Morgunblaðið - 02.12.1962, Page 6
MORGUNBL AÐIÐ
Sunnu'dagur 2. desember 1962.;
UTGEFANDI:
EITSTJÓRAH: BIRGIR ÍSL. GUNNAHSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
VEIKGEÐJA
LVÐRÆÐISSIIMNAR
Blómlegt og vaxandi starf
Stefnis F.U.S. í Hafnarfiröi
„Landslögm
brjótum við,
ef við sjáum,
að stefnunni
er hagur í
því.“
Rauði fáninn
1930
SAGAN um það, hvernig
kommúnistum tókst að ná á
sitt vald löndum Austur
Evrópu og undiroka þær þjóð
ir, sem þar bjug^u, er í meg-
indráttum eins í öllum löndun
um.
Alls staðar voru þeir í mikl-
um minnihluta ncðal kjós-
enda og höfðu því enga von
til þess að ná völdum á lýðræð
islegan hátt. Sveit kommún-
sta í þessum löndum var hins
vegar harðsnúin og sveifst
einskis, ef þvi var að skipta.
I»eir höfðu að leiðarljósi sömu
reglu og íslenzkir kommúnist-
ar settu sér árið 1930 í mál-
gagni sínu „Rauða fánanum“,
er þeir sögðu: „Landslögin
brjótum við, ef við sjáum, að
stefnunni er hagur í því“.
Kommúnistar í Austur
Evrópu voru hinsvegar það
fámennir, að þetta eitt dugði
þeirr. ekki. Þeir urðu jafn-
framt að leita annarra ráða.
Tvær leiðir reyndust þeim
m.a. árangursríkar. Þeir
reyndu að ná tökum á verka-
lýðshreyfingunni og héldu
þeim völdum, sem þeir náðu,
með hreinu ofbeldi. Var þá
oft gripið til þess ráðs að
halda utan við allsherjarsam-
tök verkalýðsins samtökum,
sem kommúnistar vissu, að
voru þeim ekki hliðholl.
Þeir reyndu ennfremur að
notfæra sér lýðræðisflokkana
eins mikið og þeir gátu og
oftast gátu þeir spilað á ein-
hverja forystum.enn þeirra,
þegar mikið lá við og fengið
þá til fylgis við sig. Veikgeðja
lýðræðissinnar i þessum lönd-
um voru oft tilbúnir til sam-
vinnu við kommúnista, ef
þeir sá.u sér stundarhag í því.
En þessir menn lokuðu aug-
unum fyrir því að markmið
kommúnista var alltaf það
sama og allar aðgerðir þeirra
miðuðust við það eitt að ná
völdum. Með samvinnu við
komrr.únista voru þessir menn
því að grafa sina eigin gröf og
reyndar þjóðarinnar allrar.
Nú hafa þeir atburðir gerzt
á íslandi, sem minna alla
sanna lýðræðissinna á, að okk
ar þjóðfélag getur verið í
hættu á sama hátt og Austur
Evrópuþjóðimar voru á sín-
um tíma. Kommúnistar hafa
hér náð völdum í allsherjar-
samtökum launþega. Þeim
völdum eru þeir staðráðnir
í að halda og hika ekki við að
brjóta landslög, ef það er stefn
unni í hag. Þeir nota sömu
gömlu aðferðina, þ. e. reyna
að halda utan við samtökin
með ofbeldi launþegasamtök
um, sem samkvæmt landslög-
um eiga skýlausan rétt til
fullra áhrifa innan þeirra.
Hér á íslandi eins og í Aust-
ur Evrópu hafa kommúnistar
einnig fundið veikgeðja lýð-
ræðissinna, sem hafa fyrir
stundarhagsmuni svikið þjóð
sína og aðstoðað við ofbeldis
verk. Enginn ætlar Framsókn
armönnum það, að þeir vilji
leiða ógnarstjóm kommúnista
.jrfir íslendinga, en hitt er
víst, að setja má þá á bekk
með ýmsum lýðræðisflokkum,
sem á sínum tíma voru til í
Austur Evrópu og létu stund-
arhagsmuni sína ryðja komm-
únistum braut til valda.
Þeir atburðir, sem átt hafa
sér stað á Alþýðusambands-
þingi því, sem nú er nýlokið
ættu að verða öllum sönnum
lýðræðissinnum tilefni til að
staldra við og hugleiða, hvert
forystumenn Framsóknar-
flokksins með kommúnista í
broddi fylkingar eru að Ieiða
þjóðina. Framsóknarmenn
hafa nú staðið að því að þver-
brjóta íslenzk lög og virða að
vettugi dóma löglegs dómstóls
í landinu. Allt til að þjóna
stundarhagsmunum.
Slíkt atferli hljóta allir
sannir lýðræðissinnar að for
dæma og hinir almennu flokks
n-.snn Framsóknarflokksins
verða að taka í taumana og
korr<a í veg fyrir, að annar
stærsti stjórnmálafl. landsins
haldi áfram á þessari braut,
sem ómögulegt er að sjá fyrir
hvar endar. — B
Á Stefni fundinum
AÐALFUNDUR Stefnis, F.U.S. í
Hafnarfirði, var haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu 11. nóvember s.l.
Formaður félagsins, Árni Grétar
Finnsson, setti fundinn og skip-
aði Svein Guðbjartsson fundar-
stjóra og Vigfús Ævar Harðar-
son fundarritara.
Form. flutti skýrslu stjómar
fyrir liðið starfsár, en starfsemi
félagsins hefur verið með mikl-
uim blóma og félagsmenn eru
orðnir nær fjögur hundruð. í
fjarveru gjaldkera las Erlendur
G. Guðmundsson upp reikninga
félagsins er sýndu nærri 11 þús.
kr. tekjuafgang, og vom þeir
samþykktir einróma. Því næst
gáfu formenn hinna ýmsu nefnda
skýrslur sínar um liðið starfsár.
Það kom fram m. a. að málfundir
vom haldnir hálfsmánaðarlega
og vom ýmis mál tekin fyrir svo
sem sjávarútvegsmál, iðnaðarmál
og bæjarmál almennt og rædd af
félagsmönnum, sem sóttu þessa
fundi mjög vel. Bingó var spilað
hálfsmánaðarlega og var það
einnig sótt vel. Stefnis-kaffi var
afair vinsælt, komu þá Stefnis-
félagar og annað Sjálfstæðisfólk
saman á sunnudögum og dmkku
kaffi og ræddu ýmis áhugamál
sín á milli. Útbreiðslufundur var
haldinn fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingar. 12 Stefnisfélagar héldu
ræður, og var hátt á annað hundr
að manns sem sótfca þann fund.
Áirni Grétar Finnsson hafði fram-
sögu fyrir tillögum uppstillinga-
nefndar og var síðan gengið til
kosninga, voru tillögur nefndar-
innar allar samþykktar einróma
og fara þær hér á eftir.
FormaSur: Jens Jónsson.
Meðstjómendur: Birna Lofts-
dóttir, Erlendur Guðmundsson,
Magnús Guðjónsson, Reimar Sig-
urðsson, Þór Gunnarsson, Ævar
Harðarson.
Varastjóm: Egill Svanur Egils-
son, Elín Petersen, Matthías G.
Mathiesen.
Endurskoðendur: Björn Ólafs-
son, Gunnar Sigurðsson.
Trúnaðarráð Stefnis: Árni Gré'
ar Finnsson, Birgir Björnsso
Einar Sigurðsson, Einar Þ. Mat-
hiesen, Hersir Oddsson, Kristján
Loftsson, Matthías Mathiesen,
Ragnar Magnússon, Sigurdór Her
mundarson, Viðar Janusson,
Þórður Sigurðsson.
Málfundanefnd: Ari Jónsson,
Erlendur Guðmundsson, Friðrik
Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson,
Magnús Sigurðsson, Markús
Kristinsson, Ragnair Magnússon,
Rúnar Guðjónsson.
Skemmtinefnd: Kristinn Jó-
hannsson, Sigurjón Gunnarsson,
Skúli Þórsson, Stefán Ævar Guð-
mundsson, Svala Ó. Lárusdóttir,
Valur Guðmundsson, Ævar Harð-
arson.
Kvöldvökunefnd: Ástvaldur
Eiríksson, Birna Loftsdóttir, Egill
Svanur Egilsson, Ellert Eggerts-
son, Friðrik Sigurðsson, Matthías
G. Mathiesen, Þórður Sigurðsson,
Þuríður Þórarinsdóttir.
Ferðanefnd: Birgir Ólafsson,
Gils Stefánsson, Jóhann Guð-
mundsson, Rafn Guðmundsson,
Reimar Sigurðsson, Rúnar Guð-
jónsson, Sturla Haraldsson, Ulla
Magnússon.
Kaffinefnd: Erla Eggertsdóttir,
Ellert Eggertsson, Geirlaug I.
Guðmundsdóttir, Gullveig Sæ-
mundsdóttir, Karen Madsen,
I Kristín Haraldsdóttir, Kristín
Þorsteinsdóttir, Magnús Guðjóns
son, Matthías G. Mathiesen.
Tómstundanefnd: Egill Svsmur
Egilsson, Einar Ágústsson, Elín
Petersen, Hermóður Sigurðsson,
Hersir Oddsson, Hjalti Jóhanns-
son, Jón Karlsson, Lúðvík Gunn-
arsson, Magnús Magnússon, Er-
lendur Guðmundsson, Ragnair
Magnússon, Guðmundur Örn
Guðmundsson, Ægir Ellertsson,
Matthías G. Mathiesen, Rúnar
Guðjónsson, Sigurbjörn Jóseps-
son, Skúli Böðvarsson, Þorgeir
Bergsson, Þórður Sigurðsson,
Þórir Jónsson, Viðar Símonarson.
Kjördæmisráð: Árni Grétar
Finnsson, Einar Þ. Mathiesen,
Jens Jónsson, Reynir Eyjólfsson,
Sveinn Guðbjartsson, Þór Gunn-
arsson, Guðlaug Kristinsdóttir. —
Vararnenn: Erlendur Guðmunds-
son, Magnús Sigurðsson, Ragnar
Magnússon, Reimar Sigurðsson,
Sigurður Guðjónsson, Magnús
Guðjónsson, Rúnar Guðjónsson.
Að lokinni kosningu þakkaði
hinn nýkjörni formaður Jens
Jónsson, það traust sem honum
og meðstjórnendum hans hafði
verið sýnt og þakkaði fráfarandi
form., Árna Grétari Finnssyni,
sem nú baðst undan endurkosn-
ingu, fyrir það mikla starf sem
hann hafði unnið af mikilli ósér-
hlífni og miklum dugnaði fyrir
Stefni. Þá tók Matthías Á. Mat-
hiesen alþingismaður til máls og
þakkaði fráfarandi stjórn störf
hennar og bauð hina nýju vel-
komna.
Sagði hann að stjórnin væri
skipuð það dugandi mönnum, að
Stefnir þyrfti ekki að kvíða sínu
hlutskipti í framtíðinni. Því næst
talaði Árni Grétar og þakkaði
þau vinsamlegu orð sem hann
hafði fengið frá fundarmönnum
og árnaði nýkjörnum formanni og
stjórn heilla og blessunar í starfi.
Að lokum þakkaði Sveinn Guð-
bjartsson fráfarandi stjórn sam-
starfið og óskaði hinni nýju giftu
í starfi.
Síðan var fundi slitið.
Fundurinn var fjölmennur og
míkill áhugi ríkjandi fyrir
öflugu félagsstarfi.
Staða þingmanna í
bjóðfélaginu breytist
7 ÞAÐ ERU ýmis vandamál á
1 sviði stjórnmálanna, sem Bret
i ar velta nú fyrir sér önnur
l en Efnahagsbandalag Evrópu,
kjarnorkutilraunir eða önnur
slík mál, sem eru daglegt
fréttaefni blaða og útvarps.
Eitt þeirra mála, sem brezkir
ráðamenn og reyndar kjós-
endur líka velta nú fyrir sér
í stöðugt vaxandi mæli er
staða brezkra stjómmála-
manna í þjóðfélaginu. Er talað
unv, að bylting sé nú í vænd-
um í þessum efnum.
Það hefur verið hefð í brezk
I um stjórnmálum hingað til,
að þingmenn hefðu einhver
störf á hendi önnur en þing-
mennsku eða stjóramálastarf.
Hefur því verið haldið fram,
að þingmenn yrðu áfram að
gegna stöðum sinum í þjóð-
félaginu eftir að þeir hefðu
verið kosnir á þing. Með þvi
móti héldu þeir tengslum sin-
um við þjóðlífið betur en ella. .
Lítil hætta væri á því að þeir
gerðust atvinnumenn í stjórn-
málum, en það hafa Bretar
síður viljað um þingmenn sina
og hafa þeir talið, að með
þvi móti yrðu þingmenn of
háðir flokki sínum.
Með tilliti til þessa hafa
laun þingmanna í Bretlandi
verið mun lægri en gerist hjá
öðrum lýðræðisþjóðum t.d.
Bandarikjamönnum og hefur
mikill hluti launa þeirra far-
ið í ýmsan kostnað, t.d. skrif-
stofuhald, laun einkaritara
o.fl., sem þingmönnum er
nauðsyn að halda. Fullt lífs-
viðurværi hafa þeir þurft að
fá af öðrum störfum.
Samkvæmt upplýsingum 1
brezka blaðsins Observer hef- L
ur starfsskipting þingmanna í 2
brezka þinginu verið á þessa 7
Framhald á bls lil. I