Morgunblaðið - 20.10.1962, Qupperneq 24
FBÉTIASÍMA R MBL.
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
234. tbl. — Laugardagur 20. október 1962
A^ILD BRETA
Sjá bls. 13
Stöðugt uimið
að magakrabba-
rannsóknum
Bandarískur vísindamaður hefur starfað
hér í sumar og haust og von er d öðrum
EINS og skýrt var frá. í Morgun-
blaðinu i vor fékk prófssor Níels
Dungal, formaður Krabbameins
félags íslands, 50,000 dollara
styrk frá Nationai Institute of
Health í Washington, til rann-
sókna á magakrabba á íslandi.
Er styrkurinn veittur á 2 árum,
25,000 dollarar í senn. Krabba-
meinsfélagfð annazt rannsókn-
ir þessar og hófust þær þegar
í sumar. Við rannsóknirnar, sem
eru einkum fólgnar í gagnasöfn
un, vinna auk prófessors Dungal,
þeir Júlíus Sigurjónssan, pró-
fessor og Mr. Warwick Arm-
strong frá háskólanum í Ulinois,
sem hingað kom í júlímánuði.
Prófessor Dungal tjáði Mbl. i
gær að brátt gerðist þess þörf
að fjölga starfsliðinu við rann-
sóknirnar um a.m.k. einn. Sagði
hann og að von væri á öðrum
bandarískum vísindamanni hing
að, prófessor Frederick Sargent,
einnig frá Illinoisháskóla, og
væri hans von í desenr.ber. Mr.
Armstrong mundi fara héðan í
nóvember en væntanlega koma
aftur í marz eða april.
Prófessor Dungal sagði að
rannsóknírnar. snerust nú eink-
um ujm að safna öllum gögnum
Aðeins
um þá sjúklinga hérlendis, sem
fengið hefðu magakrabba frá því
að skýrslur hófust. Væri þetta
mikið verk. Síðan þyrfti að meta
'hvert einstakt tilfelli, athuga
hvaða rannsóknir hefðu verið
gerðar á sjúkdómnum og hversu
áreiðanlegar þær væru.
Næsti þáttur verður síðan að
rannsaka umhverfi, næringu og
atvinnu hvers og eins til þess
að athuga hvort hægt væri að
finna samband á milli lifnaðar-
hátta og magakrabba.
Framhald á bls. 23
dagar
eftir
NÚ ERU aðeins 6 dagar, þar
til dregið verður í hinu glæsi-
lega Skyndihappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins. Þeir, sem
hafa fengið senda miða, en
ekki gert skil fyrir þá enn,
eru því beðnir um að gera
það eins fljótt og þeir frekast
geta. — Miðarnir hafa selzt
mjög vel og eru nú aðeins fá-
ir eftir til sölu í happdrættis-
bílunum sjálfum i Austur-
stræti (við Útvegsbankann)
og skrifstofu happdrættisins
í Sjálfstæðishúsinu. Skrif-
stofan er nú opin á hverju
kvölds til kl. 10. 1
Sumarveður á Fjöllum
Áætlunarferðir til Akureyrar teknar
upp að nýju
Grímsstöðum á Fjöllum
10. ok'tóber.
HÉR er 10 stiga hiti í dag, sum-
arblíða og brúsandi þurrkur.
Hefði maður sannarlega þegið
slíkan dag á heyskapartimanum
í sumar. Veðrið hér í haust hef-
ur verið með eindæmum gott,
og bætir það upp lélegt sumar.
Áætlunarferðir frá Vopnafirði
og Reyðarfirði til Akureyrar eru
nú hafnar aftur, en þeim lýkur
yfirleitt um mánaðamótin sept-
ember-október. Er það mjög ó-
vanalegt að áætlunarferð sé
haldið áfram svo seint.
Ferðimar hættu eins eins og
1ög gerðu ráð fyrir um mánaða-
mótin, en þær féllu ekki niður
nema í eina viku. Hafa þær nú
staffið í tvær vikur, en ein ferð
er á viku.
Hér hefur verið sérstaklega
Samningafundur
stóð
enn
FUNDUR hófst kl. 21 í gærkvöldi
með sáttasemjara og deiluaðilum
um kjör sjómanna á síldveíðum.
Samningafundur stóð enn er
Mbl. fór í prentun í nótt.
Varðarkaffi
i Valhöll
i dag
kl. 3—5 siðdegis
Bein finnast í Flóanum
UM s.l. mánaðamót er Eiríkur
Þorgilgson, bóndi að Langholti
í Flóa, var að grafa fyrir safn-
húsi í túni sínu kom hann niður
á gömul mannabein. Komu brátt
í ljós sjö beinagreidur, sem
þarna lágu þétt saman á svæði
sem er ca. 4x5 metrar og var á
þriðju alin niður á beinin.
Langholt er ekki kirkjujörð og
hefur þar ekki verið kirkja svo
menn viti. Hinsvegar hlýtur að
hafa verið þarna kirkja eða bæna
hús áður fyrr. Eiríkur bóndi
tjáði Mbl. í gær að hann væri
hættur að grafa þarna. Hygðist
hann moka yfir beinin aftur og
hætta «»ið að bywgja á bessum
stað.
gott tíðarfara í haust og bætir
það upp sumarið, en þá voru
fáir sólskinsdagar hér um slóðir.
Lík Val-
geirs
fundið
LIK Valgeirs Geirssonar
stýrimanns, sem fórst er
mb. Helgi Hjálmarsson
strandaði við Selvog á
mánudaginn, fannst í gær
í fjörunni við Eyrarbakka,
um fjóra kílómetra frá slys-
staðnum. Var það drengur
frá Eyrarbakka, sem fann
líkið.
Júníkuldar stóðu lengi og var
sumarið í heild eins óhagstætt
og frekast mátti vera.
Þótt haustið hafi verið gott
reynist fé með rýrara móti til
frálags.
Hér kemur það mjög sjaldan
fyrir að útigöngukindur komi
af fjöllum, enda lagt kapp á að
ganga heiffarnar vel. I haust bar
þó svo viff að vetrargamall hrút-
ur kom útigenginn af Búrfells-
heiffi, sem er eitt mesta snjóbæli
hér um slóffir. Þótti mönnum það
merkilegt að hann virtist hafa
gengið mjög vel undan og horn
in sýndu að hann hafði ekki lent
verulega í kreppu. — Benedikt.
Fjárlagaræðan
á þriðjudag
GUNNAR THORODDSEN
fjármálaráðherra mun halda
hina árlegu fjárlagaræðu á
þriðjudagskvöld og verður
henni útvarpaff eins og lög
segja til um.
Fékk að
sitja í
ÞAÐ er eklki á hverjum degi,
sem sjá má börn borin í bala
á götum Reykjavíkur. Það
gerðist samt í gær oig smellti
Sv. Þorm. ai myndavéiinni.
Móðir drengsins, sem heitir
Þórarinn, sagði, að hún væri
á leið til að skila balanum, og
hefði strákurinn óður og upp-
vægur viljað fá að sitja L
Forðaði slysi
Akranesi, 19. okt.
ÞAÐ lú við stórslysi hér á hafn-
argarðinum um daginn. Aðkomu-
maður brá sér hingað í bæinn til
þess að vera viðstaddur afmæli
föður síns og fór morguninn eftir
suður með Akraborginni. Mág-
kona hans ók honum í bílnum
sínum niðureftir. Sem betur fer
er hún snör í hugsun og skjót
til úrræða því að þegar á hafnar-
garðinn kom var mikil hálka,
sennilega af slori, og virkuðu
hemlarnir ekki sem skyldi. Þvi
fór bíllinn með bæði framhjól-
in útaf bryggjunni og mátti ekki
tæpara standa en að hann færi
fram af. Með snarræði sínu forð
aði konan þarna stórslysi.
•W
Eysteinn krefst 80 millj.
frá sparifjáreigendum
Hverjir eru efnahagsmdlasérfræðing ar Framsókar?
EYSTEINN JÓNSSON, for-
maður Framsókniarfl<K:ksins
hefur nú lagt fram tillögu,
scm studd er af komtr.únist-
um. um það, að vextir verði
lækkaðir og sparifjáreigend-
ur sviftir 78 millj. kr. á ári.
Þetta er framlag stjórnarand-
stöðunnar til efnahagsmál-
anna.
Ástæffa er til þess að spyrja,
hvaff efnahagsmálasérfræð-
ingar framsóknar segja um
þessar tillögur leiðtoga sinna.
Eru þetta e.t.v. tillögur þeirra
manna í Framsóknarflokkn-
um, sem leiðtogar hans telja
bera bezt skyn á efnahags-
mál? ,
Ástæða er ennfeemur till
þess að spyrja:
Hverjir eru þessir efnahags
n.ilasérfræðingar Framsókn-
arflokksins? Viðreisnarstefna
ríkisstjórnarinnar hefur haft
þau áhrif að sparifé lands-
manna er nú meira en nokk-
ru sinni fyrr í sögu þjóðar-
innar. Samtals nemur spari-
féð nú 3501 millj. kr. En :
næsta ári er gert ráð fyrir að
sparif járinnstæðan nemi að
meðaltali «m 3900 millj. kr.
ef jafnvægi helzt áfram í efna
hagsmálum landsmanna og
þjóðin heldur áfram að trúa
á grundvöll íslenzkrar krónu.
Leiðtogar Framsóknarflokks
ins vita að það er allur al-
menningur í landinu, sem á
spariféð í bönkum, sparisjóð-
um og innlánsdeildum. Engu
að síður hikar Eysteinn Jóns-
son ekki við að gera banda-
lag við kommúnista um að
krefjast vaxtalækkunar sem
fæli í sér stórkostlega árás á
sparsamast fólkiff í landinu.
Um þetta tiltæki þjóðfylk-
ingarmanna er nánar rætt í
forustugrein blaðsins í dag.
■w