Morgunblaðið - 20.10.1962, Page 1
24 síður
49. árgangur
234. tbl. — Laugardagur 20. október 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tékkneski fulltrúinn lézt
Hafði skotið konu sina og ætlaði
sjálfum sér sömu örlög
Bethlehem, Pennsylvania,
f 19. október — AP,
1 DAG lézt í sjúkrahúsi í
Pennsylvania, tékkneski sendi
sveitarfulltrúinn Karel Zizka,
af skotsári því, er hann veitti
sjálfum sér er lögreglumenn
frá New Jersey náðu honum
eftir æðisgenginn eltingaleik.
Kona hans hafði fundizt látin
skömmu síðar og fannst hjá
henni orðsending frá Zizka,
þar sem segir, að hann hafi
ráðið henni bana og ætlað
sjálfum sér sömu örlög.
Zizka var einn af fulltrúum
Tékkóslóvakíu hjá Sameinuðu
þjóðunum og fannst kona
hans látin í aðsetri sendinefnd
arinnar í New York. f>au hjón
in voru bæði um fertugt.
Af hálfu tékkneskra yfir-
valda hefur því verið lýst yfir,
að hjónaband þeirra hafi verið
gott, að svo miklu leyti sem
kunnugt hafi verið, og fjöl-
skyldulíf þeirra rólegt og
traust. Sé ekki til önnur skýr-
ing á þessum hörmulega at-
Stærsta
smygl
sem um
getur
Washington, 19. ökt. — (AP)
EINHVER stærsti smygl-
farmur af hrá-ópíum, sem
um getur í sögunni, eða
heil smálest, hefur komizt
í hendur yfirvalda Thai-
lands og handaríska eitur-
lyf jaef tirlitsins. Talið er
víst, að J»ví hafi átt að;
smygla til Bandaríkjanna,
en verðmæti farmsins er
nær 900 milljónir kr. (ísl.)
Carl Debaggio, fnam-;
kvæmdastjóri eftirlitsins,
sagði í dag, að farmur þessi
’hefði fundizt fyrir viku í
Thailandi og ljóst sé, að hann
hafi átt að fara til Bandaríkj-
anna. Sagði hann, að fundur
þessi væri árangur aukinna
rannsókna á eituriyfjasmygli
frá Austurlöndum í samvinnu
við stjórnir viðkomandi
landa.
Síðast í júlí sl. fannst í
Tyrklandi mikið magn eitur-
lyfja, að verðmæti um þrjúl
hundruð millj. kr. (ísl.), eftir
sameiginlegar rannsóknir •
aandarísku eiturlyfjagæzlunn
ar og tyrkneskra yfirvalda. 1
burði en sú, að Zizka hafi
fengið taugaáfall.
★ ★ ★
Það var í gær, að Zizka ók
svartri Cadillac bifreið, eign
tékknesku ríkisstjórnarinnar,
með 185 km hraða inn í Penn-
sylvaníuríki. Lögreglumenn
frá New Jersey veittu hon-
um eftirför og tókst að ná
honum eftir langan eltinga.
leik. Þegar lögreglan kom að
ökumanninum sem reyndist
vera Karel Zizka, skaut hann
úr skammbyssu á einn lög-
reglumannanna, sem svaraði
með því að særa Zizka á öxl.
Beindi hann þá skammbyss-
unni að höfði sínu og hleypti
af. Hann var þegar fluttur í
sjúkrahús, og börðust læknar
þar við að halda í honum líf-
inu. Snemma í morgun hafði
hjartað stöðvazt en læknarnir
opnuðu brjóstholið og tókst að
koma því af stað aftur. Zizka
lézt síðdegis í dag.
Lítill árangur
af viðræðum Kennedys og Gromykos
Washington, 19. okt. AP.
• Talsmaöur bandariska utan-
ríkisráðumeytisins sagði í dag, að
viðræður þeirra Kennedys for-
seta, og Gromykos, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna hefðu lítinn
árangur borið. Talið er — en
óstaðfest þó að Kennedy hafi
beðið Gromyko að bera Krúsjeff,
forsætisráðherra, þau orð, að
hanin sé reiðubúinn til viðræðna
við hann um Beriinarmálið og
önnur alþjóðleg deilumál, ef
hann hyggi á ferð til Bandarikj-
anna nú í haust. Er talið, að hanm
hafi þó tekið fram, að viðræð-
urnar verði að vera óformlegar
og látið fylgja, að Krúsjeff geri
sér falsvonir einar, ef hann vænti
þess að stefna Bandaríkjamanma
í Berlínarmálinu verði á nokk-
urn hátt öðru visi eftir einm mán
uð en hún er niú.
Gromyko og Kennedy ræddust
við í tvær klst. í Hvíta húsinu
Florida, 19. okt. — (AP) —
í D A G var skotið á loft
eldflaug af gerðinni Nike
Cajun frá eldflaugastöð flug-
hersins við Eglin í Florida.
í 80 km hæð sleppti eldflaug-
in kemískum efnum sem
mynduðu gerviský. Tilraun
þessi er hin 6. af 30, sem gera
á til rannsókna á efstu lögum
gufuhvolfsins.
og síðan ræddust þeir við í fjór-
ar klst. Gromyko og Dean Riusk
utanríkisráðherra. Var fundi
þeirra ekki lokið fyrr en etftir
miðnættið. í dag hélt Gromyko
til New York, en heim til Rúss-
lands hyggst hann fara á sunnu-
dag að gefa Krúsjeff skýrslu.
Af hálfu sovézkra yfirvalda hef-
ur því hvorki verið neitað né
játað að Krúsjeff hyggi á Banda-
ríkjaferð. en orðrómur þar að
lútandi hefur komizt á kreik af
Framhald á bls. 23.
New York, 19. okt. AP.
• Hinn vinsæli hljómlistar-
maður Benny Goodman var
seint í gærkveldi lagður í
sjúkrahús vegna meinsemdar
í baki. Goodman fór sem
kunnugt er í hljómleikaför til
Rússlands nýlega og átti að
leggja upp í aðra ferð í dag,
en henni hefur nú verið frest
að um óákveðinn tima.
Sætta sitf ekki viö
irekari íhiutun
um samgönguleiðirnar til Berlinar
Bonn, 19. október, AP).
• GERHARD SCHRÖDER,
utanrikisráðherra Vestur-
Þýzkalands kom í dag heim frá
New York, þar sem hann ræddi
m.a. við Kennedy forseta um
Berlínarmálið. Kveðst Schröder
sannfærður um, að Bandaríkja-
stjórn muni halda fast við fyrri
stefnu sína í því máli.
í opiniberri yfirlýsingu sem
Kristilegi demokrataflokkurinn
gaf út í dag segir, að Sehröder
sé mjög ánæigður með árangur
viðræðnanna við Kennedy og
aðna bandaríska ráðlherra, og
hafi ferð héms verið nytsamleg-
ur undirbúningur fyrir ferð Aden
auers til Bandaríkjanna í næsta
mónuði.
í yfirlýsingunni segir, að
hvorki Þjóðverjar né Bandaríkja
menn muni sætta sig við frekari
íhlubun um samgönguleiðir Vest-
urveldanna til Berlínar. Frekari
tilslakanir í Berlínarmálinu hafi
aðeins í för með sér frekari kröf-
ur, því að sé kommúnistum rétt-
ur litli fingur gleypi þeir alla
höndina.
Hert aö siglingum til Kúbu
Washington, 19. okt. AP.
SKÝRT var frá því í Washington
í dag, að sendiherra
Liberiu í Washington hafi stað-
hæft við banitlaríska utanrikis-
ráðuneytið, að stjórn Líberíu
muni banna líberískum skipum
að sigla til Kúbu.
10. október sl. bannaði stjórn
Líberíu öllum skipum, sem sigla
undir fána landsins, að flytja
voipn eða önnur hergögn til
kommúnísku landanna og tveim
dögum síðar var tilkynnt að
líiberísk skip, sem vilji sigla til
Kúibu verði að fá til þess skrif-
lega heimild stjórnar sinnar.
Stjórnmálafréttaritarar í Was-
hington segja, að ætli stjórn
Liberíu að banna allar skipaferð-
ir til Kúbu gangi hún lengra en
Bandaríkjastjórn hafi sjálf ráð-
gert. — Bandarikin muni aðeins
loka höfnum sínum fyrir skipum,
sem sigla frá Spvétríkjunum tiíl
Kúbu, en ekki fyrir skipum sem
sigla milli hafna á Vesturlöndum
og Kúbu.
• Fá ekki að sigla undir fána
Panama.
Stjórn Panama tilkynnti einnig
í daig, að skip sem sigla til
hafna á Kúbu, fengju ekiki að
siigla undir fána Panama. Sem
kunnugt er sigla mörg skip und-
ir fána Panama, þótt annarra
þjóða séu, meðal annars mikið
af brezkum og grískum skipum.
ÞÁ var tilkynnt í New York
í dag, að bandarískir hafnar-
verkamenn hefðu fengið skip
un frá stjórn Félags hafnar-
verkamanna, um að ferma
hvorki né afferma skip semmú
liggja í bandarískum höfnum
frá skipafélaginu Orient. Á-
stæðan er sú, að nokkur skip
félagsins sigla til Kúbu. Fé-
lagið á alls 20 skip og hefur
aðalbækistöðvar í Pireus í
Grikklandi.
MEÐFYLGJANDl mynd var
tekin í Havana á Kúbu s.l.
miðvikudag, er BEN BELLA
forsætisráðhcrra Alsír, kom
þangað í heimsókn. Ók hann
um borgina í opinni bifreið,
ásamt þeim Fidel Castro, for-
sætisráðherra (t.v.) og Dor-
ticos, forseta (t.h.) og voru
þeir skrýddir blómsveigum í
ræðum sem Ben Bella hélt á
, Kúbu gagnrýndi hann mjög
stefnu Bandaríkjastjórnari
gagnvart Kúbu og hafa ýmis
umrnæli hans vakið mikla
reiði í Bandaríkjunum. And-
, stæðingar Kennedys . hafa
þeirra vegna gagnrýnt Kenne
dy fyrir að hafa boðið Ben
Bella til Washington, segja
þeir hann hlynna að óvinum
i Bandarík janna með slíkum
heimsóknum.
T ogarasala
TOGARINN Víkingur seldi í
Bremerhafen í Þýzkalandi í gær
fyrir 110 þúsund mörk.
Ranger
V hittir
ekki
New York, 19. okt. — (AP)
TILRAUN Bandaríkjamanna
!til að senda geimhnöttinn
Ranger V til tunglsins, mun
ekki bera tilætlaðan árangur.
Þegar Ranger V hafði ver-
ið á ferð í niu klukkustundir,
varð ljóst, að rafhlöður hans,
sem áttu að endurhlaðast
orku frá sólargeislum, störf-
s.uðu ekki eins og til var ætl-
azt. Mun geimhnötturinn fara
fram hjá tunglinu í um 5000
km fjarlægð og ekki senda
þær sjónvarpsmyndir til
jarðar, sem honum var ætlað.