Morgunblaðið - 20.10.1962, Page 2
2
MORGVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 20. október 1962.
íslenzk kornrœkt þarf oð
komast á traust-
an grundvöll
Gagnlaus yfirborðstilfaga
Framsóknar og kommúnista
FRAMLAG stjórnarandstöðunn-
ar til komræktar á íslandi er
ekki stórbrotið. Framsóknar-
menn og kommúnistar hafa
niðurgreiðslu á verði innlends
koms og leggrja til að hún verði
htn sama og á erlendu fóður-
korni.
Til marks um gildi þessarar
tiliögu, sem stjórnarandstæðing-
ar telja stórmál fyrir kornrækt-
ina í landinu má geta þess að
miðað við árið 1961 hefði niður-
greiðslan nurnið um 400 þús.
krónuim. Einn þriðja bluta af
þeirri uppihæð hefðu bændur
sjálfir fengið, en meginihlutann
eða tvo þriðju hluta upphæðar-
innar hefði rikið, S.f.S. og hluta
félagið HafrafeU fengið.
Það er í samræmi við annað
hjá stjórnarandstoðunni að
telja það mikinn stuðning við
bændur ef niðurgreiðslan væri
framkvæmd. Fyrrgreind tillaga
er flutt í tilefni af því að stjórn-
arandistaðan telur erlenda fóður-
kornið njóta óeðlilegra fríðinda
vegna láigra farmgjalda, tolla og
niðungreiðslna.
Ef erlent fóðurkorn hefði ekki
verið greibt niður, hefði tillagan
aldrei verið flutt. Má af því
marka þann stuðning, sem korn
rækt á íslandi getur vænzt hjá
Rannsókn vegna
deyfilyfjaneyzlu
MBL. AFLAÐI sér upplýsinga
um að saksóknari rikisins hefur
ritað yfirsaksóknaranum í
Reykjavík bréf þar sem óskað
er eftir rannsókn varðandi neyzlu
deyfilyfja, sem undanfama tvo
daga hefur nokkuð borið á góma
í dagblöðu n u m.
Kosningum frest-
að í Aust-
ur-Þýzkalandi
Berlín, 19. okt. — (AP) —
ÞINGIÐ í Austur-Þýzkalandi
samþykkti í dag, að fresta
um eitt ár kosningunum, sem
fara áttu fram í næsta mán-
uði. Ástæður fyrir þessari
frestxm eru sagðar ríkjandi
ástand í alþjóðamálum og
undirbúningur að efnahags-
áætlun, sem á að ná til árs-
ins 1970.
Talið er víst, að hin raunveru-
lega ástæða til þess að kosning
tinum er frestað sé sú, að austur-
þýzk yfirvöld vilji að gengið sé
frá hinum margumrædda frið-
arsamningi milli Austur-Þjóð-
verja og Rússa meðan núver-
andi þing situr.
Alkunna er að talsvert hefur
borið á því undanfarin ár að
menn væru teknir undir áíhrif-
um ýmissa lyfja. Hefur hér yfir-
leitt ekki verið um raunveru-
leg, eiturlyf að ræða, heldur
ýmis örvandi lyf og taugalyf,
megrunarlyf og slíkt. Fást lyf
iþessi hérlendis aðeins gegn fram
visun lyfseðils, en erlendis, t.d.
í Þýzkalandi, mun vera hægt að
fá þau án lyfseðils. Vitað er að
eitthvað hefur verið smyglað af
lyfjum þessum til landsins og að
sj'álfsögðu hafa verið gefnir hér
út lyfseðlar til handa þeim, sem
lyf þessi þurfa. Mál þetta er ekki
nýtt af nálinni og hefur af og
til borið á góma í blöðum lands
ins undanfarin ár.
stjómarandstöðunni. Framsókn-
armenn og kommúnistar reyna
að snúa hlutunum við með því
að halda því fram, að ríkisstjórn
in sé þrándur í götu kornræktar-
innar.
Sannleifcurinn er sá að rikis-
stjórnin hefur á myndarlegan
hátt lagt grundvöll að kornrækt
í landinu með því að verja mikl-
um fjármunum til nauðsyrtlegra
tilrauna svo að kornræktin geti
bySgst á traustum og örugigum
grundvelli.
Það er vitanlega miklu stærra
mál, að varið sé fjármunum til
kornræktartilrauna heldur en
að kornbændur fái rúmlega 100
þús. krónur í niðurgreiðslur á
korn á ári.
Það er svo rétt, sem landlbún-
aðarráðiherra benti á í umræð-
um á Alþingi um þessi mál, að
ef bændur ráðast ailmennt í
kornrækt áður en henni hefur
verið komið á traustan grund-
voll og verða fyrir tjóni af
þeim sökum þá getur það orðið
til þess að hindra eðlilega þróun
kornræktarmálanna.
Bslenzlkir visindamenn vinna
nú af kappi að rannsóknum og
tilraunum á þessu sviði. Er ó-
hætt að vænta jákvæðs árarvgurs
af því nauðsynlega starfi innan
fárra ára. Er því ástæða til þess
að vera bjartsýnn á möguleika
kornræfctarinnar hér á landi í
náinni framtíð.
MMMMÚMynMbMAMtl
Kindur
drepnar á
Miklubraui
LAUST eftir klukkan eitt
í gærdag gerðist það á
Miklubraut við Háaleitisveg
að jeppi ók á tvær kindur.
sem þar voru á flakki um
götuna, og lemstruðust báð
ar svo, að þeim varð að lóga
á staðnum. Má telja furðu
legt að sauðfé sé á flakk
á einni mestu umferðargöti
borgarinnar, og ættu þess
tíðindi að benda sauðfjár
eigendum í nágrenninu að
gefa botur gaum fé sínu.
Tónleikar Ann Schein
KVEÐJUSÓNATA Beethovens
(„Lebewohl"), Wanderer-fanta-
síá Schuberts, sónata (samin
1926) eftir Béla Bartók og nokk-
ur lög eftir Chopin voru viðfangs
efni ameríska píanóleikarans
Ann Schein á tónleikum, sem
hún hélt í Austurbæjarbíód fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélagsins
á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld. Þetta er fjölbreytt og inni
haldsmikil efnisskrá og svo erfið
og kröfuhörð, að ekki er á færi
SKYNDIHAPFDRÆTTI
t»
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS SKYNDI
ÍH
M
IMotið helgina til
þess að gera skil
ÞEIR, sem ekki hafa enn gert skil fyrir heimsenda miða
í Skyndihappdrætti Sjálfstæðisfiokksins eru eindregið
beðnir um — og hvattir til að ljúka þvi af nú um þessa
helgi, sem er síðasta helgi happdrættisins. Það er af
skiljanlegum ástæðum mjög mikilsvert fyrir alla fram-
kvæmd happdraettisins, að skil dragist ekki fram á allra
síðustu stund. Þar sem ætla má, að mörgum muni þykja
þægilegt að geta notað friið um helgina til að gera skil,
verður skrifstofa happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu
opin bæði í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag,
allan daginn og til kl. 10 að kvöldi, síminn er 17104.
NOTI0 HELGINA — GESI8 SKIL!
t»
M
W
o
J
tn
t»
ÞN
Q
$
H
rfl
E*
Xfl
SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
g
§
os
Q
0h
PM
3
ð
SKYNDI
annarra en mikilhæfra pfanóleik-
ara að gera henni þau skil, sem
vert er.
Ann Schein er áður að góðu
kunn hér. Það munu vera fjög-
ur ár síðan hún kom hingað
fyrst, þá 17 ára gömul, og vakti
hún þá slíka hrifnignu reyk-
vískra áheyrenda, að lengi verð-
ur minnisstætt. Þeir undruðust
þann þrótt, sem þessi fingerða,
unga stúlka bjó yfir, samfara
mikilli mýkt og hlýju, óaðfinn-
anlegri tækni og óvenjuilegum
músíkölskum vitsmunum. Síðan
hefir hún farið víða, bæði austan
hafs og vestan, — og raunar
komið hér við einu sinni. —
haldið mikinn fjölda tónleika og
hvarvetna hlotið mikið lof hinna
ströngustu gagnrýnenda.
í þessum skóla hefir hún vaxið
að reynslu og þroska, án þess að
glata nokkrum þeim eiginleik-
um, sem mesta aðdáun vöktu á
fyrstu tónleikum hennar hér fyr
ir fjórum árum. Af næmum
skilningi og innsæi greiddi hún
úr hinu margslungna meistara-
verki Beethovens, svo að það
mátti heita hverju barni Ijóst.
Ljóðræn mýkt og glæsileg tiiþrif
einkenndu meðferð hennar á
verkunum eftir Schubert og
Ohopin, og í meðferð hennar á
sónötunni eftir Bartók bjó slík
rýtmísk spenna og mögnuð
kynngi, að þetta rúmlega hálf-
fertuga verk — sem raunar þyk-
ir nú ekki lengur nýmóðins ■
varð æsiLegt á að hlýða.
Jóa Þórarinsson.
Bruni á Vatns-
leysuströnd
Keflavík 19. okt.
I MORGUN snemma klukkan
hálf sex kom upp eldur í húsinu
Skipholti á Vatnsleysuströnd. —
Slökkvilið Keflavíkur var kvatt
á vettvang og einnig kom til að-
stoðar slökkviliðið af Keflavíkur-
flugvelli, en þá var kominn mjög
mikill eídur í húsið og erfitt að
slökkva vegna vatnsleysis. Var
ekkert vatn að fá utan það, sem
bílarnir höfðu með sér.
Þó tókst að ráða niðurlögum
eldsins, en skemmdir urðu tals-
vert miklar á húsinu. Eigandi
hússins er Kristinn Ágústsson og
var hann heima ásamt þremur
börnum sinum, en kona hans er
á sjúkrahúsi. Kviknað mun hafa
í út frá olíukyntum katli.
— Helgi S.
Vorboðafundur á
mánudagskvöld
HAFNARFIÐI. — Vetrarstarfið
er nú að hefjast hjá Sjálfstæðis-
félaginu Vorboðanum og verður
fyrsti fundurinn í Sjál'fstæðisihiús
irvu næsta rrvánudsa gBkvölid kl.
8.30. Þar verður kostið í full-
trúaráð, frú Elín Jósefsdóttir
bæjarfulltrúi talar um bæjar-
miál, binigó spilað, og á fundin-
um verður kaffi framleitt.
Nú er sá timl genglim i garði
að smábátaeigendur í Rvík 7
taka báta sina úr höfninni og
koma þeim fyrir á öruggum
stöðum fyrir veturinn. Þessi
mynd var tekin við höfnina
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
Gunnar C. Schram
formaður Anglía
AÐALFUNDUR félagsins
„Anglia“ var haldinn I Glaumbaa
í gærkvöldi, 19. október kl. 8,30.
Dr. Gunnar G. Schram var
kjörinn formaður og aðrir i
stjórn vou kjörnir: Haraldur Á.
Sigurðsson, gjaldkeri; A. F. Com
fort, ritari; Frú Doris Briem,
Þorsteinn Hannesson, Donald M.
Brander, Hallgrímur F. Hall-
grímsson, Hjalti Þórarinsson og
Brian D. Holt, formaður skemmti
nefndar.
Á næstunni verður skýrt fr&
því hvernig starfi félagsins í vet-
ur mun verða háttað.
Happdrætti Ár-
nesingal
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Árnesingafélagsins. Eftir-
talin númer hlutu vinning: 442,
7619, 4229, 194, 3982, 1846, 3627,
Eru félagskonur beðnar að fjöl menna og taka með sér gesti. 3922, 7160 og 4950. (Birt án ábyrgðar).
I / SV 50 hnútar K Snjó/roma » ÚSi 7 Shvrir E Þrumur 'W!s, KuUosM hihikié H Hmt 1
VESTAN við hæðina við ís-
land var suðlægur loft-
straumur. Loftið yfir íslandi
hafði hlýnað og tekið í sig
raka suður á hafi, sem þéttist
um fyrir sunnan og suðvestan
land. A Norður og Austur-
landi var hinsvegar bjart veð-
ur og hlýindi t. d. 13 stig á
í súld og þoku í köldum sjón- Akureyri.