskólarnir hafa og þann kost, að fólk, sem búsett er á stöðum, þar sem lítið er um kennslukrafta, getur á þennan hátt notið kennslu færustu manna í hverri grein. Margir ágætir menn hafa sótt menntun sína í bréfaskóla. í ýmsum löndum eru skólarnir orðnir svo full- komnir, að þeir kenna allt, sern þarf til stúdents- prófs og í sumum greinum iil háskólaprófs. Þetta kennsluíorm hefur alls staðar i-eynzt mjög vel. TAKIÐ EFTIB. — Bréfaskóli SÍS veitir ungum og gömlum, konum og körlum, tækifæri til að nota frístundirnar til að af!a sér fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri námsára, aukið þekkingu yðar og möguleika á að komast áfram í lífinu. Þér getið gerzt nemandi, hvenær ársins sem er, og eruð ekki bundinn við námshraða annarra nemanda. Bréfaskóli S.f.S. býður yður velkominn. Utanáskrift Bréfaskólans er: Bréfaskóli S.Í.S. Beykjavík. Undirritaður óskar að gerast nemandi í eftirtöldum námsgreinum: □ Vinsamlega sendið gegn póstkröfu. □ Greiðsla hjálögð kr. ____________ nafn heimilisfang 69 W •n > w o* Cfl > fs g M 69 H > ss ^ «1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.