Morgunblaðið - 04.12.1962, Side 15
f>riðjudagtxr 4. des. 1962
MORGUNBLAÐ1Ð
15
L * 'ítSt&SSí& , ' WKSsa.
Anthony Perkins, Gregory Peck og Fred Astaire fylgjast úr
fylgsnum kafbáts með geislunarmagni á gjöreyddu norður-
hveli jarðar.
Pétur Olafsson:
Jí uilzmiýnclcLócil
Á STRÖNDINNI.
(On the Beach; bandarísk;
Austurbaejarbíó).
Leikstjóri:
Stanley Kramer.
Skáldsagan Á ströndinni eftir
Nevil Shute er heimskunn, ekki
sem sérstakt bókmenntalegt af-
rek, frekar sem sérlega tímabær
aðvörun til þroskuðustu og hættu
legustu skepnu jarðarinnar,
Homo Sapiens, sem hefur náð svo
miklu valdi yfir umhverfi sínu,
en ekki sjálfri sér, að maður sem
þrýstir á hnapp, er þess megnug-
ur að kveikja vítiseld sem sleikt
getur svokallaða kórónu sköpun
arverksins af yfirborði jarðkúl-
unnar í einu vetfangi, eins og
mauraætan sleikir upp í sig skor-
dýrin af mauraþúfunni.
Á ströndinni, sem kvikmynd er
einhver ógnþrungnasta aðvörun
til mannkynsins, sem á kvik-
myndatj aldinu hefur sézt. Hún
er ómenguð áróðursmynd gegn
þeirri vitfirringu sem lýsir sér
í því, að tvenn andstæð öfl í heim
inum eru undir það búin að út-
rýma hvort öðru, þótt það kosti
örugglega sjálfstortímingu. Og
hann er skammt undan sá tími
sem þessari framtíðarmynd er
ætlað að gerast á: Janúar 1964.
Kjarnorkustyrjöld hefur geisað á
norðurhveli jarðar og þurrkað
allt lifandi af yfirborði Evrópu,
Ameríku og Asíu. Aðeins á suð-
urhvelinu, Ástralíu, er ennþá líf.
En yfir því lífi vofir einnig tor-
tímingin. Helský munu brátt ber
ast í suðurátt og þá mun geisla-
verkunin smám saman sýkja leif-
ar deyjandi mannkyns. Það er
um þessar síðustu vikur og daga
mannkynsins sem kvikmyndin
fjallar og viðbrögð nokkurra ein-
staklinga gagnvart yfirvofandi og
óhjákvæmilegum dauðdaga.
Leikstjórinn Stanley Kramer
sýnir engar sprengingar, engar
rústir, ekki eitt lík. Samt tekst
honum að vekja ógn og sýna af-
leðiingar eyðingarstríðsins. Geig
vænleg tilfinning vaknar þegar
horft er í gegnum sjónpípu kaf-
báts á hreyfingarlaus og mann-
auð stræti San Fransisco, eða
þegar borgararnir safnast í bið-
raðir til að veita viðtöku sjálfs-
morðspillum til að stytta dauða-
stríðið. Engin kvikmynd hefur
haft jafn geigvænlegt lokaatriði,
þar sem borði Hjálpræðishersins
blaktir í vindinum yfir þöglum og
yfirgefnum götunum, með áletr-
uninni: Það er enn tími til stefnu,
bróðir.
Það sem aðfinnsluvert er í
myndinni, sem er langt frá að
vera gallalaus, er hvað sumar
persónur hennar eru ósannfær-
andi og snerta mann lítt. Skyssa
Kramers er að ætla sér að gera
myndina einnig sem skemmti-
mynd, að blanda ósannfærandi
rómantík saman við þessa þrúg-
andi heimsmynd. Það sem í mynd
ina vantar er lifandi persónur,
ekki Hollywoodbrúður. Þótt farð
inn dylji ekki lengur hrukkurnar
í andliti Övu Gardner og Gregory
Peck stari þungbrýndur út í blá
inn, er erfitt að ímynda sér að
þetta séu manneskjur, sem horf-
ast í augu við síðustu augnablik
lifsins. Einnig vaknar efi um
hvort viðbrögð manna yrðu jafn
róleg og æðrulaus, sem lýst er í
myndinni, ef þeir horfðust 1 augu
við dauðann. Sterkasta hvöt
mannsins er lífshvötin, og efa-
laust mundi hún hafa yfirhöndina
fram til síðustu stundar.
Beztan leik í myndinni sýnir
Fred Astaire, hinn léttfætti dans
meistari, í fyrsta alvarlega hlut-
verki sínu, en einhvern veginn
finnst mér, að hinn annars ágæti
leikari Anthony Perkins, eigi ekki
heima í hlutverki sínu. Myndin
er mjög vel kvikmynduð af ítal-
anum Giuseppe Rottunno.
Á ströndinni er baráttumynd,
áróðursmynd, og nýskeðir atburð
ir sýna að hlutir slíkir sem hún
sýnir hefðu getað og geta hvenær
sem er orðið að veruleika meðan
umburðarleysið ríkir í heiminum.
Þessi kvikmynd varðar okkur öll.
Pétur Ólafsson.
— Bókaþáttur
Framhald af bls. 13.
sviði, sýnir hann í rauninni að-
eins einu sinni. Það er þegar
hann lýsir samfundum þeirra
Eyjólfs bónda á Sólheimum í
Laxárdal í Strandasýslu, en Eyj-
ólfur var einn skuldugasti við-
skiptavinur Kaupfélags Hrút-
firðinga. Samtal höfundar við
Eyjólf og lýsingin á svipbrigðum
hans og augnaráði, er með á-
gætum og sýnir, að mikill mann-
þekkjari býr í Pétri Sigfússyni.
Og ég hugsa með mér: Það hefði
verið verulega ánægjulegt og
uppbyggilegt að lesa þessa bók,
ef fleira hefði í henni verið af
þessu tæi, en þarna er eitt dæmi
þess, hve tilsvör manns, svipur
hans og framkoma á sérstæðum
stundum, lýsa honum miklu bet-
ur en langar og ýtarlegar um-
sagnir — og vil ég benda öðrum
ævisagnariturum á að festa sér
þetta í minni. Dagbókarbrotið,
sem Pétur Sigfússon birtir,
þegar hann hefur lýst samfund-
um þeirra Eyjólfs, sýnir glögg-
lega, að hann hefur skilið mæta-
vel þennan sérstæða, djarfa,
hugkvæma og ef .rtektarverða
mann. Ég hygg, að lesendur þess-
ara minninga hefðu grætt drjúg-
um á því, ef Pétur hefði birt
meira úr dagbók sinni en raun
ber vitni. Þar hefur hann trú-
lega sagt í einrúmi margt for-
vitnilegt um sig og samferða-
mennina, og í rauninni virðist
hann ekki skorta einurð til að
vera skorinorður, þar sem það
dettur í hann.... En hvað sem
öðru líður, er vinningur að kynn-
unum af höfundinum sjálfum —
lesandinn er áreiðanlega ekki í
félagsskap neins misyndismanns,
meðan hann fylgir Pétri Sigfús-
syni.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Afgreiðslustjóri
Yfirafgreiðsludama eða karlmaður óskast í stóra
bókaverzlun. Hátt kaup. Umsóknir er tilgreini
menntun, aldur og fyrri störf, ásamt mynd, sendist
afgr. Mbl. merkt: „Bókaverzlun — 3104“.
Vörubifreið
Notuð 2V2 — 4 tonna óskast strax til kaups.
Upplýsingar í síma 10734 eftir kl. 5 í dag og morgun.
Leðurtöskur
Tösku 09 hanzkabúðin
við Skólavörðustíg.
e.a.berg!
Verkfærin
sem endast
SLÁTURHNIFAR
• vandaðir hnifar
I sérflokki
BERG .
SPORJÁRN
BERG'*
M BOLTAKLIPPUR
a :|i
1 ^ £
m ji!
:i:!:S
ÍSI; Agætur
:|:|:|i eldhúshnifur
IvS
•ss»
íxll
$i$ BERG’»
|Í|I||| KOMBINASJÓNS-TENGUR
BERG'*
BIT.TENGUR
Umboð: ÞORÐUR SVEINSSON & CO. H.F.
Kúlupennar
eru sænsk gæðavara
+ Stórt og vandað blekhylki.
^ Létt og jöfn skrift.
+ Blek-kúla, sem er nýjung
á heimsmarkaðinum.
^ Blek, sem fölnar ekki.
+ Skrifar um leið og oddur-
inn snertir pappírinn.
-frjid 'fSar&Cct-j-r « /-
Verð frá kr. 35,00
Heildsala: Þórður Sveinsson & Co. h.f.