Morgunblaðið - 20.10.1962, Side 12
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 20. október 1962.
æ
Ctgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
T. ramkvæmdastj óri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
3500 MILLJÖNIR
Cparifé landsmanna nemur
^ nú 3501 millj. kr. og hef-
ur aldrei verið meira í sögu
þjóðarinnar. Viðskiptamála-
ráðherra skýrði frá þessu á
þingfundi í fyrradag í ræðu
er hann flutti um tillögu
Framsóknarmanna um vaxta-
lækkun. Gat hann þess jafn-
framt að gert væri ráð fyrir
að meðalsparifjárinnstæða
næmi á næsta ári um 3900
millj. kr.
Ef hins vegar að tillögur
Framsóknarmanna um vaxta
lækkun næðu fram að ganga
myndu sparifjáreigendur á
einu ári verða sviptir 78
millj. kr.
Þessar tölur tala sínu máli.
Jafnvægis- og viðreisnarráð-
stafanir núverandi ríkis-
stjómar hafa hvatt þjóðina
til spamaðar. Það er almenn-
ingur í landinu sem á þessar
3500 millj. kr., sem sparifjár-
innlögin nema í dag. Það em
tugir þúsunda einstaklinga,
ungra og gamalla til sjávar
og sveita, sem eiga þetta
sparifé. Þetta fólk á fæst svo
háar upphæðir inni í spari-
sjóðsbók sinni að það verði
talið ríkt eða jafnvel vem-
lega efnað. Það hefur sparað
þetta fé saman í ýmis konar
tilgangi, ungt fólk til þess að
geta byggt upp heimili, keypt
atvinnutæki eða veitt sér ein-
hver lífsins gæði, gamalt
fólk til þess að skapa sér ör-
yggi á efri árum.
★
Þetta fólk hefur verðbólgu-
stefna undanfarinna ára oft
leikið grálega. Sparifé þess
hefur stöðugt verið að rýrna.
Dýrtíð hefur höggvið ný og
ný skörð í íslenzka krónu.
Viðreisnarstjómin sneri
blaðinu við. Hún stöðvaði
vöxt verðbólgunnar, skráði
krónuna á raunverulegu
gengi hennar og treysti
gmndvöll íslenzks efnahags-
h'fs. Sparifjáreigendur fengu
pýtt traust á gjaldmiðlinum
Og sparifjárinnlögin stórjuk-
ust og em nú meiri en
nokkru sinni fyrr.
En nú koma Framsóknar-
menn og kommúnistar og
segja þessu fólki enn einu
sinni stríð á hendur. — Þeir
heimta að vextirnir verði
lækkaðir, þeir krefjast að
allar varnir gegn nýrri verð-
bólguöldu verði brotnar nið-
ur. Þeir heimta að 78 millj.
kr. á ári verði strax teknar af
hinum mikla fjölda sparifjár-
eigenda, sem lagt hefur þjóð-
inni til fjármagn til fram-
kvæmda og reksturs fram-
leiðslutækja sinna.
I þessum tillögum Fram-
sóknarmanna og kommúnista
er mikið glapræði fólgið. —
Sparifjáreigendur, allur al-
menningur í landinu, verða
að snúast til varnar gegn
niðurrifsöflunum. Hér er
vissulega mikil alvara á ferð-
um, sem hver einasti hugs-
andi maður verður að taka
afstöðu til.
ER ÁSTÆÐA
TIL ÞESS?
Fnn einu sinni leggur Ey-
steinn Jónsson til að nýr
skattur verði lagður á þjóð-
ina. í þetta skipti vill formað-
ur Framsóknarflokksins, hinn
gamli skattránspostuli, láta
taka upp hið illræmda upp-
bótarkerfi að nýju og hefja
greiðslu á svokallaðri „tækja-
uppbót“ til útvegsins. Þetta
vill Eysteinn láta gera í stað-
inn fyrir að láta útgerðina
standa undir sér sjálfa með
því að hlutaskipti verði mið-
uð meira en verið hefur und-
anfarið við hin nýju og dýru
tæki, sem útgerðarmenn hafa
orðið að kaupa til síldveið-
anna.
Það sætir vissulega engri
furðu þótt sú spurning vakni,
hvort ástæða sé til þess að
fara að skattleggja almenn-
ing í landinu til þess að borga
slíka tækjauppbót. Vitað er
að meðalhlutur háseta á sum-
arsíldveiðum var um 60 þús.
kr. á tveimur til þremur
mánuðum.
Yfirgnæfandi meirftiluti
þjóðarinnar gerir sér ljóst að
uppbótakerfið hefur gengið
sér gjörsamlega til húðar.
Það væri þess vegna hið
mesta glapræði að taka það
upp að nýju. Framleiðslu-
tækin verða að bera sig og
standa sjálf undir rekstrar-
kostnaði sínum.
77 ÁR
Ðrezki Ihaldsflokkurinn hef-
*' ur að loknu þessu kjör-
tímabili farið 11 ár samfleytt
með völdin í Bretlandi. Eftir
að flokkurinn hafði lokið árs-
þingi sínu fyrir skömmu,
komst einn af andstæðingum
hans í Verkamannaflokknum
þannig að orði, að íhalds-
menn væru algjörlega sann-
færðir um að þeir myndu
vinna næstu kosningar, og
það sorglega væri að þessi
bjartsýni gæti átt við rök að
styðjast.
Hvernig stendur á því að
jafnvel fylgjendur Verka-
Kommúnistar þrjózkast við að
flytja hermenn sína frá Laos
Andrei Gromyko, utanrikisráS'herra Sovétríkjanna undirritar
samkomulagið um Laos á 14 ríkjaráðstefnunni i Genf. —
Hægra megin við hann situr Souvanna Phouma.
ÞEGAR samningurinn, sem hatt
enda á borgarastyrjöldina í Laos,
var undirritaður á 14 ríkja ráð-
stefnunni í Genf í júlí sl., var
sætzt á að landið yrði sjálfstætt
og hlutlaust. Til að tryggja þetta
var kveðið svo á, að allir erlend
ir hermenn skyldu vera farnir
úr landinu ekki síðar en 7. okt.
sl. og átti alþjóðleg eftirlitsnefnd
skipuð Kanadamönnum, Indverj
um og Pólverjum, að fylgjast
með því að þessu ákvæði samn-
ingsins yrði 'framfylgt.
Bandaríkjamenn, sem höfðu
800 hernaðarsérfræðinga til að-
stoðar konungssinnum í Laos,
kölluðu þá heim fyrir hinn til-
skylda tíma, en í síðustu viku
varð ljóst, að kommúnistar höfðu
ekki brugðizt eins við. Um 10
þúsund menn Viet Minh, komm
únista í N-Viet Nam, höfðu að-
stoðað Pathet Lao, kommúnista
í Laos, við að ná nær öllu land
inu á sitt vald. Aðeins 50 þessara
manna höfðu farið út úr landinu,
á tilskyldum stöðum 7. okt.
Bandaríkjamenn fóru þess á
leit við alþjóðlegu eftirlitsnefnd
ina, að hún grennslaðist fyrir um
hvað orðið hefði af kommún-
istunum. Souvanna Phouma, hinn
hlutlausi, forsætisráðherra sam-
steypustjórnarinnar í Laos, segir
að flestir menn Viet Minh, séu
farnir úr landinu, en sagt er, að
hann geti lítið um það vitað, því
land hans sé ennþá skipt milli
hægrisinna, kommúnista og hlut-
lausra og Pathet Lao og þeir
hinna hlutlausu, sem snúizt hafa
á sveif með kommúnistum ráði
enn yfir tveimur þriðjuhlutum
landsins. Neiti þeir algerlega að
hleypa fulltrúum hinnar alþjóð-
legu eftirlitsnefndar inn á sitt
landssvæði til að ganga úr
skugga um hvort kommúnistar
frá N-Viet Nam séu þar ennþá.
Samkvæmt fregnum frá vest
rænni leyniþjónustu hafa um 3
1 ' s. herm CUU sj g tæknifræðingar
Hersveitir kvenna í Laos,
ganga í fylkingu um
göturnar.
frá N-Viet Nam farið frá Laos
og margir þeirra gengið í lið með
skæruliðum kommúnista í S-
Viet Nam, Viet Cong. Þúsundir
eru þó enn í Laos, sumir búa í
þorpum innfæddra, en aðrir eru
enn í hers'töðvum. Talið er, að
menn Viet Minh séu enn í Laos
til að varna því, að Poumi Nosa
van, hershöfðingi, sem Banda-
ríkin styðja taki völdin í sinar
hendur, til að vera reiðub' * ef
kommúnistar ákveða að taka
völdin af Souvanna Phouma, for-
sætisráðherra og síðast en ekki
síst til þess að geta fylgzt með
%
því sem gerist í S-Viet Nam, aust
an landamæra Laos og í Thai-
landi, vestan landamæranna.
Her Ngo Dinh Diem, forseta
í Þ E S S U M mánuði, október,
munu í fyrsta sinn starfa sjálf-
boðaliðar á vegum tæknihjálpar
SÞ í vanþróuðu ríki. 18 land-
búnaðarsérfræðingar úr friðar-
sveitum Bandaríkjanna munu
starfa á vegum Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO)
sem kennarar í Austur-Pakistan
í sambandi við miklar áveitu-
framkvæmdir, sem þar eru á
döfinni með aðstoð FAO. Þarna
á að veita vatni úr Ganges á
stór svæði og koma í veg fyrir
árstíðabundin flóð vegna vatna-
vaxta, sem fylgja monsúnvind-
unum, með stíflugerðum. Þess
S-Viet Nam, sem nú á í baráttu
við 2-5 þús. Viet Cong skæruliða
og 100 þús. menn, sem stjórnað
er frá N-Viet Nam, er hætta bú-
in af kommúnistunum frá N-Viet
Nam, sem börðust í Laos. Komm
únistar í S-Viet Nam ráða nú yf
ir svokallaðri Ho Chi Minh leið,
en eftir henni fara skæruliðarnir
frá Laos inn í S-Viet Nam.
Ef alþjóðaeftirlitsnefndinnl
eða Souvanna Phouma tekst
ekki að fá hermenn Viet Minh
til að fara frá Laos til N-Viet
Nam má búast við því að bar-
átta við kommúnista í S-Viet
Nam verði mun erfiðari í fram-
tíðinni, en hún hefur verið til
þessa.
(Lausl. þýtt úr Newsweek).
er vænzt að hægt verði að þre-
falda haustuppskeruna á þessu
svæði. Sjálfboðaliðarnir munu
kenna bændum þarna að veita
vatni á lönd sín og sýna þeim
ýmsar nýjar aðferðir við land-
búnaðarstörf. FAO ráðgerir að
taka fleiri sjálfboðaliða í þjón-
ustu sína. Einnig hefur Efna-
hags- og félagsmálaráð SÞ á-
kveðið að senda tæknimenntaða
sjálfboðaliða til nokkurra landa,
sem njóta tæknihjálpar SÞ, að
fengnu samþykki viðkomandi
ríkja og verður þetta fyrst gert
í tilraunaskyni.
----------------------,---
Sjálfboðaliðar á vegum
tæknihjálpar S.Þ.
mannaflokksins eru farnir að
gera þessu skóna?
Ástæðan er einfaldlega sú,
að Hugh Gaitskell kann að
hafa hlaupið hrapallega á sig
með andstöðu sinni og flokks
síns við Efnahagsbandalagið.
Öllum fregnum ber saman
um það að aðild Breta að
bandalaginu eigi mjög vax-
andi fylgi að fagna meðal
brezku þjóðarinnar. Efnahags
leg eining Evrópu er hið
mikla mál framtíðarinnar.
Tollamúrar eru leyfar liðins
tíma. Hinar skyldu þjóðir V-
Evrópu taka höndum saman
um samræmdar aðgerðir og
einhuga baráttu fyrir stór-
felldum framförum og bætt-
um lífskjörum.