Morgunblaðið - 25.11.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.11.1962, Blaðsíða 3
Sunnudagur 24. nóv. 1962 MoncrwnriwiÐ t Sr. Jénas Gíslason: Sandey er lagzt við festar. Skipið flytur sig með hjálp landfestanna, þar til rörin nema saman. (Ljósm. Sv. Þ ' Nýtt gull úr greipum Ægis SORG barnanna, sem á undan- förnum árum hafa haft sína Tjörn inni í Vatnagörðum, er mikil um þessar mundir. Það eru ekki líkur fyrir því, að þar leggi aftur skautasvell á næst- unni, ef nokkurn tíma. Björg- un h.f., sem um árabil hefur haft aðsetur sitt í Vatnagörð- um, og hafa gert þaðan út björgunarleiðangra, hafa nú gert staðinn að malargeymslu. Smám saman hafa malar- námur umhverfis bæinn geng- ið til þurrðar, og seinustu ár- in hefur mikið af því bygg- ingarefni, sem Reykjavík hef- ur þurft á að halda, verið sótt austur í Þorlákshöfn. Sandur- inn, sem nú er geymdur í Vatnagörðum, er hins vegar sóttur upp í Hvalfjörð, og síðar meir verður sótt bygg- ingarefni út á sjálfan Faxa- flóa. Skipið, sem sækir þetta gull í greipar Ægis, heitir Sandey. Það sækir í hverri ferð þús- und smálestir, og getur á hverj um sólarhring farið 4 ferðir. Skipið getur þannig flutt hing að álíka mikið byggingarefni og 80 til 100 tíu tonna bifreiðar geta annað að sækja austur fyrir fjall. Sandey hefur að undanförnú farið eina ferð á dag upp í Hvalfjörð. Hjá Hvalseyrisogar það í sig sandinum á innan við Hvað skyldi mamma hafa sagt, þegar þessi kom heim ? hálftíma, siglir til Reykjavíkur og losar sig hér við sandinn á tæpum klukkutíma. Bygging- arefnið er tandurhreint, þegar hingað er komið, enda er búið að þvo það úr lá.000 lestum af vatni. Sandinum er dælt þannig, bæði úr og í skipið, að það er látið berast með vatni, og krafturinn er svo mikill, að dælurnar geta rifið allt að 12 kg þungum stein- um upp af hafsbotni. Á staðn- í; Skyldl hann eiga eftir að finna upp fleira þessi? um, þar sem hefur verið unnið undanfarið, er búið að dæla 20 metra djúpa gryfju í botn inn, án þess að ennþá hafi orðið vart við fast undirlag. Þegar dælt er upp úr skip- inu, greinir vatnið, sem dælt er með, sandinn sundur eftir kornastærð, þannig að hægt er að ganga að pússningu og gróf ari sandi á sinn hvorum staðn- um. Börnin, sem sakna tjarnar- innar, hafa þarna í rauninni fengið nýtt leikfang. Þegar fréttamaður Morgunblaðsins kom þarna inn eftir í fyrra- dag biðu fjölmargir strákar eftir því að Sandeyin kæmi og losaði farm sinn. — Eruð þið ekki voðalega leiðir að það skuli vera búið að eyðileggja fyrir ykkur tjörn ina? spyrjum við þau. — Jú, það á víst að fylla upp tjörnina, og svo er hún strax orðin svo sölt, að það kemur enginn ís á hana leng- ur. — En er ekki gaman samt, þegar þið getið leikið ykkur í sandinum. — Jú, en það er svo sjald- an. Karlarnir reka okkur næst um alltaf í burtu, svo að við verðum ekki fyrir vélunum. — Hvað eruð þið að gera við þessar fötur? — Við notum þær, þegar verið er að dæla. Við vorum jafn nær, en ákváðum að bíða og sjá til. Sandeyin var komin inn fyrir Viðey, og tók nú stefnuna beint að landi. Nokkrir menn stóðu á palli, spölkorn úti 1 sjó, en hann er tengdur við Framh. á bls. 23. „Þá gengu faríseamir burt og og báru saman ráð sin um, bvernig þeir gætu flækt hann I orði. Og þeir senda til hans lærisveina sína, ásamt Heródesarsinnum, er segja: Meistari, vér vitum, að þú ert sannorður og kennir Guðs veg 1 sannleika og hirðir eigi um neinn, þvi að ekki fer þú að mannvirð- ingum. Seg oss þvi, hvað virðist þér? Leyfist að gjalda keisaranum skatt, eða ekki? En Jesús þekkti illsku þeirra og sagði: Hví freistið þér mín, hræsnarar? Sýnið mér skattpeninginn. En þeir færðu hon um denar. Og hann segir við þá: Hvers mynd og yfirskrift er þetta? Þeir segja við hann: Keisarans. Þá segir hann við þá: Gjaidið þá keis aranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er. Og er þeir heyrðu þetta, undruðust þeir, og þeir yfirgáfu hann og gengu burt.“ Matt. 22, 1&—22. „Hvers mynd og yfirskrift er þetta?“ Farisearnir ’bundust samtökum við erkifjendur sina, HeródeS' arsinna. Svo mikið þótti þeim við liggja að fá færi á Jesú. Þeir báru saman ráð sín, hvem- ig þeir gætu flæfet hann í orði. | Þess vegna 'koma þeir til hans , og haimpa framan í hann skatt- peningi. En Jesú þekkir hug þeirra. Hann þekkti tilgang spurning- arinnar. Þess vegna svarar hann með nýrri spumingu og sneri þannig árás þeirra gegn þeim sjálfum. Og spurning hans hittir í mark. Þeir skildu ekki strax, hvað hann var að fara, og fyrr en varði sátu þeir fastir í eigin neti. Þeir hötfðu bent á skattpen- inginn og spurt hann. Jesús benti á þá sjálfa og spurði um þá. Hvers mynd og yfirskrift ber llf yfefear? Faríseamir þóttust standa fremst í guðsdýrkun og góðum siðum. Og það var rétt varð- andi ytri breytni. En reynslan sýndi. að hún var aðeins ytri hjúpur, sem huldi þeirra innri mann. Jesús líkti þeim því við fealkaðar grafir, sem væru prýdd ar að utan, en hið innra fullar af dauðra manna beinum. Þeir voru eins og falsfeur peningur, sem virðist vera í fullu gildi, en er í rauninni verðlaus með öllu. II. En víkjum nú frá faríseunum til okkar sjálfra. Spurning Jesús d guðspalli dagsins á erindi við menn á öllum öldum. Hvers mynd og yfirskrift er þetta? Hverjum þjónar þú í lífi þínu? Hver mótar Hf þitt og starf? Við megum ekfei gley.ma því, að sjálfkrafa mótast líf ofefear I af mynd þess, sem við höfum | feosið að fylgja í lífinu. Helgar bækur kenna okfeur. að við séum í öndverðu skap- aðir í Guðs mynd, mennirnir. I árdaga bárum við því mynd hans og yfirskrift. Við vorum skapaðir til þjónustu við hann, fráteknir bonum til eignar. En Guð skapaði manninn ekfei sem þræl. Hann var frjáls í af- stöðu sinni til Guðs, varð að velja af tflúsum vilja. Og maðurinn sneri baki við Guði. Syndin komst inn 1 líf hans og gerði aðski’lnað milli hans og Guðs. Og um leið máði hún út mynd Guðs af manninum yfirskrift Guðs hvarf af Hfi hans. Maður- inn varð brottrækur frá Guði. Og í stað guðsmyndarinnar setti syndin svipmót sitt á mann inn. Hún bar ríkulegan ávöxt í I Hfi hans, spilling og vonzka vaknaði, þjáning og dauði hélt innreið sína. Þannig var ástatt í mannheimi, er Guð í fylling tímans sendi son sinn í heiminn, íklæddan mannlegu holdi. Hann átti að ávinna okkur aftur fyrir Guð. ljúika upp hliðum himins á ný. Til þess að þetta mætti takast, gaf Jesús Kristur Hf sitt á kross- inum. Hann, sem þá bar einn allra mynd Guðs í lífi sínu, tófe á sig af fúsum vilja soramark syndarinnar. Hann tók á sig hegninguna, sem við höfum til unnið með synd ofefear. Þar með var breitingin orð- in á ný í mannheimi. SMk er sú náð, sem Guð hefur búið okfe’ur í Jesú Kristi. Hann vill á ný gefa ofefeur mynd sína og yfirskrift. Og í fyrstu bernsfcu erum við einmiitt helguð Guði. Við erum möifeuð krosstákni bæði á enni og brjóst til vitnisburðar um, að við héyrum til hinum krossfesta og upprisna frelsara. Hann á að fá að móta lif okkar. Þetta er gjöf Guðs í skírninni. Og þá mætir okfcur, sem skírð erum þessi spurning: Hefur það orðið svo? Berum við merki krossins í Hfi okfear? m. Það hefði mátt ætla að mennirn ir hefðu tekið frelsaranum tveim höndum og fagnað yfir náð Guðs. Svo fer flestum, sem bjargað er úr bráðri hættu eða þræJkun. En svo hefur þó efeifci farið, því miður. Samtíðarmenn Jesú snerust gegn honum og hugðust losa sig við hann. Þeir neituðu að viðurkenna þörf sína á náð Guðs. Þeir neituðu að viðurkenna dóm hans yfir syndum sínum. Og hið sama sáum við raunar glöggt í dag, er við horfum yfir samtíð okfear. Það fer þvi mið- ur svo Mtið fyrir mynd Guðs og yfirákrift í samlífi mannanna. Líf okkar og verk ber svo oft öðrum herrum vitni, sem standa gegn vilja og boðum Guðs. Og þó tekst sumum enn sem faríseunum forðum að fela sinn innri mann, svo við höldum þeirn aUt annan veg farið en rétt er. Það er jafnvel ekki alltaf hægt að treysta því heldur, sem hefur fágað og fínt ytra borðið. Þá erum við Hfca eins og falsk- ur peningur, berum e.t.v. mynd góðleika og heiðarleika. en erum í rauninni fullir svika og öfund- ar hið innra. Það er til ráð til að sannprófa, hvort peningur er falskur eða ekta. Það er að láta peninginn detta. Þá heyrist á hljómi hans, hvers eðlis hann er. Hið sama lögmál gildir einnig í mannheimi. Það er oft þá fyrst, er maðurinn fellur, mætir erfið- leikum og raunum, að hægt er að sjá, hvað býr hið innra. Þá fellur ytra borðið af. Margt glæsi mennið verður þá Htilsiglt, en margur hóglátur maður og lítil- látur reynist vandanum vaxinn. Þannig er það einnig í afstöð- unni til Guðs. Jesús vill kalla ofekur til sjálfsprófunar í dag. Hverjum er Kf ofekar helgað? Farísearnir fundu sig dæmda af orðurn hans. Okkur fer á sama veg. En minnumst þá þeirr ar náðar. sem hann kom til að gefa okkur. Hann kom í heim- inn til að frelsa syndara, af því að við gátuim ekki frelsað okkur sjálfir. Er við finnurn vanmátt okkar og veikleika, megum við vita, að náðarfaðmur Guðs stend ur okkur opinn. Farísearnir gengu burt, er þeir fundu sig dæmda af spurn- ingu Jesús. Við skulum flýja til hans, er við finnum okfcur dæmd. Ef við leitum til hans, þiggjum náð hans og treystum honum, fáum við varðveitt mynd hans og icrift á iífi okkar. Jónas Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.