Morgunblaðið - 04.12.1962, Page 5
Þriðjudagur 4. des. 1962
MORCUNBLAÐIÐ
5
MORGUNBLAÐIÐ hefur
snúið sér til fimm manna
og leitað svara þeirra við
þessum' spurningum:
Hvað tinnst yður?
1. Hvaða áhrif hafði myndin, ,,Á strÖndinni" á yður?
2. Álítið þér að slíkt, sem í myndinni er sýnt, gœti
í raun og veru gerzt?
3. Ætlið þér að lesa bókina, sem-myndin byggist á?
Fara hér á eftir svör þeirra.
3S0S ’
Jónas Halldórsson,
sundkennari
1. Mér fannst afar áhrifaríkt
, að sjá viðbrögð
Ifólksins, sem átti
| von á áhrifum
| þessa geisla-
f virka ryks.
2. Því ætti þetta
! ekki að geta átt
| sér stað. >að
| hefur sýnt sig að
! fjöldi manns hef
‘ ur yfirráð yfir
vopnum sem þessum, og
hver veit hvort þeir
ráða við þau. Þessu likt hef-
ur raunverulega oft gerzt, en
allir vona eðlilega að það
endiurtaki sig ekki með þessi
vopn.
3. Ég gæti bezt trúað að ég
gerði það eftir að hafa séð
myndina.
Sólon Sigurðsson,
nemi
1. Myndin hafði geysileg á-
hrif á mdg. Að mínum dómi
i er þetta einhver
I bezta mynd,
S sem hefur ver-
j ið sýnd um lang
an tíma, og ég
I varð undrandi
þegar ég frétti
! að því væri hætt
| Það er mjög
mikill og alvar-
1 legur boðskapur
í myndinni, og allt annað en
fagurt hvernig heimurinn er
umhorfs að loknu kjarnorku-
stríðL Sérstaklega var þó í
mér einhver óhiugur vegna
þess hve stutt er síðan menn
áttu þetta vofandi yfir höfði
sér.
2. Ég hafði það á tilfinn-
ingunni meðan ég sá mynd-
ina, en eftir á vil ég ekki
trúa því. Ég held að það sé
hæpið eins og gert er ráð fyr
ir, að eitt land eða heims-
álfa geti sloppið.
3. Ég hef mikinn áhuga á
að lesa bókina, því ég veit,
að myndin á mikið erindi til
allra.
Þorsteinn Björnsson,
fríkirkjuprestur
1. Þetta er að mér fannst
óvenju róleg og hæglát mynd,
MBS enda eru hin
; miklu stríðsátök
i um garð geng-
| in, þegar hún
Ibyrjar. En þeim
I mun hræðilegri
] er hún í sínu
| hæglæti. Því að
i áhrif þessara á-
taka er dauðinn
I sjálfur lætur líf
ið hverfa, en eftir standa borg
irnar auðar og tómar.
2. Já, ef hleypidómar og hið
undarlega pólitíska ofstæiki
fær að láða, eins og það hef-
ur gert að undanförnu. Hvaða
vit er að beita vopni, sem allt
líf drepur, eða að treysta á
slíkan djöfuldóm.
Óskar J. Þorláksson,
dómkirkjuprestur
1. Óneitanlega vakti þessi
mynd hjá mér alvöruhugsan-
|ir. Sú tilhugsun,
] að mannkynið
I geti búið sér þau
! örlög, sem þar
i eru sýnd er ekki
! uppörvandi. En
| því meiri nauð
i syn er að leggja
áherzlu á þann
boðskap og lífs-
’ stefnu, sem felst
í hinu tvöfalda kærleiksboð-
orði kristindómsins:
„Þú skalt elska Drottinn,
Guð þinn, af öllu hjarta þínu
og af allri sálu þinni og af
öllum huga þínum. Og þú
skalt elska náunga þinn eins
og sjálfan þig.“
2. Mér skilst að atomvísinda-
menn vorra tíma telji það vel
hugsanlegt, iað slikir atburð-
ir gætu gerst. Ef kristin trú
og siðgæði fær að ráða lífs-
stefnu mannanna tel ég ekki
að slíkir atburðir muni ger-
ast. En fái efnishyggjan yf-
irhöndina, þá hefur mann-
kynið brugðizt þvd trausti,
sem höfundur lífsins ber tií
þess og þá er ástæða til þess 1
að vera svartsýnn á fram- l
tíðina.
3. Ég hefi ekkert ákveðið
um það, en hygg þó að óg
muni gera það, er tækifæri
gefst.
Bækur, sem ræða alvöru
tímanna og vandamál fram-
tíðarinnar geta verið hollur
lestur.
Sigrún Guðjónsdóttir,
húsmóðir
1. Hún hafði ákaflega sterk
áhrif á mig. Myndin er reynd-
' ar dálítið ömur-
( leg, en hún vakti
■’*" s m a n n a ð
I minnsta kosti til
! umhugsunar. Ég
I sá hana á
i reynslusýning -
s unni rétt um
þær mundir
sem Kúbumálið
i stóð sem hæst
°g hún hefur ef til viU haft
enn meiri áhrif á mig fyrir
bragðið.
2. Ég held að það verði að
teljast staðreynd, að slíkt sem
þetta geti átt sér stað. Nátt-
úrlega vona allir að það geri
það ekki, en engu að síður
greip það mig þegar ég horfði
á myndina, að þetta gæti raun
verulega átt sér stað.
3. Ég hefði áhuga á að lesa
bókina, ekki hvað sízt af því
að mér er sagt að hún sé
jafnvel enn áhrifameiri en
myndin.
Oska eftir
forstofuherbergi, mjög
fljótlega, reglusemi og
hreinleg umgengni xyrir
miðaldra karlmann. —
Uppl. í síma 2452g.
I Til leigu
Einbýlishús á- góðum stað í
bænum til leigu frá n.k.
áramótum. Tilb. séndist
Mbl. merkt: „Einbýlishús
3756“.
BLÝ
keypt hæsta verði.
Ámundi Sigurðsson,
málmsteypa
Skipholti 23. Simi 16812.
[ MÓTASMÍÐI
Tilboð óskast í mótasmíði á
tvíbýlishúsi, sökklar og
botnplata komin.
Uppl. í síma 33526.
Bókageymsla
óskast, t.d. bílskúr eða
kjallari. Fyrirframgreiðsla
Uppl. í símum 23171 og
20330.
Róleg eldri kona
vill taka á leigu 1 herb.
og eldunarpláss á góðum
stað. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. kl. 9—6.30 í síma
20830.
4 herb. íbúð
til leigu strax. Aðeins
reglusamt fólk kemur til
greina. Fyrirframgreiðsla.
Tilboð sendist í pósthólf
564.
Ábyggileg kona
eða stúlka óskast til afgr.
1 vefnaðarvöruverzlun
hálfan daginn til jóla.
Sími 14616.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa í vefn-
aðarvöruverzlun í Vogun-
um, hálfan daginn í des.
Uppl. í síma 12977.
Til sölu
heimilisáhöld o. fl. lítið
notuð, vegna brottfl. af
landinu. Tilboð óskast sent
afgr. Mbl. merkt: „3763“.
um 70 ferm. kjallari og tvær hæðir á hitaveitu-
svæði í Vesturborginni til sölu.
Allt laust nú þegar.
INÍýja fasteignasalan
Laugavegi 12. — Sími 24300 og kl. 7,30
til 8,30 e.h. Sími 18546.
Aðalfundur
Aðalfundur í Samlagi Skreiðarframleiðenda verður
haldinn í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík fimmtu-
daginn 6. desember n.k. og hefst kl. 10,30 árdegis.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabrey tingar.
STJÓRNIN.
International 1958 (station)
sæti fyrir 8 manns, spili, drifi á öllum hjólum.
Tilboð í bílinn á Bílasölunni Laugavegi 90 þessa
viku.
Afgreiðslustúlka
Tekið á móti
tilkynningum
frá kl. 10-12 f.h.
Hafnarfjörður
+ Gengið +
27. nóvember 1962.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 120,39 120 69
1 Bandaríkjadollar .... 42,95 43.06
1 Kanadadollar 39,84 39,95
100 Danskar kr. ....... 821.67 623,27
100 Norskar kr. 601,35 802,89
100 Sænskar kr 830,30 832,45
100 Pesetar .. 71,60 71, ao
100 Finnsk mörk .. 13,37 13,46
100 Franskir £r. 876,40 878,64
100 Belgiski" fr. 86.28 86,50
100 Svissnesk. frankar 995,35 997,90
100 Vestur-þýzk mörk 1.071,80 1.074,56
100 Tékkn. krónur ^...^ 596,40 598,00
100 GyUini ............. 1.192,84 1.198,90
Söfnin
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúia
túm 2, opið dafe ega frá kl. 2—4 • I*.
nema mánudaga.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, sími
1-23-08 — Aðalsafnið JÞingholtsstræti
29A: Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga
nema laugardaga 2-7 og sunnudaga
5-7. — Lesstofan: 10-10 alla virka
daga 2-7. — Útibúið Hólmgarði .34:
Opið 5-7 alla virka daga nema laug-
ardaga og sunnudaga. — Útibúið Hofs
vallagötu 16: Opið 5.30-7.30 alla daga
daga nema laugardaga 10-7 og sunnu-
nema laugardaga og sunnudaga.
Þjóðminjasafnið er opið þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Tæknibókasafn iMSf. Opið alla
virka daag frá 13-19 nema laugardaga
frá 13-15.
Listasafn íslands er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 1.30 til 4 e.h.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
á sunnudögum og miðvikurdögum
frá kl. 1.30 til 3.30 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastrætl 74 er
opió priöjud., fimmtud. og sunnuaaga
trá kl. ] .30—4 e.h.
Ameríska bókasafnið, Hagatorgi 1,
er opið mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga, kl. 10—21, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 10—18. Strætisvagna-
ferðir: 24,1,16.17,
Afgreiðsla Morgunblaðsins
í Hafnarfirði er að Arnar-
hrauni 14, sími 50374.
Kópavogur
Afgreiðsla blaðsins í Kópa-
vogi er að Hlíðarvegi 35,
sími 14947.
★
Garðahreppur
Afgreiðsla Morgunblaðsins
fyrir kaupendur þess í Garða-
hreppi, er að Hoftúni við1
Vífilsstaðaveg, sími 51247.
Morgunblaðið
tekur á móti gjöf-
um til AlsirsÖfn-
unar Rauða
krossins
Fullorðin, áreiðanleg stúlka, sem hefir áhuga og
reynslu í verzlunarstörfum óskast til afgreiðslu- og
annarra verzlunarstarfa. Þarf að geta unnið að ein-
hverju leyti sjálfstætt. Tilboð með nauðsynlegum
uppl. sendist afgr. Mbl. sem allra fyrst, merkt:
„Afgreiðsla — 3760“.
Sendisveinn
óskast nú þegar eftir hádegi.
I. Brynjólfsson & Kvaran
Franskir — Hollenzkir
KVENSKÓR — TELPNASKÓR —
KARLMANNASKÓR — DRENGJASKÖR.
Laugavegi 63