Morgunblaðið - 20.10.1962, Blaðsíða 16
16
MORGVNBLAÐIÐ
Lanf'arrtnmir 20. október 1962.
THAMES
TRADER
THAMES TRADER vöru-
bifreiðirnar eru fáanlegar
í stærðunum iy2—7 tonn,
með diesel- eða benzín-
vélum.
ÓDÝR — KRAFTMIKILL —
SPARNEYTINN
Sýningarbílar á staðnum (5 og 7 tonna).
íbbbbbbbbbbbbbfcbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
Svaladyralæsingarnur
KOMNAR AFTUR.
Siml 35697
yggingavorur h.f. Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
Sendisvelnsstörf
Duglegan og ráðvandan sendisvein, 14 til
15 ára, vantar okkur nú þegar. — Upplýs-
ingar á skrifstofunni.
FÁLKINN H.F., Laugavegi 24.
Karlmenn og kvenfólk
óskast strax til starfa í frystihúsi voru.
Hraðfrystihúsið FROST H.F.
Hafnarfirði — Simi 50165.
Duglegir unglingur
eðu krukkur
óskast til að bera MORGUNBLAÐIÐ
í þessi hverfi í borginni:
Fjólugötu — Kleifarveg — Rauöalæk.
Bergstaðastræt'
Kvikmyndohós
óskar eftir stúlku til að selja aðgöngumiða. Umsókn-
ir ásamt mynd, sendist í pósthólf 312 fyrir 25. þ.m.
Jza£ -------------------------------
Valdís R. Jónsdóttir
HINN 10. þ.m. andaðist frú Val-
dís R. Jónsdóttir í sjúkrahúsi
Akraness eftir langvinn veik-
indi. Útför hennar fer fram í dag
frá Kapellunni í Possvogi. Hér
verður þessarar mætu konu
minnst með nokkrum orðum.
I.
„Blómum þú stráðir, þó gull
væri smátt
og gróðinn á heimiU þínu,
en kærleik þinn brast ekki kjark
eða mátt
að komast að takmarki sínu,
því góðfýsin skapaði gróður
úr steinum
og græðilyf annarra sárum
og meinum“.
Þessar ljóðlínur koma mér í
huga, er ég kveð mína kæru mág
konu, sem ég hefi svo mikið að
þakka. Einkum verður mér
minnisstæð ástúð sú og umönn-
un, sem hún sýndi alltaf veikl-
aða drengnum mínum, er var svo
oft í fóstri hjá henni. Kærleiks-
böndin, sem knýttust á milli
þeirra verða honum og ástvin-
um hans ógleymanleg. Frá hon-
um færi ég hjartans þakkir. Það
er hans trú, að nú sé hans kæra
„Vaggí“ komin til æðri heima,
þar sem horfnir vinir taka á móti
henni.
Við hjónin og börnin okkar
þökkum hinni látnu alla hennar
tryggð og hjálpfýsi og biðjum
henni og ástvinum hennar bless-
unar guðs.
— G. B.
II.
Valdís R. Jónsdóttir var fædd
að Leiti í Dýrafirði 26. október
1892. Foreldrar hennar voru þau
hjónin Jón Matthíasson og Matt
hildur Sigmundsdóttir, sem þá
bjuggu á Leiti, en síðar á ýmsum
stöðum í Dýrafirði. Voru þau
bæði af góðum bændaættum,
vestfirzkum, en framætt Jóns
var úr Rangárvallasýslu og verð
ur það ekki nánar rakið hér. Frú
Valdís ólst upp hjá foreldum
sínum, sem voru mestu sæmdar-
hjón, er alla tíð börðust harðri
baráttu fyrir sér og sínum. Börn
þeirra voru 14 alls og var Valdís
hin þriðja í röðinni. Hún vandist
fljótt við mikla vinnu, en jafn-
framt ástríki góðra foreldra, sem
innrættu börnum sínum guðs-
ótta og góða siði, að þeirrar tíð
ar hætti. Eftir fermingu fór Val
dís til annarra, að vinna fyrir
sér, því að ekki var um að tala
skóla á þeim árum fyrir efnalítið
fólk. Hún var á góðum heimilum
og kom sér alls staðar vel, því að
hún var ágætlega greind og
vinnufús. Góð heimili eru jafn-
an góður skóli, enda reyndist frú
Valdísi það svo, því að hún var
mjög vel að sér til munns og
handa og notaði hvert tækifæri
til að bæta við þekkingu sína,
m.a. með lestri góðra bóka.
Árið 1918 giftist Valdís góðum
dreng, Jóni Benediktssyni, bíl-
stjóra, syni þeirra Benedikts Jóns
sonar og Ingunnar Björnsdóttur,
er lengi bjuggu á Frakkastíg 6,
hér í bæ. Þau voru bæði af borg
firzkum ættum, mestu heiðurs-
hjón, er allir eldri Reykvíkingar
kannast við.
Þau Jón og Valdís bjuggu
fyrstu árin hér í Reykjavík, en
1938 fluttust þau til Akraness og
hafa búið á Krossi meira en tvo
áratugi. Börn þeirra eru þessi:
Sigríður, gift Einari Jónssyni,
vélsmið á Akranesi. Ingunn, gift
Sigurði Matthíassyni, vélstjóra,
Reykjavík. Matthildur, gift ívari
Hannessyni, vélstjóra, Reykjavík.
Rut, gift Valdemari Kristinssyni,
sjómanni, Akranesi og Guðbjörg,
gift Gunnari Sigtryggssyni,
bónda á Fögrubrekku, Akranesi.
Áður en Valdís giftist eignaðist
hún eina dóttur, Bergþóru, sem
gift er Ásgeiri Sigurjónssyni, bíl-
stjóra í Kópavogi. Öll eru börn
þessi mannvænleg og góðir borg
arar síns bæjarfélags. Barnabörn
frú Valdísar eru 22 alls og barna
barnabörnin 7.
Allur þessi hópur átti skjól og
athvarf á hinu góða heimili afa
og ömmu á Krossi. Var þar jafn
an margt barna á sumrin og þótti
þar gott að vera. Frú Valdís var
ágæt húsmóðir, eiginkona og
móðir, sem vildi fórna sér fyrir
ástvini sína og var jafnan við-
búin að rétta öllum hjálparhönd,
sem þess þurftu og hún náði til.
Mjög kært var með henni, tengda
foreldrum hennar og öðru tengda
fólki og skyldmennum alla tíð.
Frú Valdís var fríð kona sýn-
um, vel lynt og viljasterk og
mjög dugleg til allra verka. Hún
var heilsuveil síðustu árin, en
fear veikindi sín með þreki og
stillingu hins trúaða manns og
vann sín verk af kostgæfni, þótt
heilsan væri oft tæp. Umhyggjan
fyrir ástvinum var jafnan efst í
huga hennar til síðustu stundar,
enda naut hún ástar þeirra og
virðingar í ríkum mæli.
Er því þungur harmur að þeim
kveðinn við fráfall hennar. En
huggun er það harmi gegn, að
hafa notið svo lengi ástríkis henn
ar og umhyggju. Það munu allir
vjnir þakka nú að leiðarlokum og
biðja hinni látnu blessunar guðs.
— X. H. J.
Lokað
Skrifstofur vorar verða lokaðar í dag,
laugardaginn 20. október.
SjóvátrijqqíÍq|fffaq Islands!
U ppboðsauglýsing
Uppboð á m.b. Uggi Ve. 52, sem auglýst var í LÆg-
birtingarblaðinu 71., 73 og 74. tbl. 1962, samkvæmt
kröfu Fiskveiðasjóðs íslands fer fram þriðjudag-
inn 23. okt. n.k. í dómsalnum við Hilmisgötu kl.
13,30.
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum,
17. október 1962.
Torfi Jóhannsson.
2*a herb. íbúðír
Til sölu eru tvær tveggja herb. íbúðir, önnur á hæð
en hin í kjallara. Lausar strax. Hagstæðir greiðslu-
skilmálar.
JÓN ÞORSTEINSSON, lögfr.
Óðinsgötu 4. — Símar 24772 og 22532.
íbúð til söíu
Einbýlishús til sölu strax. Laust til íbúðar. í kjall-
ara er iðnaðarpláss. Upplýsingar í síma 15260.
\
%
Sænskar HANDLAUGAR
og W. C. SAMSTÆÐUR.
H. Benediktsson hi.
Suðurlandsbraut 4. — Sími 38300.